Dagur - 17.08.2000, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 17. ÁGlIST 2000 - 17
ERLENDAR FRÉTTIR
Rússneski kjarnorkukafbáturinn Kursk, sem nú liggur á botni Barentshafs.
Rússar þáðu loks
utanaðkomandi hjálp
Bæði veðrið og leynd-
in, sem hvílt hefur
yfir kafbátniun, hafa
hamlað hjörgunarað-
gerðum.
Rússnesk stjórnvöld féllust loks
á það í gær að þiggja utanað-
komandi aðstoð við að bjarga
áhöfn kafbátsins, sem liggur á
botni Barentshafs. Rússar
ákváðu að þiggja aðstoð Breta og
Norðmanna, en sú aðstoð hafði
verið í boði allt frá því á mánu-
dag.
Ekkert lífsmark var þó að
heyra frá kalbátnum í gær, en
eina samband áhafnarinnar við
umheiminn var að banka í hliðar
bátsins. Þótt áhöfnin sé hætt að
gefa frá sér slík merki, þarf það
þó ekki að þýða að enginn sé
lengur með lífsmarki þar. Rússar
hafa haldið því fram að nóg súr-
efni sé um borð til þess að end-
ast fram á föstudag, og hugsan-
lega fram yfir helgi.
Vladimir Kurojedov, yfirmaður
rússneska sjóhersins, segir að
áhöfn kafbátsins hafi hætt að
gefa frá sér merki eftir að hún
fékk vissu um að björgunartil-
raunir væru hafnar. „Við verðum
að taka með í reikninginn í
hvaða hugarástandi áhöfn kaf-
bátsins er. Um leið og þeir vissu
að björgunaraðgerðir væru í
gangi fyrir ofan þá, þá höfðu þeir
hljótt um sig,“ sagði Kurojedov.
Rússar hafa gert a.m.k. þrjár
tilraunir til þess að bjarga áhöfn-
inni, en þær mistókust allar.
Vont veður gerði björgunar-
mönnum erfitt fyrir. Björgunar-
hylki hafa verið send niður til
kafbátsins, en ómögulegt hefur
reynst að tengja þau við kafbát-
inn svo unnt sé að ná áhöfninni
út.
Þriggja til fjögurra manna
áhöfn er í björgunarhylkjunum,
en hægt er að nota þau til þess
að bjarga allt að 1 5 til 20 manns
í hverri ferð. Ef engin leið verð-
ur að tengja hylkin við kafbát-
inn, gæti þurft að lyfta bátnum í
heild upp með flothylkjum.
Leyndin er áhöfninni
skeinuhætt
Rússar hafa verið gagnrýndir fyr-
ir að hafa beðið of lengi með að
þiggja utanaðkomandi aðstoð,
en í yfirlýsingu frá Vladimír
Pútín, forseta Rússlands, í gær,
segir að allt hafí verið gert sem
var „nauðsynlegt og mögulegt"
til þess að bjarga kafbátnum og
áhöfn hans. „Því miður er veðrið
mjög slæmt,“ sagði Pútín. „Sjó-
mönnunum tókst ekki að nota
öll þau ráð sem þeir hafa yfír að
ráða.“
Engu að síður virðist sem
fleira en veðrið hafi hamlað
björgunaraðgerðum. Leynd hef-
ur hvílt yfir öllu málinu frá upp-
hafi, og svo virðist sem fjölmiðl-
ar hafi ekki frétt af því fyrr en
allt að tveimur sólarhringum eft-
ir að slysið átti sér stað. Rússar
skýrðu frá slysinu á mánudags-
morgun, og sögðu fyrst að það
hefði átt sér stað á sunnudag, en
héldu því síðar fram að það hefði
gerst á laugardag.
Enn er allt óljóst um það hvað
olli því að báturinn sökk til
botns. Vitað er að hann er lask-
aður að framan, en ekki er vitað
hve miklar skemmdirnar eru né
hvort eða hve mikið manntjón
hefur orðið. Ekki er heldur vitað
með vissu hvort kjarnorku-
sprengjur voru um borð, né
hvort geislaleki hefur orðið frá
kjarnaofnunum tveimur, sem
knýja bátinn áfram. Rússnesk
stjórnvöld hafa jafnan fullyrt að
svo sé ekki, en óvíst er hvort
hægt sé að treysta þeim upplýs-
ingum.
Keimedyax lofar Liberman
LOS ANGELES - Joseph Liberman, varaforsetaefni demókrata flutti
í gær ávarp á flokkþinginu og hóf þar formlega framboðsferil sinn.
Það kom í hlut konu hans, Hadasah Libcrman að tilkynna að maður
hennar væri á leið í ræðustól. Á sama tíma var A1 Gor forsetafram-
bjóðandi á leiðinni á flokkþingið frá Monroe í Michican þar sem hann
í gær tók formlega við leiðtogahlutverkinu af Clinton. Til að hita upp
fyrir Liberman í ræðustóli höfðu margir frægir demókratar flutt ávörp
á undan honum, þar á meðal öldungadeildarþingmaðurinn og Kenn-
edybróðirinn Edward Kennedy og svo Karólína Kennedy Schlossberg.
Hún sagði m.a.: „Eg er mjög stolt af því að einn af þeim sem ferill föð-
ur míns veitti innblástur til að halda út á braut stjórnmálanna er
næsti varaforseti Bandaríkjanna - Joe Liberman!!!"
Vill heimila eiiiræktun mannsfóstra
LONDON - Einn helsti læknisfræðiráðunautur bresku ríkisstjórnar-
innar lýsti því yfír í gær að hann teldi að vísindamönnum ætti að vera
heimilt að einrækta mannsfóstur í rannsóknarskyni. Breska þingið
samþykkti þegar árið 1990 að vísindamönnum væri heimilt að stunda
rannsóknir á mannsfóstrum. Nú telur Liam Donaldson að víkka eigi
út heimildir þeirra til slíkra rannsókna, og m.a. verði þeim kleift að
einrækta fóstur á þeim forsendum að rannsóknir geti „dregið úr þján-
ingu og bætt meðferð sjúkra." Tony Blair forsætisráðherra Bretlands
hyggst Iáta þinginu það eftir að ákveða hvort vísindamönnum verður
heimilt að einrækta frumur úr mannsfóstrum.
Flughaim á Concorde
Bresk og frönsk flugmálayfir-
völd hafa lagt bann við því að
Concorde-þotur verði notaðar í
flugi um óákveðin tíma. Þetta er
í fyrsta sinn í meira en tvo ára-
tugi sem flugleyfi hefur verið
tekið til baka af farþegaflugvél. I
dag á að taka frekari ákvarðanir
um skilyrði þess að flugleyfí
verði veitt að nýju. Gripið er til
þessarar ráðstöfunar í framhaldi
af beiðni þeirra sem rannsaka
flugslysið sem varð þann 25. júlí
þota fórst.
Krefjast skaðabóta eftir 17 ár
ÞÝSKALAND - Lögfræðingar fórnarlamba sprengjuárásar á frönsku
menningarmiðstöðina í Berlín, sem átti sér stað í ágúst árið 1983,
skýrðu frá því í gær að fórnarlömbin krefjist þess að Sýrlendingar
greiði þcim samtals um 650 milljónir króna í skaðabætur. Einn ung-
ur maður fórst í sprengjuárásinni og 23 urðu fyrir alvarlegu líkams-
tjóni. Við réttarhöld hefur komið fram að hryðjuverkamennirnir, sem
stóðu að árásinni, hafi notið stuðnings Arabarfkja, þar á meðal Sýr-
lands.
Sprengiefni fannst á götu úti
Tíu kíló af sprengiefni fundust á götu úti í Moskvu í gær. Sprengiefn-
ið var pakkað inn, en kveikibúnaður var ekki tengdur við það.
Sprengiefnið fannst skammt frá fjölbýlishúsi, en í síðustu viku fórust
tólf manns þegar sprengja sprakk í miðborg Moskvu.
síðastliðinni í París, þegar Concorde-
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
FIMMTUDAGURINN 17. ÁGÚST
230. dagur ársins, 336 dagar eftir.
Sólris kl. 5.25, sólarlag kl. 21.36.
Þau fæddust 17. ágúst
•1601 Pierre de Fermat, franskur stærð-
fræðingur.
• 1786 Davy Crockett, bandarískur her-
maður og indjánabani.
• 1819 Jón Árnason þjóðsagnasafnari.
• 1892 Mae West, bandansk leikkona og
kyntákn.
•1901 Hedin Bru, færeyskur rithöfund-
ur.
• 1923 Ragnar Kjartansson myndhöggv-
ari.
• 1926 Jiang Zemin, forseti Kína.
• 1932 Vidiadhar Surajprasad Naipul,
indverskur rithöfundur.
• 1943 Robert de Niro, bandarískur leik-
ari.
•1961 Sean Penn, bandarískur leikari.
Þetta gerðist 17. ágúst
• 1943 réðust breskir og bandarískir her-
menn inn í Messína og náðu þar með
Sikiley á sitt vald.
• 1945 lýstu þjóðernissinnar á Indónesíu
yfir sjálfstæði.
• 1973 gerði Idi Amin alia Asíubúa útlaga
úr Úganda.
• 1980 hófst Heklugos, en það stóð í fáa
daga.
• 1987 lést nasistinn Rúdolf Hess í fang-
elsi í Berlín.
• 1988 fórst Mohammad Zia ul-Haq for-
seti Pakistans ásamt sendiherra Banda-
ríkjanna í dularfullu flugslysi.
• 1998 viðurkenndi Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti að hafa átt í óskilgreindu
sambandi við Monicu Lewinsky.
Vísa dagsins
Gleði vor er hin rauða rós
er rjóðar veikan og bleikan,
og það er hún, sem að leiðir í Ijós
lífið og ódauðleikann.
Jón Þorsteinsson
Afmælisbam dagsins
Fyrir 125 árum fæddist í Hafnarfirði
Knud Zimsen, sem var borgarstjóri
Reykjavíkur á árunum 1914 til 1930.
Hann var menntaður byggingaverk-
fræðingur, og var bæjarverkfræðingur
og byggingafulltrúi í Reykjavík á árun-
um 1904-07, en rak eigin verkfræði-
stofú í Reykjavík á árunum 1907-14. í
borgarstjóratíð sinni stóð Knud Zimsen
m.a. fyrir framkvæmdum við Reykjavík-
urhöfn, Rafstöðina við Elliðaár og lagn-
ingu hitaveitu frá Þvottalaugunum.
Knud Zimsen Iést þann 15. apríl árið
1953.
Ekkert er jafn gagnslaust og að gera vel
það sem hefði alls ekki átt að gera.
Peter Drucker
Heilabrot
Fyrir tveimur klukkustundum var jafn
langt frá því ldukkan var eitt eftir hádegi
eins og það var Iangt þangað til klukkan
yrði eitt að nóttu. Hvað er klukkan þá
núna?
Lausn á síðustu gátu:
Þetta voru þeir Jón Arason, Eggert Ólafs-
son, Jónas Hallgrímsson og Jón Sigurðs-
son.
Veffang dagsins
Mörgum þykir enn vænt um gömlu
Macintosh tölvuna sína frá því fyrir tíu til
fimmtán árum. Á veffangi dagsins er að
fínna uppiýsingar um sögu Macintosh
tölvunnar:
http ://library.stanford .edu/mac/index. html