Dagur - 26.08.2000, Blaðsíða 4
4 - LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000
FRÉTTIR
- n'
ro^tr
, Rannsóknir sem hófust á vegum Náttúrufræðistofnunar haustið 1995 byggjast á afdrifum radiómerktra rjúpna.
Tvöfalt fLeiri riúpur
lifa af eftír mðun
Eftir baiin við rjúpuaveiði
í nágreimi Reykjavíkur sl.
liaust lifðu um 60%
rjúpnauua tiljólaenað-
eins 26% meðan skotveið-
ar voru leyfðar.
„Rannsóknimar sýndu mjög marktæk-
an mun á heildarafföllum rjúpna fyrri
hluta vetrar eftir því hvort veitt var eða
ekki,“ segir dr. Olafur K. Nielssen hjá
Náttúrufræðistofnun í Skotvís, þar
sem hann segir frá fyrstu íslensku
rannsóknunum á því hvenær á vetrin-
um fuglarnir deyja og af iivaða völdum
- og hver hlutur skotveiðanna sé í af-
föllunum. I Ijós kom að ríflega tvöfalt
fleiri rjúpur lifðu til jóla eftir skotveiði-
bann í fyrrahaust.
Rannsóknirnar sem hófust á vegum
Náttúrufræðistofnunar haustið 1995
og byggjast á afdrifum radiómerktra
rjúpna. Og góður samanburður fékkst
sl. vetur, eftir þá ákvörðun umhverfis-
ráðherra haustið 1999 að friða rjúpu
fyrir skotveiði á stóru svæði á Suðvest-
urlandi næstu þrjú ár.
FRÉT TA VIÐTALIÐ
Aðeins 26% lifðu óMðaðar
til jóla...
Og munurinn reyndist gífurlegur. Af
hverjum 100 rjúpum í október voru að-
eins 26 enn á lífi um jól meðan veiðar
voru heimilaðar, en 60 lifðu til jóla
þegar skotveiðar voru bannaðar. Með-
an veiðar voru heimilaðar voru skot-
veiðar lang algengasta dánarorsökin
(67%) en rándýr í öðru sæti (31%). En
þegar veiðar voru bannaðar voru afföll
af völdum rándýra lang algengust
(83%). Síðari hluta vetrar fannst hins
vegar enginn marktækur munur. Um
2/3 þeirra rjúpna sem voru á lífi um
jólin lifðu veturinn af, bæði fyrir og
eftir friðun.
Rlflega heLmings mirniir
Þetta þýðir að Iífslíkur rjúpna yfir allan
veturinn, frá 15. október til aprílloka
eru aðeins 17 af 100 þau ár sem veitt
var úr stofninun en 39 af 100 þegar
hann naut friðunar. Niðurstöður
gengu þannig þvert á þá tilgátu sem
sumir hafa haldið fram, að skotveiðar
líkt og þær eru stundaðar hér á landi,
hafi ekki áhrif á heildarafföll rjúpunn-
ar, þar sem afföll vegna skotveiða bæt-
ist ekki við heldur dragi úr öðrum af-
fallaþáttun svo heildarfjöldinn verði
eftir sem áður svipuð.
Skotveiar haldið stofnmiun niðri
Olafur segir engar vísbendingar um að
rjúpnastofninn bæti sér upp veiðiafföll
með samsvarandi minna vægi annarra
affallaþátta, hvorki á veiðitíma né síð-
ari hluta vetrar að honum loknum.
Miðað við hversu afföll vegna skot-
veiða á rannsóknarsvæðinu voru mikil
þá ætti þessi rjúpnastofn ekki að geta
staðið undur sér. Enda hafi vortaln-
ingar karra í Ulfarsfelli frá 1995 sýnt
lágan þéttleika varpfugla sem gefi vís-
bendingar um kyrrstöðu eða fækkun í
varpstofni. Einnig að stofnbreytingar á
þessu svæði séu ekki lengur í takt við
10 ára stofnsveiflu rjúpunnar í öðrum
landshlutum líkt og á 7. áratugnum.
Bæði affallamælingarnar og talningar
bendi sterklega til þess að rjúpna-
stofninum á svæðinu hafi verið haldið
niðri með skotveiðum. Aformað er
rannsóknir á vetrarafföllum haldi
áfram næstu tvo vetur. - HEI
g—
)
Hamfararáðstefna sem
lialdtn verður eftir helg-
ina í samvinuu Sambands
sveitarfélaga, umhverfis-
ráðuneytis og Landsbjargar
hefur verið til umræðu í pottinum enda hefur
hún þegar valdið talsverðum pólitískum titringi.
Ástæða titringsins er skyndileg aðkoma Sólveig-
ar Pétursdóttur dómsmálaráðherra að málinu,
en hún mun hafa óskað eftir að
setja ráðstefnuna, sem sumir
skýra með þvi að hún sé þessar
vikurnar í sérstöku almanna-
tengsla og fjölmiðlaátaki. Áður
hafði verið áformað að Vilhjálmur sóiveig
Þ. Vilhjálmsson setti ráðstefnuna Pétursdóttir.
en hann mxm hafa samþykkt að
víkja. í pottinum er því nú hvíslað að í umhverf-
isráðuneytinu, þar sem mmið hefur verið að
undirbúningi í langan tíma hafi menn ekki verið
mjög hrifnir af því að láta dómsmálaráðuneytið
og dómsmálaráðherra stela senumú með þessum
hætti. Siv Friðleifsdóttir mun hafa tekið undir
með sínu fólki og neitað að taka þátt í almanna-
tengslaátaki Sólveigar og sagt að ef breyta eigi
ráðstefnunni í slíkan vettvang muni hún ekki
mæta og flytja hálftíma opnmiarerindi sitt held-
ur láta einhvem ráðmieytismann koma og lesa
það! Sjálf yrði hún upptekin. Aðstandendur ráð-
stefnmmar höfðu í gær ekki fengið neinar afboð-
anir frá ráðherrum, en í pottinum bíða menn nú
spenntir eftir mánudeginum - setji Sólveig ráð-
stefnuna telja menn víst að Siv verði afskaplega
upptekin...
Varaþingmaðm Fljálslynda flokks-
ins á Vestfjörðum, Pétur Bjama-
son, hefur nú fylgt eftir straumi
kjósenda sinna og er fluttur suður.
Haim er nú tekinn við starfi fram-
kvæmdastjóra SÍBS af Kristínu
Þorsteinsdóttur, sem nú er aftur
komin í fréttamennskuna og starfar nú á frétta-
stofu Útvarpsins. Um langt skeið var Pétur hú-
hm að vera fræðslustjóri á Vestljörðum og vara-
þingmaðm í tveimm flokkum, fyrst fyrir Fram-
sóku og síðar Frjálslynda...
Pétur
Bjarnason.
Tækilæri fyrir smáfyrirtæki
Vilhjálmur
Lúðvíhsson
framkvæmdastjóri RANNÍS.
Frá því 1986 hafa 15 ís-
lensk fyrirtæki tekið þáttí
verkefnum á vegum EURE-
KA-áætlunarinnar, sem er
samstaifsvettvangurfyrir-
tækja um hátæknirannsóknir
íEvrópu.
I gær var kynningarfundur á Hótel Loftleið-
um í Reykjavfk, þar sem þrjú ný verkefni
með þátttöku Islendinga voru kynnt sérstak-
lega. Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmda-
stjóri Rannsóknarráðs Islands (RANNÍS),
var spurður hvernig Eureka-samstarfið
virki.
„Þetta hefur verið sett upp sem sérstakur
vettvangur til þess að hjálpa fyrirtækjum
sem eru að hasla sér völl á þekkingarsviðinu
með hátæknivörur. Við lítum svo á að þetta
sé sérstaklega gott tækifæri fyrir smáfyrir-
tæki sem eru að þróa nýjar vörur, og jrá bæði
til þess að fá góða samstarfsaðila til þess að
koma með tækni og þekkingu sem þá vant-
ar til þess að þróa betri vörur og um leið til
þess að ná sambandi inn á framtíðarmarkað
fyrir þær vörur sem þeir ætla að þróa,“ seg-
ir Vilhjálmur.
„Þessir opinberu aðilar, sem eru f netsam-
starfi Eureka-landanna, hjálpa þá til við að
leita að erlendum samstarfsaðilum ásamt
því að hjálpa til við Ijármögnun. Og svo
hjálpa þeir til við að kynna verkefnin innan
Eureka-Iandanna, sem er náttúrlega hluti af
markaðsfærslunni."
- Er þessi kynntng núna þá liður í því?
„Þessi kynning er til þess að vekja athygli
á tilveru þessarar áætlunar. Við erum búin
að vera f þessu samstarfi í 14 ár, komum
þarna inn árið 1986. Og þetta eru nokkuð
mörg verkefni sem við höfum farið í með
þátttöku íslenskra aðila.“
Vilhjálmur segir að þessi þrjú nýju verk-
efni, sem íslensk fyrirtæki séu að fara út í
núna, séu öll mjög áhugaverð og a.m.k. tvö
þeirra eru mjög framsækin á sínu sviði. Þar
er um að ræða annars vegar samstarf
Stjörnu-Odda hf. og norska fyrirtækisins
Simrad um staðsetningarbúnað fyrir merk-
ingar á fiskum. Hins vegar eru íslenskir og
finnskir læknar og fyrirtæki í samstarfi um
að þróa fullkomnari leiðir til að greina
frumeindir svefns. Þriðja verkefnið snýst
svo um þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu á
norðurslóðum.
„'ándinn við þetta Eureka-samstarf fyrir
okkur er sá að athyglin hefur verið meiri á
rammaáætlun Evrópusambandsins, því þar
bjóðast peningapottar, stundum mjög stórir.
En við verðum að fjármagna þátttöku okkar
fyrirtækja sjálf og höfum auðvitað takmark-
að fé til jiess að setja í stór verkefni. En við
höfum til dæmis Máka hf., en þeir hafa far-
ið í gegnum Eureka-verkefnið tvisvar sinn-
um og notað það sem stökl<pall inn í stór
rammaáætlunarverkefni hjá Evrópusam-
bandinu. Þeir hafa Jrví notað hvoru tveggja,
bæði rammaáætlunina og Eureka. Og stað-
ið sig mjög vel í því.“
- Hvemig er fjármögnuninni þá háttað?
Eru þetta fyrst og fremst íslenskar stofn-
anir seni styrkja þetta?
„Já, það er langalgengast að það hafi ver-
ið sjóðir Rannsóknarráðs sem hafa stutt fyr-
irtæki og stofnanir til jrátttökunnar. Það
kemur í sjálfu sér ekkert erlendis frá inn f
þetta. Þetta eru peningar heiman frá sem
i'ara inn í að kosta verkefnin hér heima fyr-
ir. Fyrirtækin sjálf leggja svo líka fé í þetta.
Og í vissum tilvikum koma náttúrlega
áhættufjárfestar að þessu, og ég geri raunar
ráð fyrir því að það verði ríkari þáttur í
þessu á næstunni. En fyrir áhættufjárfesta
er auðvitað visst öryggisatriði að verkefnin
séu unnin í gegnum Eureka-áætlunina. Það
gefur þeim aljjjóðlega vídd og auðveldar
þeim að fá ekki síst þekkingu annars staðar
frá.“ - GB
L