Dagur - 03.06.2000, Qupperneq 5
í. u j í: i t ii \ . f h u o í. u h f. vi i l j - Þ
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 - S
„Kukl og misnotkim
í þágu kristniimar“
Sjónvaxpsstjóri
Omega segir að
kynhneigð homma og
lesbía sé í 98% til-
vika ásköpuð. Kukl og
misnotkun segir
talsmaður Samtak-
anna ‘78
Eiríkur Sigurbjörnsson, sjón-
varpsstjóri Omega, segist bjart-
sýnn á að hafa betur í ákæru
Samtakanna ‘78 á hendur hinni
kristilegu sjónvarpsstöð. Homm-
ar og lesbíur telja að stöðin hafi
nítt samkynhneigða niður f
þremur sjónvarpsþáttum í maí
og er meðal annars tekist á um
notkun orðsins „kynvillingur".
Eiríkur segir að kynvillingur sé
gott orð og lýsandi. I 98% tilvika
sé samkynhneigð homma og les-
bía ásköpuð.
„Við erum að fá stuðningsyfir-
lýsingar héðan og þaðan vegna
þessa máls og ég er bjartsýnn á
að við sigrum. Þessi dagskrá okk-
ar var send út í tilefni frumvarps
um ættleiðingu barna hjá sam-
kynhneigðum. Við vorum meðal
annars með vitnisburð frá þrem-
Eiríkur Sigurbjörnsson: „Lffsstíll
homma ekki í takt við orð guðs.“
ur fyrrverandi hommum og lesb-
íum sem höfðu frelsast, losnað
undan þessu og byrjað nýtt líf.
Okkar tilgangur var ekki að níða
þetta fólk. Þetta fólk er ekkert
verra en hvert annað, lífsstíll
þeirra er bara ekki í takt við guðs
orð,“ segir Eiríkur.
Umdeild auglýsing
Þættirnir sem tekist er á um voru
sýndir 7. maí, 13. maí og 14.
maf. Þar var talað um kynvillinga
og komið með rangar tölur um
stuttlífi samkynhneigðra skv.
Þorvaldur Kristinsson: „Refsiverður
rógburður."
talsmanni Samtakanna '78.
Ennfremur kom fram umdeild
auglýsing á námskeiði með út-
lendum fræðimönnum, þar sem
m.a. átti að kenna fólki að losna
undan samkynhneigðinni.
„Námskeiðin um „kynvillupúk-
ann“ voru ekki á vegum Omega
heldur sjálfstæð hjá útlenskum
kennurum,“ segir Eiríkur. Trúir
hann því að hægt sé að breyta
kynhneigð á námskeiði fyrir
15.900 kall? „Ég vitna í viðtöl við
aðila sem losnuðu undan þessari
hneigð. Rannsóknir sýna að í
98% tilvika sé um áskapaða kyn-
hneigð að ræða.“
Ofstæki
„Þetta er kukl og misþyrmingar í
nafni kristinnar trúar og
múgsefjunar," segir Þorvaldur
Kristinsson, formaður Samtak-
anna '78 um þessar kenningar.
Hann telur að þessar svokölluðu
„rannsóknir“ séu hluti af vinnu-
brögðum hægri sinnaðra krist-
inna ofstækismanna. Málflutn-
ingur þeirra sé algjörlega á skjön
við vísindalegar rannsóknir og
hvergi viðurkenndur af háskóla-
stofnunum heimsins.
Þorvaldur segir að orðið kyn-
villingur hafi klárlega niðrandi
merkingu. Orðið komi fyrst fyrir
í Skírni árið 1922 í grein um
kynrannsóknir og þar hafi það
gagngert verið sett fram til að
niðra samkynhneigða. „Allt níð
sem lýtur að trúarbrögðum, kyn-
hneigð, litarhætti eða þjóðerni er
refsivert samkvæmt almennum
hegningarlögum. Máttur sjón-
varpsstöðvar sem miðils getur
verið mikill og ég er fyrst og
fremst í kæru minni að vekja
máls á þeim rógburði sem á sér
stað í garð samkynhneigðra á
Omega,“ segir Þorvaldur. - BÞ
Ásbjörn Björgvinsson sankar að sér
alþjóðlegum viðurkenningum.
SÞ heiðrar
Asbjöm
Ásbjörn Björgvinsson, forstöðu-
maður Hvalamiðstöðvarinnar á
Húsavík er staddur í Ástralíu
þessa dagana og á morgun 4.
júní, á Degi umhverfisins, mun
hann taka á móti sérstökum um-
hverfisverðlaunum sem Samein-
uðu þjóðirnar veita, svokölluð-
um „Global 500 award“. Nokkr-
ir aðilar víða að úr heiminum
hljóta þessi verðlaun og fer verð-
launaveitingin fram í borginni
Adelaide í Ástralíu en þangað
var Ásbirni boðið til að taka við
viðurkenningunni.
Verðlaunin eru veitt fyrir það
starf sem Ásbjörn hefur innt af
hendi við uppbyggingu á hvala-
skoðunarferðum og Hvalasafn-
inu á Húsavík, sem þykir til fyr-
irmyndar og hefur vakið athygli
víða um heim, enda mun Húsa-
vík nú fjölsóttasti hvalaskoðun-
arstaður í Evrópu. - JS
Þau teiknuðu best
Vinningsathöfn Tannlæknafélags
íslands vegna evrópsku teiknimynda-
samkeppninnar „Draw me at Dent-
ist" fór fram í gær. Fjölmargir skólar
og heimill tóku þátt I keppninni.
Fyrstu verðlaun hlaut Sara Sigurðar-
dóttir, 6 ára nemandi við Korpuskóla.
Mynd hennar verður send utan til
Parísar þar sem aðalkeppnin verður
haldin í lok nóvember. Önnur verð-
laun fékk Bragi Jónasson 9 ára og
þriðju verðlaun komu í hlut
Einars Braga Guðlaugssonar 8 ára.
Keppnin er haldin í tilefni af 100 ára
afmæli FDI, alþjóðasamtaka tann-
lækna og evrópsks tannheilsudags
2000. Hér eru verðlaunahafar ásamt
Bolla Valgarðssyni, framkvæmda-
stjóra Tannlæknafélagsins.
mynd: eól
Kaþólsk kapella vígð
Kaþólsk kapella veröur vígð að
Hrafnagilsstræti 3 á Akureyri í
dag, laugardaginn 3. júní kl.
11.00 af kaþólska biskupnum
yfir Islandi, Jóhannesi Gijsen.
Nýja kapellan tekur við af Pét-
urskapellunni að Eyrarlandsvegi
26, en mun heita sama nafni.
Við vígsluna mun sr. Patrick
Breen verða skipaður í embætti
sem sóknarprestur.
Daginn eftir, sunnudaginn 4.
júnf, verður hátíðleg messa og
ferming i nýju Péturskirkjunni á
Akureyri. Fermd verða við þá at-
höfn Marta Aðalsteinsdóttir og
Nadine Día Júlíusdóttir.
Tala kaþólskra á lslandi hefur
nær tvöfaldast frá árinu 1990, á
síðasta ári einu um 25%, og er í
söfnuðinum um 4.000 manns,
fjórðungur innan við 16 ára ald-
ur. Aðalorsökin er innflutningur
kaþólskra frá öðrum löndum, að-
allega frá Póllandi og Filippseyj-
um en einnig fer kaþólskum
börnum fæddum á Islandi fjölg-
andi. Fólki sem gengur í kaþ-
ólsku kirkjuna úr öðrum söfnuð-
um fjölgar einnig, en frá árinu
1990 er það um 250 manns.
- GG
Leitað án árangurs
Lögregla á Selfossi og björgunar-
sveitir úr Árnessýslu leituðu í all-
an gærdag að ungum manni sem
féll í Ölfusá aðfaranótt uppstign-
ingardags. Þegar Dagur fór í
prentun hafði leitin engan árang-
ur horið. Maðurinn, sem er á þrí-
tugsaldri, er búsettur á Selfossi.
Manns er saknað eftir að hann féll í
Úlfusá á Selfossi.
Eldfimur eltingarleilmr
Lögreglan í Reykjavík veitti ökumanni í annarlegu ástandi eftirför í
fyrrinótt eftir að maðurinn sinnti í engu venjuhundum stöðvunar-
merkjum. Hann ók sem leið lá frá Vogum upp í Grafarvog og á þeir-
ri leið ók hann bæði utan í bifreið og Ijósastaur. Þegar lögreglan náði
loks að stöðva manninn á Gullinbrú, var kominn upp eldur í bíl hans.
Höfð vöru snör handtök við að ná ökuþórnum út úr bifreiðinni sem
varð alelda á skömmum tíma. Engan sakaði í eltingarleiknum.
Landsvirkjuu styður landgræðslu
Starfssamningar á mílli Landsvirkjunar og Skógræktar ríkisins,
Landgræðslu ríkisins og Rannsóknastofnunar Landbúnaðarins voru
undirritaðir í gær. Annar samningurinn felur í sér fjárstuðning við
rannsóknaverkefni á sviði landgræðslu, skógræktar, landbóta og
kolefnisbindingar sem stofnanirnar vinna sameiginlega að. Enn
frernur var samið um áframhaldandi samstarf Landsvirkjunar og
Skógræktar ríkisins um starfsemi á Tumastöðum og Múlakoti í
tengslum við sumarskóla Landsvirkjunar. Sá samningur gerir meðal
annars ráð fyMr þátttöku unglinga í Starfsmenntaskóla Landsvirkjun-
ar í rannsóknaverkefnum og kynningu á þeim. Einnig er gert ráð fyr-
ir þátttöku í landbótastörfum, umhirðu skóga og bæltu aðgengi al-
mennings að þeim. - elj
i