Dagur - 01.08.2000, Side 6
6 - ÞRIDÍUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6100 OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk. i.goo KR. A MÁNUÐl
Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: (reykjavík)563-i615 Amundi Amundason
(REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir
Sfmbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Simbréf ritstjórnar: 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Flokksþmgssýningar
I fyrsta lagi
Lokahrinan í langri baráttu fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkj-
unum er loksins að hefjast með flokksþingum stóru flokkanna,
repúblíkana og demókrata. Ihaldsmenn eru mættir til leiks þús-
undum saman í borginni Fíladelfiu, en þar verður næstu daga
sviðsett mikil leiksýning fyrir fjölmiðla í boði nokkurra helstu stór-
fyrirtækja landsins, en þau borga brúsann fyrir repúblíkana.
Flokksþingið mun tilnefna George W. Bush sem forsetaframbjóð-
anda og Richard Cheney sem varaforsetaefni, en hann er enn
lengra til hægri en Bush. Keppikefli kosningavélar þeirra verður
að búa til ímynd sem sannfæri nógu marga óákveðna kjósendur
um að í íhaldssemi frambjóðendanna sé falin „samúð“ með alþýðu
manna eins og það er kallað.
í öðru lagi
Sú ákvörðun Bush að velja Cheney, sem var varnarmálaráðherra í
ríkisstjórn Bush eldri fyrir um áratug síðan, hefur sýnt enn frekar
hið raunverulega andlit þeirra sem nú ráða flokki repúblíkana.
Listinn yfir þau framfaramál sem Cheney barðist gegn sem þing-
maður á sinni tíð er fimalangur - enda er hann strax á hlaupum
frá sumum öfgafyllstu skoðunum sínum. Úrslit kosninganna í
nóvember munu ráðist af því hversu vel ímyndarfræðingum tekst
að fela hið Ijóta andlit öfgafullrar íhaldsstefnu á bak við þá grímu
samúðar sem auglýsingamenn Bush leggja allt kapp á að búa til.
í Jjriójíi lagi
Demókratar efna til svipaðrar Ieiksýningar um miðjan ágúst og til-
nefna þar A1 Gore sem frambjóðanda sinn, en ekki liggur enn fyr-
ir hvern Gore velur sem varaforsetaefni. Ljóst er af skoðanakönn-
unum að sá hluti Bandaríkjamanna sem á annað borð nennir að
láta skrá sig á kjörskrá, hefur Iangt í frá gert upp hug sinn, þótt
Bush leiði í flestum könnunum þessa dagana. Ekki er mark tak-
andi á slíkum tölum fyrr en flokkssýningunum lýkur og slagurinn
á milli Gore og Bush hefst fyrir alvöru. Það verður blóðugt og rán-
dýrt hanaat sem enginn veit enn hvernig fer.
Elías Snælatid jónsson.
Siðanefndir
Alltaf þegar Garra langar til að
hreyta ónotum í menn eða þykir
þeir á einhvern hátt verðskulda
ærlega ofanígjöf, gerir hann sér
far um að orða hlutina þannig
að það geti flokkast undir grín
eða gamanmál. Ekki svo að
skilja að kímni sé eitthvað sem
er Garra óeðlilegt, þvert á móti,
en það er einfaldlega öruggara
að skýla sér á bak við
slíkt ef í harðbakk-
ann slær. Þannig er
nefnilega mál með
vexti að Garri var
einu sinni kærður til-
Siðanef’ndar Blaða-
mannafélagsins fyrir
það að hafa talað af
óvirðingu um vold-
ugan embætismann
ríkisins og fólst glæp-
urinn í því að Garri nefndi
manninn með gælunafni í stað-
inn fyrir að nefna hann fullu
nafni. Sá „glæpur“ var auðvitað
svipaður því sem Jóhannes úr
Kötlum orti um á sinni tíð um
föður sinn „skrítinn og sköllótt-
an“ en í því kvæði segir jú m.a.:
„...og Pétur biskup þann kunna
klerk/ hann kallar nú bara
Pésa“.
Fyndni í lagi
Siðanefnd blaðamanna hins
vegar ákvað að Garri hefði ekki
gerst brotlegur við siðareglur
vegna þess að hann hafi verið að
reyna að vera fyndinn. Tilraun
til fyndni væri nefnilega ekki
brot á siðareglum. Er þar þá
komin skýringin á því af hveiju
Garri er alltaf að reyna að vera
fyndinn - hann er að gera siða-
nefnd Blaðamannafélagsins til
hæfis, og forðast að fá á sig
dóma frá henni. Þetta er hins
vegar mjög þreytandi til lengdar
og Garri teldi mun eðlilegra að
siðanefhdi BÍ tæki upp aðferðir
V
siðanefnda annarra stétta þar
sem félagsmenn eru undan-
tekningarlaust sýknaðir, þó svo
að þeir hafi hvorki verið fyndnir
né verið að reyna að vera fyndn-
ir.
Fnunkvæði presta
Þannig hefur Garri t.d. nokkurn
áhuga á að siðanefnd B.I. taki
siðanefnd presta sér
til fyrirmyndar. Þar
var Hr. Sigurbjörn
Einarsson sýknaður
af því að hafa brotið
gegn siðareglum með
yfirlýsingum sínum
um að þeir sem gagn-
rýndu kristnihátíð á
Þingvöllum hefðu
varla „eðlilegt heilsu-
far“ og herferð gagn-
rýnenda minnti á það „sem
verstu nasistar og kommúnistar
höfðu fram að færa á sínum
tíma.“ Síðan hefur biskup ritað
grein í Morgunblaðið og undir-
strikað að hann hafi vitað hvað
hann var að segja. Oruggt er að
siðanefnd blaðamanna hefði
ekki Iátið svona nokkuð átölu-
laust, enda biskupinn alls ekki
að gera að gamni sínu. Það gerir
hins vegar siðanefnd presta. Og
úr því sjálfur biskupinn má segja
svona opinberlega, hví skyldi þá
ekki Garri mega tala hvasst - án
þess að vera að reyna að vera
fýndinn? Það liggur því ljóst fyr-
ir að siðanefnd blaðamanna
verður að skoða frumkvæði siða-
nefndar presta. Best væri þó
náttúrulega að siðanefndir, sem
eru að vakta hvað menn segja og
hvort þeir séu að reyna að vera
fyndnir eða ckki legðu sjálfar sig
niður. Það er nefnilega margt til
í því sem bamið sagði: maður á
bara að segja það sem manm
finnst. - GARlíí
Frændnr frændum bestir
.f JÓHANNES
f ÍR SIGURJÓNS
SON
I-«> SKRIFAR
Það er alkunna að börn eru oft í
uppreisn gegn foreldrum sínum
og sambandið milli jiessara aðila
stundum stirt þó ástríki sé einnig
til staðar. Það er auðvitað ein
skýringin á því ástar- og haturs-
sambandi sem íslendingar eru í
við Norðmenn. Við erum jú að
miklum hluta afkomendur Norð-
manna, þó Irar og Aserar muni
einnig eiga þar hlut að máli og
hlóð í hland. ef marka má kenn-
ingar þar um. Löngum þóttu okk-
ur Danir vera þcir frændur sem
voru frændum verstir á Norður-
iöndum en hin síðari ár hafa
Norðmenn tekið við hlutverki
þeirra serr> okkar helslu andskot-
ar í frændgarðinum. Framganga
þeirra í Smugudeilunni og
ósvífnar tilraunir til að eigna sér
Snorra og Leif F.iríksson hafa far-
ið lyrir brjóstið á flestum þjóð-
hollum Islendingum og því hefur
héðan andað heldur köldu í garð
Niorðmanna undanfarin ár.
Og cins og ævinlega hefur öf-
undin og minnimáttarkenndin
haft áhrif á afstöðu okkar til ann-
arra [ijóða. Við öiúndum Norð-
menn af olíuauðnum og þolum
illa að Jieir séu okkur fremri á
flestum sviðum. Þess vegna eru
Islendingar til
dæmis hörðustu
gagnrýnendur
norska landsliðs-
ins í knattspyrnu
og segja það
spila leiðinleg-
asta varnarbolta í
Evrópu. Og að
sjálfsögðu óþarfí
áð taka það Iram að íslenska
landsliðið í fótbolta hefur spilað
jafnvel enn meiri varnarleik en
það norska á undanförnum
árum.
Kýraugim
En nú virðist vera farin að aukast
hlýja á meðal frændþjóða og vio
erum á góðri leið með að taka
Norðmenn sátt. Meðal annars
vegna þess að deilur milli þjóð-
anna hafa legið niðri um skeið
og Norðmenn hafa komið hingað
færandi hendi og t.d. skenkt
Vestmannaeyingum stafkirkju
sem ku vera kostagripur.
Og ekki spilla
fyrir gagnkvæm-
ar heimsóknir
helstu stór-
menna þjóð-
anna. Þannig
voru heiðurs-
hjónin Haraldur
konungur og
Sonja drottning
á Isiandi um helgina og sögðu
margt fallegt um Snorra okkar.
Jand og þjóð. Og á sama tíma (ef
marka má Dag) var Guðni
Agústsson úti i Noregi og horfist
þar / augu v'ið norskar kýr. Vænt-
anlega hafa Verdens gang og aör-
ir norskir ijölmiðlar ekkí gert
heimsókn Guðna minni skil en
Moggi og íslenskir fjölmiðlar
konungsheims'f ninn
Höfðmginn Hakon
Það er sem sé allt í góðu í til-
hugalífi Islendinga og Norð-
manna þessa dagana. Og reyndar
aðeins ein uppákoma sem hefði
getað spillt ástum þessara sam-
lyndu hjóna. En jjað var þegar
áhöfn Flugleiðavélarinnar sem
flutti konungshjónin til lslands
bauð þau velkomin og ávarpaðí
Harald tvívegis sem Hákon. Þjóð-
ir hafa farið í stríð ai minna til-
efni, en Noregskonungur virðist
hinn mesti geðprýðismaður og
tók þetta ekki óstinnl upp, a.m.k
ekki opinberlega.
Enda skvringin á mistökunum
augljós. Fiugleiðamenn hafa eín-
faldlega ruglað Haraldi saman
við héraðshólðingjann Flákon
Aðalsteinsson, sem stóð i’yrir
stuttu skartklæddur og tignarleg-
ur fv'rír utan norsku konungshölí-
ina og fiutti kóngi dra]iu. Menn
hafa nú farið mannavillt ai
minna tilcfní.
Áttu von á breyttum
áherslum á nýju hjör-
tímabiliforseta íslands?
Gylfi Gröndal
rithöfundur og höfundurþriggja bóka
umforseta íslands
„Þeirri skoðun
virðist nú vaxa
fylgi að forseta-
embættið sé
óþarft og má þar
benda á leiðara í
DV fyrir helgina.
Þessu er ég ekki
sammála og kemur mér á óvart. Á
nýju kjörtímabili tel ég að ekki
verði um að ræða neinar veruleg-
ar breytingar á embættinu, Ólafur
Ragnar hefur þegar mótað það
eftir sínu höfði eins og allir fyrir-
rennarar hans hafa gert að meira
eða minna leyti, og embættið
raunar mótað og breytt mönnum
líka. Þó kann að vera að ytri
ímynd embættisins breytist með
boðuðu brúðkaupi hans og
Dorritar og ekki er nema gott um
það að segja."
Kristján Þorvaldsson
ritstjóri Séð og heyrt.
„Það tel ég að
gæti gerst og þar
kemur til sam-
band hans við
Dorrit - en hún
ætlar greinilega
að fylgja Ólafi í
ýmsar þær at-
hafnir sem hann sækir. Hér
heima virðist Ólafur hafa fundið
réttu línuna gagnvart þjóðinni og
því þarf ekki að búast við miklum
breytingum þar. En á alþjóðlegum
vettvangi gæti hann farið að láta
ljós sitt meira skína og notað for-
setaembættið til þess meðal ann-
ars að greiða sér leið erlendis."
Ágústa Þorkelsdóttir
bóndi á Refstað á VopitafiiðL
„Ef satt skal
segja tel ég að
svo muni ekki
verða. Þó ég
þekki Ólaf af j>vf
að vera róttækur
maður og vilja
breytingar á
mörgum hlutum, þá tel ég að
hann muni ekki breyta því sen
ekki þarf að breyta. Hinsvegar
væri það mér alveg að sársauka-
laust að glamúr í kringum þetta
embætti væri minni og sú pólítík
sem er rekin í sambandi við orðu-
veitingar og heiðursmerki. Hún er
ekki í anda jjjóðarsálarinnar. Hús-
hald á Bessastöðum ætti að ein-
kennast af mvndarskap, gestrisni
og einfaldleika eins og gerist á ís-
lenskum alþýðuheimilum."
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
„Öll embætti
hljóta að breyt-
ast í tímans rás,
rétt eins og þjóð-
félagið sjálft ger-
ir. Þó hygg ég að
í meginatriöum
muni Ölafur
; halda sömu stefnu og hann hefui
mótað, enda hefur hún gefist vel.
j Eg hef þó víirleitt kunnað vel vað
j þá stefnu sem Ólaf ur hefur mót-
, að í forsetatíð sinni, bæði mnan-
I lands og utan."
alþingisntaður.