Dagur - 08.09.2000, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 20 00 - 19
r^tr
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Sex ný sviðsverk
Leikhópurinn lcelandic Take Away Theatre á æfingu i Tjarnarbíói, en þau flytja verk Svelns Einarssonar
„Dóttir skáldsins“ sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói i kvöld.
Alíslensk leiklistarhátíð at-
vinnuleikara er nú haldin á
íslandi ífyrsta sinn og stend-
uryfir í rúmarfjórar vikur.
Leiklistarhátíðin erhluti af
Reykjavík menningarborg
Evrópu 2000 ogjafnframt
einn afhápunktum hennar.
I kvöld hefst lciklistarhátíð Samtaka sjálf-
stæðra leikhúsa „A mörkunum", en þau
eru nteðal annars Iðnó, Loftkastalinn,
Hafnarfjarðarleikhúsið, Draumasmiðjan,
Kaffileikhúsið og lcelandic Take Away
Theatre. Hátíðin stendur í rúmar fjórar
vikur og verða frumflutt sex ný íslcnsk
leikverk, eftir íslenska höfunda: Dóttir
skáldsins eftir Svein Einarsson sem frum-
sýnt verður f Tjarnarbíói í kvöld, Trúðleik-
ur eftir Hallgrím Helgason, frumsýnt 23.
september í Iðnó, Háaloft eftir Völu Þórs-
dóttur, frumsýnt 4. október í Kaffileikhús-
inu, Tilvist eftir Dansleikhús með Ekka,
frumsýnt 6. október í Iðnó, Vitleysingarnir
eftir Olaf Hauk Símonarson, frumsýnt 14.
október í Hafnarfjarðarleikhúsinu og Góð-
ar hægðir eftir Auði Haraldsdóttur sem
frumsýnt verður í Tjarnarbíói 15. október.
OII verkin eiga það sameiginlegt að fjalla
með einum eða öðrum hætti um ísland og
Islendinga. Að sögn Þórunnar Sigurðar-
dóttur er þetta einn stærsti viðburður
Menningarborgar 2000.
Sjálfstæðu leikhúsin eru bandalag fs-
lenskra atvinnuleikhópa. Innan vébanda
þess eru ýmis leikfélög og rekstraraðilar leik-
húsa sem njóta lítils eða einskis stuðnings
opinberra aðila. Verkin á leiklistarhátíðinni
„Á mörkunum" voru valin af verkefnanefnd í
kjölfar samkeppni í hyrjun þessa árs og
koma alls um hundrað manns að hátíðinni.
Dóttir skáldsins
Eins og fyrr segir hefst hátíðin í kvöld með
frumsýningu á verki Sveins Einarssonar
„Dóttir skáldsins" í Tjarnarbíói. Sveinn Ein-
arsson hefur stýrt bæði Þjóðleikhúsinu og
Leikfélagi Reykjavíkur og er án efa einn allra
reyndasti leikhúsmaður þjóðarinnar. Hann
stýrir nú einu athyglisverðasta sjálfstæða leik-
húsi þjóðarinnar, Icelandic Take Away
Theatre, sem hefur vakið athygli langt út fyrir
landsteinana með sýningum sínum. Icelandic
Take Away Theatre var stofnað af íslendingum
í London árið 1996. Hópurinn hefur haft það
markmið að kynna íslenska menningu fyrir
bresku leikhúsfólki og hefur sett upp nýtt ís-
lenskt verk þar á hveiju ári. Lcikarar í Dóttir
skáldsins eru: Agústa Skúiadóttir, Arni Pétur
Rcynisson, Hinrik Hoe Haraldsson, Ragn-
heiður Guðmundsdóttir og Þórunn Lárusdótt-
ir. Aðrir listrænir stjórnendur eru: Olafur Ge-
orgsson sem sér um ljósahönnun og Arngeir
Hauksson sér um tónlistina. Framkvæmda-
stjóri er Úlfur Teitur Traustason.
Dóttir skáldsins Ijallar um Þorgerði Egils-
dóttur sem er getið í tveimur af Islendingasög-
unum, Egilssögu af því hún var dóttir Egils
Skallagrímssonar og Laxdælu af því hún var
móðir Kjartans Olafssonar sem var ein aðal
persóna þeirrar sögu. Það er hins vegar ekkert
vitað mikið um Þorgerði sjálfa og ef að flett er
upp í ritinu Merkir Islendingar er hún hvergi
nefnd á nafn þar. Tilgangur leikritsins er að
draga fram allt sem hægt er að finna um þessa
konu og raða því saman og húa til mynd af því
hver hún var. Og það merkilega er að þegar
teknir eru örfáir kaflar úr einni Islendinga-
sögu og örfáir úr annarri og þeim raðað saman
þá verður til Þorgerðar saga Egilsdóttur, sein
að sögn Björns Gunnlaugssonar leikstjóra
verksins hefur verið alveg magnaður karakter.
-W
Leitmað
Fairey Battle
áMinjasafninu
Á sýningu sem stendur
yfiríMinjasafninu á
Akureyrí eru Ijósmyndir
og munirúrleiðöngrum
Harðar Geirssonar.
Hann leitaði í 20 ár að flaki
breskrar flugvélar sem fórst á há-
lendinu vorið 1941. Hörður hefur
þetta um sýninguna að segja:
„Þetta er lftil sýning sem sýnir
framvinduna í þessu máli sem
hefur fengið mikla umfjöllun
víða um heim. Eins og margir
vita þá fannst flakið fyrir ári og í
sumar voru líkamsleifar mann-
anna fluttar í vígða mold með
hjálp félaga í Björgunarsveitinni
Súlum á Akureyri og Björgunar-
sveitar breska flughersins. Akur-
eyringar og aðrir gestir Minja-
safnsins eru þeir einu sem fá að
sjá þessa gripi úr vélinni. Þarna
eru persónulegir munir eins og
úr flugmannsins sem nú þegar
hefur verið tilsagt ættingjum
hans í Nýja-Sjálandi og fer
þangað um leið og sýningunni
Iýkur um næstu helgi. Einnig
má nefna tannbursta, rakvélar,
fatnað o.fl. sem fannst í flaki
vélarinnar. Þarna er líka vél-
byssa úr flakinu. Þær eru ekki
aígengar hér á landi og fáar til
sýnis.
Varðveisluskilyrðin á jöklinum
eru svo ótrúleg að þar fannst hút-
ur úr ljósmynd. Síðan hef ég séð
myndina heila og hvorar tveggja
eru til sýnis í safninu. Þarna er
líka verið að segja söguna í Ijós-
myndum, frá því ég fer fýrstu leit-
arferðina 1980 allt þar til minn-
ingarathöfnin er haldin í Foss-
vogskirkjugarðinum 27. ágúst."
Eg vil hvetja áhugafólk um sögu
sfðari heimsstyijaldar til að missa
ekki af þessu einstæða tækifæri.
Sýningunni Iýkur föstudaginn 15.
september og um helgina er safn-
ið opiö frá kl. 11-17 og á sama
tíma í næstu viku.“ GUN.
UM HELGINA
Opið hús hjá sjúkra-
þjálfunun uni allt land
Félag sjúkraþjálfara varð
sextfu ára á þessu ári, en
það var stofnað þann 26.
aprfl 1940. Einn liður í til-
efni afmælisársins er að
bjóða gestum og gangandi
um allt land á opið hús í
dag hjá sjúkraþjálfunar-
stöðvum og kynna sér þá
starfsemi sem þar fer fram.
Gestir fá tækifæri til að
fara í göngupróf, fá leið-
beiningar um hreýfingu og
prófa ýmis æfingatæki svo
eitthvað sé nefnt. A sumum
stöðvum verður hoðið upp
á líkamsstöðugreiningu og
enn aðrar hjóða upp leið-
heiningar um val á skóla-
töskum fyrir börn. Þarna
gefst fólki einstakt tækifæri
til að kynna sér hvað fram
fer á bak við tjöldin til
/ dag er opið hús á alþjóðadegi
sjúkraþjálfara.
dæntis eftir slys og hvernig
tekið er á málum á þeirra
einstaklinga sem í þeim
lenda. AUs eru um áttatíu
stöðvar hér á landi og fer
þeim fjölgandi. Allar nánari
upplýsingar um staðsetn-
ingu stöðvanna og opnun-
artíma á opnu húsi í dag er
að finna á heimasíðu fé-
lagsins sem er:
wuni’.'physio.is.
Haustmarkaður
Ber, ávextir, grænmeti og
fleira verður til sölu á ár-
legum haustmarkaði
Kristniboðssambandsins
sem haldinn verður á morg-
un, laugardaginn 9. sept-
ember í húsi KFUM og
KFUK að Holtavegi 29 í
Reykjavík og hefst kl.
14.00. Tekið verður á móti
framlögum á markaðinn í
dag föstudaginn 8. septem-
ber kl. 17 - 19 og er allt vel
þegið, kartöllur, gulrætur,
sultur, pakkamatur, kökur
og hvað sem er matarkyns.
Blóm eru vel séð líka.
Ágóðinn af markaðinum
rennur til kristniboðstarfs-
ins í Eþíópíu, Kenía og
Kína.I Afríku eru nú fimm
íslenskir kristniboðar að
störfum á vegum Kristni-
boðssambandsins og verk-
efnin eru óþrjótandi. Það
eru konur í Kristniboðsfé-
lagi kvenna sem standa fýr-
ir markaðunum sem hefst
sem fyrr segir kl. 14.00 á
laugardag, 9. sept.
V___________________________>