Dagur - 01.08.2000, Page 4
4,»- ÞRIIWIDAGUR 1. A6,t/.ST,.2,Q,qg
FRÉTTIR
Tuttugu stútar við
við styri stöðvaðir
Lögreglan í Reykjavik
þurfti að venju að fást við
margvísleg mál um helg-
ina að því er fram kemur í
dagbók hennar.
Að sögn lögreglunnar voru 20 öku-
menn stöðvaðir grunaðir um ölvun við
akstur um helgina.“Um áframhaldandi
þróun virðist því vera að ræða hvað
varðar aukningu á ölvun við akstur,"
segir í dagbók lögreglunnar. Þá voru 50
manns stöðvaðir vegna of hraðs akst-
urs. Einn þeirra var sviptur ökuréttind-
um á staðnum, en hann hann ók á 127
km hraða um Miklubraut við Skeiðar-
vog á sunnudagskvöldið, þar sem 60
km hraði er hámark.
Rarai stjómlaus afturábak
A föstudag varð umferðaróhapp á
Kambsvegi, er sendibifreið var ekið aft-
urábak niður halla. Þegar ökumaður
ætlaði að bremsa virkuðu hemlarnir
ekki. Bifreiðin rann því stjórnlaus aft-
urábak, lenti á annarri bifreið og því
næst ók hún niður ljósastaur en endaði
með því að fara á brunahana og velta.
Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og
slasaðist sem betur fer ekki.
A föstudagskvöld var tilkynnt um
umferðarslys á Vatnsmýrarvegi, öku-
maður og farþegi í annarri bifreiðinni
voru klipptir út úr henni og fluttir með
sjúkrabifreið á slysadeild.
Fíkniefni í Öskjuhlíð
Fjórir menn voru handteknir á laugar-
dagskvöld eftir að ætluð fíkniefni og
sprautur fundust í fórum þeirra í rjóðri
í Öskjuhlíð.
Þá var stúlka flutt á slyadeild með
höfuðáverka eftir að henni hafði verið
hrint utan í Ijósastaur á Laugavegi á
aðfarnótt laugardags. Gerandinn hélt á
brott á bifreið sinni.
A aðfaranótt sunnudags var „einn
aðili“ handtekinn eftir að hafa gert til-
raun til að slá starfsmann veitingastað-
ar f Miðborginni með flösku í höfuðið.
Hoppuðu ofan á vélarhlíf
A föstudagsmorgun var tilkynnt um
innbrot í vinnuskúr í Grafarvogi, var
þar ýmsum verkfærum stolið.
A aðfaranótt sunnudags var tilkynnt
um „aðila“ sem höfðu verið að hoppa
ofan á vélarhlíf bifreiðar. Lögreglan
ræddi við umrædda „aðila", en þeim
var sleppt lausum að viðræðum Iokn-
um.
Á sunnudag var svo tilkynnt um inn-
brot í heimahús í vesturbæ. Þar voru
tekin ýmis húsgögn og heimilistæki.
Fisflugvél hrapaði
Á föstudag var tilkynnt um eld í hjóla-
geymslu f fjölbýlishúsi í Grafarvogi.
Tveir voru fluttir á slysadeild vegna
reykeitrunar. Skemmdir urðu á hjóla-
geymslunni og reykræsta varð þrjár
íbúðir. Lögreglan telur að rekja megi
upptök eldsins til þriggja drengja sem
voru að fikta með eldspýtur.
Á föstudagskvöld varð flugslys í
Þingvallasveit, fisflugvél hrapaði og var
flugmaður fluttur með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar á slysadeild.
Á aðfaranótt sunnudags stökk einn
„aðili" í sjóinn, eins og lögreglan orðar
það á sínu stofnanamáli. Lögreglan
bjargaði honum í land, og síðar um
nóttina tókst lögreglu að tala annan
„aðila“ til sem var langt kominn á
sömu leið.
FRÉTTA VIÐTALID
Sitt sýnist hveijum á Ak-
ureyri um íyiirhuguð há-
tíöahöld í hænum um
versluiiaimannahelgma.
Gagnrýnendur segja að
þrátt fyrir yfírlýsingar um amiað sé verið að
lokka unglinga til bæjarins á svipuðum forsend
um og gert var á Hailó Akureyri. Þá heyrist í
pottinum að sumir andstæðingar hátíðahalda
hafi látið það fara í taugamar á sér að einn þeir-
ra sem opinberlega hefur verið talsmaóur hátíða-
haldanna sé íýmim nefndarmaður í áfengis- og
vlmuvamamefnd sem orðið hafí að segja af sér
vegna þess að hann flæktist í fíkniefnamisferli í
vetur - það hljóti að teljast dómgreindarleysi
segja þeir að tefla slíkum manni fram, jafnvel
þótt haim kunni að vera snjall og hugmyndarík-
ur skipuleggjandi! Aðrir líta á þemian málflutn-
ing sem ofsóknir gegn hæfileikamöimum, sem
hafa lent í því að misstíga sig...
Ólafur Ragnar
Grímsson.
Forsetinn verður settur inn í
embætti við hátíðlega athöfn í
dag. í gær fréttist af því í pottin-
um að iðnaðarmen vora kallaðir
til í þinghúsinu til að smyrja ^
lamimar á svalahurðunum en
forsetiim mun ganga út á svalir
og taka við hyllingu þjóðariimar.
í pottinum heyra menn að mikil
spemia ríki einmitt um það hvort Dorrit muni
koma með Ölafi út á svalimar eða hvort hami
muni koma einn. 1 hugum sumra pottveija væri
það ígildi hjónabands ef hún verður þama með
honum...
Greinilegt er að viðtalið við
Agúst Einarsson í Degi uin helg-
ina hefur hreyft við ýmsum fram-
sóknarmönnum. í pottinum kom
greinilega fram að gamlir stuðn-
ingsmenn Finns Ingólfssonar
vom pirraðir á þvl að Ágúst vildi
gera Samiylkinguna að flokki lít-
illa og meðalstórra íýrirtækja.
Þeir telja að Finnur og Framsókn hafi tekið upp
þetta merki íyrir löngu og Ágúst vilji nú stela því_
frá þeim...
Ágúst
Einarsson.
ÓliH. Þórðarson
framkvæmdastjóri Umferðarráðs.
Seinnipart sunnudags
myndaðist löng umferðarteppa
áSuðurlandsveginum. Svo
virðistsem vegákeifiðráðiorðið
illaviðgóðviðrishélgarum mitt
sumar þegar allirfara í einu
þangað semgóða veðriðer.
Ávísim á verslimarmannahelgma
- Umferðin var víst ansi mikil á Suður-
landsveginum.
Já, þetta var víst óvenjulega mikið. En
þetta er í raun og veru bara eitthvað sem
menn mega bara búast við á sunnudagseft-
irmiðdögum svona upp úr mánaðamótum
júnf og júlí og fram yfir verslunarmanna-
helgi. Eg hef nú einhvern tfmann látið hafa
eftir mér að svokallaðir umferðarhnútar séu
varla til á Islandi.
- Þeir eru kannski að verða til núna?
Já, það má segja það. En þarna er þetta
náttúrlega bara að nálgast það sem sumir
eiga að venjast bara í stórborgum erlendis.
Og svo er náttúrlega ýmislegt hægt að gera.
Það eru nokkrir möguleikar til þess að kom-
ast inn í umferðina til borgarinnar og við
höfum t.d. mikið verið að benda á Breið-
holtsbrautina og að fólk fari þar upp fyrir
Breiðholtshverfið og þar niður. Sömuleiðis
er möguleiki að fara í gegnum Árbæjar-
hverfið og þar niður. Það gæti t.d. verið
vænlegur kostur fyrir þá sem eru að fara í
Grafarvoginn, því þá komast þeir beint yfir
Höfðabakkabrúna og niður á Gullinbrú.
- Þetta var verst bara þama rétt við
bæinn?
Já, mér skilst að þetta hafi verið langverst
bara við gatnamótin Vesturlandsvegar og
Suðurlandsvegar. Og þar eru náttúrlega
umferðarljós, sem verða vonandi ekki til
langframa. Þarna verða sett mislæg gatna-
mót þegar fram líða stundir. En það er ekk-
ert að koma að því.
- Er þetta einhver vtsbending um það
hvemig ástandið verður um næstu helgi,
verslunarmannahelgina?
Já, ég mundi alveg hiklaust benda fólki á
að þetta sé einmitt ávísun á það hvernig þá
getur orðið. En ég held í heild sinni að
þarna séum við að sjá ýmislegt sem fólk í
öðrum löndum á að venjast á morgnana og
síðdegis í stórborgum víða. Bílaeignin hefur
aukist svo mikið á þessu ári og liðnum árum
að það má búast við þessu.
- Og á þá ekki að koma neinum á óvart?
Nei, ég held ekki. Og þarna hefur veðrið
alltaf mikil áhrif. Spáin var heldur bjartari
fyrir suðurlandið en vesturlandið, og þá fór
auðvitað meginþorrinn þangað.
- Má segja að vegaketfið ráði varla leng-
ur við umferðina á góðviðrisdegi, það sé orð-
ið það mikið afbtlum?
Álveg tvímælalaust. En þarna hefðu mis-
læg gatnamót verið óskastaðan strax í byrj-
un. Þetta eru ekki mjög gömul gatnamót, en
þegar í þau var ráðist var ekki talið að menn
hefðu fjármagn í það. En það hefði létt al-
veg heilmikið á.
- Þannig að það má búast við þessu
næstu árin?
Já, nokkur ár. Eg held að þau verði kanns-
ki ekki mjög mörg, en næstu tvö árin kanns-
ki. En fólk getur náttúrlega tekið þann pól í
hæðina að fara fyrr f bæinn. En það er líka
hægt að fara seinna. Fyrir utan svo þá sem
eru í sumarfríi, þeir ættu bara að forðast
þessa umferð.
- Btðafram yfir helgina?
Já. Fyrir utan svo það að láta þetta ekki
fara í taugarnar á sér.
En svo er annað þessu tengt, fyrst við
erum að tala um milda umferð og bílalestir,
þá langar mig til þess að koma á framfæri
við bændurna, sem eru náttúrlega á kafi í
heyönnum þessa dagana, að vera meðvitað-
ir um hvað er á seyði með öllum þessum bíl-
um. Þannig að traktor með heyvagn og sést
ekki einu sinni aftur fyrir vagninn, slíkt er
mjög slæmt á eftirmiðdegi á föstudögum og
sunnudögum. Auðvitað búum við á Islandi,
og auðvitað eru þeir að nota þurrkinn, en
þeir ættu samt að gera sitt til þess að draga
úr þessum streituvaldi á vegunum.