Dagur


Dagur - 17.08.2000, Qupperneq 11

Dagur - 17.08.2000, Qupperneq 11
II 10- FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 FRÉTTASKÝRING rD^tr X^MT Úflendingar biarga sláturtíð GEIRA. GUÐSTEINS- SON SKRIFAR Haustslátnm nálgast og er gert ráð fyrir því víðast hvar að hún hefjist fyrr en venju- lega, jafnvel viku af september og göngur og réttir færist víða fram sem því nemi. LíMegt má telja að dHkakjötsverð í sept- emher og októher til hænda hækki milli ára í samræmi við al- mennar verðlagshækk- anir. Fastlega er gert ráð fyrir að vel- flest sláturhúsin greiði verð í samræmi við viðmiðunarverðskrá sauðfj'árbænda sem ákveðin verð- ur á aðalfundi Landssambands sauðfjárbænda sem nú stendur yfir í félagshcimilinu Fjarðaborg á Borgarfirði eystri. Tónninn í mörgum fulltrúum á fundinum er sá að stjórnin hafi sýnt linkind að hækka viðmiðunarverðið ekki meira en sem nam vísitöluhækk- uninni. Afkoma sauðfjárbænda var slæm árið 1999 og þungt í mönnum á aðalfundinum út af afkomunni, enda sjá þeir ekki það góðæri sem stjórnmálamenn tala um að sé í landinu. Bjartsýni rík- ir um að hægt verði að greiða bændum fyrir gærur en markaður fyrir afurðir skinnaverksmiðjanna hefur farið hatnandi, ekki síst markaðurinn í Austur-Asíu sem hríðféll fyrir tveimur árum. Búast má við að slátrun verði heldur meiri í ár og í fyrra en þá var slátrað alls liðlega 55I.OOO fjár, hæði dilkum og fullorðnum. Aukningin felst fyrst og fremst í því að sauðfé fækkar í haust vegna uppkaupa samkvæml nýj- um samningum. Vænleiki er ein- nig talinn vera meiri og því verð- ur meðalfallþungi eitthvað meiri milli áranna 1999 og 2000. Þar sem fólki fækkar stöðugt til sveita verður þaö bændum sílfellt erfiðara að manna göngur, ekki síst þeim bændum sem stóra af- rétti þurfa að smala, og fer ástandið sífellt versnandi eftir því sem lengra kemur frá höfuðborg- arsvæðinu en íbúar suðvestur- hornsins hafa margir hverjir mikla ánægju af því að leggja bændum lið og sækja fé á afrétti, jafnvel þótt göngur standi í viku eins og á Landmannaafrétti. Mönnun sláturhúsa kann að verða stærra vandamál, og eru mörg sláturhúsanna að undirbúa ráðningu vinnuafls frá Norður- löndunum, ekki síst Finnlandi, til að leysa sárasta vandann. A árinu hafa 1840 útlendingar fengið at- vinnuleyfi. Sameining slátur- húsa, afurðastöðva og kjöt- vinnslna á árinu kann að breyta einhverju þar um þar sem verið er að sérhæfa húsin meira, t.d. fer öll sauðfjárslátrun hjá Norð- lenska matborðinu, sem varð til við sameiningu Kjötiðnaðarstöðv- ar KEA og Kjötiðjunnar á Húsa- vík, eingöngu fram á Húsavík, en stórgripaslátrun á Akureyri. Sauðfjársláturhúsið á Húsavík verður það stærsta á landinu. Arsvelta Norðlenska er áætluð 1.700 milljónir króna. Sláturhúsm á Hvanunstanga og Homafirði með ESB leyii Goði er orðinn stærsti sláturleyf- ishafi landsins eftir sameiningu fimm fyrirtækja í kjötiðnaði og sláturhúsarekstri og eitt öflugt framleiðslu- og markaðsfyrirtæki með um 40% markaðshlutdeild. Fyrirtækin sem sameinuðust eru Borgarnes-kjötvörur, Sláturhús og kjötvinnsla Kaupfélags Hér- aðsbúa, Kjötumboðið í Reykjavík, Norðvesturbandalagið á Hvammstanga og Þríhyrningur á Selfossi. Tilgangurinn var sagður vera að mynda öfluga rekstrarein- ingu og aðlaga íslenskar landbún- aðarafurðir að síbreytilegu mark- aðsumhverfi. Arsvelta Goða er áætluð 3.600 milljónir króna. Goði verður með sláturhús á Hvammstanga og Hornafirði sem eru með starfsleyfi á ESB-mark- aði auk þess sem húsið á Hvammstanga er með vottun sem vinnslustöð fýrir Iífrænar afurðir. Starfsmannafjöldi Goða er um 260 manns, þar af um 200 á landsbyggðinni. I sláturtíð hækk- ar starfsmannafjöldinn upp í um 700 manns og er Valdimar Grímsson, framkvæmdastjóri Goða, nokkuð bjartsýnn um að það takist að ráða það fólk til starfa, m.a. með fagfólki frá Bret- landi og verkafólki frá Norður- löndunum. Heildarslátrun dilka og fullorðins fj'ár var á síðasta ári alls 5 51.180 stk. þar af voru þau sláturhús sem tilheyra nú Goða með um 203.000 stk. og munu halda sinni hlutdeild og jafnvel gott betur. AHt eins að lita eftir fóUd sem skepnum Sigurgeir Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri Bændasamtak- anna, segir að vandamál með það að fá fólk í göngur og til vinnu á sláturhúsunum hafi ekki komið inn á borð Bændasamtakanna, það sé fyrst og fremst oddvitanna sem senda út gangnaseðla til bænda og vandamálið sé því fyrst og fremst hvers hónda fyrir sig. „Það horfir í óefni með göngur ef mikil fækkun verði enn á fólki til sveita, en ennþá er þetta ekki stórvandamál. Bændur á Langa- nesi eru þó meira og minna allt haustið að safna saman sínu fé, og þannig er ástandið víðar, s.s. við Isafjarðardjúp. En ég óttast að það verði mun stærra vandamál að manna sláturhúsin í haust." - Er rómantíkin og spenningur- inn við það að fara í göngur og réttir að verða fjarlæg þjóðinni þar sem stöðugt stærri hluti þjóðar- innar þekkir ekki þennan hluta atvinnulífsins? „Það er ennþá talsvert um fólk sem fer f göngur vegna þess að það hefur gaman af því, finnst það vera hluti af tilverunni á haustin. Fer í sömu göngur með sömu bændum ár eftir ár bara að gamni sínu, en það fara ekki nema vönustu menn í lengstu göngurnar, s.s. í 7 daga á Land- mannaafrétt eða á Auðkúlu- og Eyvindarstaðaheiði. Svo er farið að gera úr þessu túrisma, sérstak- lega hrossasmölun, en það er lít- ið gagn að fólki sem kemur að- eins einu sinni, og sést ekki aftur. Það þarf kannski allt eins að líta eftir slíku fólki eins og skepnun- um,“ segir Sigurgeir Þorgeirsson. Etnn maður að móti 200 vetrarfóðruðum kindum Ágúst Guðröðarson, bóndi á Sauðanesi, er með um 700 fjár á vetrarfóðrum og því með allt að 1800 fjár á fjalli. Sjö fjárbændur reka upp á Langanesið. Agúst segir að það taki um mánuð að hreinsa svæðið en það taki um 7 daga að ganga svæðið, um fjóra daga í heiðinni, að undanskildum réttardögum. „Mér hefur alltaf gelist best að gera sem mest sjálf- ur en ekki panta lið til smölunar upp úr þjóðskránni. Það fólk í hreppnum sem ekki er karlægt verður í gangi að smala. Það er jafnframt fólkið sem kann þetta og vinnur verkin best. Fyrir 200 vetrurfóðraraðar kindur þarftu að vera með einn mann í gangi en hér á svæðinu eru um 3000 fjár á vetrarfóðrum svo við þurfum að vera með 15 manns í gangi. Það er fullfært lið héðan en ekki bara eitthvað fólk til að fylla upp í göt í reglugerðum. Við fengum hing- að í fyrra danskan strák sem stóð sig rosalega vel, var hestvanur og ekki mikill vandi að segja honum til. Svo höfum við fengið stráka frá Grænlandi og hefur enginn þeirra reynst alveg ónýtur en sumir upp í það alhesta, enda margir þeirra alvanir að hlaupa, þótt aðallega sé smalað á hest- baki. Við slátrum hjá Fjallalambi á Kópaskeri og líkar vel. Við vitum hins vegar að stofnum Norð- lenska var eyfirsk græðgi. Það er hins vegar ekki óeðlilegt að Ey- firðingar hagi sér svona. Meðan Eyjaljörður var sauðfjársvæði var það mesta kotasvæöi sem þekkt- Valdimar Grímsson: „Bjartsýnn á að það takist að ráða fóik tii starfa, m.a. fagfólk frá Bretlandi." ist og ef þú hefur ræktað kotunga í 1000 ár þá gengur ekki að breyta því að einum mannsaldri. Þá halda þeir áfram að vera kot- ungar sem sækjast eftir auknu yf- irráðasvæði,“ segir Agúst Guð- röðarson. Haga göngum eftir „sláturvindi“ Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn við ísafjarðardjúp, er með um 300 fjár á vetrarfóðrum og þarf að smala gríðarlega víð- áttumikið svæði, í fyrsta lagi milli jökulánna Selár og Mórillu, í fyrr- um Snæfjallahreppi út að Dalsá að Drangajökli. Indriði segir mik- inn mannskap þurfi til þessa ef vel eigi að vera en þetta sé þannig land að ekki sé hægt að leggja í þetta aðra en fólk sem þekkir stað- háttu, en þarna sé mikið bratt- lendi, gljúfur og kjarrlendi svo auðvelt sé að lenda í miklum ógöngum. Haga þurfi göngum eft- ir slátrun en beit mundi fljótlega þrjóta, svo haga þurfi seglum eftir „sláturvindi" og sækja fé í áföng- um. Engar útilegur séu í smala- mennsku við Djúp, menn séu alltaf komnir heim að kvöldi en þetta geti orðið mikið ströggl ef veður séu válynd. Það erfiðasta við búskapinn sé að hafa fé saman á haustin. Indriði segist fara með sitt fé til slátrunar a Hólmavík en einnig sé farið með fé á Hvamms- tanga, enda um sama sláturleyfis- hafa að ræða, Goða. Sláturhúsið á Hólmavík sé að mestu mannað bændum og búaliði. Nokkrir vest- firskir bændur sendi einnig fé til slátrunar í Króksfjarðarnes. Indriði segir að þeir sem slátri tímanalega fái citthvcrja umhun í formi hærra verðs til að þrýsta á um að slátrun byrji fyrr, eða í fyrstu viku scptem- bermánaðar enda sé það bæði hag- ur bænda og neytenda, því dilkar fitna af mikilli heimaölun. For- sendur séu nú góðar fyrir vænni dilkum en oft áður þar sem ckkert hret var í vor og sumarið alveg frá- bært með hlýindum og úthagi fallegur. Aðalsteinn Jónsson: „Landssamtök sauðfjárbænda hafa gefið út viðmiðunarverð sem tekur mið af vísitöluhækkun milli ára.“ Bændiun fækkar með uppkaupum á greiðslumarki Aðalsteinn Jónsson, bóndi á Klausturseli á Jökuldal og formað- ur Landssambands sauðfjár- bænda, segir að vandamálið með að manna sláturhús komi ekki inn á borð Landssambandsins en það sé ekki vandamál að fá fólk til að smala á hans svæði á Jökuldalnum þrátt fyrir að svæðið sé nokkuð víðfeðmt. Sumir afréttir séu jafn- vel þannig að það sé slegist um að fá að komast þar í leitir, þó aðal- lega næst höfuðborgarsvæðinu. „Það verður meiri fækkun á sauðfjárbændum í haust með upp- kaupum á greiðslumarki sam- kvæmt nýjum Iagaheimildum og þá fækkar fólki enn frekar til sveita þó búin stækki en þau tækni- og tækjavæðast enn frekar að sama skapi. Menn hafa verið að leita til Bretlands eftir fagmönn- um í sláturhúsin og eins hafa komið að húsunum sérfræðingar að kenna mönnum betri vinnu- brögð og við það hefur eitthvað dregið úr vinnuaflsþörfinni. Það hefur tekist þokkalega að manna í suinarslátrunina sem er vaxandi og léttir svolítið pressunni af hefð- bundinni haustslátrun en hlutfall sveitafólksins í starfsliði slátur- húsanna fer fækkandi. Landssamtök sauðfjárbænda hafa gefið út viðmiðunarverð sem tekur mið af vísitöluhækkun milli ára og við munum ekki sætta okk- ur við að verðið frá sláturhúsun- um til okkar verði lægra en það. En við höfum engin lög á hak við okkur til þess að berja það í gegn,“ segir Aðalsteinn Jónsson. 70 þúsund fjár slátrað á Htisavík Jón Helgi Björnsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Norðlenska og rekstrarstjóri á Húsavfk, segir að á Húsavík verði slátrað um 70 þús- und fjár, sem er ívið meira magn og var samtals á Húsavík og Akur- eyri og um 12% alls sauðfjárslátr- unar í landinu. Sumarslátrun hef- ur verið í gangi á Akureyri en hefð- bundin slátrun hefst 4. september. „Það veröur mjög erfitt að manna sláturhúsið í haust. Það er kanns- ki ánægjulegt vandamál því þá hafa allir atvinnu, en við þurfum að bæta við 80 manns við um 35 manns sem starfa allt árið á Húsa- vík. Við gerum ráð fyrir að leysa sárasta vandann með því að ráða 10 til 12 manns frá Skandinavíu, en það fólk reyndist sumt ágæt- lega vinnusamt. Við munum ekki hægja á slátrun vegna manneklu, við munum sjá til þess að það vcrði næg mönnun. Það var mjög gott vor svo það ætti að skila sér í vænum dilkum í haust, kannski spurning hvort það hafi verið of þurrt. Það er hins vegar ekki kom- in nein mynd á það hvaða verð verði greitt fyrir gærur en það eru vísbendingar um verðið fari hækk- andi, markaðurinn að hressast, svo við getum skilað bóndanum eitthvað fyrir þær, en ástandið á grærumarkaði var í sögulegu Iág- marki í fyrra. Við munum því salta gærur í ár. Verð á dilkum til bænda mun væntanlega taka breytinum milli ára í samræmi við almennar verðlagshækkanir í þjóðfélaginu, en það liggur ekki fyrir fyrr en um mánaðarmótin. Meðalverð í fyrra var um 252 krónur fyrir kílóið," segir Jón Helgi Björnsson. Frá afhendingu gjafarinnar í Nesstofu í gær. Hofðingleg gjöf til Nesstofusafns Læknafélag íslands afhenti í gær Nes- stofusafni, að gjöf fasteignina Bygg- garða 7, Seltjamar- nesi, auk 12,6 millj- óna króna. Hugmyndin er að fasteignin Bygggarðar 7 verði notuð fyrir starfsemi og varðveislu muna Nesstofusafns og að fjármunum skuli varið til endurbóta á fast- eigninni í samræmi við áætlað framtíðarskipulag lækninga- minjasafnsins Nesstofusafns. Framkvæmdir vegna þeirra end- urbóta skuli hefjast þegar á hausti komanda. Aíhcndingin fór fram í Nes- stofu, að viðstöddum Birni Bjarnasyni menntamálaráð- herra, Geir H. Haarde Ijármála- ráðherra, Sigurbirni Sveinssyni, formanni Læknafélags íslands og Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði. Fasteignina Bygggarða 7, Sel- tjarnarnesi keypti Læknafélag íslands fyrir kr. 33 milljónir króna að höfðu samráði við menntamálaráðuneytið, þjóð- minjavörð og Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar fyrir erfðafé eftir Jón Steffensen pró- fessor emeritus í þeim tilgangi að tryggja varðveislu muna Nes- stofusafns. Peningagjöfin, 12,6 milljónir króna, er af erfðafé Jóns Steffensen og frá Læknafé- lagi Islands. Eftirstöðvar erfða- fjárins eftir Jón Steffensen eru kr. 10,6 milljónir. Málefni Nes- stofusafns hafa verið til umræðu á aðalfundum Læknafélags Is- lands mörg undanfarin ár og hefur vilji félagsmanna komið fram í samþykktum aðalfunda um fjárframlög til byggingar lækningaminjasafns. Forsaga þessarar gjafar er sú að Jón Steffensen, prófessor em- eritus arfleiddi Læknafélag Is- lands að tilteknum eignum með erfðaskrá dags. 24. júlí 1990. Var erfðaréttur Læknafélagsins bundinn því skilyrði að fénu yrði varið óskiptu til frágangs og inn- réttingar framtíðarhúsnæðis fyr- ir muni Nesstofusafns í þeim útihúsum Nesstofu, sem ríkið hafði keypt í þeim tilgangi, og að öðru leyti til hagsbóta fyrir Nes- stofusafn, eftir þeim meginvið- horfum er fram komu í bréfi Jóns til mcnntamálaráðherra dags. 23. september 1972. Nauðsynlegt þykir að endur- bæta fasteignina Bygggarða 7 svo hún fullnægi því hlutverki sem henni er ætlað. Mat liggur fýrir á því hverjar þær endurbæt- ur þurfi að vera og á kostnaði við þær. Aætlaður kostnaður af því að koma Bygggörðum 7, Sel- tjarnarnesi í viðunandi ástand til varðveislu muna Nesstofusafns er 1 5 milljónir króna og við þann kostnað bætast 10 milljónir ef koma á húsnæðinu í fullnægj- andi horf með sýningaraðstöðu, vinnuaðstöðu safnvarðar og að- stöðu til fræöiiðkunar. Stórtap hjá Flugleiðiun Afkoma af reglulegri starfsemi Flugleiða, móðurfélags og 10 dótturfélaga, eftir skatta fyrstu sex mánuði þessa árs var tap að fjárhæð 1.256 milljónir króna, en var á sama tímabili í fvrra tap að fjárhæð 797 milljónir króna. Heildarniðurstaða rekstrarreikn- ings versnaði hins vegar meira en sem þessu nam vegna þess að á fyrri hluta árs 1999 féll til verulegur hagnaður af sölu eigna sem ekki var til að dreifa nú. Heildarniðurstaða rekstrar- reiknings var tap að fjárhæð 1.1 96 en á sama tímabili í fyrra var 595 milljóna króna hagnaður af rekstrinum. Jafnan er tap af rekstrinum á íýrri helmingi árs- ins vegna mikillar árstíðasveifiu í flutningum í alþjóðaílugi og í fjölda erlendra ferðamanna sem koma tilíslands. Mikil hækkun eldsneytisverðs hefur verið lélaginu einna þyngst í skauti það sem af er ár- inu. Ekki sér fyrir endann á þessari þróun og Flugleiðir gera nú ráð fyrir að reksturinn verði íjárnum á árinu í heild ogjafn- vel megi húast við einhverju rekstrartapi. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir að rekstrar- afkoma fyrirtækisins sé óviðun- andi. Eldur 1 nótaskipi Eldur kviknaði í vélarrúmi nóta- skipsins Jóns Kjartanssonar SU- 1 1 1 í gær þar sem skipið var á kolmunnaveiðum í Rósagarðin- um, austur af Hvalbaksgrunni. Ahöfninni tókst að slökkva eld- inn og drepa á vélinni og rak skipið f gær í renniblíðu á þess- um slóðum. „Það blossaði upp eldur vegna meðferðar á olíu að við höldurn en það tókst að slökkva hann með slökkvibúnaði skipsins. Það er smuga á því að við komum vélinni aftur í gang þegar búið verður að reykræsta vélarrúmið og komumst í Iand fyrir eigin vélarafli," sagði Grétar Rögn- varsson, skipstjóri á Jóni Kjart- anssyni. Jón Kjartansson kom á síðasta ári úr mikilli klössun er- lendis þar sem sett var í hann stærri vél o.fi. til að gera skipið hæfara til kolmunnaveiða. — GG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.