Dagur - 30.09.2000, Blaðsíða 9

Dagur - 30.09.2000, Blaðsíða 9
 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMRER 2 000 - 33 óðareign að ljúka þessu verki sem hérna sé gjörlega óraunhæfu hugmyndum íðherra kynntu niðurstöðu sína. Jóhannes Nordal afhendir Davíð Oddssyni skýrsluna. fram hjá stjórnarmönnum þess að þeir séu sammála því afdráttarlausa áliti nefndarinnar að byggja eigi stjórn fiskveiða á aflamarkskerfinu, frjálsu framsali og að gildistími út- hlutunar aflaheimilda eigi að vera sem lengstur. 1 viðræðum sínum við stjórnvöld vilja þeir að þess verði gætt að hóflegt auðlindagjald standi undir skilgreindum kostnaði við eftirlit og rannsóknir á auðlind- inni en ekki að slíkt gjald verði lát- ið renna í einhvern sjóð. Gjaldið verði tckið af óskiptu aflaverðmæti og að greiðslur um auðlindagjald gildi til langs tíma, enda óviðunandi að þeirra mati að sjávarútvegurinn búi við þá óvissu sem verið hefur. Þá verði upphæð auðlindagjaldsins ákveðin með hliðsjón af afkomu greinarinnar og að aflaheimildir verði skilgreindar sem óbein eignar- réttindi, framseljanlegar og veðhæf- ar. Tekið verði mið af starfsskilyrð- um sjávarútvegs í samkeppnislönd- um en útvegsmenn fullyrða að samkeppnisaðilar þeirra séu ekki látnir greiða auðlindagjald. Þá verði • v ** -■m*- Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri hreyfingarinnar segir að fljótt á litið geti skýrslan verið ágætur grundvöllur fyrir áframhaldandi vinnu og tillögugerð í þessum efnum. Svanfríður Jónasdóttir segir að menn hljóti fyrst og síðast að horfa til þess mikilvæga áfanga sem Hggur fyrir í tillögum nefndarinnar. komið í veg fyrir að auðlindagjald verði notað til mismununar innan greinarinnar og að mismunun í út- hlutum aflaheimilda á milli aðila og byggðarlaga verði aflögð. Stjórnin hafnar alfarið uppboði ríkisins á aflahlutdeildum eða aflamarki og fagnar því að skýrsluhöfundar telji að afkoma greinarinnar um þessar mundir bjóði ekki uppá frekari álögur á greinina. Ágætur gruimur Arni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra segir að svona fljótt á litið sé niðurstaða nefndarinnar ágætur grunnur með tilliti til auðlindanýt- ingar almennt og sömuleiðis til að ná víðtækri sátt fiskveiðistjórnunar- kerfið. Hann bendir einnig á að skýrslan verði til meðferðar hjá þeirri nefnd sem vinnur að endur- skoðun á fiskveiðistjórnuninni. Ráðherra scgir að flest af þessu sem fram kemur í skýrslunni séu hlutir sem menn hafa verið að ræða. Það sé þó ástæðulaust að kalla það ein- hverjar klisjur, enda voru menn kannski ekki að biðja nefndina að finna upp hjólið. Ráðherra segir að þótt það sé heilmikil vinna eftir þá á að vera mögulegt á þessum grun- ni að finna leið sem víðtæk sátt verður um. Engu að síður telur ráð- herrann að fiskveiðistjórnunin verði alltaf umdeild í sjálfu sér þar sem menn munu takast á um sjáv- arútvegsmál, þótt mönnum takist til umfjöllunar. Af einstökum atrið- um telur hann að það verði að skoða stjórnarskrárþáttinn í víðara samhengi en ekki einungis í sam- bandi við fiskveiðistjórnunina. Hann segist þó ekki sjá neitt svona fljótt á lítið í skýrslunni sem getur hindrað menn í því að halda þessari vinnu áfram. Ef hann hefði haft möguleika til að skrifa skýrsluna sjálfur, þá hefði efni hennar ekki verið neitt langt frá því að geta fall- ið inn í þann ramma sem skýrslan nefndarinnar fjallar um. Mitóö óunnið Jóhannes Nordal formaður auð- lindanefndarinnar segir að nefnd- armenn hefðu farið af stað í sinni vinnu með það að leiðarljósi að reyna ná saman um þetta verkefni og að því hefði verið unnið. Enda hefði það verið einn aðaltilgangur- inn með stofnun nefndarinnar. Það hefði reyndar komið strax fram að það hefði verið von til þess þótt það mundi taka einhvern tíma og mikla vinnu því verkefnið hefði verið flók- ið. Jóhannes sagði að þrátt fyrir að nefndin sé búin að skila af sér, þá sé mikið starf enn óunnið þar til út- færðar tillögur liggja fyrir um sjáv- arútvegsstefnuna og raunar al- mennt um auðlindamálin. Jóhann- es bendir einnig á að framsalið sé mjög mikilvægur þáttur í hag- kvæmni allahlutdeildarkcrfisins. Ánægja Einn þriggja fulltrúa Samfylkingar í auðlindanefndinni var Svanfríður Jónasdóttir alþingismaður. Hún segir að menn hljóti lýrst og síðast að horfa til þess mikilvæga áfanga sem liggur fyrir í tillögum nefndar- innar. I því sambandi bendir hún m.a. á að nefndin sé sammála um að leggja það til að í stjórnarskrána verði tekið ákvæði um sameiginleg- ar auðlindir þjóðarinnar verði þjóð- areign. Þær megi hvorki selja né láta varanlega af hendi. Jafnframt kemur það fram f niðurstöðu nefndarinnar að einstaklingar og lögaðilar geti fengið afnot af þjóðar- eignum gegn gjaldi. Sá afnotaréttur sé annað hvort tímabundin eða með upptökuafslætti. Svanfríður segist vera mjög ánægð með þessi aðalatriði í niðurstöðum nefndar- innar, enda standa fulltrúar Sam- fylkingarinnar að þeim án fyrirvara. Það þýðir þó ekki að þeir hefðu skrifað skýrsluna eins ef þeir hefðu alfarið ráðið niðurstöðunum. Hún jafnframt vera bjartsýn á að þessi atriði nái fram að ganga í þinginu og þá sérstaklega í Ijósi þcirra við- bragða sem niðurstöður nefndar- innar hafa fengið hjá forsætisráð- herra. Mörgu ósvarað Enginn fulltrúi Vinstri hreyfingar- innar - græns framboðs var í auð- lindanefndinni, enda var flokkur- inn ekki til þegar skipað var í nefnd- ina. Steingrímur J. Sigfússon for- maður Vinstri hreyfingarinnar segir að fljótt á Iitið geti skýrslan verið ágætur grundvöllur fyrir áfram- haldandi vinnu og tillögugerð í þessum efnum. Hún sé hins vegar engin endanleg og útfærð niður- staða. Hann bendir á að þama sé reynt að taka samræmt á málunum og m.a. hugmyndir um hófsama gjaldtöku í sjávarútvegi. Hann telur það vera mikla framför frá þeim al- sem hljóðuðu uppá einhverja tugi milljarða í skattheimtu. Engu að síður sé mörgum spurningum ósvarað sem vakna við lestur skýrsl- unnar. Scm dæmi finnst honum nefndin gefa sér óþarflega mikið sem niðurstöðu að fiskveiðistjórn- arkerfið verði meira og minna óbreytt. 1 þeim efnum segist hann hafa mikla fyTÍrvara, enda sé þar þörf á grundvallarbreytingum eins og hann hefur oft bent á. Þá sé spuming hvernig eigi að ráðstafa því gjaldi sem ætlunin sé að iáta auðlindirnar greiða. Steingrímur telur ástæðu til að menn velti því íyrir sér hvort hægt sé að ná sam- stöðu um að þetta gjald geti orðið að einhverju leyti tekjustofn byggð- arlaganna eða Iandshlutanna en ekki aðeins tekjustofn fyTÍr ríkis- sjóð. Þá segist hann ekki vera sam- mála ýmsum hlutum sem koma fram í skýrslunni. Meðal annars vekur það athygli hans að svo virð- ist sem nefndin telji það neikvætt að þorri umhverfisgæða sé opin öll- um almenningi. Hann segist ekki sjá annað en að nefndin gefi sér það sem markmið að það eigi að færa umhverfisgæði undir sér- eignaskipan. Því sé hann algjörlega ósammála nefndinni, enda sé þarna á ferðinni háskaleg nálgun að hans mati. Það kemur honum líka á óvart að sumir ónafngreindir nefndarmenn, eins og hann orðar það skuli skrifa undir svona Iagað án fyrirvara. Víðtæk samstaða Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morg- unblaðsins og einn nefndarmanna segist vera mjög ánægður með nið- urstöður nefndarinnar. Hann segist jafnframt hafa trú á því að þær inuni leiöa til þess að menn nái sáttum í þessum málum. Það sé m.a. vegna þess að það sé mjög víð- tæk samstaða um málið í nefndinni þar sem nefndarfulltrúar koma úr mjög ólíkum áttum með ólík sjónar- mið. Styrmir segir að það hafi verið mikilvægt að það hefði náðst sam- staða um ákveðin grundvallaratriði og því sé ástæða til að ætla að það takist að ná endanlegri niðurstöðu í þessu máli á næstu misserum. Hann vonast jafnframt eftir því að ríkisstjórn og alþingi nái saman um málið í aðalatriðum. Með fyrirvara Ari Edwald framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Guðjón Hjörlcifsson bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum létu bóka fyrirvara með áliti nefndarinnar. Þar kemur fram að þeir geta aðeins stutt veiði- leyfagjald til innheimtu á gjaldi vegna nýtingu fiskistofnana en ekki fyrningarlcið. Þeir telja einnig að aðalhluti gjaldsins taki mið af svo- nefndu koslnaðargjaldi. Ari segist ekki telja að þörf sé almennri gjald- töku sem ekld sé stefnt að því að hafa áhrif á stjórn nýtingarinnar. Hinsvegar eiga hann og Guðjón að- ild að niðurstöðu nefndarinnar sem sé tilraun til sátta um þessi mikil- vægu mál. Ari segist því vera mjög ánægður með að það skuli hafa tek- ist sátt í nefndinni. Framhaldið ræðst aftur á móti af því hvort sá grundvöllur sem lagður hefur verið með niðurstöðu nefndarinnar skili sér með víðtækri sátt með þjóðinni svo friður verði um starfsumhverfi atvinnugreinarinnar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.