Dagur - 30.08.2000, Blaðsíða 18
18- MIDVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000
dlíS Metft
rfi a(& mavxyf'
VÍKUR jf5 BÍAÐID
Hver á nú að
sletta skyrinu?
Starfsmeim Mjólkur-
samlagsins á Húsavik
eru óhressir með þá
ákvörðuu KEA að
segja upp tveimur
starfsmöunum á
Húsavík og skilja ekki
þá „hagræðingu“ sem
af á að hljótast.
Aðalsteinn Arni Baldursson, for-
maður Verkalýðsfélags Húsavík-
ur átti fund með trúnaöarmanni
starfsmanna Mjólkursamlagsins í
gær þar sem farið var yfir málið.
„Umræddir tveir starfsmenn hafa
aðallega verið í skyrframleiðslu,
en framleiðsla á óhrærðu skyri og
pökkun fluttist til Húsavíkur í
vor. Menn sjá því ekki fyrir sér
hvaða hagræðing er í því að segja
upp þessum mönnum því eftir
sem áður þarf að vinna þessi
störf, að því gefnu auðvitað að
skyrið verði áfram framleitt hér
og því pakkað. Nema náttúrlega
meiningin sé að flytja skyrfram-
leiðsluna aftur til Akureyrar, en
þar er búið að segja upp 9 starfs-
mönnum þannig að það virðist
heldur ekki líklegt.
Þannig að að það er nokkur
pirringur í mönnum vegna
þess sem þeir telja „ótíma-
bærar“ uppsagnir. Og svo
má það líka koma fram að
það eru ekki nema nokkrar
vikur síðan það var gefið út
að það yrði ekki um neinar
uppsagnir að ræða á Húsa-
vík“, sagði Aðalsteinn eftir
fund sinn með trúnaðar-
manni starfsmanna Mjólk-
ursamlagsins.
Uppsagnir til baka!
Þetta kemur heim og sam-
an við það sem starfsmenn
í Mjólkursamlaginu tjáðu
Víkurblaðinu fyrir
nokkrum mánuðum, en þá
töldu menn þar á bæ að
verkaskipting milli mjólk-
ursamlaganna á Akureyri
og Húsavík, þar sem meg-
ináhersla yrði á mjólkur-
framleiðslu á Akureyri og
sérostagerð á Húsavík,
hefði í för með sér aukna
vinnu þar fremur en sam-
drátt. En nú liggur einnig fyrir að
ostameistari samlagsins á Húsa-
vík, Hermann Jóhannsson, mun
flytjast til Akureyrar þannig að
það fækkar um þrjú störf á Húsa-
vík og raunar rneira því Kristín
Halldórsdóttir mjólkurfræðingur
mun á næstunni taka að sér störf
þessa starfsemi hér og nýta
þessa góðu einingu, en ekki
að draga saman seglin eins
og nú liggur fyrir. Eg hefði
því viljað sjá það að þessar
uppsagnir yrðu dregnar til
baka“, segir Aðalsteinn
Baldursson og segir að sami
tónn sé í starfsmönnum.
Óvissa á vinnustað
Aðalsteinn bendir líka á, að
af því að sá skilningur var
uppi hjá starfsmönnum
Mjólkursamlagsins að ekki
yrði um uppsagnir að ræða,
og það hefði síðan brugðist,
þá væri kominn upp ákveðin
óvissa um framtíðina á þess-
um vinnustað og það væri
mjög slæmt. Menn spyrðu
því sjálfa sig hvort þetta
væri fyrsta skrefið í átt að
enn meiri samdrætti og
uppsögnum. Og þar með
væri komið upp öryggisleysi
á vinnustaðnum sem jafnvel
hefði þær afleiðingar að
menn færu að Iíta í kringum
sig eftir tryggari störfum og þar
með missti fyrirtækið hugsanlega
að góðum starfsmönnum og þá
væri farið að halla enn frekar
undan fæti.
JS
Aðalsteinn Baldursson formaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur.
fyrir bæði mjólkursamlögin.
„Við erum hér með mjög gott
fyrirtæki sem hefur frábæru og
vel menntuðu starfsfólki á að
skipa og samlagið hefur verið vel
rekið og framleitt góðar vörur.
Þess vegna hefði maður talið að
það væri akkur fyrir KEA að efla
Nei, það er ekki farið að snjóa á bormenn íslands á Þeistareykjum, þeir ösla þarna froðu sem myndast úr efnum sem notuð eru við borunina.
Verulegur
skortur á
vinnuafli
Að sögn Aðalsteins Arna Bald-
urssonar, formanns Verkalýðs-
félags Húsavíkur er skortur á
vinnuafli farinn að há atvinnu-
starfsemi verulega á svæðinu.
Það er nánast ekkert atvinnu-
leysi og víða hefur vantað fólk í
störf. „Þetta er vandamál sem
við höfum ekki staðið frammi
fyrir á þessuni árstíma til fjölda
ára og raunar man ég ekki svo
langt aftur", segir Aðalsteinnn.
Og hann á von á að erfitt
verði að manna Sláturhúsið á
Húsavík, sem reyndar er ekkert
nýtt. „En nú erum við nánast
komnir með vertfð í þessum
geira, tveggja mánaða úthald
þar sem slátrað verður 70.000
fjár og þetta er orðið stærsta
sláturhús fandsins. Þarna þarf
að ráða í kringum 70 starfs-
mennn til viðbótar við þá 30
sem fyrir eru.“
Aðalstcinn segir og að það
vanti fólk hjá Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur, það hefur vantað
starfsfólk í Heimabakarí, Fisk-
eldið á Haukamýri svo nokkuð
sé nefnt og auglýsingar hafa
ekki borið árangur. „Þá hefur
verið skortur á fólki í ferða-
þjónustunni í sumar, ekki síst á
hótelunum. Þar hefur verið gíf-
urlegt vinnuálag á starfsmönn-
um og við höfum m.a. þurft að
hafa afskipti af þeim málum.
Og það hefur ekki stafað af því
að fyrirtækin hafi viljað hafa
mannahald í lágmarki, þau ein-
faldlega fengu ekki fleiri starfs-
menn“.
Ungir
Völsungar
á uppleið
Yngri flokkar Völsunga hafa
verið að gera það gott í sumar
og verið í fremstu röð á land-
inu. A-lið 6. flokks vann sinn
riðil á Norðurlandi og tók þátt
f úrslitum íslandsmótsins á
Laugarvatni og hafnaði þar í 6.
sæti. 4. flokkur Völsungs sigr-
aði bæði í flokki 7 manna liða
og 1 1 manna liða á Norður-
landi. Sjö manna liðið keppti á
Bessastöðum til úrslita við 4
önnur lið og hafnaði í 3. sæti
yfir landið. Og 11 manna Iið 4.
flokks lék á Akranesi um helg-
ina og stóð sig vel og tapaði
m.a. aðeins 2-3 gegn KR og 0-
2 gegn IA og hafði raunar í
fullu tré við þessi „stórlið".
Vel hefur verið haldið utan
um starfsemi yngri flokkanna í
sumar og foreldraráðin hafa
unnið þar mikið og gott starf,
eins og reyndar undanfarin ár.
js