Dagur - 13.05.2000, Side 2

Dagur - 13.05.2000, Side 2
2- LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 FRÉTTIR L Unglingaherbergi eru oft eldMstur „Svona herbergi eru út um allan bæ og full ástæða til að grípa til ráðstaf- ana“, segir Helgi íEldverki. Um 3 eldsvoðar verða á íslenskum heimilum á degi hverjum auk tveggja vatnstjóna og eins innhrots. Um 1.000 eldsvoðar og 700 vatnstjón verða á heimilum landsmanna á ári auk þess sem hrotist er inn á um 300 heimili. „I nútíma unglingaherbergjum er stórkostleg eldhætta," segja ör- yggistalsmenn VIS sem tóku unglingaherbergið sérstaklega fyrir við kynningu nýs þáttar í for- varnarstarfi félagsins, svokallað Oryggisnet VIS. A sama tíma og innbú íslenskra heimila eru stöðugt að verða verðmætari og tæknivæddari, þar sem tölvum og alls kyns rafmagnstækjum fjölgar jafnt og þétt sitja, hins vegar kaup á öryggistækjum á hakanum þannig að tjónum fjölgar. „Islensk heimili eru mörg vanbúin varð- andi öryggistæki, einkum af hugs- unarleysi. Allt of margir ranka ekki við sér fyrr en tjón hefur orð- ið‘‘, sagði Hjördís Harðardóttir frá VIS. Hún telur m.a. þörf á miklu fleiri reykskynjurum, helst í hvert herbergi og einnig raka- og vatns- skynjurum. Og gleyma ekki að skipta árlega um batteríið. 3 bnrnar og 2 vatnstjón á dag Hún sagði að tryggingafélögunum berast tilkynningar um a.m.k. 3 brunatjón á heimilum á dag, eða um 1.000 á ári, um 700 vatns- tjón, eða kringum 2 á dag og um 300 tilkynningar um bótaskyld innbrot. Að brunatjón hafa færst í vöxt er ekki síst vegna fjölgunar rafmagnstækja í einstökum her- bergjum, einna oftast í sjónvarps- tækjum. í því samhengi er bent á að á mörgum heimilum séu ungl- ingaherbergi nú orðnar sannkall- aðar eldkistur, þvf þar sé að finna fjölmörg rafmagnstæki, oft m.a. gömul sjónvarpstæki úr stofunni sem safnað hafa ryki árum og jafnvel áratugum saman og geta því verið stórhættuleg sé ekki slökkt alveg á þeim, þ.e. straum- urinn rofinn. Eldkistui út um allan bæ Helgi Guðmundsson frá Eldverki fór í gegn um aðrar eldhættur í dæmigerðu strákaherbergi. Þar eru oft „græjur“ og tölva. Bæði tölva og skermur séu heit og geti því t.d. kveikt í fötum sem hent er í hugsunarleysi á slík tæki og lampa. Ævagömlu vídeótæki sem strákur hafi fengið við endurnýj- un á heimilinu væri rétt að henda. OIlu tækjadótinu fylgi leiðslur í flækju út um allt með ótal millistykkjum. „Spreybrúsa“ sem sumir strákar noti á síðkvöld- um segir Helgi hreinar „sprengj- ur“ sem ekki ættu að vera í her- bergjum. Og sé strákur farinn að reykja megi reikna með að inni- hald öskubakkanns sé losað í bréfakörfuna. „Svona herbergi eru úti um allan bæ og full ástæða fyrir foreldrana að grípa til sérstakra ráðstafana, m.a. að setja upp reykskynjara og kenna strák hvernig hann á að forða sér út ef skaðinn skeður," sagði Helgi. Það sama á auðvitað við um önnur herbergi hússins. Ókeypis heimsending Oryggisnet VIS er póstverslun með öryggisvörur í samstarfi við Eldverk, sem viðskiptavinir VIS geta pantað hvenær sem þeim dettur í hug og fengið heimsend- ar ókeypis, en aðrir þurfa að borga sendingarkostnaðinn. - HEl Efnistaka úr álum Eyjafjarðarár upp við Leiruveg. Efnistaka afþessu tagi er hins vegar bönnuð í friðiandinu. Vilja taka sandí Mðlandinu Bjarni Kristjánsson sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit hefur fyrir hönd sveitarstjórnar óskað eftir viðræðum við Akureyrarbæ um það að cndurskoðuð verði ákvæði sem kveða á um að ekki sé hægt að stunda jarðefnatöku eða sandtöku í friðlandinu f ósum Eyjafjarðarár. Fram kem- ur í erindi Bjarna að algjört bann við þessari efnistöku úr ál- unum innan Leiruvegar hafi sætt nokkurri gagnrýni meðal landeigenda sem telja að þarna sé um endurnýjanlega auðlind að ræða, en sandurinn sé fram- burður árinnar. Þeir hafa því sett fram óskir um að þetta verði endurskoðað og efnistaka heim- iluð innan einhverra skýrra tak- marka og reglna og er sveitar- stjórnin sammála þeim í því. Er- indi Eyjafjarðarsveitar var í gær vísað af bæjarráði til umhverfis- nefndar. Sem kunnugt er er fugla og dýralíf einstakt á þessu svæði og er það ástæða þess að þarna var komið á fót friðlandi. EFA kaupir öll bréf í Kaupási Nóatúnsverslanirnar eru nú komnar í hendur nýrra aðila eins og aðrar verslanir Kaupáss. Næst stærsta verslim- arkeðja laudsins hef- ur verið seld Eignar- haldsfélagi Alþýðu- hankaus. Gylíi Am- bjömsson segir menn taka einn áfanga í einu. Eignarhaldsfélagið Alþýðuban- inn hefur gert tilboð í öll hluta- bréf Kaupáss hf. og hafa núver- andi eigendur samþykkt tilboðið. Kaupás hf. er næststærsta versl- unarkeðja landsins og rekur verslanirnar Nóatún, KA og 11- 11, sem eru alls 44 talsins. Velta Kaupáss á síðasta ári var 10 milljarðar en búist er við að hún aukist um allt að þrjá milljarða á þessu ári. Markmið EFA með tilboðinu er að mynda hóp fjárfesta sem saman mundu standa að skrán- ingu Kaupáss hf. á næsta ári. Til- boðið er skilyrt af EFA hálfu og mun endanleg niðurstaða liggja fyrir síðar í mánuðinum. Fram til þess tíma vcrður unnið að kost- gæfnisúttekt á félagínu samhliða því að EFA mun hefja viðræður við væntanlega þátttakendur í þessum kaupum. Að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, framkvæmdastjóra EFA, hefur félagið enn ekki fengið fleiri þátttakendur í þessi kaup sem koma myndu fyrirtækinu á markað á seinni stigum. Einn áfangi sé hér tekinn í einu. Hann segir það þó vera sitt mat að hér sé um að ræða spcnnandi fyrir- tæki, enda hafi Kaupás spjarað sig vel og vera raunverulegt mót- vægi við önnur fyrirtæki á dag- vörumarkaði. Þegar blaðið hafði samband við forustumenn Kaupfélags Eyfirðinga og til að forvitnast um hvort Matbær hf. hlutfélagið um verslunarrekstur Kaupfélagsins væri í bakhópi sem hefði áhuga á að koma að kaupum á Kaupási af Eignarhaldsfélaginu, fengust þau svör að þar á bæ hefðu menn fyrst frétt af þessum kaup- um í hádegisfréttum útvarps í gær. Að öðru Icyti vildu menn ekkert tjá sig um þetta mál að svo stöddu. Einar Már í framkvæmdastjóm Þingflokkur Samíylkingarinnar ákvað í gær að tilefna Einar Már Sigurðsson, þingmann flokksins úr Austurlands- kjördæmi, sem sérstakan fulltrúa þingflokksins í framkvæmdastjórn Samiýlkingarinnar. Einar Már verður fyrsti fulltrúi þingflokksins í framkvæmdastjórn- inni, enda var þetta fyrirkomulag ákveðið á nýafstöðum stofnfundi Samfylkingarinnar. Ásamt Einari Má eiga því sæti í framkvæmdastjórninni Össur Skarphéðinsson, Margrét Frí- mannsdóttir, Steinunn Valdís Óskars- dóttir, Eyjólfur Sæmundsson, Ágúst Einar Már Sigurðsson. Einarsson, Katrín Júlíusdóttir, Ari Skúlason, Jóhann Geirdal, Ása Richardsdóttir, Mörður Árnason og Sigrún Benediktsdóttir. — fþg Sagnakvöld Skota, Ira og Vestlendinga Frásagnarlist f fremstu röð verður á dagskrá í Reykholti í dag, Iaugar- dag. Þar munu sagnamenn af Vesturlandi ásamt góðum gestum frá Skotlandi og Irlandi koma fram. Um er að ræða „Sagnakvöld Skota, íra og Vestlendinga“ sem verður haldið í nýjum samkomusal í norð- urálmu gamla Héraðsskólans. Sagnamennirnir eru þeir David Camp- bell, Skotlandi, Magnús Sigurðsson, Gilsbakka, Claire Mulholland, Norður írlandi, Bjartmar Hannesson, Norður-Reykjum, Sigrfður Þor- stcinsdóttir frá Giljahlíð, Sr. Geir Waage, Reykholti, Sr. Árni Pálsson, fyrrv. prestur Borg á Mýrum, Bjarni Guðmundsson, Hvanneyri. Þór- unn Gestsdóttir, sveitarstjóri Borgarfjarðarsveitar mun setja samkom- una og kynnir verður Jósep H. Þorgeirsson, Akranesi. Sagnakvöldið er liður í Leonardo Evrópuverkefninu „Storytelling Renaissance". Markmið þess er að vekja athygli á svæðisbundnum sögum og sagna- hefð til nota í ferðaþjónustu, skólum og víðar. Samtök sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi styðja verkefnið sem nýtist sérstaklega til upp- byggingar á menningartengdri ferðaþjónustu á Vesturlandi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.