Dagur - 08.09.2000, Síða 18
18- FÖSTVDAGUR 8. SEPTEMBER 2000
Litla Kaffistofan
Tryggvabraut 14
Sími 461 3000
Akureyri
Venjulegur
heimilismatur í
hádeginu virka daga
eÍHI ACl ACCC
0120
PITGH BIAGH
Sýndkl. 22
i ■
J J.MQVIE
Sýnd kl. 18-ísl. tal
LÍFID í LANDINU
Þýðingar fremur en orðasmíði
Fjörutíu ára draumur
að rætastmeð útkomu
nýs Hagfræðiorðasafns
Hagfræðingar og viðskiptafræð-
ingar fagna nú þeim merka áfanga
að loksins er komið út myndarlegt
hagfræðiorðasafn. I bókinni eru
um 6.300 íslensk og um 6.200
ensk uppflettiorð um hagfræði,
viðskiptafræði og skyldar greinar.
Hagfræðiorðasafnið er byggt á
vinnu sem staðið hefur yfir í rösk-
an áratug, en um fjórir áratugir
eru liðnir síðan fyrst var farið að
huga að samantekt orðasafns af
þessu tagi. Bókin sem er í tveim
hlutum: íslenskt- enskt og enskt-
íslenskt orðasafn, er gefin út í rit-
röð íslenskrar málnefndar, sem
annast dreifingu hennar og sölu.
Fá nýyrði búin til
Ritið er tekið saman af Orðanefhd
Félags viðskipta og hagfræðinga
sem nú er skipuð: Hallgrími
Snorrasyni, Gamalíel Sveinssyni
og Ólafi ísleifssyni. „Það hafa ein-
hver nýyrði verið búin til en ákaf-
lega fá“, sagði Hallgrímur. I stað
orðasöfnunar
hafi núver-
andi hópur
skipt um gír
og lagt áherslu
á að þýða
fremur er-
lendan orða-
forða. Gengið
hafi verið út
frá ensku sem
sem aðalmáli
og leitað að ís-
lenskum orð-
um, sem
mætti nota
þeirra stað.
Oft liinar undarlegustn sam-
setningar
„En enskan er nafnorðamál og
gengur ekki vel að þýða nafnorð
alltaf með nafnorði á íslensku.
Eins er það að í þessum fræði-
greinum verða til hinar undarleg-
ustu samsetningar á nafnorðum til
að Iýsa einhverjum hugtökum og
þær þurfa ekki einu sinni að vera
rökréttar á frummálinu. Þannig
að við höfum í vaxandi mæli farið
út í það að reyna frekar að skýra
fyrirbrigðið og lýsa því með 2-3
orðum, í stað þess að þýða endi-
lega orð með orði,“ segir Hallgrím-
ur. Enska sé auðvitað víða og mik-
ið notuð. „En í umræðum og
skrifum, t.d. hjá blaðamönnum,
þá finnst mér allir reyna að nota
íslensku. Og þá verða menn bara
að hafa á takteinum einhveijar ís-
Ienskar þýðingar á viðkomandi
hugtökum og orðum“.
Hugtök oft tískuskotin
Spurður hvort ekki þurfí fljótlega
að endurskoða skoða svona bók
sagði Hallgrímur. „Það sem mér
fínnst að ætti að gerast er, að það
ætti að leyfa þessu verki að liggja í
2-3 ár og fá á það rækilega gagn-
rýni. A þeim tíma hefur örugglega
eitthvað breyst og úrelst og menn
fundið ágalla. Þá á að koma til
nýtt og ferskt lið sem vinnur að
þessu með sama hugarfari. En
það þarf líka að hafa í huga að
orðasambönd yfír ákveðin hugtök
geta verið ákaflega tískuskotin og
þurfa alls ekki að verða langlíf.
Það koma Iíka fram einhverjar
fræðikenningar sem er haldið á
lofti um l-2-3ja ára skeið og
sprynga síðan. Svo menn mega
vera svona hæfilega íhaldssamir".
Margir lögðu 1 púkkið
Til að fjármagna bókina leitaði
nefndin til margra opinberra
stofnana, banka og fyrirtækja um
fjárstuðning. Viðbrögðin voru góð.
Arin 1990-96 lögðu um 40 stofn-
anir og fyirtæki fram samtals 8,8
milljónir króna, þ.e. Málræktar-
sjóður og Seðlabankinn milljón
hvor. Orðanefndin hefur verið
ólaunuð og fleiri hafa unninn í
sjálfboðavinnu og lagt málinu lið.
Ritstjórar eru: Biynhildur Bene-
diktsdóttir, Jónína Margrét
Guðnadóttir og Kristín Flyg-
enring. — HEI
Lil.iIlJuiaAilBlijLIiiulEIEi;
tnlninHíJÍiJíalluB^i
STJORNUR A
MORGUNHIMNI
eftir
Alexander Galin
Leikarar:
Sigrún Edda Björnsdóttir,
Edda Björg Eyjólfsdóttir,
Nanna Kristín
Magnúsdóttir,
Margrét Ákadóttir,
Bryndís Petra Bragadóttir,
Stefán Jónsson
og Gunnar Hansson.
föstud. 8. sept. kl. 20
örfá sæti laus
laugard. 9. sept. kl. 20
örfá sæti laus
föstud. 15. sept. kl. 20
laugard. 16. sept kl. 20
Miðasalan opin alla virka daga
frá kl. 13:00-17:00 og fram að
sýninqu, sýninqardaqa.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
Bílaskipti • Bílasala
VW Golf 1600 Comfort 5.d. skr.05’99 vínr. ek.22.þ.km bsk álf spoi cd ofl V: 1.520.þ. áhv.lán 1 VW Golf 1400 Basic 5.d. 1 1 VW Polo 1000 5.d. árg. 1996
Bílasala • Bílaskipti
VW Passat 1600 Basic 4.d.
skr.06'98 svartur ek.37.þ.km bsk
álf cd ofl V:1.440.þ.
Bílaskipti • Bílasala
Opið alla virka daga
frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 10-14
Mikið og gott úrval bíla
á skrá og á staðnum
. . I BÍLASALINN
nöldur ehf.
BÍLASALA
við Hvannavelli, Akureyri
Símar 461 3019 & 461 3000
■ -vv ~
v WII