Dagur - 30.09.2000, Page 1
Tillögumar eru
skref til sátta
Niðuxstaða auðlinda-
nefndar. Stóratburð-
ur. Anægja. Hafna
uppboði. Séreigna-
skipan.
Almenn ánægja virðist vera í að-
alatriðum með niðurstöður og
tillögur auðlindanefndar sem
skilaði skýrslu sinni til forsætis-
ráðherra í gær. I niðurstöðum
hennar kemur m.a. fram að sam-
eiginlegar auðlindir þjóðarinnar
verði skilgreindar í stjórnarskrá
sem þjóðareign og að þær megi
hvorki selja né afhenda varan-
lega. Þá leggur nefndin til að
þeir sem nýta auðlindir í þjóðar-
eign greiði gjald fyrir það og m.a.
í sjávarútvegi.
Stóratburður
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að með starfi nefndarinnar
sé stigið ákveðið skref til sátta í
málum þar
sem lang-
vinnar deil-
ur hafa átt
sér stað
meðal þjóð-
arinnar.
Hann segir
einnig að
þarna sé á
ferðinni
stóratburð-
ur í íslenskri
samtíma-
sögu. Sjálfur
segist hann
þó hafa
skrifað
skýrsluna öðruvísi ef hann hefði
átt kost á því. I því sambandi
áréttar hann þá skoðun sína að
hann telji enga nauðsyn á veiði-
leyfa- eða auðlindagjaldi í sjávar-
útvegi. Hins vegar hefðu stjórn-
arflokkarnir ákveðið að slá til
með tillögu stjórnarandstöðunn-
ar á sínum tíma með því að setja
á fót auðlindanefndina.
Ánægja
Halldór Ás-
grímsson ut-
anríkisráð-
herra er
einnig
ánægður
með tillögur
nefndarinn-
ar í aðal-
atriðum og
sömuleiðis
Árni M.
Mathiesen
sjávarútvegs-
ráðherra sem
telur þær
vera góðan
grunn til að vinna með. Þing-
flokkur Samfylkingar fagnar nið-
urstöðu auðlindanefndar og
skorar á stjórnvöld að hefja þeg-
ar undirbúning breytinga á
stjórnarskránni.
Hafnar uppboði
Athygli vekur að stjórn LÍÚ telur
að ekki beri að innheimta auð-
lindagjald vegna nýtingar fiski-
stofna við Island. Stjórnin er
hinsvegar reiðubúin til viðræðna
við stjórnvöld um greiðslu hóf-
legs auðlindagjalds svo það megi
verða til þess að ná víðtækri sátt
um stjórn fiskveiða. LÍÚ vill
ennfremur að auðlindagjald
standi undir skilgreindum kostn-
aði auk þess sem hafnað er alfar-
ið uppboði ríkisins á aflahlut-
deildum eða aflamarki.
Séreignaskipan
Steingrímur J. Sigfússon formað-
ur Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs segist að mörgu
leyti vera ánægður með skýrslu
auðlindanefndar, þótt þar sé
einnig að finna ýmislegt sem
skoða þurfi betur. Hann vekur
m.a. athygli á því að nefndin tel-
ur að það eigi að fella umhverfis-
gæði undir séreignaskipan. Hann
undrast að sumir þingmenn í
nefndinni skuli hafa skrifað und-
ir þetta án fyrirvara. - GRH
Sjá bls 29, 32 og 33
Jóhannes Nordal afhendir Davíð Oddssyni
tillögur auðlindanefndar í
Ráðherrabústaðnum í gær.
Lítiltrúá
Ingu Jónu
Einungis lit-
ill minni-
hluti þeirra
þúsunda
sem greiddu
atkvæði um
spurningu Dags á Netinu telja að
Inga Jóna Þórðardóttir eigi að
fara með forystuna á lista Sjálf-
stæðisflokksins í næstu kosning-
um.
Spurning Dags hljóðaði svo: Á
Inga Jóna að leiða D-Iistann í
næstu borgarstjórnarkosningum?
Mikill áhugi var á málinu því ríf-
lega íjögur þúsund greiddu at-
kvæði. MikiII meirihluti, eða 72
prósent, svöruðu spurningunni
neitandi, en 28 prósent vildu að
Inga Jóna yrði leiðtogi Iistans.
Nú er hægt að greiða atkvæði
um nýja spurningu Dags á Net-
inu. Hún hljóðar svo: Eru tillög-
ur Auðlindanefndar líklegar til að
sætta þjóðina?
Slóðin er sem fyrr: visir.is
vísir.is
Meðlimir í Félagi eldri borgara í Reykjavík gengu um miðbæ Reykjavíkur síðdegis í gær með kröfuspjöld og foringj-
ar samtakanna lögðu almennum félögum sínum síðan lið við að ræða við almenning um kjör eldri borgara. Eldri
borgarar og öryrkjar hafa boðað til fundar á Austurvelli á mánudag í tengslum við setningu Alþingis. mynd: hþg
Helstu máttarstólpar íslensku Úp-
erunnar: Ingjaldur Hannibalsson,
Kristinn Sigmundsson formaður
nýskipaðs listráðs ÍÚ, Bjarni Daní-
elsson óperustjóri, Jón Ásbergsson
stjórnarformaður ÍÚ, Guðrún
Ragnarsdóttir og Snorri Welding.
Óperan að
atvumuhúsi
„Brotið verður blað í atvinnu-
sögu sönglistar á Islandi þegar
ój>erusöngvarar verða ráðnir að
Operunni á næsta ári. Það mun
verða í fyrsta sinn á íslandi sem
söngvari verður ráðinn í fullt
starf við að sinna list sinni,“
sagði Bjarni Dam'elsson óperu-
stjóri, sem í gær kynnti frétta-
mönnum tímamót hjá lslensku
Óperunni. Menntamálaráðherra
hefði nú Iýst yfir stuðningi við
áform stjórnar Óperunnar um
markvissa uppbyggingu á sam-
felldri, íjölbreyttri og metnaðar-
fullri starfsemi á næstu árum,
líka áform hennar um fastráðn-
ingar óperusöngvara haustið
2001. Samningar stæðu yfir við
menntamálaráðuneytið um starf-
semina næstu þrjú árin. „Takist
samningar á þessum nótum mun
það marka tímamót í sögu ís-
Iensku óperunnar," sagði Bjarni.
VjLnafélag í stað Styrktar-
félags
1 þeim tilgangi að endurskil-
greina hlutverk og skýra ábyrgð-
arskiptingu þeirra sem standa að
rekstri Öperunar sagði hann
stjórnskipun hennar nú hafa ver-
ið breytt. Styrktarfélag Óper-
unnar hafi verið lagt niður, en
þess í stað stofnað Vinafélag
áhugamanna um óperulist og
hins vegar fulltrúaráð IÓ, sem
verði óformlegur félagsskapur
fyrirtækja og einstaklinga sem
taki þátt í rekstrinum, sem síðan
standa saman að fimm manna
stjórn. Og ný stjórn stefni að því
að byggja Óperuna upp sem at-
vinnuóperuhús mcð samfellda
starfsemi. Fyrst í stað sé stefnt
að því að ráða 5 til 10 unga
söngvara tímabundið í eitt til tvö
ár, með von urn að eiga þá síðan
að í eitt og eitt hlutverk þegar
þeir eru orðnir heimsfrægir, eins
og margir verða.
Vilja fljrtja
innljrfja-
fræðmga
bls. 28
Sýkaaður af mairn-
drápsákæru í
Bláhvammsmáli
bls. 26
Nýrbankií
Lúxemborg
bls. 26