Dagur - 08.09.2000, Qupperneq 20
20- FÖSTUDAGVR 8. SEPTEMBER 2000
Kammermúsíkklúbburinn
í Bústaðakirkju
Kammermúsíkklúbbur-
inn heldur sína fyrstu
tónleika á þessu starfs-
ári sunnudaginn 10.
september k. 20 í Bú-
staðakirkju. Á efnis-
skránni eru Strengja-
kvartett, eigið tema með
varíasjónum og fúgu eft-
ir Helga Pálsson. Verkið
ér frá árinu 1939. Annað
verkið á tónleikunum er
Strengjakvartett í F-dúr
op 135 eftir Ludwig van
Beethoven og það
þriðja Strengjakvartett
nr. 2 í a-moll op. 51.2 .
Flytjendur á tónleikunum
eru Auður Hafsteins-
dóttir 1. fiðla, Greta
Guðnadóttir 2. fiðla,
Guðmundur Krist-
mundsson lágfiðla og
Bryndís Halla Gylfadóttir
knéfiðla.
----------------------------X^MT
LÍL ___________________________
fjör
Jasshátíð Reykjavíkur
<y ^ I kvöld koma fram á Kaffi Reykjavík Kristjana Stef-
ánsdóttir með finnsk-íslenskum kvintett kl. 21.00
r og Tríó Siguðar Flosasonar kl. 23:00. Á morgun
laugardag verður Jazzbrunch - hádegisjazz kl. 12:00 á
Hótel Borg, Norræn Jazzungliðakeppni í Norræna húsinu kl.
16:00, 17 manna stórsveit Samúels Samúelssonar í Kaffi
Reykjavík kl. 21:00 og aimenn Jam-session og Funkmasters
sem leika frá 23:00 í Kaffi Reykjavík. Sunnudaginn 10. sept-
ember er loka-
dagur 10 ára af-
mælis Jasshá-
tíðar í Reykjavík.
Meðal viðburða
þann dag er
Tvöfaldur kvart-
ett Reynis Sig-
urðssonar
kl.15:00 að Hót-
el Borg og
glæsilegir
lokatónleikar
með Dave Hol-
land kvintettin-
um í íslensku
óperunni kl.
20:30.
Vindhátíð 2000
cy ^ Auk fastasýninga á Vindhátíð verður í dag meðal efnis á þaki Faxaskálans
gjörningar Walkabout Stalk kl. 14:00 og Reykjavík Hannesar Lárusson-
f ar kl. 16:30. í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi verða tveir fyrirlestrar
sem hefjast kl. 20:30 og gjörningurinn Walkabout Stalk- dans, hljómlist og
arkitektúr kl. 22:00. Á morgun iaugardag sem er jafnframt lokadagur Vindhátíðar
verður á þaki Faxaskálans gjörningur Hannesar Lárussuonar kl. 16:30, tískusýn-
ingin Faldafeykir frá 66«=N kl. 20:30 og dansverk eftir Léru Stefánsdóttur og Guðna
Franzsonar „12 vindstig" kl. 21:30.
ÞAD ER KOMIN HELGI
Hvað
ætlar þú aó
gera?
Úlafur Sigurðsson
bæjarstjóri
Seyðisfirði.
Ingibjörg
Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra.
Guðrún
Ásmundsdóttir
leikkona.
Að væntanleguni virkjunarstað
Það er meiningin að fara jafnvel í Snæfell um
helgina ef vel viðrar. Hér rignir eldi og
brennisteini nú þegar þetta viðtal fer fram en
veðurfræðingar lofa að það eigi að stytta upp
og ég vona að sú spá rætist. Eg hef hug á að
fara að væntanlegum virkjunarstað við Kára-
hnúka, hef reyndar komið þangað áður, með
iðnaðarnefnd alþingis, en nú ætla ég með
sambýliskonunni. Annað er ekki í sigti hjá
mér fyrir þessa helgi en bæjarstjórar eru
aldrei í vandræðum með að finna sér verkefni
þótt yfírleitt reyni maður að Iíta upp úr starf-
inu um helgar.
Fróðleikur og útivist
Að loknum vinnudegi í dag ætlar starfsfólk
heilbrigðisráðuneytisins, ásamt íyrrverandi
starfsmönnum, að ganga um Gróttusvæðið,
undir Ieiðögn Guðjóns Friðrikssonar sagn-
fræðings. Tilefnið er að um þessar mundir
eru 30 ár síðan ráðuneytið tók formlega til
starfa. Að göngu lokinni munum við snæða
heilsufæði í félagsheimili Seltjamamess og
síðan fer ég heim tii mín upp á Skaga.
Fyrripart laugardagsins ætla ég að vera með
íjölskyldunni og venjulega nota ég tækifærið
og fer í hina ágætu sundlaug á Akranesi. Ef
vel liggur á mér syndi ég 1000 metra, annars
bara 200! Eftir hádegið ætla ég í brúðkaup og
á sunnudeginum þarf ég að fara til Kaup-
mannahafnar á fund Alþjóða-Heilbrigðis-
stofnunarinnar.
Tlmi fyrir hið óvænta
Ég fer í fádæma gleðilegt boð síðdegis í dag.
Mín kærasta vinkona, Sr. Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir, kallar okkur vini sína og fjöl-
skyldu saman því Háskóli Islands hefur sýnt
henni þann heiður að sæma hana heiðurs-
doktorsnafnbót í guðfræði. A laugardeginum
vona ég að ég komist á æfingu hjá Möguleik-
húsinu því þar á að frumsýna barnaleikrit eft-
ir mig þann 15. september. Leikritið heitir
Lóma og er mér afskaplega kært ojg ég nota
öll tækifæri til að sitja á æfingum. I eftirmið-
daginn fer ég svo sem sögumaður með ferða-
hóp til Þingvalla og að Gullfossi og Geysi.
Svo er það sunnudagurinn, hann er fijáls.
Það verður alltaf að hafa einn dag í viku sem
tíma fyrir hið óvænta.
■ HVAD ER Á SEYDI?
Dagskrá Bókmenntahátíðar
10. september - sunnudagur
Iðnó, kJ. 20.30: Bókmcnntakvöld -
upplestur: Giinter Grass, Erlend Loe,
Olafur Jóhann Olafsson, Kristín
Omarsdóttir og Thor Vilhjálmsson.
11. september - mánudagur
Norræna húsið, kl. 12.00: Hádegis-
spjall. Efni: Bókmenntir og tjáningar-
frelsi. Þátttakendur: Giinter Grass,
Slawomir Mrozek og Matthías Johann-
essen sem einnig stjórnar umræðum.
Norræna húsið, kl. 13.00: Fundur ís-
lenskra og norrænna útgefenda í sam-
vinnu við Félag íslenskra bókaútgef-
enda. Efni: Kynning á tilhögun bók-
sölu á Norðurlöndum og breytingum á
henni. Tungumál: Norðurlandamál.
Norræna húsið, kl. 15.00: Norrænn
umræðufundur í samvinnu við nor-
ræna lektora við Háskóla Islands. Efni:
Norrænar samtímabókmenntir. Þátt-
takendur: Kerstin Ekman, Jógvan Isak-
sen, Monika Fagerholm, Linn Ull-
mann og Erlend Loe. Stjórnandi: Dag-
ný Kristjánsdóttir. Tungumál: Norður-
landamál.
Iðnó, kl. 20.30: Bókmenntakvöld -
upplestur: Linn Ullmann, Ingo
Schulze, Didda og Ingibjörg Haralds-
dóttir.
12. september - þríðjudagur
Norræna húsið, kl. 10.00-14.00: Mál-
þing útgefenda í samvinnu við Félag
íslenskra bókaútgefenda I. Fram-
tíð prentaðra bóka. 2. Hlutverk þýddra
fagurbókmennta. 3. Möguleikar ís-
lenskra bókmennta erlendis. Stjórn-
andi: Sigurður Svavarsson.
Norræna húsið, kl. 15.00: Pall-
borðsumræður. Efni: Bókmenntir og
kvikmyndir. Þátttakendur: Hallgrímur
Helgason, Einar Már Guðmundsson,
Monika Fagerholm og Linn Ullmann.
Stjómandi: Sveinbjörn I. Baldvinsson.
Tungumál: Norðurlandamál.
Iðnó, kl. 20.30: Bókmenntakvöld -
upplestur: Jógvan Isaksen, Nora
Ikstena, Ivan Klima, Sjón og Pétur
Gunnarsson.
13. september - miðvikudagur
Iðnó, kl. 20.30: Bókmenntakvöld -
upplestur: Kerstin Ekman, André
Brink, A.S. Byatt, Margrét Lóa Jóns-
dóttir og Einar Kárason.
14. september - fimmtudagur
Norræna húsið, kl. 12.00: Hádegis-
spjall. Silja Aðalsteinsdóttir ræðir við
A.S. Byatt um höfundarverk hennar.
Norræna húsið, kl. 15.00: Pall-
borðsumræður. Efni: Arfurinn og Net-
ið - músin sem læðist: Framtíð evr-
ópskra bókmennta. Þátttakendur:
Nora Ikstena, Ib Michael og Andri
Snær Magnason sem stjómar umræð-
um.
Iðnó, kl. 20.30: Bókmenntakvöld -
upplestur: Monika Fagerholm, Edward
Bunker, Slawomir Mrozek, Bragi
Ólafsson og Guðrún Eva Mínervudótt-
ir.
15. september - föstudagur
Norræna húsið, kl. 10.00: Dagskrá út-
gefenda í samvinnu við Félag íslenskra
bókaútgefenda. Efni: Kynning á ís-
lenskum nútímabókmenntum.
Norræna húsið kl. 12.00: Hádegis-
spjall. Óttar Proppé ræðir við Edward
Bunker.
Norræna húsið, kl. 15.00: Pall-
borðsumræður. Efni: Kúlt eða klassik?
Ungir evrópskir höfundar ræða verk
sín. Þátttakendur: Ingo Schulze, Er-
lend Loe og Huldar Breiðfjörð. Stjórn-
andi: Ulfhildur Dagsdóttir.
Norræna húsið, kl. 20.30: Bókmennta-
kvöld - upplestur: Tahar Ben Jelloun,
Ib Michael, Magnus Mills, Einar Bragi
og Þórarinn Eldjárn.
16. september - Iaugardagur
Norræna húsið, kl. 12.00: Hádegis-
spjall. Efni: Bókmenntir og samfélag f
Afríku. Þátttakendur: Tahar Ben Jell-
oun og André Brink .Stjórnandi: Torfi
H. Tulinius.
Norræna húsið, kl. 15.00: Jógvan Isak-
sen heldur fyrirlestur um William
Heinesen. I anddyri Norræna hússins
er einnig sýning á myndum Edward
Fugl' við smásögu Heinesens Vængjað
myrkur. Tungumál: Danska.
Ath.: Erlendu rithöfundamir lesa upp
á eigin tungumáli. Þýðing á íslensku
verður sýnd samtímis á tjaldi.
Ath.: Ef annað er ekki tekið fram fer
dagskráin fram á ensku.
Ath.: Aðgangur er ókeypis á öll dag-
skráratriði.
TÓNLIST
Tónleikar á cafe9.net
Næstkomandi laugardagskvöld, kl.
21:00, verða haldnir tónleikar í boði
Islandssíma í Listasafni Reykjavíkur -
Hafnarhúsi. Tónleikamir eru haldnir í
tengslum við sýninguna www.cafe9.net
sem hefur það að markmiði að auka og
bæta samskipti fólks í menningarborg-
unum með hjálp nýjustu tækni tölvu-
iðnaðarins. Hljómsveitirnar sem fram
koma eru Ampop, Plastic og Gus Gus
en margmiðlunarverk Halla Kalla verð-
ur varpað á fimmtfu fermetra sýningar-
tjald í bakgrunni. Ef veður leyfir verð-
ur opnað út í port. Aðgangseyrir
kr.1000.
Túpílakar og Ljótu hálfvitarnir
Hljómsveitin Túpílakar heldur tvenna
tónleika sunnan heiða um helgina.
Föstudagskvöldið verða þeir á IIM-
Kaffi á Selfossi og hefja leik kl. I 1:30.
Laugardaginn 9. september halda þeir
svo sína sfðustu tónleika á árinu í
Kaffileikhúsinu og heljast þeir kl. 21.
Þar munu Ljótu hálfvitarnir verma
áhorfendur áður en Túpílakar stíga á
svið. Túpílakar eru þeir Sigurður III-
ugason og Oddur Bjarni Þorkelsson og
munu þeir ásamt aðsloðarfólki flytja
lög af nýútkomnum geisladisk sínum,
Grínlögin illu.
Ball á Gauknum
Laugardaginn 9. september verður
rokk-diskó blanda með hinni stórgóðu
hljómsveit Dead Sea Apple, tími til
kominn að fara á alvöru ball með
þeim. Þriðjudaginn 12. september
verða kynningartónleikar með einni
efnilegustu hljómsveit landsins ÚLPU,
(sérlega viðeigandi þegar haustar).
SYNINGAR
Dóttir skáldsins
f 1 kvöld verður fyrsta verk á leiklist-
arhátíð Bandalags atvinnuleikhópa
Dóttir skáldsins eftir Svein Einarsson
frumsýnt í Tjarnarbíói kl. 20.30. Verk-
ið er sett upp af The Icelandic Take
Away Theatre. Leikritið, eða sjónleik-
urinn eins og höfundurinn kýs að kalla
það, er byggt að hluta á frásögnum úr
Egils sögu og Laxdælu. Leikstjóri er
Björn Gunnlaugsson. Önnur sýning er
sunnudaginn 10. sept.
t I d;
cafe9.net
í dag býður kaffihúsið til verkefnisins
Freon update kl. 12-14, Helsinki For-
um - umræður frá Helskinki kl. 14-
16, Eurovision 2000 frá Prag Id.
16:30-18:00 ogArs Electronica útvarp
og sjónvarp frá Bologna kl. 19:30 -
21:30. www.cafe9.net
Spegilmyndir Rósu Matt
Föstudaginn 8. september 2000 kl.
20:30 opnar Rósa Matthíasdóttir sýn-
ingu sína -Spegilmyndir - í Skúlatúni 4
Reykjavík. Sýningin verður opin kl.
14-18 laugardag og sunnudag og er að-
gangur ókeypis. Rósa hefur lagt sig
fram við að láta eigin tilfinningu ráða
við gerð speglanna og lofað litadýrð-
inni að ráða ásamt eigin ímyndunarafli
við mótun efnisins. Öll verkin á sýn-
ingunni eru til sölu.
OG SVO HITT...
Listmunauppboð í Súlnasal
Listumundauppboð fer fram sunnu-
dagskvöldið 10. septemher kl. 20.00 í
Súlnasal Hótel Sögu. Boðin verða upp
verk af ýmsum toga, þar á meðal fjöldi
verka gömlu meistaranna. Uppboðs-
verkin eru til sýnis í Gallerí Fold við
Rauðarárstíg í dag milli kl. 10 og 18, á
laugardag milli kl. 10 og 17 og á
sunnudag milli kl. 12 og 17.
Sókrates 2000 - 2006
Menntamálaráðuneytið og Alþjóða-
skrifstofa háskólastigsins-Landsskrif-
stofa Sókratesar á fslandi bjóða til