Dagur - 17.08.2000, Síða 4
4 - FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
FRÉTTIR
84 ár skilja að elsta og
yngsta farsímaeiganda á ís-
landi. Sá elsti er 95 ára en
sá yngsti ekki nema 9 ára.
Skyldi þetta vera heims-
met?
íslendingar hafa sett enn eitt heimsmet-
ið. Nú eigum við met í farsímaeign. Aður
höfum við sett heimsmet í snyrtilegum
klæðnaði, fallegum konum og lestri
bóka. Það mætti því ætla að í dag sæist á
hveiju götuhorni ung og falleg kona.
Konan er klædd samkvæmt tískustraum-
um erlendu stórblaðanna, hún er ung
kona á uppleið og henni er ekkert
ómögulegt. í annari hendi ber hún far-
síma og getur því fengið útrás fýrir stöð-
uga löngun sína til að tala. I hinni hend-
inni hefur hún bók og að sjálfsögðu er
hún að lesa rit eftir tískuhöfund.
Fjögura ára með skráð númer
Samkvæmt nýjustu tölum er þessi kona
bara ein af mörgum því 197 þúsund far-
símar eru skráðir á landinu. Þar af 171
þúsund GSM símar. Farsímar hafa lengi
verið á markaðnum hér á Iandi en það er
ekki langt síðan farsímaeign varð al-
menn. Samkvæmt upplýsingum frá Sím-
anum GSM er það fólk á öllum aldri sem
á og notar farsíma. Yngsti skráði GSM
eigandi hjá Símanum er nfu ára en áður
var fjögurra ára barn með skráð síma-
númer. Þeirri áskrift er nú lokið og telja
menn hjá Símanum að þar hafi barnið
sjálft ekki verið með síma heldur hafí ver-
ið einhver vandræði með kennitölu for-
ráðamanns. Elsti áskrifandinn er 86
árum eldri en sá yngsti. Lengi vel var ekki
hægt að fylgjast með hve ung börn voru
komin með GSM vegna þess að símarnir
voru skráðir á foreldrana. Með tilkomu
Frelsis hefur þetta hins vegar breyst og er
Ijöldi GSM eigenda undir fermingaraldri
allraf að aukast. Tilgangur eignarinnar er
að sögn foreldranna. „Það er svo gott að
geta alltaf vitað hvar barnið er.“ Flvað
hefur orðið um klukkur og reglur erum
við að ala börnin okkar upp í gegnum
GSM síma?
Böm eiga ekki að vera með síma
Klara Bramm 95 ára hefur átt farsíma í
nokkur ár. Hún var 3 ára gömul þegar
hún talaði í fyrsta skipti í síma. „Eg man
vel eftir því. Amma mín var í símanum og
þar sem síminn hékk uppi á vegg mátti ég
standa uppi á stól til þess að tala í hann.
Eg fékkst ekki til að tala í símann í það
skiptið en hlustaði af athygli á það sem
hún amma hafði að segja," segir Klara
sem ber aldurinn vel. „Eg hef ekld eins
gott úthald og ég hafði áður cn sjón og
heyrn eru í lagi svo ég þarf ekki að
kvarta."
Móðir Klöru rak verslun á Isafirði og
var því komin með síma nokkuð snem-
ma. Þrátt fyrir að það hafi svo til alla tíð
verið til sími á heimili Klöru talaði hún
lítið í tækið fyrr en hún fluttist að heim-
an. „Maður var ekkert að tala í síma að
óþörfu. Það var ekki fyrr en ég gifti mig
og eignaðist minn eigin síma að ég fór að
nota hann. I dag nota ég heimilissímann
heilmikið til að eiga samskipti við mína
nánustu."
Börn Klöru gáfu henni GSM símann í
afmælisgjöf fyrir nokkrum árum og segir
Klara að hún hafi hann alltaf opinn en
sjálf hringi hún ekki mikið úr honum.
„Eg kann að hringja og svara úr símanum
en að öðru leyti kann ég ekkert á hann.
Ég dvel í sumarbústað stóran hluta sum-
arsins og þá er síminn aðallega í notkun."
En hvað skyldi Klöru finnast um að
níu ára börn séu komin með eigin síma.
„Mér finnst það nú óttaleg vitleysa. Hvað
hafa þessi börn að gera með að hafa síma
á sér þegar þau eru úti að leika sér? Mín-
ir foreldrar komust ágætlega af án þcss
að nota síma við mitt uppeldi og ég held
að jrað sama ætti að gilda um foreldra í
dag. Hafi þeir hins vegar ekki tíma til að
sinna börnunum sínum ættu þeir kanns-
ki að hugsa málið betur áður en þeir
eignast þau.“ — GJ
-tfc^ur
„Góðan dag. Þetta er hjá
Haraldi Blöndal hæsta-
réttarlögmanni og hjá
Rannsóknarnefnd sjó-
slysa. Vinsamlega lesið
inn skilaboð og mun eg
svara þeim sem íyrst
má eg. Þakka yður fyr-
ir.“
Svona var tíðinda-
mönnum heita potts-
ins tilkynnt að svarað
væri hjá Rannsóknar-
nefnd sjóslysa um þess-
ar mundir. Enginn _________________
fundur hefur verið
haldiim hjá rannsóknamefndimii eftir síðasta
sjóslys að sögn kunnugra. Þvl er borið við að
miklar amiir séu vegna eldri mála, s.s. vegna
strands Vikartinds á Suðurströndinni og þegar
Æsa sökk á Amarfirði. Eins taki ný lög um Raim-
sóknamefnd sjóslysa gildi 1. september nk.
Hvað sem því líður verður ekki annað sagt um
formannimi en að hann sé kurteis í símami. Op-
inberar þéringar em ekki daglegt brauð nú um
stundir...
Haraldur Blöndal.
Engin sérstök lilýja hefur verið í samskiptum til-
tekinna sveitarstjómarmamia í Mývatnssveit og
forsvarsmanna Náttúmvemdar ríkisms undan-
farið. Hvislað hefur verið í heita pottinum að
Mývetningum þyki NR ekki hafa margt gáfulegt
fyrir stafni, þegar stofnunin veiji tíma sínum og
fjármunum í að kæra presta og önnur fýrirmemii
sem í sakleysi hugðust ríða yfir landið sitt á dög-
unum. Aðrir segja aftur á móti að hestafólkið
hafi gefið hættulegt fordæmi hvað varðar land
spjöll og því þurfi að refsa...
í heita pottinum hittust nokkrir Samfýlkingar-
menn í gær og sögðust ánægðir með afgerandi
foiystu formamis Samfýlkhigarinnar gegn þvi
að Hótel Valhöll yrði seld undh sumarbústaö
iýrir auðjöfur frá Mónakó. Hinum sömu þótti
hins vegar ríkisstjómin hafa verið sein að taka
við sér og töldu að ef Össur liefði ekki tekið af-
dráttarlaust af skarið þá hefðu viðbrögð stjóm-
arinnar verið linari en raun bar vhni...
Neikvæðri umræðu að kenna
FRÉTTA VIÐTALIÐ
Sævar
Gunnarsson
fomiaður Sjómíinnasambands ís-
lands
Mjðg dræm aðsókn er i nám
tengt sjávarútvegi. Færri inn-
ritast í vélskóla og stýri-
mannaskóla og engin kennsla
verðuráfiskvinnslubrautum
umlandiðívetur.
- Er þeita ekki áhyggjuefni?
„Jú, ég hef sannarlega áhyggjur af þessu.
Eg hef mikið velt þessu fyrir mér og mér
dettur f hug að neikvæð umræða um sjávar-
útveginn sé stór hluti skýringarinnar, ég ótt-
ast það mjög. Hvað varðar skipstjórnar- og
stýrimannanám verðum við Iíka að viður-
kenna að atvinnumöguleikar eru því miður
oft ekki nógu góðir ef skipstjórar eða stýri-
menn ákveða að fara í Iand. Hvað vélstjór-
unum viðvíkur hafa þeir hins vegar gríðar-
lega atvinnumöguleika enda fara margir
þeirra aldrei á sjó. Ahugaleysið óttast ég
samt öðru fremur, að megi rekja til umræð-
unnar eins og fyrr segir.“
- IVií hefur launamunur sjómanna og
annarra einnig minnkað. Hefur það ekki
áhrif?
„Það er ekki vafi á því í mínum huga að
t.d. deilur sjómanna og útvegsmanna í sam-
bandi við verðmyndun á sjávarfangi hafa
haft mjög neikvæða ímynd í för með sér.
Sem dæmi er yfir 100% verðmunur á þorski
eftir því hver hefur ráðstöfunarréttinn og
þarna hefur verið styrjaldarástand. Ég held
að við getum svolítið sjálfum okkur um
kennt hvað varðar umhverfi þessara starfs-
hópa. Ég hef heyrt fjölda ungra manna
segja: Ég hætti vegna þess að það svarar
ekki kostnaði að standa í þessu. Við verðum
að komast í gegnum þetta f’rumskógará-
stand sem hér ríkir í verðmyndunarmálum."
- Hvemig gengur setn stendur að manna
á sjóinn?
„Það er heldur erfiðara en verið hefur.“
- En þeir eru færri sem stunda sjósókn
nú.
„Já, heldur er það en það er erfitt að halda
utan um það hve margir starfa í þessu. Ég
hef ekki trú á að fækkun í starfsstéttunum
hafi nein áhrif að marki hvað varðar þessa
þróun.“
- Hvaða leiðir sérðu til að snúa vöm í
sókn hvað varðar þennan langmikilvæg-
asta atvinnuveg þjóðarinnar?
„Ég sé ekki margar aðrar leiðir betri en að
snú^ umræðunni og laga þetta stríðástand
sem verið hefur í verðmyndun. Auðvitað
hefur líka verið mjög neikvæð umræða um
fiskveiðistjórnunarkerfið og ráðstöfunarrétt
útvegsmanna. Við þurfum að reyna að
breyta þessu og auka kynningu á útveginum
með jákvæðum hætti og m.a. inni í grunn-
skólunum."
- Spilar eliki lífsgæðahreytingin inn í
þetta eintiig? Við sættum okkur ekki við
annað en að hafa það sífellt betra og betra
hvað varðar starfsskilyrði.
„I mínum huga er ekki minnsti vafi á að
sjómaðurinn fer á mis við Ijöldamargt. Ég
þekki það eftir tæplega 30 ára sjómennsku
að „lífsstandardinn" er mjög ólíkur ef mað-
ur ber saman hlutskipti þess sem fer í vinn-
una ld. átta að morgni í landi og snýr aftur
kl. fjögur eða þeirra sem eru á sjónum í
mánuð, stoppa síðan í 4 sólarhringa og fara
aftur út. Það er margt ungt fólk sem ekki
sættir sig við þetta fyrirkomulag og það er
enginn vafi að fjölskyldan fer á mis við
margt þegar sjómannslífið er annars vegar.
- Og hvað fiskvinnsluna varðar, kunna
aðstæður þar einnig að þykja nokkuð
kuldalegar?
„Jájá, fiskvinnslan ætti að vera langhæst-
Iaunaða almenna verkamannavinnan vegna
þess að það þarf að vera kalt á vinnustöðun-
um, eðli málsins samkvæmt og þetta er
mjög mikil tarnavinna. Ég held samt að í
þeim geira sé miklu hægt að breyta með því
að bæta ímyndina." — BÞ