Dagur - 03.06.2000, Side 11

Dagur - 03.06.2000, Side 11
Xfc^HT LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000 - 11 ERLENDARFRÉTTIR Clinton vill Rússa inn í ESB og NATO Þjóóverjar veittu Clinton viöurkeim- ingn fyrir framlag hans til sameiningar Evrópu. Bill Clinton Bandaríkjaforseti segir mikilvægt að Rússland hljóti aðild að bæði Evrópusam- bandinu (ESB) og Atlantshafs- bandalaginu (Nató). Rússland þurfi að verða fullgildur hluti af Evrópu og ekki megi loka nein- um dyrum á Rússa í þeim efn- um. Þetta sagði hann í ræðu sem hann flutti í borginni Aachen í Þýskalandi í gær, þar sem hann var að taka á móti viðurkenningu sem kennd er við Karlamagnús. Verðlaunin hlaut hann fyrir framlag sitt til sameiningar Evr- ópuríkja, og af ræðu hans að marka hvetur hann ákaft til þess að haldið verði áfram á þeirri sameiningarbraut. Það var borg- arstjórinn í Aachen sem afhenti honum verðlaunin, en borgin hefur veitt þessi verðlaun frá því 1950. Clinton er þriðji Banda- ríkjamaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun, en á undan honum hafa þeir Henry Kissinger og Ge- orge Marshall hlotið þessi verð- Iaun. Tyrkir og BaLkanskaginn lika Hann sagði t.a.m. við sama tæki- færi einnig mikilvægt að Tyrk- land verði einnig tekið fullkom- lega inn í samstarf Evrópuríkj- anna. Og ekki bara Tyrkland, heldur á endanum Balkanskaga- ríkin öll. „Það er eina leiðin til þess að gera frið varanlegan á þessu heiftarlega sundraða svæði," sagði Clinton. Clinton heldur til Rússlands á laugardaginn og hittir þar Vla- dimír Pútín forseta að máli. Clinton sagði enga tryggingu enn vera fýrir því að lýðræðiö lifi af f Rússlandi, en svo mikið væri í húf'i að gera verði allt til þess að hvetja Rússa á lýðræðisbraut- inni. Að öðrum kosti myndi framtíðin einkennast af „skað- vænlegri samkeppni milli Rússa og Vesturlanda" og það væru endalokin á öllum hugmyndum um sameinaða Evrópu. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hélt ræðu við verð- launaafhendinguna, sem fór fram við hátíðlega athöfn í dóm- kirkjunni í Aachen, þar sem há- sæti Karlamagnúsar stendur Clinton virðir fyrir sér veröiauna- peninginn. enn. Clinton skoðaði m.a. há- sætið ásamt föruneyti sínu og þýskum ráðamönnum, og þótti greinilega mikið til stærðar þess koma. Jarðneskar leifar Karla- magnúsar, eða Karls mikla, eru grafnar þar í dómkirkjunni. Karl mikli var uppi á árunum 742-814. Hann hóf feril sinn sem konungur Frankaríkis, en náði síðan að „sameina“ Evrópu á eigin forsendum með því að sölsa undir sig megnið af henni og lét að lokum páfa krýna sig Rómarkeisara lýrir 1200 hund- ruð árum. I ræðu sinni bar Schröder, kanslari Þýskalands, lof á fram- lag Clintons til einingar Evrópu og nefndi sérstaklega að það væri ákaflega þakkarvert að Clinton hafi séð til þcss að Bandaríkin misstu ekki áhugann á Evrópu eftir fall Járntjaldsins. Að athöfninni í Aachen lok- inni, sem þúsundir manna fylgd- ust með á útiskiá skammt frá dómkirkjunni, hélt Clinton til Berlínar þar sem leiðtogar 14 ríkja hittust til þess að ræða um „nútíma stjórnunarhætti". Pútín vill sameigmlegar flugskeytavamir í sjónvarpsviðtali á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC í gær sagði Vladimír Pútín að hann myndi leggja það til við Clinton á fundi þeirra að Rússar og Bandaríkjamenn komi sér upp sameiginlegum flugskeytavörn- um, en áætianir Bandaríkja- manna um slíkt varnarkerfi hafa verið eitt helsta deiluefni ríkj- anna sfðustu misserin. Bandaríkin hafa lagt mikla áherslu á að Rússar samþykki breytingar á ABM-samningnum frá 1972 um takmarkanir á kjarnorkuvopnum, til þess að Bandaríkjunum verði kleift að setja upp slíkt varnarkerfi án þess að brjóta ákvæði samnings- ins. Clinton vonast til þess að Rússar fallist á slíkar breytingar nú þegar hann sækir Pútin heim um helgina. Fyrir skömmu hafði Clinton boðið Evrópuríkjum afnot af varnarkerfinu, og Pútín tók það fram í sjónvarpsviðtalinu að hann væri einnig fylgjandi því að önnur Evrópuríki fengju að njóta góðs af sameiginlegum flugskeytavörnum Bandaríkj- anna og Rússlands, ef af verður. Bandaríkin hafa einnig átt í ágreiningi við önnur Evrópuríki vegna áætlana um flugskeyta- varnarkerfi sitt, eins og kom í ljós á fundi þeirra Schröders og Clintons á fimmtudag. Ekki síst hafa Þjóðverjar verið gagnrýnir á þessar hugmyndir Bandaríkja- manna, sem er smækkuð útgáfa af hugmyndum Ronalds Reag- ans Bandarfkjaforseta fyrir meira en áratug um varnir úti í geimnum gegn flugskeytum. Að loknum fundi þeirra sagð- ist Schröder hafa lýst áhyggjum sínum af því að slíkar hugmynd- ir geti leitt til þess að vopna- kapphlaup fari af stað á nýjan leik. 800 býli tekin ei&namámi SIMBABVE - Stjórnvöld í Simbabve hafa birt lista yfir 804 bænda- býli í eigu hvítra, sem ákveðið hef’ur verið að taka eignarnámi og af- henda svörtum íbúum landsins til eignar. Bændurnir hafa mánaðar frest til þess að andmæla þessari ákvörðun. A síðustu mánuðum hafa a.m.k. 30 manns látið lífið í átökum út af landtökumálunum. Bamaræninginn úr lífshættu LÚXEMBORG - Maðurinn sem hélt 25 börnum og þremur fullorðnum í gísl- ingu á leikskóla í Lúxemborg er kominn úr lífshættu. Lögregluþjónn skaut tveimur skotum í höfuð mannsins í fyrr- inótt og frelsaði með því gísla hans eft- ir 28 tíma umsátur. Skotin komu í höf- uð mannsins og var honum í íý'rstu ekki hugað líf, en eftir að hafa verið á skurð- arborði í Lúxembúrg klukkutímum saman var tilkynnt að hann myndi Iifa af. Maðurinn, sem er 39 ára, virðist hafa verið í hefndarhug vegna þess að forræði yfir tveimur börnum hans var dæmt af honum fyrir sex árum. Allir gíslarnir sluppu heilir á húfi. Speight vill verða forsætisráðherra FIDJÍEYJAR - George Speight, leiðtogi uppreisnarmanna á Fídjíeyj- um, vill verða forsætisráðherra í bráðabirgðastjórn. Speight hrakti hinn indverska Mahendra Chaurídry úr embætti forsætisráðherra með því að taka hann í gíslingu ásamt rúmlega 30 öðrum og krefjast þess að skipt verði um stjórn. Herinn á Fídjíeyjum tók síðan að sér stjórn landsins um síðustu helgi, og standa nú yfir samningaviðræð- ur milli herstjórnarinnar og uppreisnarmannanna. FlóttamaimastTaimiiir frá Erítreu SÚDAN - Um það bil 150.000 erítreskir flóttamenn eru nú við landamæri Súdans. Skortur er á matvælum í Erítreu eftir stríðsátök- in við Eþíópíu. Nú þegar eru 45.000 flóttamenn komnir til Súdans, þar sem flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sinnir þeim. Eþíópfa segir stríðinu við Erítreu vera lokið, en Erítreumenn neita enn að fallast á vopnahlé. Deilurnar snúast á yfirborðinu um ómerki- legt landamærasvæði, sem er að mestu leyti eyðimörk. Bush frestar aftöku BANDARIKIN - George W. Bush, ríkisstjóri í Texas og forsetalrambjóð- andi Repúblikanaflokksins, hefur í fyrsta sinn á ferli sínum heimilað að aftöku manns sé frestað. Ricky McGinn hefur hlotið dauðadóm íýr- ir morð, en aðeins 15 mínútum áður en fullnægja átti dómnum í • fyrra- kvöld bárust þau skilaboð frá ríkis- stjóranum að aftökunni verði frestað um þrjátíu daga. Hinum dæmda var þar með gefið færi á að sýna fram á sakleysi sitt með nýjum erfðaprófum. McGinn hlaut dóm fýrir nauðgun og morð á tólf ára stjúpdóttur sinni, sem framið var árið 1983. George l/l/. Bush, forsetafram- bjóðandi. Gíslamir ekki lausir á uæstuuui? FILIPPSEYJAR - Gíslarnir 21, sem múslimskir uppreisnarmenn á Filippseyjum hafa haldið vikum saman, óttast að þeir verði ekki látn- ir lausir næstu vikurnar. Ekkert hefur gengið f samningaviðræðum, og nú eru skæruliðarnir byrjaðir að reisa kofa handa þeim til þess að dveljast í, en til þessa hafa gíslarnir dvalist f tjöldum. Peres forseta- frambjóðaudi ÍSRAEL - Verkamannallokk- ur Israels valdi í gær Shimon Peres, (yrrverandi forsætis- ráðherra, sem forsetafram- bjóðanda sinn. Frambjóðandi Likudflokksins verður Moshe Katsav, þingmaður. Efna þurfti til forsetakosninga eft- ir að Eser Weizman, fráfar- andi forseti, sagði af sér vegna fjármálahneykslis. Skakki tumiuu opnaður eftir rúmt ár ITALIA - Skakki turninn í Písa á Ítalíu vcrður opnaður almenningi á ný í júní á næsta ári, að því er sérfræðinganefnd sem haft hefur um- sjón með endurnýjun turnsins sagði í gær. Aðgangur að honum hcf- ur ekki verið heimilaður frá því 1990, en þá þótti turninn vera farinn að hallast einum of mikið. Nú hel’ur tekist að draga úr hallanum um 12 sentimetra. m.a. með því að grafa undan honum öðru megin. Shimon Peres, forsetaframbjóðandi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.