Dagur - 01.08.2000, Page 18
18- ÞRIÐJUDAGUH 1. ÁGÚST 2000
Um 9 5 gráðu hiti
á Laugarlandi
Hitaveita Akureyrar
hefur fuudið allt að
95% heitt vatn á
1700 metra dýpi við
Laugarland á Þela-
mðrk. Fyrstu mæl-
ingar sýna að holan
gefur rúmlega 30
lítra á sekúndu við
loftdælingu. Þetta er
tvöfaUt meira magn
en í gömlu holunni
við Þelamörk.
„Þetta eru allt íyrstu athuganir
og ber að hafa það í huga. Við
hófum að bora þarna í byrjun
júlí og erum nú komnir í 1700
metra dýpi,“ segir Franz Arna-
son, hitaveitustjóri á Akureyri.
Holan á Þelamörk er staðsett
rétt norðan við Laugarland.
Fyrir er á svæðinu ein vinnslu-
hola og þarf hitaveitan því ekki
að leggja í kostnað við að koma
vatninu til neytenda. „Það eina
sem við þurfum að gera er að
koma nýrri dælu fyrir ofan í
holunni, aðveita og annað slíkt
er nú þegar á staðnum."
Eins og áður sagði lítur út
fyrir að nýja holan gefi vel af
sér en Franz kýs að hafa varann
á. „Fyrstu mælingar eru já-
kvæðar. Það bendir til að þarna
sé að finna 95° heitt vatn og að
flæðið á því sé rúmlega 30 lítr-
ar á sekúndu. En til að svona
mælingar séu öruggar þarf að
dæla í mun lengri tíma. Við
miðum því alla okkar vinnu við
að þarna komi til með að renna
um 15 lítrar á sekúndu. Við
erum því að tala um 50 - 100%
aukningu miðað við það sem
áður var.“
Kemur í veg fyrir hækkun
Þjónustusvæði hitaveitu Akur-
eyrar er frá Laugarlandi á Þela-
mörk og allt að Stóra Hamri í
Eyjafjarðasveit og er því ljóst að
hin nýja borhola hefur mikla
þýðingu fyrir notendur. „Þetta
þýðir að við þurfum ekki að
leita að nýju vatni næstu þrjú
til fjögur árin og þar af leiðandi
eru minni líkur á þvf að við
þurfum að hækka gjaldskrá
hitaveitunnar. En þetta veltur
auðvitað allt á því að við náum
að virkja vatnið úr holunni."
Tíu menn hafa unnið á vökt-
um við að bora hina nýju holu
en það er fyrirtækið Jarðboran-
ir hf sem sér um framkvæmdir.
Þegar holan var um 900 metra
djúp var tekin á henni beygja
en til þess að það væri hægt
þurfti að kalla til sérfræðinga
frá Noregi. „Þetta er þekkt að-
ferð við olíuleit en hún hefur til
þessa ekki verið mikið notið við
jarðhitaleit hérlendis. Það er að
aukast að menn sæki vatn á
mikið dýpi,“ segir Franz.
Heitt vatn fannst á 423 metra
dýpi þegar gamla holan á Þela-
mörk var boruð fyrir um 10
árum en nú var tekin ákvörðun
um að fara enn dýpra. „Við höf-
um fulla trú á því að á meira
dýpi sé að finna bæði meira og
heitara vatn og styðja fyrstu
prófanir þá kenningu okkar en
eins og ég sagði hér áður þá eru
þetta bara fyrstu athuganir. Við
eigum eftir að láta reyna á
hvort við náum einhverju þarna
upp.“
Fyrr í vor reyndi hitaveitan að
bora við bæinn Sigtún í Eyja-
fjarasveit en árangur þeirra
borunar var ekki í samræmi við
væntingar. Þar sem góðar vonir
eru bundnar við hina nýju holu
hefur ekki verið tekin ákvörðun
hvar næstu skuli leita. - GJ
Brotist inn i VMA
„Þjófarnír voru greinilega í leit
að peningum eða ávísunum en
höfðu ekki árangur sem erfiði,"
segir Fljalti Jón Sveinsson,
skólameistari við VMA. Hús-
vörður skólans fór sina hefð-
bundnu eftirlitsferð um skólann
í gærkvöldi og í nótt kom örygg-
isvörður Securitas á svæðið. Þá
var ekkert athugavert. Þegar
iðnaðarmenn sem eru að vinna í
skólanum mættu til vinnu í
gærmorgun mætti þeim hins
vegar ófögur sjón. .Þeir höfðu
greiniiega ir.ikið iyrir þessu.
Hjalti Jón Sveinsson.
Það var búið að brjóta eða
sparka upp mörgum hurðum og
skúffur höfðu verið spenntar
upp. Þeir hafa hins vegar
greinilega ekki fundið það sem
þeir voru að leita að og því var
engu stolið. Tjónið er engu að
síður verulegt og það kemur til
með að taka tíma að koma öllu í
samt lán. Það var kannski lán í
óláni að skólinn er í fríi og þess
vegna kemur þetta ekki til með
að trufla kennsiu."
Hjalti Jón segir að lengi hafi
komið til tals að bæta öryggis-
kerfi skólans og atvikið í fyrr-
inótt verði trúlega til þess að til
aðgerða verði gripið. „Fram-
haldsskólarnir í Reykjavík hafa
um nokkurn tíma haft svona ör-
yggiskerfi og þvf miður verðum
við nú að fara að fordæmi
þeirra." Lögreglan á Akureyri er
að rannsaka málið og segja
menn þar á bæ að tjón Verk-
menntaskólans hlaupi á hund-
ruðum þúsunda ef ekki milljón-
um.
- GJ
Safnað fyrir RKÍ
Þessar stúlkur efndu til tombólu á
dögunum og söfnuðu 1247 kr. sem
þær hafa fært Rauðakrossinum.
Ástæðan fyrirþví að þær fóru að
safna var rútuslysið á Hólsfjöllum, en
þær vildu legja sitt af mörkum til að
hjálpa fólkinu sem í því lentu. Stúlk-
urnar heita Hulda Hólmkelsdóttir 8
ára og Iðunn Dóra Birgisdótir 8 ára
og eru bekkjarsystur úr Brekkuskóla.
Sex bílar
eru í mst
Sex bifreiðar eru mikið
skemmdar eða ónýtar eftir fimm
árekstra í umdæmi Lögreglunn-
ar á Akureyri um helgina. Aber-
andi er að ógætilegur framúr-
akstur er orsök margra þessara
slysa, en um 10 manns þurftu
að leyta á slysadeild FSA vegna
þeirra.
Um kaffileytið á föstudag
hugðist bifreið taka fram úr
annari bifreið við Bægisá í
Hörgárdal. Fremri bíllinn ætlaði
þá að beygja til vinstri sem hann
og gerði en þá var aftari bíllinn
lagður af stað framúr og skullu
bílarnir saman. Annar bíllinn fór
út af veginum og fram af 5
metra háum vegakanti og stöðv-
aðist í moldarbarði. Þrennt fór á
slysadeild en enginn alvarlega
slasaður.
A Iaugardag um kl 13:00 varð
árekstur við Sigluvík þar sem
bíll sem hugðist fara fram úr
öðrum bíl Ienti framan á bíl sem
kom á móti. Þrír voru fluttir á
slysadeild eftir þann árekstur
þar á meðal ökumaður og barn
úr bílnum sem kom á móti og
var á sínum rétta vegarhelmingi.
Þykir nokkuð ljóst að þarna var
verið að reyna framúrakstur þar
sem hann átti ekki við og sýnir
þetta slys að menn verða að vera
við öllu búnir á vegum úti.
A laugardagskvöld var lögregla
kvödd til vegna þess að bifreið
hafði ekið af talsverðum krafti á
eins metra háan steinvegg.
Kvaðst bílstjórinn hafa blindast
■ii sólinni og ekki seð vegginn
Hann kvartaði \lír eymslum í
hendi en tveir 1 arþegar oru
aumir á bringu eftir beltin.
Um hádegisbil á sunnudag
hugðist bíll taka fram úr krana-
bíl í Öxnadal. Það tókst þó ekki
betur til en svo a bíllinn sem var
að fara framúr rakst utan í
kranabílinn með þeim afleiðing-
um að kranabíllinn ýtti bílum
áfram eftir vegninu eina 45-50
metra.
A sunnudag um kalfileytið
varð aftanákeyrsla á mótum
Hlíðarbrautar og Merldgils og
fór ökumaður aftari bílsins á
slysadeild meö eymsli í hálsi.
Annar bíllinn gjöreyðilagðist í