Dagur - 17.08.2000, Síða 9
Xk^n-
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 - 9
ÍÞRÓTTIR
L a
Úr leik íslands gegn Ítalíu í fyrra.
Barist lun 3. sætið
íslenska kvennalands-
liðið í knattspymu
leikur tvo síðustu
leiki sina í riðla-
keppni EUKO-2001 í
dag og á þriðjudag. í
dag kl. 18:00 mætir
liðið Þjóðverjum á
Kópavogsvelli og
Úkrainumönnum á
Laugardalsvelli á
þriðjudag kl. 20:00.
Islenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu leikur í dag gegn
Þjóðverjum í undankeppni Evr-
ópumóts landsliða. Leikurinn,
sem er seinni leikur liðanna í 3.
riðli, fer fram á Kópavogsvelli og
hefst kl. 18:00. Fyrri leikurinn
fór fram í Oldenburg í Þýsklandi
þann 19. október s.l. og sigruðu
Þjóðverjar þar 5-0, eftir að stað-
an var 3-0 í hálfieik. A þriðju-
dagskvöldið verður síðan leikið
gegn Ukraínumönnum á Laugar-
dalsvelli og gæti það orðið hreinn
úrslitaleikur um þriðja sætið í
riðlinum, sem gefur réttinn til að
leika aukaleik um laust sæti í úr-
slitakeppni EURO-2001.
Baráftan nin Jiriðja sætið
Að sögn Loga Olafssonar, lands-
liðsþjálfara, er mjög mikilvægt
fyrir stelpurnar að ná góðum úr-
slitum í leiknum í dag. „Baráttan
stendur um að halda þriðja sæt-
inu í riðlinum á undan Ukraínu-
mönnum og tryggja þar með
aukaleik um sæti í úrslitakeppn-
inni EURO-2001 gegn Englend-
ingum, sem lentuí 2. sæti 2. rið-
ils. Til þess þurfum við að ná
hagstæðum úrslitum gegn Þjóð-
veijum og vinna síðan Ukraínu-
menn á þriðjudaginn og þá verð-
ur þriðja sætið í riðlinum okkar. í
Evrópukeppninni er þjóðunum
skipt í tvo styrkleikaflokka og
keppa A-þjóðirnar sextán, sem
við erum á meðal, f fjórum riðl-
um og komast efstu liðin beint í
8-liða úrslitin. Liðin í öðru og
þriðja sæti riðlanna leika síðan
aukaleiki um hin fjögur sætin,
þar sem 2. liðið í 1. riðli leikur
við 3. liðið í 4. riðli og svo fram-
vegis. Það lið sem lendir í neðsta
sæti riðilsins á það á hættu að
falla niður um styrkleikaflokk og
verður þá að leika um það gegn
einhverju af þeim liðum sem ná
bestum árangri í keppni B-
þjóða,“ sagði Logi.
Stelpumax til alls Kklegar
Eftir jafnteflið gegn Ukraínu-
mönnum í fyrri leiknum í Do-
netsk, ættu möguleikar íslenska
liðsins að vera góðir. Liðið er nú
í þriðja sæti riðilsins með tvö stig
eftir íjóra leiki, þar sem tveir
hafa tapast og tveir endað með
jafntefli. Stelpurnar hafa hingað
til verið að spila mjög vel í
keppninni og komið verulega á
óvart.
Að sögn Loga hafa stelpurnar
sannað að þær eru til alls líkleg-
ar. „Það höfum við séð að undan-
förnu, samanber úrslitin gegn
Ítalíu og síðan jafnteflið gegn
heimsmeisturum Bandaríkja-
manna í vor. Eg hef því trú á að
þær eigi eftir að standa sig og
það yrði mikill sigur fyrir þær að
ná jöfnu gegn Þjóðverjum, hvað
þá að sigra, en við höfum hingað
til tapað íyrir þeim með miklum
mun. Þýska liðið er geysisterkt
og býr yfir mikilli Ieikreynslu, eft-
ir að hafa tekið þátt í öllum hel-
stu stórkeppnum knattspyrnunn-
ar á síðustu árum. Þær eru nú-
verandi Evrópumeistarar, þar
sem þær unnu ítali 2-0 f úrslita-
leik EURO-1997 í Osló og náðu
síðan að komast í 8-liða úrslit á
HM í Bandaríkjunum í fyrra.
Þær hafa þegar tryggt sér sigur í
riðlinum og eru mættar hér með
hópinn sem tekur þátt í Olymp-
íuleikunum í Sydney í næsta
mánuði, þar sem þær spila í riðli
með Aströlum, Svíum og Brasil-
íumönnum. Þær munu því ör-
ugglega reyna allt til að ná góð-
um úrslitum og góðri stemningu
svo stuttu fyrir Ieikana,“ sagði
Logi.
Áhersla á vamarleiMnn
Aðspurður um leikaðferðina
gegn Evrópumeisturunum í dag,
sagði Logi að lögð yrði áhersla á
að leika sterka og agaða vörn.
„Aðalatriðið er að ná hagstæðum
úrslitum þannig að við verðum
að fara gætilega og hafa það í
huga að markatala gæti hugsan-
lega ráðið úrslitum í riðlinum. I
riðlakeppninni ráða úrslit í inn-
byrðis leikjum ef Iiðin verða jöfn
að stigum og ef við töpum gegn
Þjóðverjum í dag og gerum síðan
jafntefli við Ukraínu á þriðjudag-
inn, þá ræður markahlutfallið
hvort Island eða Ukraína nær
þriðja sætinu, þar sem liðin
gerðu 2-2 jafntefli í fyrri Ieiknum
ytra.“
Okkar sterkasta llð
Aðspurður um byrjunarliðið
gegn Þjóðverjum sagði Logi að
hann teldi sig stilla upp okkar
sterkasta liði. „Eftir að Ijóst var
að Katrín Jónsdóttir komst heim
í Ieikinn frá Noregi, þá er ég
sannfærður um að liðið er það
sterkasta sem við eigum í dag. Að
vísu hefur Guðlaug Jónsdóttir
verið lítillega meidd og tók því
ekld þátt í æfingunni í fyrradag,
en það kemur í ljós í dag hvort
hún verður klár í slaginn. Að
öðru leyti er liðið í góðu lagi og
allar klárar í slaginn."
Tíundi leikurinn gegn
Þjóðverjum
Leikur íslands og Þýskalands í
dag er tíundi landsleikur þjóð-
anna frá upphafi og hafa Þjóð-
verjar alltaf sigrað. Markatalan
er okkur mjög óhagstæð, eða
40:3, en næst því að sigra
komumst við árið 1987, þegar
liðin mættust í Delmenhorst, þar
sem Þjóðverjar sigruðu 3-2.
Fyrsti landsleikur þjóðanna fór
fram í Kópavogi árið 1986 og þá
unnu Þjóðverjar 4-1 ogsíðan 5-0
á Laugardalsvelli þremur dögum
seinna.
íslenski landsliðshópurinn
Markverðir:
Þóra Helgadóttir, Breiðabliki
María B. Agústsdóttir, Stjörnunni
Aðrir leikmenn:
Erna B. Sigurðard., Breiðabliki
Helga Ósk Hannesd., Breiðabliki
Hrefna H. Jóhannesd., Breiðabliki
Margrét R Ólafsd., Breiðabliki
Rakel B. Ögmundsd., Breiðabliki
Erla Hendriksdóttir, Fredriksberg
íris Sæmundsdóttir, ÍBV
Katrfn Jónsdóttir, Kolbotn
Ásthildur Helgadóttir, KR
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, KR
Guðlaug Jónsdóttir, KR
Guðrún S. Gunnarsdóttir, KR
Olga Færseth, KR
Elfa B. Erlingsdóttir, Stjörnunni
Laufey Ólafsdóttir, Breiðabliki
Ásgerður Ingibergsdóttir, Val
Rakel Logadóttir, Val
Rósa J. Steinþórsdóttir, Val
Staðaní 3. riðli:
Þýskal. 5 4 1 0 21:5 13
Ítalía 6 2 3 1 6:7 9
ísland 4 0 2 2 2:8 2
Úkraína 5 0 2 3 3:12 2
Úrslit leikja íslands:
Úkraína - ísland 2-2
ísland - Ítalía 0-0
Þýskal. - ísland 5-0
Ítalía - ísland 1-0
Sigur gegn Svíum
Islenska karlalandsliðið vann í
gærkvöld 2:1 sigur á Svíum á
Laugardalsvelli í leik sem var liður
í Norðurlandamótinu í knatt-
spyrnu.
Leikurinn var Ijörugur frá upp-
hafi til enda og var það Svíinn
Johan Mjpllby sem skoraði fyrsta
mark Ieiksins fyrir Svía um miðjan
fyrri hálfleikinn.
Ríkharður Daðason jafnaði fyrir
Island þegar um það bil 6 mínútur
voru til leikhlés eftir góðan undir-
búning Eiðs Smára og Rúnars
Kristinssonar.
íslendingar mættu sprækir til
leiks í seinni hálfleik og skoraði
Helgi Sigurðsson sigurmarkið úr
vítaspyrnu 7 mínútum fýrir leiks-
lok.
Jafnt á toppi
Dagslistans
Eftir leiki elleftu umferðar
Landssímadeildar kvenna, sem
Iauk um síðustu helgi, eru þær
Rakel Ögmundsdóttir, Breiða-
bliki, íris Sæmundsdóttir, ÍBV
og Justine Lorton, Stjörnunni,
efstar og jafnar á toppi Dagslist-
ans og hafa verið valdar sex sinn-
um í Dagsliðið. Næstar á listan-
um eru þær Ásthildur Helgadótt-
ir, Guðlaug Jónsdóttir, Guðrún
Sóley Gunnarsdóttir, og Olga
Færseth, allar úr KR, auk þeirra
Sigrúnar Óttarsdóttur, Breiða-
bliki og Auðar Skúladóttur,
Stjörnunni, sem allar hafa verið
valdar fimm sinnum. Það er því
ljóst að keppnin um Dagsbikar-
inn verður spennandi á loka-
sprettinum, en aðeins þijár um-
ferðir eru nú eftir á íslandsmót-
inu.
Alls 51 leikmaður hefur til
þessa verið valinn í Dagsliðið,
þar af flestir frá Breiðabliki, eða
alls ellefu. Leikmenn Breiðabliks
hafa einnig oftast verið valdir í
liðið, eða alls 29 sinnum, Stjörn-
urnnar 25 sinnum og KR-ingar
22 sinnum.
Dagslistinn
o
Rakel Ögmundsd., Breiðab.
íris Sæmundsdóttir, ÍBV
Justine Lorton, Stjörnunni
)---------------------------
Auður Skúlad., Stjörnunni
Ásthildur Helgadóttir, KR
Guðlaug Jónsdóttir, KR
Guðrún Gunnarsdóttir, KR
Olga Færseth, KR
Sigrún Óttarsd., Breiðabl.
Elfa B. Erlingsdóttir, Stjörn.
Karen Burke, ÍBV
Margrét Ólafsd., Breiðabl.
María B. Ágústsd., Stjörn.
Rakel Logadóttir, Val
O
Erna B. Sigurðard., Breiðab.
Sigríður Ása Friðriksd., IBV
Bryndís Jóhannesd., ÍBV
Eva Sóley Guðbjörnsd. Brbl.
Guðrún H. Finnsd., Stjörn.
Hanna Stefánsdóttir, FH
Helga Ósk Hannesd., Br.bl.
Hjördís Þorsteinsd., Breiðab.
Jennifer L. Warric, Þór/KA
Lovísa Sigurjónsdóttir, Stj.
Rósa J. Steinþórsdóttir, Val
Sammy Britton, ÍBV
Tammy Scrivens, FH
Þóra B. Helgadóttir, Breiðab.
Arna Steinsen, FH
Ásgerður Ingibergsd., Val
Ásta Árnadóttir, Þór/KA
Bergþóra Laxdal, Val
Bryndís Sighvatsdóttir, FH
Edda Garðarsdóttir, KR
Elín A. Steinarsdóttir, IA
Elsa Hlín Einarsd., Þór/KA
Eyrún Oddsdóttir, Breiðabl.
Guðbjörg Gunnarsd., FH
Guðrún J. Kristjánsd. KR
Heiða Sigurbergsd., Stjörn.
Hrefha Jóhannesd., Brbl.
Iris Steinsdóttir, IA
Laufey Ólafsdóttir, Breiðab.
Leanne Hall, FH
Petra F. Bragadóttir, ÍBV
Ragnheiður Jónsdóttir, Val
Silja Þórðardóttir, FH
Steinunn Jónsdóttir, Stjörn.
Svetlana Balinskaya, IBV
Valdís Rögnvaldsd., FH
Þóra Pétursdóttir Þór/KA
Dagsliðið kvenna 11. umferð
Lovísa Siguriónsdóttir Olga Færseth
Stjömunni KR
Gnðlang Jónsdóltir lustine Lorton
KR Stjömunni
Karen Burke Ásthildnrtlelgadóttir
ÍBV KR 1
Helsa Ósk Hannesdóttir Sigrfður Á. Friðriksd.
Breiðabliki ÍBV
íris Sæmundsdóttir Auður Skúladóttir
ÍBV Stjörnunni
Guðbjörg Gúnnarsdóttir
FH