Dagur - 08.09.2000, Page 4

Dagur - 08.09.2000, Page 4
4 - FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 . FRÉTTIR Þessi vél verður í 18 fermetra húsi sem reist verður við eitthvert fjölbýlishúsið í Breiðholti og þá líklega við einhverja Bakkana í Neðra-Breiðholti. Sorpvél fyrir fj olbýlishus Nýjimg á íslandi. Vinmir moltu úr lífrænu hei.mil- issorpi. Tilrauu í Breið- holti. 80-100 íbúðir. Borgaryfirvöld eru að undirbúa til- raunaverkefni með jarðgerðarvél fyrir fjölbýlishús fyrir lífrænan úrgang sem íbúarnir flokka úr heimilissorpinu. Þetta er gert til þess að minnka það magn af sorpi sem fer í sorptunnurnar. Þessi vél verður í 18 fermetra húsi sem reist verður við eitthvert fjölbýlishúsið í Breiðholti og þá líklega við cinhverja Bakkana í Neðra-Breiðholti. Gert er ráð fyrir að vélin scm kemur frá Sví- þjóð geti nýst allt að 80-100 íbúðum, eða 200-300 manns. Stefnt er að því að taka vélina í notkun um næstu mánaðamót. Hrannar B. Arnarson for- maður umhverfis- og heilbrigðisnefnd- ar Reykjavíkur segir að þarna sé á ferð- inni mjög spennandi verkefni sem sé algjör nýjung hér á Iandi. Kostar eina milljón Einar Bjarnason hjá hreinsunardeild borgarinnar segir að lífræni úrgangur- inn fari í gegnum ákveðið ferli í jarð- gerðarvélinni sem skilar honum út sem moltu. Hann segir að tilgangurinn með þessari tilraun sé m.a. að sjá hvert næringarinnihaldið og gæði moltunnar verður. Hins vegar má húast við að moltan sem verður til úr lífrænu heim- ilssorpi verði mjög næringarík. Af þeim sökum getur verið spurning hvort ekki verði að blanda hana við venjulega moltu til að auka gæðin. Þessutan verður fróðlegt að fylgjast mcð því hver þáttakan verður meðal íbúa en það skiptir miklu máli um framhaldið. Jarðgerðarvélin er leigð ásamt húsi frá fyrirtækinu Vistmenn. Áætlaður kostn- aður borgarinnar vegna þessa er um ein milljón króna. Þar er meðtalin kostnaður vegna ráðgjafar og fleira en málið verður kynnt ásamt sýnikennslu fyrir íbúa viðkomndi fjölbýlishúss þeg- ar ákvörðun liggur fyrir hvaða hús verður fyrir valinu. Minna sorp Fyrir utan þetta tilraunaverkefni er ýmislegt í gangi hjá borginni til að minnka sorpmagnið sem borgarbúar henda í sorptunnurnar. I lok sl. maí var t.d. byrjað að vigta sorptunnur í nokkrum hverfum í Breiðholti. Þar er einnig í gangi tilraun með verkefni sem ncfnist „tíðni- rúmmál". Einar Bjarna- son segir að það síðastnefnda byggist á því að fólk lætur hreinsunardeildina vita með ákveðnu merkakerfi á sorp- tunnunni hvort það vilji láta Iosa þessa vikuna eða ekki. Þá cr sorp Iosað á 10 daga fresti í stað 7 daga í Árbæjar- hverfi, Selás og Ártúnsholti. -GRH FRÉTTA VIÐTALIÐ I pottinum voru meiut að ræða vangaveltur ungra framsóknartnanna um þmgmemi samstarfsflokks- ins. Vangaveltur þessar eru birtar á vefsíðu SUF, Maddömunni, og fjalla um sex sjálfstæðisþingmeim sem sitja í því sem verður Norðvesturkjördæmi - þ.e. Vesturland, Vestfirðir og Ni. vestra. Framsóknannenn gefa þingmömiunum einkunnir, en eru einkuin að velta fyrir sér Iiver þeirra það verði scm dcttnr út við kjördæmabrcyt- niguna. Atiiygli vekur að þeir telja Einar Odd Krist- jánsson hafa hvað miimsta möguleika en Sturlu Böðvarssoii hvað mcsta. Aðrir hafa bæði hluti ineð og á inóti sér að dómi Maddömunnar, cn heildar- niðurstaðan er þó sú að ef enghm himia gerir neitt af sér þá séu líkur til að þaö muni koina í hlut Ein- ars Oddss að víkja.. En ungu framsóknarmennimir varpa líka fram þeirri áhugaverðu kennhigu að fleiri kyimu að blan- da sér í baráttuna um sæti á lista í hmu nýja Norðvesturkjördæmi. Þar cru m.a. nefndur til söguimar Guðlaugur Þór Þóröarson borgar- fulltrúi, en hami er úr Borgarnesi og hafa ýmsir í pottinum tekið undir það með Maddömmini að Guðlaugur gangi ineð þhigmann í maganum - telja sig hafa séð það á atferli hans og áherslum. Auk Guðlaugs telur raunar Maddaman líkur á endur- komu Guðjóns Amars Kristjánssonar í flokkiim íýrir vestan, en í pottinum hafa meim ekki trú á að það yrði öflug heimkoma.... Fátt er meira rætt í heita potthium þessa dagana cn stríð DV og Jakobs Frímanns Magnússonar. Máliö þykir athyglisvert fyrir ýmissa hluta sakir og þá ekki síst þær að Jakob hefur verið þekktari að því aö fá fjölmiðla til liðs sig og sína starfsemi cn að hella úr skálum reiði shmar yfir þá. ÞyMr sögulegt í þeim ehium að nefna hve mikla uinijöllun Græm hcrinn fékk hjá Ijósvakamiölum og víðar þótt sum- ir segðu gróðasjónarmið hafa veriö grasrótaráhug- anum yfirsterkari. Hvað sem þvi líöur, jiykir sýnt að nokkuð inum hða þangað til DV biður Jakob um helgarviötal og jafnlangsótt er aö sjá fýrir sér að hann myndi verða viö slíkri beiðni ef til hennar kæmi... GuðlaugurÞór Þórðarson. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifrseðingur Loðnatt er ólíkindafiskur. Önnur lægsta seiðavísitala sem mælst hefur í 30 ár. Kom á óvart. Ekki ðll nótt úti. Mælt í haustogvetur Vont fyrir taugakerfið Seiðavísitala loðnu hejur mælst sú önnur lægsta frá því að seiðarannsóknir Haf- rannsóknastofnunar byrjuðu fyrir 30 árutn. Hvað veldur? „Það er nú fljótsagt, ég veit það ekki. Það er nú einu sinni þannig með þessi loðnu- seiði að þótt manni þykir betra að sjá eitt- hvað af þeim, þá hefur oft komið ágætt út úr lágum seiðatölum. Það er því svo sem ekki öll nótt úti enn með þennan árgang. Þannig að það getur vel verið að það rætist úr þessu í haust og vetur þegar menn fara að gá að þessu í alvöru.“ Þessi niðurstaða hefur væntanlega komið á óvart? „Já, þetta kom mér á óvart vegna þess að það er ákveðið samband á milli þess hvað mikið hrygnir og hvað mikið er af seiðum. Það er nokkuð Ijóst að það hrygndi nokkuð mikið af loðnu sl. vor. Þannig að því leyti kemur þetta á óvart.“ Var farið vítt um haf í mælingum á loðnuseiðum í þessum nýafstöðnu seiða- rannsóknum ? „Já, þetta var gert með hefðbundnum hætti. Það er að segja að það var farið norð- ur undir 68. gráðu. Ég veit nú ekki nákvæm- lega hvað farið var Iangt þarna norðaustur og austur úr. Loðnan hrygnir á undan öðr- um kvikindum og því getur verið hugsanlegt að eitthvað af þessu hafi Ient norðar í hafi. Það hefur stundum gerst. Þá hefur reyndar oft líka verið dálítið af henni nær Iandi. Það er hins vegar ekkert að stóla á slíkar vanga- veltur. Við förum ábyggilega töluvert víðar um í haust þegar við förum að mæla loðn- una. Þá sér maður betur hvort þetta er svona afspyrnulélegt eða eitthvað skárra. Annars er loðnan þess konar fiskur að það má alltaf búast við því að ef það klikkar ein- hver árgangur, þá kemur dalur. Það verður hins vegar bara að koma í Ijós hvernig þetta er í raun.“ Eru ekki aðsiæður í liafinu bara þokka- legar? „Jú, það held að þær séu ágætar. Það hrygndi t.d. mikið í vor og því er það ekki það sem er að. Einmitt vegna þess hvað það er hlýtt þárna fyrir norðan, þá eru kannski meiri Iíkur til þess að loðnan hafi rekið eitt- hvað út og hafi þar af leiðandi ekki komið fram í mælingum. En allt svona eru algjör- legar vangaveltur. Þetta er bara hlutur sem verður að koma f ljós og taka því með jafn- aðargeði eins og venjulega ef þessi árgangur klikkar.“ Er nokkuðfarið að veiðast afloðnu? „Nei, ekki síðan í sumar. Enda held ég að það hafi enginn farið norður til veiða. Eg held þó að einhverjir séu að spá í það að byrja upp úr miðjum mánuðinum." Er ekki líka einhver óvissa um það hvar loðnan kemur til baka norðan úr ha.fi. á miðin eða fylgir hún kannski einhverju hefðbundnu mynstri í göngum sínum? „Það hefur nú verið með ýmsu móti. Stundum hefur þetta verið vestur undir Grænland og komið suður úr þannig. I önn- ur skipti hefur hún komið mildu austar, eða austan við Kolbeinseyjarhrygg. Á stundum hefur hún allavega hagað sér þannig á þess- ari göngu sinni til baka að hún hefur verið seint á ferðinni og verið þannig að við höf- um hreinlega ekki fundið hana. Svoleiðis hefur þetta verið tvö undanfarin haust.“ Loðnan er þvt mikill óltkindafiskur, eða er ekki svo? „Jú, hún er vond fyrir taugakerfið.11 -GRH

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.