Dagur - 01.08.2000, Page 16
16- ÞRIÐJUDAGU R 1. ÁGÚST 2000
Mikið um dýrðiríReyk-
holti og Eyjum um helg-
ina. Norðmenngáju til
Snormstofu og heila,
stafkirkju sem verðurá
Skansinum íEyjum.
Noregskonugurkom og
sólin skein
Island var í sparifötum sumar-
skrúða um helgina þegar norsku
konungshjónin heimsóttu Island,
en þau voru viðstödd þegar tvær
veglegar gjafir Norðmanna voru
formlega afhentar Islendingum.
Annars vegar Snorrastofa í Reyk-
holti í Borgarfirði þar sem stund-
aðar verða rannsóknir í miðalda-
fræðum og hinsvegar stafkirkja
sem reist hefur verið á Skansinum
í Vestmannaeyjum, til minningar
um þá Hjalta Skeggjason og Gizur
hvíta sem fyrstir manna reistu
kirkju á Islandi. Mikið var um
dýrðir bæði í Reykholti og í Eyjum
um helgina af þessu tilefni.
Sýna Snorra mikinn áhuga
Um Iangan tíma hafa Norðmenn
sýnt Reykholti og sögu Snorra
Sturlusonar mikinn áhuga, en það
var sem kunnugt er Snorri sem rit-
aði Heimskringlu sem er saga
Noregskonunga. A Reykholtshátíð
árið 1947 gáfu Norðmenn Reyk-
holtsskóla styttu af Snorra - og
þeir gera ekki endasleppt nú og
gefa til uppbyggingar Snorrastofu
35% stofnfjár, en heildarkostnað-
urinn er um 120 milljónir. Stofan
er sambyggð Reylholtskirkju sem
var vígð árið 1996. Snorrastofu er
ætlað að sinna og stuðla að rann-
sóknum og kynningu á miðalda-
fræðum og sögu Reykholts og
Borgarfjarðar sérstaldega.
Bergur Þorgeirsson segir að
geysilega mikil þörf sé á rannsókn-
Tignir gestir ganga til kvöidverðar í Reykholti. Ad baki þeim er styttan af
Snorra Sturlusyni sem Norðmenn gáfu íslendingum árið 1947. Á myndinni
hér að neðan er barnahópur framan við stafnkirkjuna góðu á Skansinum í
Eyjum. - myndir: gtk..
um um áðurnefnt tímabil íslands-
sögunnar. Mikilar heimildir um
þetta tímabil séu tiltækar en
nauðsyn sé á að þær verði rann-
sakaðar frekar. Bergur segir að
meðal annars verði þegar stofnun-
in kemst á fullan skrið stuðlað að
fjölþjóðlegum og þverfaglegum
rannsóknum er tengjast Islandi,
og þá ekki síst hvað varðar Snorra
Sturluson.
Til minningar iim Hjalta og
Gizur
Og það var ekki síður hátíðar-
stemmning í Vestmannaeyjum á
sunnudaginn þegar stafkirkjan á
Skansinum var vígð. Sr. Kristján
Björnsson sóknarprestur segir að í
áratugi hafi það verið áhugamál
Eyjamanna að setja upp kirkju á
þessum stað til minningar um þá
framsýnu menn Hjalta Skeggjason
og Gizur hvíta. Hugmyndinni hafi
ætíð verið haldið vakandi, meðal
annars af Jóhanni Friðfinnssyni
sem lengi hafi verið sóknarnefnd-
arformaður í Eyjum. Það hafi svo
verið framsýnir og dugandi menn
eins og þeir Arni Johnsen alþingis-
maður og Geir H. Haarde ráð-
herra sem komu málinu á hreyf-
ingu meðal Norðmanna þannig að
fjárvetingar fóru að fást.
Kirkjan góðan er smíðuð í Lom
í Noregi, en eftir smíðina ytra var
hún tekin niður og svo aftur sett
upp í Eyjum. I Lom sýndi fólk
þessu máli mikinn áhuga og lagði
því Iið með ýmsum hætti, meðal
annars söfnun með fyrir kirkju-
klukkum sem voru sérstaklega
steyptar íyrir þessa kirkju. „Eg
vænti þess að þessi kirkja verði
sannkallaður þjóðarhelgidómur í
tvíeinni merkingu, helgidómur
bæði íslendinga og Norðmanna,"
segir Kristján Björnsson. Hann
segir að í framtíðinni muni ýmsar
kirkjulegar athafnir fara fram í
kirkjunni góðu, meðal annars sé
þar brúðkaup fyrirhugað síðar nú í
ágúst.
Fallegur og heitur dagiir
„Laugardagurinn var einn falleg-
asti og heitasti dagur sumarsins,"
segir Bergur Þorgeirsson og segir
að margt skemmtilegt hafi verið
gert í Reykholti í
tilefni dagsins.
Þar nefnir hann
meðal annars
söguleika íbúa
frá norsku eynni
Mostur og um
kvöldið voru svo
tónleikar í Reyk-
h o 11 s k i r k j u .
Kristján Björns-
son tekur í sama
streng. Hann
segir mikinn
mannljölda hafa
verið viðstaddan
kirkjuvígsluna á
Skansinum,
kunnugir tala
um að þar hafi
ekki verið færri
en tvöþúsund
manns og
stemmningin
konungleg.
- SBS.
Vinsældum Alfa 156 á íslandi og í Evrópu má fyrst og fremst
þakka glæsilegri hönnun og frábærum aksturseiginleikum.
Nýjasta trompið frá Alfa er 156 Sportwagon, sem sameinar á
einstakan hátt fágað útlit, sportlega akstureiginleika og notagildi
120 hestafla 1.6 lítra kr. 1.940 þús.
155 hestafla 2.0 lítra kr. 2.175 þús.
Möldur ehf. 461-3000
Istraktor
BlUAR FYRIR ALLA
)S B Ú Ð 2 - GARÐABÆ - S í MI 5 400 800
20
ára