Dagur - 30.09.2000, Blaðsíða 4

Dagur - 30.09.2000, Blaðsíða 4
28- LAUGARDAGUR 3 0. SEPTEMBER 2 000 rDwptr L FRÉTTIR L. ^ I Vegna skorts á lyfjafræð- ingum vilja apótek flytja inn slíka erlendis frá, þar sem þeir liggja heldur ekki á lausu því skorturinn er alþjóð- legur. Lyfjadreifingarfyrirtæki hafa beðið Samtök verslnnar og þjónustu að kanna hvort hægt >'aeri að fá lyfjafræð- inga til landsins þar sem nokkur skort- ur sé á þeim. I Fréttapósti SVÞ segir jafnframt: „I ljós hefur komið að skort- ur er á lyfjafræðingum í mörgum lönd- um Evrópu og því ekki auðvelt að fá slíkt fólk hingað." Þannig séu Bretar nú t.d. að leita uppi lyfjafræðinga í Suður- Afríku og Indlandi til að fá þá til að flytja til Englands. Sólveig Guð- mundsdóttir lögfræðingur í heilbrigð- isráðuneytinu segist hafa fengið munnlega fyrirspurn um það hvernig staðið skuli að ráðningum erlendis frá. En engin umsókn hafi borist um starfsleyfi. Slegist mn hvem lausann En af hverju er skortur? „Þörfin virð- ist vera að aukast, allavega eins og staðan er nú. Auk þess sem apótekum hefur fjölgað og hvert apótek þarf að hafa a.m.k. 2 Iyfjafræðinga í vinnu þá blómstrar nú lyfjaiðnaður hér á landi og tekur til sín fleira og fleira fólk,“ svaraði Ingunn Björnsdóttir fram- kvæmdastjóri Lyfjafræðingafélags ís- lands. Og hreyfingin virðist fremur hafa verið úr apótekunum og yfir í lyfjafyrirtækin en hina leiðina. Félags- menn segir Ingunn um 320 og tæplega 300 þeirra séu virkir á vinnumarkaði. Skort á lyfjafræðingum segir Ingunn raunar alþjóðlegt vandamál. A ráð- stefnu Alþjóðasamtaka lyfjafræðinga nýlega hafí komið fram að það vanti alls staðar lyfjafræðinga. Hvað marga vanti hér á landi segir Ingunn að sér sé ókunnugt um. En staðan sé þannig að ef fréttist af lyfjafræðingi sem hugs- anlega væri að losna þá sé slegist um hann. Vaníar fleiri - en færri læra Hlýtur þeim sem læra lyfjafræði þá ekki að fjölga? „Nei. A 5. ári í Iyíja- fræði eru nú 18 manns, sem ég raunar held að séu eftir úr árgangi scm taldi um 50 manns í byrjun. I kjölfar hans hafi verið settur klásus, þannig að 12 nianns komist í gegnum jólapróf. Á þetta reynir þó ekki því aðeins 11 eru nú á fyrsta ári í lyfjafræði", segir Ing- unn. Að nemendum fækki geti átt sér ýmsar skýringar. Áður hafi vonin um að verða síðar meir sjálfstæður at- vinnurekandi kannski verið ein ástæða þess að menn völdu lyljafræði, en nú hafí dregið mjög úr þeim möguleika og eitthvert annað nám kannski orðið heppilegra í þeim tilgangi. Apótekum fjölgað um þriðjung Eftir „frelsun" apótekanna hefur þeim fjölgað um þriðjung - úr 43 áður í um 58 nú, sem flest tilheyra 4 keðjum. Til að vinna hér í apótekum þurftu lyfja- fræðingar lengi vel að hafa próf í ís- lenskum lyíjalögum, sem þeir náðu varla án þess að vera þokkalega vel að sér í íslensku. Þetta breyttist með EES- samningnum. Eftir sem áður telur Ing- unn það fremur óskynsanlegt að ein- hver vinni í apóteki sem þekkir ekki þau lög sem hann á að vinna eftir. - HEI FRÉTTA VIÐTALIÐ I heita pottinum er alltaf verið að ræöa um þá upp- stokkun sem óhjákvæmi- lega mun fylgja breyttri kjördæmaskipan. Nýjustu tíðindin af þeim vígstöðvum lúta að lista sjálfstæðismanna í hinu verðandi Norðausturkjördæmi, en þar er sagt að mikil uppstokk- un sé í vændum. Sumir pottveijar hafa þannig heyrt að svo gæti far- ið að báðir þingmenn llokksins í Norðurlandskjördæmi eystra séu á förum, Hall- dór Blöndal muni draga sig í hlé en flugufréttir eru um að Tómasi Inga standi til boða að fara til einhverra spennandi starfa í Evrópu. Gangi þetta eftir eru ljóst að mikill slagur yrði um þeirra sæti... Hallór Blöndal. Og framhald sögumiar er líka sagt í pottinum. Þvi haldið þar fram að Hjálmar Jónsson, sem verið hefur þingmaður Norður- lands vestra, liafi hug á að flytja sigyfirkjördæmamörkin ogbjóða sig fram í Norðausturkjördæm- inu, en ekki í Vesturkjördæminu eins og hingað til hefur verið talið nokkuð vist að haim gerði. Ýmislegt mælir raunar með því að Hjálmar geri það, m.a. að hann er frá Akureyri og uppalimi í Öngulstaðahreppi og væri þannig að koma heim. Fyrir á fleti í Vesturkjördæmi eru líka margir þungavigtarmenn, og það yrði vel séð af mörgum að fá hinn litríka Hjálmar austur yfir - ekki síst ef hagyrðingurinn Halldór Blöndal hættir... Og til að loka þessari trílógíu um norðlenska sjálfstæðismenn í heita potti dagsins er rétt að greina frá því að heyst hefur að ýmsir flokks- menn á Norðurlandi eystra hafi hug á að fá Krist- ján Þór Júlíusson á lista í þingkosningum. Krist- ján er ekki sagður afhuga þessu sjálfur, en aðrir hafa efasemdir og benda á að það geti verið tví- bent fyrir bæjarstjóra á Akureyri að fara beint í landsmálin og Bjömssonar í þi V_______________ benda á slæmt gengi Jakobs í samhengi... Hjálmar Jónsson. Tómas Ingi Olrích alþingismaðurog formaður utanríkismálanefndar alþingis Danirhöjhuðu aðild að evrópska myntbandalaginu í þjóðarafkvæðagreiðslu. Nið- urstaðan eráfall Jyrirfram- kvæmdastjóm Evrópusam- bandsins. Beinir athyglinni að vandamáliuii ESB - Hvaða áhrif hefur höfnun Dana á evrunni hérlendis? „Eg tel fullvíst að þessi atkvæðagreiðsla og niðurstaða hennar hafí áhrif á umræð- una hér á landi. Hún mun beina athyglinni að raunverulegum vandamálum sem hefur lengi hefur verið glímt við innan Evrópu- sambandsins, en ekki tekist að leysa, s.s. lít- ill almennur stuðningur við sambandið í heild og halli á svokölluðum lýðræðismálum innan sambandsins. „Lýðræðislegum halla- rekstri" innan stofnana sambandsins og öðr- um fleiri grundvallarvandamálum sem hef- ur lítið verið tekið á í Evrópusambandinu og umræðan Jrví miður verið mjög lítil hér heima á Islandi. Umræðan hefur verið klisjukennd; þrástagast hefur verið á því að taka málið á dagskrá þó það hafí verið til ít- arlegrar umræðu hér lengi. Nú hefur önn- ur ldisjukennd umræða farið í gang um það að EES-samningurinn sé að veikjast. Hvor- ugt atriðið er uppfræðandi og tilraunir til þess að færa ESB-umræðuna inn á mál- efnalegri grundvöll, sem ég hef meðal ann- ars beitt mér fyrir í þinginu, hefur ekki bor- ið árangur. Ég held því að þetta muni færa umræðuna hér heima nær þeim raunveru- legu vandamálum sem ESB glímir við sem ríkjasamband." - Hver eru þessi raunverulegu vanda- niál í hnotskurn? „Valdahlutföll innan Evrópusambandsins eru mjög sérstök og löggjafarvaldið er í höndum framkvæmdavaldsins, öfugt við gru dvallareglur lýðræðisins eins og Jiær eru skilgreindar í Evrópuráðinu. Evrópu- þingið hefur ekki vald til þess að fullgilda lagafrumvörp þó að það hafi vald til að brey- ta þeim. Þjóðþingin fullgilda lagafrumvörp- in en hafa ekki vald til þess að breyta þeim. Þessi uppbygging sambandsins hefur valdið talsverðum erfiðleikum. Ráðherraráðið hefur legið undir Jrungri gagnrýni um lélegan undirhúning ákvarð- ana, hrossakaup og forystuleysi. Það er mjög réttmæt gagnrýni og þeir líta sjálíir á þetta sem eitt helsta vandamál ráðsins. Oll þessi mál valda því að almennur stuðningur við Evrópusambandið í fjölmörgum aðildar- ríkjum er afar lítill, svo lítill að það verður að skoða það sem sérstakt vandamál Iýðræð- isins í Evrópu.“ - Hver verður afstaða Breta og Svía til myntbandalagsins í Ijósi niðurstöðu þjóð- aratkvæðagreiðslunnar i Dantnörkti? „Eg held að stjórnvöld í báðum þessum löndum, sem hafa áhuga á því að nálgast Eurosvæðið, muni nú hugsa sig tvisvar urn áður en ])au hætta á að leggja það undir dóm Jrjóðanna í löndunum." - gg

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.