Dagur - 04.11.2000, Side 6
6
LAUGARDAGUR 4. NÚVEMBER 2000
LlfJD 1 LAjJÐJjJU j
„Það var svo margt i Sjálfstæðis-
ftokknum sem höfðaði til mín, sér-
staklega trúin á kraftinn, viijann og at-
orkuna i einstakiingnum."
Þorgerður
Katrín
Gunnars-
dóttir kom
inn á þing
fyrir Sjálf-
stæðisflokk-
inn eftir síðustu kosn-
ingar. Hún hefur vakið
athygli fýrir skörulegan
málflutning og í viðtali
ræðir hún meðal annars
um stöðuna f íslenskum
stjórnmálum, afstöðuna
til ESB og framtíð RUV.
- Þú ert af krataættum en ert
þingmaður Sjálfstæðisfloklzsins,
hvað heillaði þig í upphafi við
slefnu Sjálfstæðisflokksins?
„Eg hef alltaf verið pólitísk en
í byrjun tók ég ekki afstöðu eft-
irflokkum, fremur eftir málefn-
um en eitt Ieiddi af öðru. Það
var svo margt í Sjálfstæðis-
flokknum sem höfðaði til mín,
sérstaklega trúin á kraftinn, vilj-
ann og atorkuna í einstaklingn-
um. Það var blanda af þessu og
hin samféiagslega hugsjón, fé-
lagsleg markaðsvæðing, sem lað-
aði mig að Sjálfstæðisflokkn-
um.“
- Þú ert kaþólsk, ertu sanntrú-
uð?
„Ég trúi einlægt á guð og er
stolt af því að vera kaþólikki. Eg
er ekki endilega sátt við allt sem
kemur frá kaþólsku kirkjunni og
þar má gagnrýna margt, en það
er líka afar margt sem kaþólska
kirkjan hoðar sem hefur gildi
enn í dag. Kaþólska kirkjan legg-
ur til að mynda áherslu á að því
Fylgir mikil ábyrgð að vera í
hjónabandi. I flestum hjóna-
böndum koma einhvern tímann
upp erfiðleikar en þá er bara að
takast á við þá og ég bið fólk að
hlaupa ekki á dyr við fyrstu
áreynslu."
- Víkjum að þingstarfinu, er
þingmennskan eins og þú hjóst
við?
„Þingmannsstarfið er mjög
svipað og ég hafði ætlað. Mér
finnst reyndar stundum erfitt að
skipuleggja mig út frá fundar-
tíma því maður getur aldrei sagt
fyrir um hvenær umræðum á
þingfundi lýkur. Þetta er ekki sé-
lcga heppilegt fyrir fjölskyldulíf-
ið. En þingmannsstarfið er afar
„Samfylkingin nær eng-
an veginn að vera nú-
tímalegur flokkur og er
frekar uppfull af göml-
um lummum heldur en
nýjum og ferskum hug-
myndum og það er
meira eftir af Alþýðu-
bandalaginu í Samfylk-
ingunni en minna af Al-
þýðuflokknum sem var
þó flokkur sem þorði að
setja fram ögrandi
stefnu í ýmsum málurn “
skemmtilegt og fjölbreytt og á
vinnustaönum er sem betur fer
gott fólk og skemmtilegt úr öll-
um flokkum."
Afstaðan til ESB
- Víkjum aðeins að konum og
pólitík. Hefur þú áhyggjur af
stöðu kvenna innan Sjálfstæðis-
flokksins?
„Nei, við höfum verið að vinna
mjög markvisst að því að innan-
Sjálfstæðisflokksins að bæta
stöðu kvenna. Þetta mikilvæga
mál hefur verið unnið frá
grunni, það er skynsamlegra að
mínu mati að vinna það þannig
fremur en að hoppa skyndilega
út í miðja laugina til að bjarga
málum. Við leggjum áherslu á,
ekki bara rétt fyrir kosningar, að
fá konur til liðs við okkur í
flokksstarfi, fá þær til setu í full-
trúaráði, stjórnum félaganna og
í sveitarstjórnir, svo einhver
dæmi séu nefnd. Kona er að-
stoðarframkvæmdastjóri flokks-
ins, kona er framkvænrdastjóri
þingflokksins, kona er formaður
þingflokksins, konur eru sveitar-
og bæjarstjórar og konur eru að-
stoðarmenn ráðherra. Auðvitað
mættu fleiri konur verða ráð-
herrar en ég vil bcnda á að við
síðustu kosningar fjölgaði kon-
um á þingi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn um tæplega helming.
Auðvitað eiga konur ennþá
erfitt uppdráttar á ákveðnum
sviðum þjóðfélagsins en það er
að breytast og ég vara við þvf að
fara öfgaleiðir því við breytum
hlutunum ekki einhliða með
handafli þótt sumir vilji fara þá
leið. Á 25 árum, svo miðað sé
við kvennafrídaginn, hefur gríð-
arlega mildl þróun átt sér stað,
en það sem við þurfum nú að
Ieggja áherslu á í þjóðfélaginu er
að leiðrétta launamismun kynj-
anna.
- Ertu sátt við sljórnarsamstarf-
ið?
„Mér líst vel á stjórnarsam-
starfið. Það er traust og það er
gott að sjá hvað menn vinna þar
vel saman, eins og til dæmis
Davíð og Halldór. Auðvitað er
hægt að setja út á hinar og þess-
ar ákvarðanir og það veröur
alltaf gert. En stjórnin er sterk.“
- Finnst þér Framsóknarflokk-
urinn eiga skilið að hrapa í skoð-
anakönnunum eins og hann hef-
ur gert?
„Nei, ég get ekki sagt að mér
finnist flokkurinn eiga það skil-
ið. Af hverju er hann að hrapa?
Eg held að það sé ekki út af
stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn. Ef menn líta til síð-
ustu vinstri stjórnar sem fram-
sóknarmenn tóku þátt í þá