Dagur - 26.08.2000, Blaðsíða 5
X^Mr-
LAUGARDAGVR 26. ÁGÚST 2000 - S
FRÉTTIR
Kærir Náttúra-
vemd rflristns
Ferðagamni tann-
læknis var spillt á
leiðinni frá Kverk-
fjöllmn að Hrossa-
borg.
Sigurjón Benediktsson, tann-
Iæknir á Húsavík, hefur sent
sýslumanni kæru vegna um-
hverfisspjalla sem hann telur
hafa verið unnin á svæðinu frá
Kverkfjöllum til Hrossaborgar á
Austurlandsvegi. Sigutjón segist
hafa rökstuddan grun um að
starfsmenn Náttúruverndar rík-
isins hafi valdið spjöllum á nátt-
úrunni. Ekki er Iangt síðan Nátt-
úruvernd ríkisins lagði fram
kæru á hendur hestafólki sem
NR taldi hafa
spjallað náttúr-
una á svipuðum
slóðum.
Gríðarleg
spjöll
Sigurjón segir að
hann hafi nýlega
farið Kverkfjalla-
Ieið og síðan í
Herðubreiðar-
Iindir um brú við
Upptyppinga og
að þjóðvegi 1 við
Hrossaborg." Á
ferð minni varð
ég var við gríðar-
leg náttúruspjöll
sem og villandi
atriði mín,“ segir
í kæru Sigur-
jóns.
Hann Iýsir
landspjöllunum
þannig að gijót
hafi verið rifið
upp við vegi og
því grjóti verið
raðað meðfram
veginum þannig
að allt að 25 cm
hæðarmunur sé
á. Bæði sé mikil
sjónmengun að
Sigurjón Benediktsson: Sakar Nátt- þessum mann-
úruvernd ríkisins um hættuleg virkjum og svo
landspjöll. stafi hætta af
---------------------- grjótinu í vegar-
stæðinu. Hér sé
skilti, með röngum og hættuleg-
um skilaboðum. Eru það kæru-
um að ræða friðland sbr. 63.
grein náttúruverndarlaga.
Skemmdi ferðagaman
„Ekki hafa þessi mannvirki eða
framkvæmd verið kynnt almenn-
ingi eða sett í hið vinsæla um-
hverfismat. Engin merki sjást
um að hið háa Skipulag ríkisins
eða aðrir aðilar hafi Iýst áhuga á
framkvæmdinni eða nokkuð haft
um þessa framkvæmd að segja.
Sem ferðamanni um hálendi Is-
lands kom mér þessi lítt geð-
þekka framkvæmd illa fyrir sjón-
ir og tel hana hafa spillt ferða-
gamni mínu á ferð minni,“ segir
Sigurjón m.a. í kærunni.
Hann gerir einnig athuga-
semdir við skiltin á leiðinni,
þ.e.a.s. ónákvæmar og varasamar
upplýsingar sem þar koma fram.
Skiltin eru á áþyrgð Náttúru-
verndar ríkisins að sögn Sigur-
jóns. — BÞ
Geir Jón Þórisson þakkaði fjölmiðl-
um liðsinnið í umferðarátakinu.
Tíl hammgju!
„Ég óska okkur öllum til hamingju
með daginn í gær,“ sagði dóms-
málaráðherrra, Sólveig Péturs-
dóttir, sem ásamt Lögreglunni í
Reykjavík fagnaði góðum árangri
af slysalausum degi í umferðinni,
sem því miður varð þó ekki alveg
slysalaus. Undir kvöld var ekið á
hjólreiðamann í Fellsmúla og 9
ára pilt í Einholti, sem hvorugur
meiddist þó mikið. Þrír slösuðust
sama dag í fyrra.
Karl Steinar Valsson sagði alls 7
umferðaróhöpp tilkynnt til lög-
reglu auk 4 aðstoðarmála við
tjónaútfyllingu. Vitað sé um tjón á
14 bílum. Sama dag fyrir ári hafi
92 ökutæki skemmst í 25 óhöpp-
um, sem valdið hafi 10 milljóna
tjónakostnaði. Ljóst væri að átak-
ið skilaði verulegum þjóðhagsleg-
um spamaði.
Öryggi fómað?
Reynslumikill at-
vinniiflugmaðiir ótt-
ast að ríkið muui
ekki gæta nægilega
vel að aðbúnaði sjúk-
linga og öryggi ef
sjúkraflug verður
boðið út.
Jóhann Skírnisson, atvinnuflug-
maður með yfir 10.000 flugtíma,
lýsir áhyggjum ef stjórnvöld
bjóða út sjúkraflugið á landinu
með fyrirhuguðum hætti. Jó-
hann telur hættu á að öryggis-
hagsmunum sé fórnað í þágu
hagkvæmni. Hann margt benda
til að ríkið sé að hugsa um aur-
inn fyrst og fremst ef af útboði
verður.
Eins og fram kom í Degi í gær,
hefur bæjarráð Akureyrar lýst
áhyggjum yfir því að fýrirhugað
útboð stjórnvalda gangi þvert á
fyrri yfirlýsingar um að Akureyri
verði miðstöð sjúkraflugsins. Jó-
hann, sem er í hópi reyndari at-
vinnuflugmanna Iandsins, segist
hnjóta um faglega hluti í drög-
um að útboðslýsingu. „Maður
óttast að ríkið hugsi fyrst og
fremst um að fá þetta fyrir ekki
neitt. Þess er t.d. ekki krafist að
vélar verði með jafnþrýstibúnað
og það yrði geysileg afturför. Eg
myndi líkja því við útgerð gömlu
gufutogaranna," segir Jóhann.
Vélar án jafnþrýstibúnaðar
geta ekki flogið hærra en
10.000-11.000 fet vegna súrefn-
isleysis. Jóhann bendir á að sjúk-
lingar geti verið fyrirburar eða
aðrir sjúklingar með öndunar-
vandamál. Hann nefnir einnig
hitastig í Iitlum vélum. Algengt
sé að flogið sé í 20 stiga frosti og
það þýði að hitastigið fari niður
fyrir frostmark inni f smærri vél-
um.
Jóhann telur að engar aðrar
vélar ættu að koma til greina í
sjúkraflugið en vélar með
túrbínuhreyfla og jafnþrýstibún-
að, sem dæmi Metro-vélar FI.
„Spólum til baka og förum aftur
til þess tíma þegar farþegavélin
frá flugfélaginu Erni frá ísafirði
fórst f Ljósufjöllum. Það var
dæmi um litla tveggja hreyfla vél
með bensínmótora sem ekki réði
við veðuraðstæður. Hún hélt
ekki hæð vegna ísingar og niður-
streymis og endaði í íjöllunum.
Sú vél var í engu frábrugðin vél-
um sem eru í notkun í dag,“ seg-
irjóhann — BÞ
Sagt upp 1 Samlaguiu
Ellefu starfsmönnum í MSKEA á
Akureyri var sagt upp í gær og
tveimur starfsmönnum á Húsa-
vík. Astæðan eru skipulagsbreyt-
ingar og hagræðing, að sögn
Heiðrúnar Jónsdóttur starfs-
mannastjóra KEA. A Akureyri var
fimm mjólkurfræðingum sagt upp
og sex óbreyttum starfsmönnum.
Þá var tvcimur óbreyttum starfs-
mönnum MSKÞ á Húsavík sagt
upp, auk þess sem ostameistarinn
þar mun væntanlega fara til star-
fa á Akureyri og verða lykilmaður
í starfsseminni þar. Ostafram-
leiðsla þessara tveggja mjólkur-
vinnslufyrirtækja verður þar - en
þau verða sameinuö í eitt á næst-
unni.
„Við fáum engin svör. Boðað
var til starfsmannafundar hér í
hádeginu, cn síðan voru menn
dregnir afsíðis og þeim alhent
uppsagnarbréfin," sagði Bragi Eg-
ilsson trúnaðarmaður mjólkur-
fræðinga á Akureyri. Hinir
óbreyttu starfsmenn sem sagt var
hafa einnig starfað lengi hjá fvrir-
tækinu, einn í 36 ár. „Eg hef
áhyggjur af þessu fólki og líðan
þess," sagði Bragi. Hinir óbreyttu
starfsmenn sem í gær misstu
vinnuna eru flestir með þriggja til
fjögurra mánaða uppsagnarfrest.
Margir af þeim hafa starfað lengi
hjá fyrirtækinu, einn mjólkur-
fræðingurinn í 33 ár.
„Það er alltaf slæmt þegar fólki
er sagt upp störfum og við mun-
um skoða þetta mál, eins og alltaf
þegar fólki úr okkar röðum er sagt
upp,“ sagði Björn Snæbjörnsson
formaður Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar - Iðju í samtali við Dag.
- SBS.
Tilraim til maimdráps?
Karlmaður á sextugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til
14. september eftir að hafa ekið niður erlendan mann í Kópavogi um
síðustu helgi. Lögreglunni harst tilkynning sl. sunnudag um að ekið
hefði verið á gangandi vegfaranda. Maðurinn lá á gólfi bílageymslu í
Hamraborg þegar lögregluna bar að, en ökumaðurinn ók af vettvangi
án þcss að hægja á sér. Grunur leikur á að ökumaðurinn, sem var
handtekinn klukkustund síðar, hafi gert tilraun ti! manndráps eða
árásar.
Tvær konur sem voru með erlenda manninum náðu að forða sér og
maðurinn er ekki alvarlega slasaður. Arásarmaðurinn hefur áður ver-
ið kærður fyrir að ráðast á sama mann og hefur hann hótað því að
drepa hann.
14 vilja bæjarstjórastöðu
Fjórtán sóttu um starf bæjarstjóra Garðabæjar. Þeir eru: Asdís Halla
Bragadóttir framkvæmdastjóri, Ella Kristín Karlsdóttir félagsráðgjafi,
Gísli Þór Gunnarsson sálfræðingur, Guðmundur Björnsson við-
skiptafræðingur, Gunnar Valur Gfslason sveitarstjóri í Bessastaða-
hreppi, Halldór Ingólfsson verkfræðingur, Hjáimar Kjartansson
rekstrarhagfræðingur, Kristinn Hugason nemi, Olafur Hilmar Sverr-
isson viðskiptafræðingur, Páll Jóhann Hilmarsson framkvæmdastjóri,
Sigbjörn Gunnarsson sveitarstjóri í Mývatnssveit, Viðar Helgason
rekstrarráðgjafi og Þorsteinn P. Einarsson verkstjóri. Ingimundur
Sigurpálsson bæjarstjóri hefur sagt starfinu lausu en hann tekur við
starfi forstjóra Eimskipafélags Islands í október.
Skógræktin fær gjöf
í tilefni af 70 ára
afmæli Skógrækt-
arfélags Islands var
félaginu færð höfð-
ingleg gjöf. Bræð-
urnir Ormsson ehf
aflientu formanni
Skógræktarfélags
Islands, Magnúsi
Jóhannessyni, nýj-
ustu tegund af
skjávarpa og staf-
ræna myndavél.
Auk þessara veg-
legu gjafa mun fyr-
irtækið Bræðurnir
Ormsson ehf styrk-
ja útgáfumál fé-
lagsins um 500
þúsund krónur
næstu 3 árin. Þessar gjafir munu efla möguleika félagsins til þess að
sinna fræðslustarfi í skógrækt, sem brýn þörf er á í tímum mikillar
vakningar í skógrækt á íslandi.
Frá afhendingu gjafarinnar.