Dagur - 17.08.2000, Síða 7

Dagur - 17.08.2000, Síða 7
FIMMTUDAGU R 17. ÁGÚST 2000 - 7 í klóm dauðans Vegakerfið er ekki bara formúlubraut á milli áfanga heldur líka æðakerfi fyrir fólkið að njóta lífsins. Það gleymist í hraðanum. ÞJÓÐMÁL Vegir Fólk er fljótt að gleyma. Pistilhöfundur átti erindi á glæsilegt Pæjumótið í fót- bolta norður á Siglufirði um helgina og ók þangað með ugg í brjósti og hnút í maga eftir hörmulegar slysfarir að undanförnu. Dánarfregnir og minninga- skril um kornung fórnar- lömbin hvelfast nú yfir fólk í blöðum og valda bæði óhug og djúpri sam- úð. En varla hafði pistil- höfundur sleppt Mosfellsbænum á norður- Ieið þegar hann ásamt öðrum bílstjóra mátti hemla fýrir stórum flutningabíl frá MR búðinni sem kom Þingvallaveg og beygði þvert fyrir umferð á Vesturlandsvegi. Annað var ekki að sjá en bílstjórinn væri sáttur við aksturinn sem hluta af sínu dag- lega verkefni. Fólk er fljótt að gleyma. Mátturíim og Stærðin - Might is right! segja Bretar og má snara því svo á íslensku að sá Stærri og Sterkari hafi jafnan rétt íyrir sér. Lögmál þctta er enginn nýr sannleikur tý'rir Islendinga og kemur hvergi betur í ljós en í umferðinni. Stórbílar svína miskunnarlaust fýrir litla og ökumenn minni bíla láta frekar í minni pokann en standa uppi í hárinu á stórfisk- um. Að stela réttinum er hættulegt umferð- arbrot en að stela réttinum í skjóli stærðar er alvarlegt refsilagabrot. Að vísu er ökumönnum stórbíla nokkur vorkunn á vegum úti. Þjóðvegurinn er þeir- ra vinnustaður og þeir verða heimaríkir eins og annað fólk á öðrum vinnustöðum. Bjarti í Sumarhúsum fannst hann venslað- ur bithaganum um sauðkindina og á sama hátt finnast meiraprófsmönnum þeir sjálf- sagt venslaðir þjóðveginum um bensíngjöf- ina. En öll þvílík fjölskyldutengsl breyta þó ekki umferðarlögunum. Fóðurflutningabíll MR og aðrir stórbílar voru hins vegar ekki einu farartækin sem pistilhöfundur undrað- ist á ferð sinni: Sérstök vanmetakennd virð- ist þrúga ökumenn með tengivagna. Hver ökuþórinn á fætur öðrum með fjölskylduna í bílnum og tjaldvagn í eftirdragi tók fram úr pistilhöfundi á meira en hundrað kíló- metra hraða til þess eins að aka svo fýrir framan hann á áttatíu. Hvað er að? Hver eru skilaboðin sem tengivagnamenn eru að senda út í umferðina eða er það neyðar- kall? Steininn tók úr í Blöndudalnum þegar ökugikkur með tjaldvagn og tvo báta reyrða á þakið flaug fram úr á 130 kílómetra hraða og vantaði ekki annað en flugvél bundna á húddið til að kominn væri vísir að fljúgandi samgönguminjasafni. Meira og Minna próf - Slow traffic keep left! segja skilti á þjóð- vegum Breta en breskir aka enn á vinstri vegarhelmingi. Reglu þessa má endursegja á íslensku sem Hægfara umferð til hægri! Að vísu er langur vegur frá íslenskum þjóð- vegi til bresku hraðbrautanna með margar akreinar og því ólíku saman að jafna. ís- lendingar aka væntanlega áfram um vega- kerfið í halarófu á einni akrein næstu ára- tugina. Ekkert svigrúm er því til að halda hægfara umferðinni á sérstakri akrein við hægri vegarbrún. En kjarni málsins er sá að Bretar flokka öll stærri atvinnutæki undir hægfara umferð á vegum úti og vilja halda þeim frá einkabílum með valdboði. Hér á landi er öldin önnur: Islenskir þjóðvegir eru undirlagðir af atvinnutækjum og ökumenn þeirra eru ekki á þeim buxunum að halda sig frá einkabílum vegna hægagangs. Miklu frekar Iíta þeir á einkabflinn sem hvern annan farartálma á formúlubraut og gefa í samkvæmt því. Pistilhöfundur hefur aldrei farið svo geyst á þjóðvegi að einhver másandi trukkurinn elti hann ekki uppi og taki fram úr honum þegar minnst varir. Iðulega siglir einn stórbíllinn fram úr öðr- um og jafnvel heilar rútur skjóta öðrum rútum ref fyrir rass á þjóðbraut á borð við Reykjanesbrautina. Og ekki þarf þjóðvegina til: Reykvíkingar eiga því að venjast að atvinnutækin raði sér hlið við hlið á akreinar við rauð umferðar- Ijós eins og soltið fé á garða. Bregða svo við eins og veðhlaupahestar í Víðidal á grænu ljósi til að ná einhverri óljósri forystu í um- ferðinni handan við umferðarljósin. En því eru stórbílar og flokkun breskra á hæg- fara umferð nefnd hér til sögunnar að hlut- ur atvinnutækja er þvf miður stór í skelfi- legu áhlaupi umferðarslysa síðustu vikum- ar. Okumenn þeirra eru betur undir al- menna umferð búnir en ökumenn einka- bíla og þeir hafa lokið námskeiði í akstri og umferðarreglum með svonefndu Meira prófi. Atvinnumennirnir eru því eins konar sérfræðingar í umferðinni og lifandi fyrir- mynd. Ritgerðir og Launsátur En hvað skal til vamar vorum sóma? Ein leið til að einfalda umferðina er að atvinnu- tæki ferðist um á nóttunni og hljóti í stað- inn afslátt á þungaskatti og gúmmígjaldi. Draga má úr hámarkshraða á þjóðvegum um ferðahelgar eða heilu mánuðina og þá loks njóta ferðamenn útsýnis á ferð sinni. Vegakerfið er ekki bara formúlubraut á milli áfanga heldur líka æðakerfi fýrir fólkið að njóta lífsins. Það gleymist í hraðanum. Viðurlög eru rangt hugsuð á Isiandi. Sektir og svipting ökuleyfis eru úrelt þing og nýjar lausnir þurfa að leysa þau af hólmi. Að borga sekt og sitja heima er of Ijarlægt kjar- na málsins í hvcrju umferðarbroti. Svifta má akstursgikki ökuleyfi þangað til þeir hafa samið 2000-3000 orða ritgerð um af- leiðingar brotsins sem þeir frömdu og skella þeim aftur í ökupróf hjá Umferðar- ráði. I stað sektar má láta þá þvo gólfin í 100 tíma á slysavaðstofum og fylgjast þann- ig með hörmunguni umferðarslysa. Viður- lögin breytast þá í minnisstæða fræðslu í stað hcfndar. Hraðamælingar lögreglu hafa aldrei snúist um bætta umferð heldur tekjulind í ríkissjóð og launsátrin eru valin þar sem ökumönnum hættir til að spretta úr spori en ekki á mestu hættuslóðum í umferðinni. Meiraprófsmcnn eru hart leiknir þessa daga og hafa fallið á prófinu. Rútur hafa hrunið út af þjóðvegum eins og endur í skotbakka og lent í hörmungum umferðar- slysa. Onnur atvinnutæki hafa valdið stór- slysum. Spurningin er hvort meiraprófið dugi eitt til að halda atvinnumönnum við efnið og hvort ekki þurfi líka stoðkerfi eins og AA kerfið er fýrir sitt fólk. Eins verða sérleyfishafar og strætisvagnar að endur- skoða leiðakerfi sín og koma í veg fýrir að bílstjórar liggi undir álagi við akstur á milli viðkomustaða. Einskis má láta ófreistað til að losa þjóðina úr viðjum dauðaslysa. Ljúloun heimsstyrjöldiiini I seinna veraldarstríði lagði breskur innrás- arher flugvöll í hjarta Reykjavíkur og reif mörg hús til grunna ofan af saldausu fólki í Vatnsmýrinni til að rýma fyrir flugbrautum og flutti önnur hús inn á Teiga. Ein flug- brautin liggur frá dyrum Landspítalans að Bessastöðum forsetans og önnur flugbraut Iiggur að dyrum Háskólans. Sú þriðja stefn- ir Seint á Borgarspítalann. Aðflug og brott- flug er yfir sjálfan miðbæ Reykjavíkur með Alþingishúsið, Dómkirkjuna og Miðbæjar- skólann í skotmáli. íslensk stjórn kvislinga sat að völdum í landinu ef völd skyldi kalla og Iagði blessun sína yfir flugvöllinn í Vatnsmýrinni eins og sjálft hernámið. Síðan eru liðin fimmtíu ár og ættu dagar flugvall- arins senn að vera taldir í nútíma borgar- samfélagi en hann gengur nú samt í endur- nýjun lífdaga sinna fyrir milljarða króna um þessar mundir. Mál er að linni. Seinni heimsstyijöld verður að ljúka í Vatnsmýrinni eins og henni lauk á öðrum vígvöllum álfunnar fyrir fimmtíu árum. UMBÚÐfl- LAUST Væntmgar en enginn árangur Þegar umræðan byrjar að snúast um flutning ríkisstofnana út á land, einkum þegar um er að ræða mjög sérhæfðar stofnanir sem krefjast menntunar og sér- þekkingar, þá hlýtur ntaður að velta því fýrir sér hvcrsu raunhæf slík umræða er í ljósi þess að víð- ast hvar hefur minni stöðum á landsbyggðinni gengið bölvanlega að halda hjá sér þeim störfum scm þar eiga þó ,,náttúrulega“ heima, s.s. ýmis afleidd störf sem tengjast sjávarútvegi og landbún- aði og þjónustustörfin sem alltaf eru að verða til. Störfum í frum- framleiðslu, þeim störfum sem fyrirferðarmest eru í dreifbýlinu og á minni stöðum á landsbyggð- inni, hefur fækkað um nokkur þúsund á undanförnum árum. Því er spáð að þeim muni enn fækka. Nýju störfin sem orðið hafa til vegna tæknibreytinga og þróunar í frumframleiðslugreinunum hafa gjarnan tengst tækni og nýrri þekkingu og hafa því miður orðið til annars staðar en í sveitum og sjávarþorpum. Og ef þessi störf ná ekki fótfestu, hverjir eru þá möguleikar þeirra sem eru enn fjarlægari því atvinnulífi sem sveitin og sjávarþorpin byggja á? Það er slæmt ef stjórnmálamenn vekja væntingar sem engin inni- stæða er fyrir. Betra er að vinna út frá veruleikanum. Það er lík- legra til árangurs en handahófs- kennt uppboð möguleika sem ekld eru raunhæfir. Það eru hins vegar verulegir vaxtarmöguleikar í mörgum þjón- ustugreinum sem geta verið á landsbyggðinni, svo sem tölvu- og gagnaþjónustu við atvinnurekst- ur. Möguleikar upplýsingatækn- innar og það að byggja hluta framtíðarþróunar samfélags okk- ar á öflugu Ijarskiptakerfi og hag- nýtingu þess, m.a. á úrvinnslu upplýsinga, getur dregið úr áhrif- um dreifðrar búsetu og Iand- fræðilegri einangrunar. Með því gætu skapast skapast möguleikar á fjölbreyttari atxánnutækifærum utan stærstu byggðakjarna. Og þarna hafa stjórnvöld átt mögu- leika á að sýna hvers þau eru megnug, hvort hugur fylgir máli. Áranguriim hálft starf Þegar alþingi kom saman síðast- Iiðið haust bar ég fram fýrirspurn til tveggja ráðherra um það hvernig þeir hyggðust vinna úr þeim ákvæðum byggðamálastefn- unnar sem lúta að því ,,að mögu- leikar upplýsingatækninnar verði nýttir til hins ítrasta." Skýrsla Iðntæknistofnunar var þá nýkom- in út og vísuðu menn óspart til hennar. Annars varð fátt um svör og greinilegt að engin undirbún- ingsvinna hafði þá farið fram í ráðuneytum. Þó var talið sjálfsagt að Byggðastofnun ætti samstarf við Iðntæknistofnun um frekari úr\'innslu verkefna. Það er at- hyglisvert í ljósi stöðu mála nú að í umræðunum atyrti Kristinn H Gunnarsson stjórnarandstöðuna fýrir vantraust hennar á vilja rík- isstjórnarinnar til þessara verka. Ekki virðist hann þó, sem for- maður stjórnar Byggðastofnunar, hafa brett upp ermar frekar en aðrir sem horðið hafa ábyrgð á þróun mála þetta tæpa ár sem Iið- ið er. Samkvæmt upplýsingum er afraksturinn 1/2 starf. Eftir stóru orðin er þetta dapurlegur árang- ur. íhaldið vísar á framsókn Forsætisráherra sagði á alþingi, eftir að hafa gefið Olafsfirðing- umfý'rirheit um verkelni sem hann síðan stóð ekki við, ,,að Byggðasviði iðnaðar- og við- skiptaráðuneytis hefði verið falið að kanna þetta mál nánar í sam- ráði við hlutaðeigandi stjórn- völd...“ Þetta var skömmu eftir að byggðamálin voru flutt úr forsæt- isráðuneytinu. Framsókn er sem sagt með máliö. Þingflokksfor- maður framsóknar og formaður stjórnar Byggðastofnunar er á hröðum flótta. Hann hýður nú upp sérhæfðar ríkisstofnanir en vísar ábyrgð að öðru leyti yfir á ráðherrana. Það vísar hver á ann- an. I þessu máli er ekkert sem stjórnvöld vilja eigna sér lengur, ekki einu sinni fýrirheitin sem þau gáfu og væntingarnar sem þær vöktu. Því miður varð fjarvinnslan að nýju refa-og Iaxeldisævintýri í höndum stjórnvalda. Möguleik- arnir eru samt enn fyrir hendi. Úr þeim verður að vinna. Það má ekki gerast að landsbyggðin sitji áfram hjá við tilurð og þróun nýrra möguleika í þjónustu sem tengist fjarvinnslu og upplýsinga- tækni. Aðkoma samgönguráðherra að jöfnun kostnaðar við gagnaflutn- inga bendir ekki til þess að viljinn sé mikill. Hálft starf við fjar- vinnslu á einu ári gefur ekki mikl- ar vonir. Það verður fýlgst grannt með aðgerðum stjórnvalda á þessu sviði á næstunni, bæði af hálfu okkar í Samfylkingunni og fólks- ins á stöðunum sem bíða enn eft- ir störfunum sem auka áttu at- vinnu- og búsetumöguleika þess.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.