Dagur


Dagur - 08.09.2000, Qupperneq 9

Dagur - 08.09.2000, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 - 9 Thypr ÍÞRÓTTIR Owen fagnar þrennunni gegn Aston Villa. Owen á skotskóna Michael Owen, framheiji Liver- pool, er heldur betur kominn á skotskóna í ensku úrvalsdeildinni og er nú markahæsti leikmaður deildarinn með 5 mörk eftir fjórar umferðir. Hann gerði þrennu í síð- asta leik, þegar Liverpool vann 3-1 sigur á Aston Villa á Anfield og virðist þar með vera búinn að finna rétta taktinn eftir þrátlát meiðsli á síðustu leiktíð. Markahæstu leikmenn: 5 mörk: M. Owen (Liverpool) 4 vtörk: T. Henry (Arsenal), B. Strupar (Derby) 3 mörk: A. Hunt (Charlton), F. Jeffers (Evert.), A. Smith (Leeds), P. Wanchope (Man. City), D. Beckham (Man. Utd), A.Colc (Man. Utd), A. Boksic (Middles- br.), M. Pahars (Southampt.) Eftir leiki síðustu umferðar, er Newcastle komið í toppsæti deild- arinnar, með níu stig, einu stigi meira en meistarar Manchester United og Leicester City sem eru í 2.-3. sæti. I 4.-6. sæti eru svo gömlu stórveldin, Arsenal, Liver- pool og Tottenham öll með sjö stig. Næstu Ieikir - 6. umferð: Laugard. 9. sept. Bradford - Arsenal Coventry - Leeds Ipswich - Aston Villa Leicester - Southampton Liverpool - Man. City Man. Utd - Sunderland Middlesbr. - Everton Newcastle - Chelsea Sunnud. 10. sept. Derby - Charlton Mánud. 11. sept. Tottenham - West Ham Staða: Newcastle 4 3 0 1 7: 4 9 Man. Utd 4 2 2 0 11:3 8 Leicester 4 2 2 0 3: 1 8 Arsenal 4 2 1 1 9: 6 7 Liverpool 4 2 1 1 7: 6 7 Tottenham 4 2 1 1 7: 6 7 Leeds 3 2 0 1 5: 3 6 Man. City 4 2 0 2 7: 9 6 Coventry 4 2 0 2 5: 7 6 Middlesbr. 4 1 2 1 8: 7 5 Chelsea 4 1 2 1 7: 7 5 Everton 4 I I 2 7: 7 4 Charlton 4 1 1 2 8: 9 4 Sunderland 4 1 1 2 4: 6 4 Ipswich 4 1 1 2 4: 6 4 Bradford 4 1 1 2 2: 7 4 Derby 4 0 3 1 9:10 3 Southampt. 4 0 3 1 7: 8 3 Aston Villa 3 0 2 1 2: 4 2 West Ham 4 0 2 2 5: 8 2 Birmingham í Njarðvik Brenton Birmingham, langbesti alhliða leikmaður úrvalsdeildar- innar á síðasta leiktímabili og eflaust einn besti útlendingur- inn sem leikið hefur hér á landi, er genginn til liðs við Njarðvíkinga frá nágrönnum þeirra í Grindavík. Birmingham er ekki ókunnur í herbúðum Njarðvíkinga, því þar lék hann tímabilið 1998-’99. í fyrra varð hann stigahæstur í deildinni með samtals 707 skoruð stig. Töluverðar hreyfingar eru á leikmönnum fyrir komandi leiktímabil, sem reyndar er haf- ið fyrir nokkru með árlegu Vals- móti sem Islandsmeistarar KR- inga unnu eftir úrslitaleik gegn Haukum og Reykjanesmóti sem er nýhafið. Þar hafa farið fram tveir leikir, þar sem Njarðvíking- Brenton Birmingham spilar aftur með Njarðvíkingum. ar unnu Grindvíkinga 96-88 og Keflvíkingar Hauka 81-65. Opna Reykjavíkurmótið hófst svo í gærkvöldi með leik Breiða- bliks og IR í Smáranum, en úr- slit höfðu ekki borist þegar blaðið fór í prentun. Blikar leika sem gestir á mótinu eins og Stjarnan, Selfoss og Hamar, en auk þeirra taka Reykjavíkur- liðin Valur, Armann/Þróttur og KR auk IR-inga þátt í mótinu. Keppnin í Epsondeildinni hefst 28. september og þá fara eftirtaldir leikir fram í 1. um- ferð: UMFG - Valur Hamar - KFÍ Þór Ak. - Skallagríniur Keflavík - Haukar Tindastóll - UMFN ÍR - KR Sjá fyrirliggjandi félagskipti á bls. 8. Krístján mætir Steve Davis Snókersnillingurinn Kristján Helgason er kominn í 48-manna úrslit opna breska meistaramóts- ins í snóker, eftir 5-4 sigur á Alfie Burden, f æsispennandi leik sem fram fór í Newport í Englandi í gær. Opna breska meistaramótið er stigamót þeirra bestu, þar sem keppcndur þurfa að vinna sig upp stigalistann í mest 10-móta röð til að ná alla leið í 32-manna úrslitin. Það fer eftir stigastöð- unni, hvenær keppendur byrja í mótaröðinni og þurfti Kristján að spila á fjórum síðustu mótunum. Þeir 16 stigahæstu á heimslistan- um sitja yfir alveg þar til í 32- manna úrslitum, en þar keppa þeir auk þeirra sextán sem kom- ast áfrarn úr 48-manna úrslit- um, sem Kristján hefur nú unn- ið sér keppnisrétt í. Keppnin í 48-manna úrslitunum byrjar 1. október og þá mætir Kristján hinum heimsfræga Steve Davis í fyrstu umferð. Davis er sexfaldur heimsmeistari og einn frægasti og vinsælasti snókerspilari heims. Hann er í 17. sæti heimslistans, en Krist- ján í 74. sæti. Burden, sem Kristján vann í gær, er aftur á móti í 50. sæti listans, þannig að sigurinn er rnjög sætur. Kristján mundar kjuðann. Formleg móttáka í Sydney í gær I gær voru íslensku þátttakendurnir á ólympíuleikunum í Sydney boðnir formlega velkomnir í ólympíuþorp leikanna þar sem hópurinn mun dvelja meðan á leikunum stendur. Borgarstjóri þorpsins tók á móti hópnum í hátíðarsal þorpsins um hádegisbil í gær og afhenti Stefáni Konráðssyni aðalfarstjóra gjöf til ISÍ frá framkvæmdanefnd leikanna. Tvö frumbyggjabörn léku og spiluðu og barnakór frá Epping-grunnskólan- um söng. Aðalfarstjóri þakkaði fyrir hönd ÍSI og afhenti borgarstjóra góðar gjafir frá Iþrótta- og ólympíu- sambandi Islands. Islenska íþrótta- fólkið afhenti síðan krökkunum frá Epping-skólanum íslenska fána, en á miðvikudaginn hafði einmitt hluti íslenska hópsins heimsótt Epping- skólann, en í honum stunda tæplega 300 krakkar nám. Krakkarnir hafa haft ísland sem sérstakt verkefni vegna ólympíuleikanna, en í skólanum eru tveir íslenskir drengir. Við heimsóknina kynnti aðalfar- arstjóri íslensku keppendurna og sagði frá landi og þjóð. Krakkarnir sýndu Islandi mikinn áhuga og spurðu íslensku kcppendurna um undirbúning þeirra fyrir leikana. Að lokum færði hópurinn skólanum bókagjöf frá ISI og allir krakkarnir fengu Sydneypinna ÍSI. Skólastjór- inn færði íslensku gestunum skjal og silfurskeið til minja um heirn- sóknina. Eftir móttökuna í ólympíuþorpinu var íslenski fáninn dreginn að húni, þar sem hann mun blakta næstu vikurnar. lslenski hópurinn, sem dvalið hefur í hænum Wollongong í um það bil klukkutíma akst- ursleið suð-vestur frá Sydney, mun ckki flytja í ólympíuþorpið (yrr en á mánudaginn, en þangað til mun keppnisliðið stunda æfingar og undirbúning í Wollongong. Eftir móttökuathöfnina fékk íslenska sundliðið að æfa í ólympíulauginni í Sydney og svo aftur strax á mánudaginn, eftir að hópurinn hefur komið sér fyrir í ólympíuþorp- inu. Frjálsíþróttafólkið hefur einnig æft í Wollongong í sömu æfinga- búðum og sundfólkið. í mörg hom að líta Það er í mörg horn að Iíta hjá farar- stjórn og aðstoðarfólki íslenska keppnishópsins í Sydney, enda stytt- ist í að keppnin sjálf hefjist. Auk keppendunum sem eru átján, eru sautján manns með í ferðinni, sem eru erftirtalin: Frá ISI þau Stefán Konráðsson aðalfararstjóri, Líney Rut Halldórsdóttir aðstoðarfarar- stjóri, Ágúst Kárason læknir og Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari, frá fimleikasambandinu þeir Mati Kirmes þjálfari og Árni Þór Árnason flokkstjóri, frá frjálsíþróttasamband- inu þjálfaranir Gísli Sigurðsson, Paul Doyle og Stanislav Szczyrba, auk Vésteins Hafsteinssonar flokkstjóra, frá siglingasambandinu Birgir Ari Hilmarsson þjálfari og flokkstjóri, frá skotíþróttasamhand- inu Peeter Pakk þjálfari og Halídór Axelsson flokkstjóri og frá sund- sambandinu þjálfararnir Brian Marshall, Ragnar Friðbjarnarson og Sigurlín Þóra Þorbergsdóttir, auk Benedikts Sigurðarsonar flokk- stjóra. Auk þess mun Páll Þórðarson, ungur íslendingur sem stundað hef- ur nám í Ástralíu undanfarin ár, verða liðinu til aðstoðar. Það var stór dagur hjá Páli á mánudaginn, en þá skilaði hann inn doktorsritgerð sinni í efnafræði við háskólann í Sydney. Nú getur „doktorinn“, eins og hann er kallaður af hópnum, því lokins slakað á og sinnt sjálfboða- liðastörfum sínum á leikunum. Það skal tekið fram að sjálfboðastörf efnafræðingsins hafa ekkert með lytjamál að gera, enda hefur allur hópurinn nýlega gengist undir slík próf og tandurhreinar niðurstöður borist frá Huddinge sjúkrahúsinu í Svíþjóð. Þá er ótalin Sigrún Baldvinsdóttir lögmaður og aðalræðismaður Is- lands í New South Wales, sem býr í Sydney. Hún hefur verið sendi- fulltrúi ISI á staðnum undanfarin tvö ár, á meðan á undirbúningi hef- ur staðið. l lún hefur unnið mikið og gott starf í samskiptum við fram- kvæmdanefnd leikanna og mun verða liðinu til aðstoðar ef með þarf. Menntamálaráðherra til Sydney Björn Bjarnason, menntamálaráðherra og eiginkona hans Rut Ing- ólfsdóttir munu væntanlega halda til Sydney á næstu dögum, þar sem þau verða viðstödd opnunarhátíð leikanna á föstudaginn, auk þess sem þau munu fylgjast með íslensku keppendunum fyrstu keppnis- dagana. Fleiri íslenskir gestir munu einnig heimsækja leikana og má þar nefna nokkra fulltrúa helstu styrktaraðila íslenska ólympíuhóps- ins. Það eru þeir Valur Valsson bankastjóri Islandsbanka og Guðrún Sigurjónsdóttir eiginkona hans, Árni Þór Árnason forstjóri Austur- bakka og eiginkona hans Guðbjörg Jónsdóttir, en Árni er einnig flokksstjóri FSI. Þá mun Olafur B. Thors forstjóri Sjóvá-AImennra og eiginkona hans Jóhanna Thors, auk Einars S. Einarssonar fyrrver- andi forstjóra Visa Island og eiginkonu hans Svölu Jónsdóttur verða viðstödd leikana. Stefán Konrádsson, aðaifarar- stjóri, ásamt borgarstjóra ólymp- íuþorpsins í Sydney.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.