Dagur


Dagur - 08.09.2000, Qupperneq 17

Dagur - 08.09.2000, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 - 17 Tkgur LÍFIÐ t LANDINU Keppnin fellst í því að keppa við sjálfan sig Sjötta Kópavogssundið fer fram á sunnudaginn. Hér sjáum við verðlaunahafa á síðasta ári. Kópavogssund2000 semfram ferí Sundlaug Kópavogs á sunnudag- inn ereina almennings- keppnin í sundi sem framferhérá landi. Þátttakendur velja sjálfirþá vegalengd sem þeirvilja synda, alltfrá SOO metrum og uppúr, svo lengi sem tími end- isttil. Árlegt Kópavogssund það sjötta í röðinni fer fram í Sundlaug Kópavogs á sunnudaginn. Kópa- vogssundið sem er samstarfs- verkefni Sundlaugar Kópavogs og Sunddeildar Brciðabliks, er eina almenningskeppnin í sundi sem fram fer hér á landi og hef- ur þá sérstöðu að þátttakendur velja sjálfir þá vegalengd sem þeir óska að synda og má því helst líkja því við almennings- hlaup. Keppnin er öllum opin og engin tímamörk eru sett til þess að Ijúka sundinu önnur en tíma- mörk keppninnar, sem hefst kl. 07:00 að morgni sunnudagsins og lýkur kl. 22:00. Að sögn Guðmundar Harðar- sonar, forstöðumanns Sundlaug- ar Kópavogs hefur þátttaka í Kópavogssundinu verið mjög góð síðan það var fyrst haldið árið 1995. „Þátttakan hefur ver- ið svona 600 til tæplega 800 manns á ári, fólk á öllum aldri, alveg frá fimm ára aldri og upp í 85 ára aldur. í fyrra voru þátt- takendur alls 598, en flestir fyrir þremur árum þegar þeir voru um 780. Þetta fer svolítið eftir veðrinu, eins og gengur, en flestir setja það þó ekki fyrir sig þó svoh'tið blási.“ Metið er 25 kflómetrar Eins og áður sagði velja þátttak- endur sjálfir þá vegalengd sem þeim hentar og talta þann tíma sem til þarf til að klára sundið. Vegalengdirnar sem hægt er að velja um eru 500 m, 1000 m ogl500 m eða lengra. Veitt eru bronsverðlaun fyrir 500 metrana, silfur fyrir 1000 metrana og gull fyrir lengri vegalengdir. „Keppt verður í átta flokkum karla og kvenna og verða veitt sérstök verðlaun fyrir lengstu vegalengdina í hverjum flokki. „Sá sem hefur synt lengst í Kópavogssundi til þessa heitir Ingólfur S. Margeirsson, en árið 1995 synti hann heila 25 kíló- metra og notaði til þess 14 Idukkustundir. Árið áður hafði hann synt 21 km. Þess má geta að Kópavogssundið stcndur í 1 5 klukkustundir, þannig að hann hefur notað tímann vel. Annars er markmiðið ekki að synda sent lengst, heldur að sem flestir taki þátt. Margir synda þrjú til fimm þúsund metra og einnig þó nokkrir sem synda tíu þúsund nietra og meira,“ sagði Guð- mundur Aðalatriðið að vera með Að sögn Guðmundar er sundá- hugi Islendinga alltaf að aukast og fleiri og fleiri sem stunda sund sér til hei<Isubótar. „Enda má segja að um 80 til 90 pró- sent Islendinga séu vel syndir og hafa flestir þurft að þreyta sund- próf í gegnum skólagöngu. Þeir segja mér það gömlu laugarverð- irnir í Sundhöll Reykjavíkur sem unnu þar á fýrstu árunum eftir opnunina að sundkunnáttu landans hafi farið mikið fram og nefndu sem dæmi að fyrr á árum hafi þeir þurft að fara allt að tíu ferðir ofan í Iaugina á dag til að hjarga fólki. I dag er þetta breytt, enda var sundkennsla gerð að skyldunámsgrein árið 1942. Þetta getum við vel merkt sem stöndum að Kópavogssund- inu og það eru alltaf fleiri og lleiri sem synda lengri vega- lengdir, enda hefur það einnig verið markmið okkar að brjóta niður þetta týpíska 200 m tak- mark sem margir hafa sett sér í gegnum árin. Það eru leifar frá norrænu sundkeppnunum og fólk jafnvel haldið að það væri nóg að synda 200 m af og til, til að koma heilsunni í lag. Mér sýnist við vera búnir að bjóta niður þann múr, því flestir synda mun Iengri vegalengdir og fara létt með það. Annars verður hver og einn að meta það sjálfur hvaða vegalengd hentar, en aðal- atriðið er að vera með. Keppnin fellst f því að keppa við sjálfan sig og flestir landsmenn eru mjög vel syndir og þurfa því ekki að vera í neinu „ólympíuformi“ til að taka þátt í Kópavogssund- inu. Sundið er íþrótt sem veitir alhliða hreyfingu og eykur ánægju, þrek, þol og hreyfi- færni. Sundið hentar öllum ald- ursflokkum og er því sannkölluð fjölskylduíþrótt," sagði Guð- mundur. Allir þátttakendur í Kópavogs- sundi 2000 fá skjal til staðfest- ingar þátttöku í keppninni, 12 ára og yngri fá sundpoka og 13 ára og eldri T- bol með merki keppninnar og Sparisjóðs Kópa- vogs. Allir þátttakendur fá Gatorate íþróttadrykk frá Sól. Aldursflokkar: sveinar f. 1988 og síðar - meyjar f. 1988 og sfð- ar - drengir 1983-’87 - telpur 1983-’87 - piltar 1970-’82 - stúlkur 1970-’82 - konur og karlar 1960-’69 - 1960-’69 - 1950-’59 - I950-’59 - 1940-’49 - 1940-’49 - 1930-’39 - 1930-’39 - 1929 og fyrr. Þátttökugjald er kr. 700 fyrir fullorðna (fæddir 1984 og fyrr), kr. 500 fyrir lífeyrisþega og kr. 300 fyrir börn (fædd 1985 og síðar). Innifalið í þátttökugjald- inu er aðgangur að sundlaug- inni. Skráning í Kópavogssundið fer fram í anddyri Sundlaugar Kópavogs um leið og mætt er til sunds. Hægt er að byrja hvenær sem er dagsins. Gengi íslenskra bíó- mynda óvenju slakt Gengi íslenskra bíó- mynda ekki veriðjafn lítið um langt árabil, um 1,5% afaðsókn- inni. Bíóferðum landsbyggðafólks fjölgaði um 45% milli ára. „Gengi íslenskra kvikmynda hefur ekki verið jafnlítið um langt árabil“, segir Hagstofan í yfirliti um sýningar og starf- semi kvikmyndahúsanna í fyrra. Tvær íslenskar myndir í fullri lengd voru teknar til sýn- inga á árinu, sem er rúmt 1% af alls 194 frumsýningum á ár- inu. Hlutur þeirra var 1,5% af aðsókn ársins, sem samsvarar um 23.600 sýningargestum samtals á báðar myndirnar. Árið áður sóttu til dæmis 44.500 manns þær 2 íslensku myndir sem þá voru frumsýnd- ar og 80.600 manns á 2 myndir árið 1996. Fara verður aftur til ársins 1991 til að finna minni aðsókn (21.500) en það ár var aðeins sýnd 1 íslensk mynd. Hlutur íslensku myndanna í aðgangseyri var um 2% í fyrra, rúmlega 19 milljónir króna. Um 45% fjölguu á landsbyggðinni Um 45% fjölgun bíógesta á Iandsbyggðinni í fyrra (í 158 þúsund) cru önnur helstu tíð- indi bíóársins 1999. En þessi mikla fjölgun er rakin er til þeirrar nýbreytni að kvikmyndir eru nú frumsýndar samtímis í stærri bíóum á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðnu. Þess má þó geta að árið áður hafði bíógestum fækkað um fjórðung á landsbyggðinni, í kjölfar þess að 5 af alls 23 bíóum þar lögðu þá upp laupana. Þeim menn- ingarbæjum sem hafa kvik- myndahús hefur fækkað úr 25 árið 1995 niður í 18 f fyrra - með 46 sýningarsölum. Meðal gestafjöldi á hverri sýningu var rúmlega 40 í Reykjavík en tæp- lega 30 á landsbyggðinni. Um 4.300 á dag I höfuðstaðnum voru bíógestir um 1.417 þúsund í fyrra. Tvær íslenskar myndir í fullri lengd voru teknar til sýninga á árinu önnur þeirra var Ungfrúin góða og húsið. Fjölgunin var aðeins 0,6% frá árinu áður, en 1/6 fleiri en 1995. Alls voru bíógestir því um 1.575 gestir á landinu öllu (um 4.300 á dag) sem svarar til þess að hvert mannsbarn á landinu hafi farið næstum því sex sinnum í bíó. Fyrir þessar bíóferðir sínar greiddu lands- menn 958 milljónir króna, um 3.400 kr. að meðaltali á mann cn 608 kr. á hvern seldan bíómiða. Markaðshlutdeild banda- rískra mynda var hátt í 90% hvort heldur miðað er við verð- mæti seldra miða eða aðsókn á almennar kvikmyndasýningar. Breskar myndir voru 13 f fyrra en aðeins 6 norrænar. -HEI

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.