Dagur - 08.09.2000, Page 1

Dagur - 08.09.2000, Page 1
Ólögleg útleiga á féfagsíbúðunt Húsnæðisneyð að fé- þúfu. Einstæð móðir greiddi 250 þús. kr. í fyrirframgreiðslu. Fátt um úrræði. Misnotkuu á félagslegri aðstoð. Svo virðist sem það sé að færast í vöxt að óprúttnir eigendur félags- legra íbúða notfæri sér skortinn á Ieiguíbúðum í borginni og leigi íbúðir sínar án þess að fá leyfi til þess hjá borginni. A þann hátt hagnast þeir á neyð annarra. Dæmi eru um að eigendi félags- Iegrar íbúðar sem fór á nauðungar- uppboð hafi rétt áður verið búinn að leigja einstæðri móður íbúðina með 250 þúsund króna fyrirfram- greiðslu og stakk síðan af úr landi. Leigjandinn situr síðan uppi með Ijárhagslegt tap og húsnæðislaus. Þetta tilvik kom í Ijós þegar fulltrú- ar Húsnæðsskrifstofu borgarinnar leystu til sín um- rædda íbúð. Neyð að féþúfu Helgi Hjörvar for- maður félagsmála- ráðs Reykjavíkur- borgar segir að í þessu ástandi sem verið hefur á hús- næðismarkaðnum hafi borið á kvörtun- um og ábendingum frá fólki sem er að Ieigja íbúðir úr fé- lagslega eignarí- búðakerfinu. Þarna sé um að ræða útleigu á íbúðum sem ekki sé leyfi fyrir. Jafnframt sé hugsanlega ein- hver dæmi um tiltölulega mjög háa leigu miðað við þau góðu kjör sem kaupendurnar fengu á sínum tíma þegar þeir keyptu íbúðina hjá borginni úr gamla félagslega kerf- inu. Hann segir að þarna sé fólk að hagnast á þessari félagslegu fyrir- greiðslu sem það fékk hjá borg- inni. Það finnst mönnum vera óeðli- legt. Það hefur á móti ekki verið gerð nein úttekt á því hversu umfangs- mikil þessi ólöglega Ieigustarfsemi sé. Þessutan sé mjög erfitt að fá eitthvað staðfest um það og þá einkum vegna þess að Ieigjendur eiga oft allt sitt und- ir íbúðaeigandan- um. Helgi bendir einnig á að þessi ólöglega útleiga á félagslegum eignaríbúðum hafi svo sem komið upp annað veifið í gegnum tíðina. Hins vegar virðist skorta úrræði í Iögum gagnvart þessu ólöglega athæfi. Formaður félagsmálaráðs segir að það sé al- gjörlega óþolandi ef verið sé að nota félagslega aðstoð til að gera húsnæðisneyð annarra sér að fé- þúfu. Hann segir að þótt langstærsti eigenda félagslegra eignaríbúða fari eftir settum regl- um, þá séu dæmi um ólöglega leigu slæmt fordæmi. Fátt um úrræði Á fundi félagsmálaráðs á dögunum var lögfræðisviðí félagsþjónust- unnar falið að fara betur yfir málið og sjá hvort borgin hafi einhver úr- ræði. Aftur á móti virðist vera fátt um fína drætti í þeim efnum. For- maður félagsmálaráðs útilokar ekki að borgin muni ræða þetta mál við félagsmálaráðuneytið. Hann áréttar þó að um það hafi ekki verið tekin nein ákvörðun. Til að eigendur félagslegra eignarí- búða geti Ieigt út íbúðir sínar verða þeir að fá leyfi til þess frá borginni. Samkvæmt reglum Húsnæðiskrif- stofu borgarinnar er leyfisveiting m.a. bundin við ástæður vegna náms eða af heilsufarsástæðum. Tæplega 4 þúsund íbúðir eru í fé- lagslega eignaríbúðakerfinu í borg- inni. - GRH Helgi Hjörvar, formaður fé- lagsmálaráðs Reykjavíkur. Gagnsókn borgarstjóra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur ritað Geir H. Haarde bréf þar sem hún óskar eftir upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu um fyrir- komulag viðskipta og samninga vegna gagnaflutninga og annarra tölvusamskipta. I bréfinu kemur m.a. fram að vegna niðurstöðu Ijármálaráðuneytisins vegna kæru Landssímans á hendur borginni um útboðsskyldu hljóti það að hafa í för með sér að ráðuneytið sýni fram á að það framfylgi regl- um EES um opinber útboð og lög- um um opinber innkaup. Borgar- stjóri telur að mikil misbrestur sé á því að ríkið fari eftir þessum regl- uin I bréfi borgarstjóra er m.a. spurt hvcr séu heildarviðskipti ráðuneyta og ríkisstofnana við Landsímann og dótturfyrirtæki hans, hver séu hcildarviðskipti ríkisins við önnur fyrirtæki á mark- aði er veita sömu þjónustu og hvort viðskipti ríkisins við Land- símann grundvallast á skriflegum samningum, útboðum eða eru við- skiptin byggð á gjaldskrá? — GRH Sérkennileg hersing fór um götur Akureyrar í gær og kom víöa við. Á ferðinni reyndust nemendur Verkmennta- skólans sem héldu daginn hátíðlegan með busavigsiu og ýmsum uppákomum. Ein þeirra var að bregða á leik með fulltrúa sýslumanns. Elstu nemendur skólans fengu embættið í lið með sér til að hækka bílprófsaldurinn tímabundið og má leiða líkum að því að busarnir hafi ekki verið allt of hrifnir af framtakinu. - mynd: brink BHH^HBBHHMHH Gunnar A. Þormar tannlæknir. Stefnt vegna kjaftbruKs Reynir Jónsson, yfirtryggingatann- Iæknir Tryggingastofnunar ríkis- ins, hefur höfðað opinbert meið- yrðamál gegn Gunnari A. Þormar tannlækni, annars vegar vegna ásakana Gunnars í garð Reynis á aðalfundi Tannlæknafélags Islands og hins vegar fyrir ásakanir Gunn- ars í Ijölmiðlum. Segir Reynir í stefnu að Gunnar hafi með rang- færslum viljað hnekkja mannorði sínu og grafa undan trausti skjól- stæðinga Tryggingastofnunar á stofnuninni og sér. Reynir og Gunnar deildu opin- berlega vorið 1999, þegar Gunnar hætti að annast tannlækningar þroskaheftra vegna breytinga á endurgreiðslum, sem Gunnar taldi andstæðar hagsmunum þroska- heftra. Sakaði Gunnar Reyni um fordóma í garð þroskaheftra. Þá segir Revnir að á aðalfundi Tann- Iæknafélagsins haustið 1998 hafi Gunnar borið á sig að hafa mis- beitt gjaldskrá Tannlæknafélagsins og Tryggingastofnunar til að öðlast of háar tekjur og þannig svikið fé út úr Tryggingastofnun. Rógburður og svívirðmgar Þegar fjallað var opinberlega um málið lýsti Karl Steinar Guðnason forstjóri TR því yfir að ásakanir Gunnars væru rangar. „Þetta er ekki annað en útúrsnúningar, róg- burður og svívirðingar hjá Gunnari Þormar tannlækni sem birtist í DV í dag, ótrúlegt hatur og mann- vonska i garð tryggingayfirtann- Iæknis, Reynis Jónssonar," sagði Karl Steinar. Reynir telur unimæli Gunnars svo meiðandi fyrir mannorð sitt að meiðyrðamál sé óhjákvæmilegt með kröfu um miskabætur og ómerkingu ummæla. Gunnar hafi tekið að sér söguburð ósannra full- yrðinga og kjaftagangs og á engan þann hátt sem hæfir gagnrýninni þjóðmálaumræðu. Ummæli Gunnars hafi gengið Iengra en lýð- ræðiskröfur um tjáningafrelsi heimila og þau sett fram af andúð eingöngu til að hnekkja á Reyni. - FÞG ■HHHHHHHHH Mikið úrval af leikjum á verði frá 3.900 kr. Komdu við hjá okkur og prófaðu á staðnum www.ormsson. is

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.