Dagur - 13.05.2000, Blaðsíða 5

Dagur - 13.05.2000, Blaðsíða 5
Ða^ur LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 - S Magnús Kjartansson frá Félagi tón- skálda og textahöfunda afhendir Rafni Jónssyni styrkinn góða. MYND: - PJETUR. Tónskáld veita styrki Félag tónskála og textahöfunda afhenti í fyrrakvöld fjórum fé- lagsmönnum sínum ávísun á styrki að upphæð hálfa milljón króna vegna verkefna sem þeir eru að vinna að. Þeir sem styrk- ina fá eru þeir Friðrik Karlsson gítarleikari, Sigurður Flosason saxafónleikari, Ragnheiður Ei- ríksdóttir söngkona Ununar og Jón Ólafsson píanóleikari. Styrkirnir verða greiddir út að helmingi þegar verkefni þessara tónlistarmanna eru komin á rek- spöl en afgangurinn þegar þau eru fullunnin. Þá fengu þeir Torfi Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon styrki að upphæð 100 þúsund krónur, sem greidd- ir verða með sama hætti. Þá var á fundi FTT í fyrrakvöld kynnt stofnun svonefnds Rabba- sjóðs, en höfuðstóll hans eru 700 þúsund krónur. Hann er ætlaður til styrkar Rafni Jónssyni tónlist- armanni sem lengi hefur barist við MND sjúkdóminn - og í fyrrakvöld var Rafni greidd hálf milljón króna úr sjóðnum. - SBS. Markaðssetning utan háannatíma. Samtök ferðaþjónustu. Gátt- uð á tiUögu um eiua flugbraut. Markaðssetning ferðaþjónustu á landsbyggðinni utan háannatíma getur verið miklum erfiðleikum háð ef danska tillagan um eina flugbraut á Reykjavíkurflugvelli nær fram að ganga, að mati Samtaka ferðaþjónustunnar. Samtökin telja hættu á að flug- ferðir verði ekki jafn tíðar frá borginni og út á land vegna þeir- ra takmarkana sem ein braut bíður uppá vegna flugöryggis og veðuraðstæðna. Það mundi svo bitna á ferðaþjónustunni og hafa neikvæð áhrif á afkomu hennar á landsbyggðinni. Rúist er við að flugnefnd Samtaka ferðaþjón- ustu muni funda um þetta mál innan skamms. Ótryggara flug Mikil uppbygging hefur átt sér stað í ferðaþjónustu víða á lands- byggðinni að undanförnu og m.a. í byggingu hótela. Hinsveg- ar hefur nýting þeirra ekki verið sem skyldi utan háannatímans og því hefur verið lögð áhersla á Flugvallarmálin í Reykjavík hafa mikil áhrifá ferðaþjónustuna úi um land. að reyna að auka hana eins og kostur er með sérstöku mark- aðsátaki. Ema Hauksdóttir fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar segir að menn séu alveg gáttaðir á því og mjög undr- andi að ekki hafi verið talað við flugrekstraraðila vegna þessa máls. Hún bendir einnig á að það sé algör forsenda að minnst tvær flugbrautir séu á Reykjavík- urflugvelli til að uppfýlla þá ör- yggisstaðla sem flugfélög setja sér. Með einni braut sé ljóst að flug muni falla oftar niður en ella. Hún telur því að borgaryfir- völd hljóti að taka til endurskoð- unar tillögu um eina braut. I það minnsta vill hún ekki trúa því að þessu verði hrint í framkvæmd í trássi við vilja flugrekstraraðila og þá sérstaklega út frá öryggis- jónarmiðum. Þá telur Erna að innanlandsflug í núverandi mynd mundi hreinlega leggjast af ef miðstöð þess yrði flutt til Keflavíkurflugvallar. Hún áréttar þá skoðun aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar að Reykjavík- urflugvöllur verði áfram þar sem hann er og nauðsyn þess að við- halda honum með tilliti til allra öryggisjónarmiða. - GRH FRÉTTIR Ferðaþjónusta úti á landi í hættu Midborgarstj óm fór til Bretlands Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. Miðborgarstjóm leit- ar í smiðju Breta. Kynnisferð til fjög- urra borga. Óþarft að allir geri sömu mis- tökin. Miðborgarstjórn Reykjavíkur og embættismenn borgarinnar fóru til Bretlands í vikunni til að kynna sér reynslu og sjónarmið þarlenda við stjórn og uppbygg- ingu miðborga. Heimsóttar voru fjórar borgir, Aberdeen í Skotlandi, Oxford, Reading og Northampton á Englandi, auk höfuðstöðvar miðborgarstjórna í London. AIls voru í förinni hátt í tugur manna með borgarstjóra í broddi fylkingar. I ferðinni hittu þau m.a. borgarstjóra Aberdeen og Northampton en þó ekki Ken Livingstone nýkjörinn borgar- stjóra í London, enda ekki á dag- skránni að leita í smiðju stór- borgarinnar um miðborgarmál- efni hennar. Læra Jjað besta 1 viðtali við BBC í gærmorgun sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri m.a. að tilgangur ferðarinnar hefði verið að læra það besta sem þarlendir hafa gert í málefnum sinna miðborga, enda óþarfi að allir séu að gera sömu mistökin. Kristín Einars- dóttir framkvæmdastjóri mið- borgarstjórnar segir að hópurinn hafi einnig kynnt sér hvernig þessar borgir hafa staðið að því að fá fjárfestingu inn í sínar mið- borgir og hvaða aðferðum hefur verið beitt í þeim efnum. í Ox- ford vakti athygli að þar hafa borgaryfirvöld nánast úthýst bíl- um úr miðborginni yfir miðjan daginn. Bifreiðaeigendur geta þó keyrt í gegnum miðborgina en ekki lagt bílum sínum nema í nokkur skammtímastæði. Krist- ín segir það almenna stefnu Englendinga að draga sem mest úr umferð bíla um sínar mið- borgir en auka vægi almennings- samganga. Hún segir að mark- mið og stefna borgaryfirvalda og miðborgarstjórnar sé að efla miðborgina sem mest, enda sé hún hjarta borgarinnar. Allt mið- ar þetta að því að gera borgina samkeppnishæfa við útlönd. - GRH Sauðburður í sveitum Sauðburður í sveitum landsins er vorboði, en hann stendur nú sem hæst. Þessi mynd af ánni tví- lemdu var tekin við Úlfljótsvatn í Grafningi um helgina - og í mak- indum mestu voru bæði ær og lömb - grunlaus um að líklega verður slát- urhúsið hlutskipti þeirra í haust. Jámiðnaðarmenn samþykktu Félagsmenn í Félagi járniðnarðmanna hafa samþykkt nýjan kjara- samning. Niðurstöður lágu fyrir í póstatkvæðagreiðslu þeirra síðdeg- is í gær. 65% þeirra sem greiddu atkæði samþykktu samninginn, en 34% voru á móti. Þátttakan var 34%. Tilraunaflug til Siglufjarðar Undirritaður hefur verið samstarfesamningur milli Siglufjarðarbæjar og Islandsflugs af Guðmundi Guðlaugssyni, bæjarstjóra, og Omari Benediktssyni, framkvæmdastjóra, um tilraunaverkefni í áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Sigluljarðar. Samningurinn gildir til 1. júlí nk. Tilraunaverkefnið er hugsað til að kanna rekstrargrundvöll breytts forms áætlunarflugs frá því sem verið hefur með beinu flugi tvo daga vikunnar þar sem horft er til mögulegrar aukningar farþegafjölda í tengslum við helgarferðir. Jafnframt þessu verða flognar tvær flug- ferðir í viku með tengingu við kvöldflug til Sauðárkróks og því sam- tals fjórar ferðir í viku. Fyrsta flugið samkvæmt samningnum verður fimmtudaginn 18. maí nk. - GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.