Dagur - 10.10.2000, Blaðsíða 4

Dagur - 10.10.2000, Blaðsíða 4
4 - ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 FRÉTTIR Fólksflutningar suður eru miklir af Austurlandi og raunar víðast hvar af landinu. Akureyri heidur þó sínu og gott betur en þar hefur fjölgað um tæplega 100 manns. (myndin er sviðsettj. „Mjög nriMd áhyggjue£ni“ íbúum Fjarðabyggðar fækkar iiui 3,5% á níu mánuðum. Höfuðborgar- svæðið og nágrannasveit- arfélög halda áfram að tútna út. „Þetta er mjög mikið áhyggjuefni fyrir okkur,“ segir Gunnar Jónsson, formað- ur stjórnsýslusviðs Fjarðabyggðar, um mikla fólksfækkun Austlendinga. A fyrstu níu mánuðum ársins fækkaði fólki mest á Austurlandi eða um 254 samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Þar af nemur fækkunin í Fjarðabyggð 112 manns af 3190 íbúum alls 1. desember sl. og nemur fækkunin í prósentum 3,5. Gunnar segir að eina svarið sem hægt sé að koma auga á í fljótu bragði sé bygging stóriðju á Austurlandi. „Það er alveg Ijóst að álverið er sú lausn sem menn horfa á, önnur úræði eru vand- fundin. Það vantar hér ákveðna kjöl- festu í atvinnulífið," segir Gunnar. Af einstökum sveitarfélögum fluttust flestir til Kópavogs (499) og Reykjavík- ur (468) en flestir frá Fjarðabyggð sem fyrr segir, lsafjarðarbæ (89) og Vest- mannaeyjum (81). Heilt yfir er mikið rót á búsetu landsmanna. 42.364 breytingar voru skráðar á lögheimilium einstaklinga í þjóðskrá fyrstu níu mán- uði ársins. Þar af fluttu 22.126 innan sama sveitarfélags, 14.072 milli sveit- arfélaga, 3.644 til landsins og 2.522 frá því. A sama tímabili fluttust 1.122 fleiri einstaldingar til Iandsins en frá því. Þar af voru aðfluttir Islendingar 40 fleiri en brottfluttir og aðfluttir er- lendir ríkisborgarar 1.082 fleiri en brottfluttir. A sama tíma árið 1999 var heildarfjöldi aðfluttra umfram brott- flutta 1.048. Til höfuðborgarsvæðisins fluttu 1.382 umfram brottflutta. Af þeim fluttu 669 af landsbyggðinni og 713 frá útlöndum. I öðrum landshlutum nema á Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi voru brottfluttir fleiri en aðfluttir. Akureyrl heldur velli Stærsta sveitarfélag landsbyggðarinn- ar, Akureyri, heldur velli og vel það, því þar varð fjölgun sem nam 97 á fyrstu níu mánuðunum. Norðurland eystra í heild sinni tapar hins vegar jafnmörg- um og fjölgaði á Akureyri eða 97. Byggðir Eyjafjarðar aðrar en Akureyri virðast eiga nokkuð í vök að verjast sbr. 35 íbúa fækkun í Ólafsfirði, 27 íbúa fækkun í Hríseyjarhreppi og 15 færri í Dalvíkurbyggð. Athygli vekur að fólksfjölgun verður alls staðar í grennd við höfuðborgar- svæðið ef undan er skilið Seltjarnar- nes. Þar fækkaði íbúum um sex. - BÞ FRÉTTA VIÐTALID Davíð Oddsson. Ikarus strætisvagnar eru nú aftur komnir í umræð- una á íslandi eftir nokkuð langt hlé. Vinstri meiri- hlutinn í borgarstjóm Reykajvíkur á ánmum frá 1978 -82 vildi kaupa Ikarusvagna á sínum tíma, en það féll í afar grýttan jarðveg hjá sjálfstæðis- mönnum á þeim tíma sem fundu þessum kaupum allt til foráttu. Leiðtogi sjálfstæðismanna á þessum tíma í Reykajvík var eng- iim annar en Davið Oddsson og gerði hann óspart grín að Ikarusvögnunum og það mun hafa verið hann sem kom með kenning- una að það vantaði tvö „L“ í nafnið á þessum austantjalds strætisvögnum. Annað L-ið átti samkvæmt kenningu Davíðs að koma framan við nafnið og hitt átti að koma aftanvið það. Fyrst þegar búið væri að bæta L-unum við hæru vagnamir nafn með rentu eða „Líkarusl“!! í pott- inum velta memi því nú fyrir sér hvort Davíð liafi ekki rifjað upp þessa kenningu sína með flokksbræðrum sínum á Akureyri þegar hann var þar um helgina, en það eru einmitt sjálfstæð- ismesnn sem nú hafa ákveðið að kaupa Ik- arusvagna handa Akureyringum.... í pottinn hefur frést frá heimildum tengdum ut- anríkisþjónustunni að Jón Baldvin Hannibals- son sendiherra íslands í Washmgton sé farinn að hugsa sér til hreyfings. Það mun þó ekki vera til þess að vera samferða Clinton úr borginni, held- ur vegna þess að sendi- herrar flytjast úr stað eft- ir vissan tíma. Áformað mun vera að Jón Bald- vin og Bryndís Schram kona lians fari til Kína að ári og gerist sendiherrar þar. Sá flutningur mun vera þeim sendiherrahjónum mjög að skapi, enda hefur Bryndís t.d. margsinnis talað lofsam- lega um þetta foma mcnningarríki á opinherum Jón Baldvin Hannibalsson. Meiri tími með fjölskyldunni ÞórCurtis verkefnastjóri fjarverslunar Hagkaups Hagkaup opnar netverslun á matvöru. Hentar tímabundnum og þeim sem leiðastinnkaup - Hvaða nyjung er Hagkaup að bjóða uppá? „Við erum að byija með netverslun á mat- vöru nú í vikunni. Þetta verður fyrst og fremst fyrir höfuðborgarsvæðið til að byrja með, en í raun geta allir pantað ef þeir sækja pöntunina í Smáratorg. Svo ætlum við að vera með heimsendingarþjónustu, fyrst í stað á Kópavogssvæðinu en um leið og við getum munum við stækka það svæði um eitt póstnúmer í einu. Við ákváðum að byrja ekki á of stóru svæði í fyrstu svo við gætum örugglega staðið við öll loforð." - Er þetta í fyrsta sinn sem hægt er að panta matvöru t gegnum Netið? „Nei, Hagkaup var með matvörusölu á Netinu undir merkinu Netkaup, byrjaði 1995. Gekk í tæp tvö ár en viðskiptin voru ekki nógu mikil til þess að þetta stæði und- ir sér og því var þessu hætt, enda var net- notkun ekki nærri því eins mikil þá og hún er í dag. En nú ætlum við að prófa þetta aftur eftir að hafa undirbúið þetta mjög vel. Við höfum fengið ansi margar fyrirspurnir frá viðskiptavinum sem hafa verið að hiðja um þessa þjónustu.“ - Hverjir eru það helst sem hafa áhtiga á þessari þjónustu? „Það virðist vera fólk úr öllum hópum sem hefur áhuga á að nýta sér þetta. Eins og þjóðfélagið er að þróast verður sífellt minni tími til þess að slappa af og vera með fjölskyldunni og þá vill fólk auðvitað reyna að nýta vel þann tíma sem það hefur í stað þess að hanga í verslunum, jafnvel standa í biðröðum þar.“ - Verðið þið með margar vörutegundir? „Þetta eru í kringum fimm þúsund vörur, sem er í raun stærsti hlutinn af versluninni í Smáratorgi. Svo kemur vörunum til með að fjölga ört eins og gerist og gengur í versl- unum Hagkaups. Þetta byggir náttúrulega á póstverslun Hagkaups sem nú er búin að vera starfrækt í mörg ár og þess má líka geta að .lagkaup var upphaflega póstverslun á Miklatorgi þegar Pálmi Jónsson stofnaði fyrirtækið. Það má því að sumu leyti segja að við séum að hverfa aftur um mörg ár, nema að við erum að nota Netið í stað síma.“ - Er netverslun tneð matvöru framttðin? „Þetta er framtíðin fyrir marga. Það eru auðvitað margir sem hafa hreinlega gaman af að fara að versla út í búð og þeir munu ef- laust halda áfram að gera það en fyrir hina sem leiðist að fara í verslanir og vilja gera annað við tíma sinn þá er þetta mjög hent- ugt.“ - Hvaðan hafið þið fordæmi jýrir mat- vöruverslun á Netinu? „Við höfum horft mest til Bandaríkjanna og Bretlands, aðallega Bretlands. í Bret- landi eru tvö stór fyrirtæki á þessu sviði, TESCO og ASDA. ASDA hefur sett upp birgðamiðstöðvar þar sem pantanir eru af- greiddar og það kostar mikið og þarf að ná ákveðinni veltu til þess að það borgi sig. TESCO fer hins vegar aðra leið, þeir taka vörurnar til í búðunum hjá sér og það er það sem við ætlum að gera. Kostirnir við þessa aðferð er að það er hægt að byrja smátt og síðan er hægt að stækka hratt svo Iengi sem keðjan er með verslanir víða. Ef þetta geng- ur vel þá gerum við ráð fyrir að setja upp sambærilega aðstöðu í öðrum Hagkaups- verslunum og förum að afgreiða f póstnúm- er þar í kring.“ -KMH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.