Dagur - 04.11.2000, Side 2

Dagur - 04.11.2000, Side 2
2 - LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 HELGARPOTTURINN Sjö ungir íslenskir hönnuðir taka þátt í sýn- ingu á norrænni hönnun sem opnuð var í gær í Norræna húsinu í New York sem formlega var tekið í notkun í síðasta mánuði. Petta er fyrsti menningarviðburðurinn sem fram fer í húsinu og eru íslensku þátttakendurnir Ás- mundur Hrafn Sturluson, Bergþóra Guðnadóttir, Guðbjörg Kr. Ingvadóttir, Karólína Einarsdóttir, Linda Björg Árnadóttir, Sesselja H. Guðmundsdótt- ir og Tinna Gunnarsdóttir. Jafnframt verða íslenskar kvikmyndir í sviðsljósinu auk þess sem fyrirtækið OZ mun kynna nýjan tölvuleik á veraldarvefnum sem helgaður er landa- fundum norrænna manna í Norður-Ameríku. Hægt er að taka þátt í leiknum á slóðinni www.lcelandnaturally.com „Svo ergist hver sem hann eldist," sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra á Alþingi í gær - og svaraði ærlega fyrir sig eftir að Sverr- ir Hermannsson hafði trakterað hann hressi- lega og sagði hann Júdas og kossinn á Auð- humlu í fjósinu á Stóra-Ármóti hefði verið Júdasarkoss. í helgarpottinum velta menn því nú hins vegar fyrir sér hvað kalla beri landbún- aðarráðherrann. Á sveimi hafa verið nöfn eins og Júdas, Guðni sterki og Gunnar á Hlíð- arenda - og er þá fátt eitt nefnt. Enn sem fyrr daðrar meistari Megas við dauðann með einum eða öðrum hætti og nú er komin út ný plata með honum, sem ber heitið Svanasöngur á leiði - en kunnugir gera sér væntanlega grein fyrir því að titilinn er fyrst og síðast afbökun á nafni hins fræga lags eftir Sigvalda Kaldalóns, Svanasöng- ur á heiði. Fyrir margt löngu gaf hann svo út Drög að sjálfsmorði - og allir skilja nafnið. Þrjár íslenskar kvikmyndir, Englar alheimsins, 101 Reykjavík og íslenski draumurinn, verða í aðalhlutverkum á Edduhátíðinni sem haldin verður þann 19. nóvember næstkomandi. Fastlega má búast við því að þarna verði mik- ið um dýrðir og fólk í fínum fötum líkt og hjá Óskari stóra bróður í Kaliforníu. Aðalstjarna kvöldsins verður þó Björk Guðmundsdótt- ir, sem áreiðanlega verður fyrir valinu sem leikkona ársins þótt þær Victoria Abril og Hanna María Karlsdóttir úr 101 Reykjavík keppi reyndar við hana í þeim flokki. Sérstök vika lýðræðis hefst í dag með mál- þingi í húsakynnum Reykjavíkurakademíunn- ar á fjórðu hæð f J L-húsinu um Mannréttinda- sáttmála Evrópu, en nú eru fimmtfu ár frá því ísland undirritaði hann. Á þessum fundi talar Ragnar Aðalsteinsson meðal annarra. Á þriðjudag verður svo málþing í Borgarleikhús- inu um framtíð lýðræðis á tímum hnattvæð- ingar, en þann sama dag fara fram forseta- og þingkosningar í Bandaríkjunum. Meðal gesta þriðjudagfundarins verður Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti íslands. Fimmtudaginn 9. nóvember verða svo ellefu ár liðin frá falli Berlínarmúrsins og þá er meiningin að efna til málþings með stjórnmálamönnum. Fjölmargir listamenn taka þátt í sýningunni Nytjalist úr náttúrunni sem um helgina verður haldin í Safnahúsinu á Sauðárkróki, sýningin er jafnframt hluti Handverks og hönnunar dag- skrár Reykjavíkur menningarborgar Evrópu árið 2000. Meðal listamanna sem taka þátt í sýningunni eru Anna Sigríður Hróðmars- dóttir, Brynja Baldursdóttir, Dýrfinna Torfadóttir, Guðrún Indriðadóttir, Lára Gunnarsdóttir, Þorbjörg Valdimarsdóttir og Margrét Jónsdóttir leirlistakona á Akur- eyri. Eru þá fáir nefndir af jteim fjölmörgu lista- mönnum sem þátt taka. I Kaffileikhúsinu er nú byrjað að æfa einþátt- unginn Ég er í prósakkþönkum en þú?. Hann er eftir Lise-Lotte Holmane, en í þýóingu Ólafs Hauk Símonarson, og fjallar um Evu, konu á besta aldri, sem gerir bráðfyndna úttekt á yngingarmeðulum og öóru slíku í feg- urðardýrkunarsamfélagi nútímans. Það er eig- inkona Ólafs Hauks, Guðlaug María Bjarnadóttir sem leikur eina hlutverkið í verkinu en það er Jórunn Sigurðardóttir sem leikstýrir. Frumsýning verður þann 21. október. Vigdís Finnbogadóttir. Biörk Guðmundsdóttir. Megas. Tinna Gunniaugsdóttir. Da^íír Bersynduga konan heitir þetta veflista- verk eftir Hönnu Ryggen. Hér er sú bersynduga að koma á fund Jesú og kring um þau eru æðstu prestar úr biblíusög- unum en líka preiátar sem voru samtíða listakonunni. Verkið er frá 1926 og má túlka sem gagnrýni á dóm- hörku klerkaveldisins. í umgjörðinni má sjá brot af hefðbundinni aiþýðuvefiist Trú og efi í listinni Sýningin Hærra til þín verður opnuð á morgun í Sigurjónssafni í Laugarnesi og Ásmundarsafni við Sigtún. Þar eru 42 verk, skúlptúrar, veflistaverk og málverk af trúarlegum toga eftir níu norræna listamenn. Birgitta Spur forstöðumaður Sigur- jónssafns á heiðurinn að hugmyndinni. „Mér fannst það væri gaman að setja saman norræna sýningu þar sem valdir væru listamenn sem lítið eða ekkert hefðu unnið opinberlega fyrir kirkjuna, heldur hefðu sína túlkun á trúnni meira sem prívatmál - jafnvel listamenn sem engum hefði dottið í hug að væru að gera trúarleg verk,“ segir Birgitta sem er önnum kafin við að koma listaverkunum upp í Sigur- jónssafni þegar blaðamann ber að. „Þannig kemur önnur nálgun á trú- arlega þáttinn,“ bætir hún við. Óhrædd við að storka samtímanum Birgitta segir alla níu listamennina hafa haft mikla þýðingu lyrir listþró- un í sínu heimalandi og víðar á 20. öldinni. Bendir til dæniis á veflista- verk hinnar norsku Hönnu Ryggen (1894-1970). „Hún er fýrsta veflista- konan sem vinnur sig út úr því sem kalla má aljrýðulist. Hún þótti afar róttæk á sínum tíma og var óhrædd við að storka samtímanum. Lék sér að j)ví að blanda tímaskeiðum saman og setja samtíðina inn f sfnar biblíu- myndir." Birgitta beinir næst sjónum að tveimur verkum dönsku listakon- unnar Oliviu Holm -MöIIer. Á annar- ri stendur Eva ung hjá blómstrandi tré og á hinni er hún að enda lífið - stjörnubjartur kvöldhiminn yfir og hún að byrja að hverfa í faðm al- mættisins - snúa þeim. „Guli liturinn var í uppáhaldi hjá Oliviu sem bend- ir til sterkrar lífslöngunar - og hún varð fjörgömul," segir Birgitta. Frumkvæði Evu Næst liggur leiðin upp á loftið. „Hinn danski málari J. A. Jerichau lést aðeins tuttugu og sex ára en áhugi fólks á list hans hefur farið vaxandi sfðari ár,“ segir Birgitta og bcndir á verk eftir hann af Maríu mey með son sinn látinn. Við hlið þess er mynd eftir Færeyinginn Sam- úel Joensen-Mikines og yfir stigan- um önnur sem heitir l.íkfylgdin er byggir á sterkum litum og hreyfingu. Tvö verk Sigurjóns Olafssonar eru jiarna á loftinu, Auðmýkt og Upp- stigning, þau eru bæði unnin í tré. Fleiri vcrk eftir hann verða í Ámund- arsafninu. Skammt frá er Passíutón- ar eftir Ásmund og Birgitta beinir at- hygli blaðamanns að öðru verki eftir hann sem ber heitiö Eva yfirgefur Paradís. „Þetta er skemmtileg túlkun á frumkvæði Evu,“ segir Birgitta. Páskar nefnist eitt verka Ásmundar og það kallast á við tvær olíukrít- armyndir sem heita líka Páskar eftir danska myndhöggvarann, málarann og grafíklistamanninn Svend Wiig Hansen. „Með þessu fær maður ólík sjónarhorn á sama mótív," segir Birgitta. Þegar þetta viðtal fer fram, á fimmtudagskvöldi, er aðeins lítill hluti listaverkanna kominn upp. Myndir Roberts Jacobsen, unnar úr brotajárni og kopar Iiggja til dæmis ofan á flyglinum ennjiá en eiga eftir að njóta sfn vel á veggjum safnanna. Myndir Norðmannsins Jakob Weidemanns, Þoka í Getsemane og Án titils verða f Ásmundarsafni, ásamt mörgum öðrum ótöldum. Tveggja ára undirbúningur Birgitta segir undirbúning að sýning- unni hafa staðið í rúm tvö ár. Danski listmálarinn Bodil Kaalund hafi veitt ómetanlega ráðgjöf um val á erlendu listaverkunum og Menningarborg, Kristnihátíðarnefnd og Norræni menningarsjóðurinn hafi með Ijár- styrkjum gert hana mögulega. GUN. MAÐUR VIKUNNAR ER IÐNAÐARMAÐUR! Iðnaðarmaðurinn á Akureyri hefur síðustu viku unnið bæði daga og nætur. Slegið taktinn í hamarshöggasinfóníunni svo hratt að annað eins hefur ekki heyrst. En þessi iðjusemi skil- aði þó því að nýja verslunarmiðstöðin, Glerár- torg, var opnuð á tilsettum tíma á fimmtu- dagsmorgun og var mikið um dýrðir. En þá var iðnaðarmaðurinn, sem við veljum mann vik- unnar, vísast farinn að sofa, enda er hann staðuppgefinn eftir hamagang síðustu daga, vikna og mánaða.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.