Dagur - 04.11.2000, Blaðsíða 9

Dagur - 04.11.2000, Blaðsíða 9
Uíwmtr LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 - 9 j jf j £j J / ‘\jJ JJ J jJ IJ J „Nauðsynlegt að fjölga tækifærum í atvinnulífinu," segir Andri B. Þórhallsson nemi við Verkmenntaskólann í Neskaupstað sem hér er ásamt Hrefnu Rún Vignisdóttur, skólasystur sinni. smátt og smátt hefur þó aftur leitt til þess að hér hefur hallað undan fæti. Landsbyggðin var ekki styrkt á sama hátt.“ Um langt skeið voru Reyðfirð- ingar um 700. Fyrir um áratug fjölgaði þeim upp í 740 og svo var staðan um hríð, en á síðustu þremur til fjórum árum hefur íbúum hins vegar fækkað mikið og nú eru þeir um 620. Tölur á svipuðu róli má nefna úr grunn- skólanum. Þóroddur, sem er fæddur og uppalinn á Reyðarfirði, rifjar upp að þegar hann kom til starfa við skólann fjrir fjórtán árum hafi nemendur verið 124. A tímabili urðu þeir 132 en nú eru þeir 99 talsins. „Krakkar hér vilja uppbyggingu, fjölgun íbúa, rétt eins og krökkum í Reykjavík finnst lítið lútt í að vera þar í samanburði við erlendar stór- borgir eins og Parfs eða New York. Hér í skólanum hefur verið mikil umræða í sambandi við ál- vers- og stóriðjumál, sem mér finnst allt í lagi sé það í hófi og öll sjónarmið fái að njóta sín." Minni álver þægilegra „Norsk Hydro tekur sér langan umhugsunarfrest til að ákveða hvort þeir ætla að byggja hér ál- ver. Eg hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það sé vegna þess að þeir ætli að geyma sér besta bit- ann þar til þeim hentar. Ég tel jafnframt að mistök hafi verið gerð með því að bjóða ekki ein- hveiju öðru stórfyrirtæki að setja sína starfsemi niður við Reyðar- fjörð. Þannig hafa Norðmenn alltaf haft óeðlilegan forgang og „Fólk hefur misst trúna á búsetu út á landi, “ segir Emil Thorarensen á Eskifirði. þrýstingurinn í málinu er eng- inn,“ sagði Kristinn Einarsson fv. kennari og skólastjóri á Reyðar- firði, en hann var einn þeirra manna sem blaðamaður tók tali um stóriðjumálin. „IVIcnn á Reyðarfirði haf'a nú vaðið fýrir neðan sig í umræðum um stóriðju. I kringum 1980 fór Hjörleifur að tala fyrir kísilmálm- verksmiðju og svo kom að Sverri Hermannssyni. En nú á að byggja hér risaálver. Vitaskuld hefði verið þægilegra fyrir okkur að hér yrði byggt minna álver er nú er ráð- gert, en auðvitað kyngjum við bit- anum ef hann býðst. Þú spyrð bvort álver geti snúið þróuninni hér við. Ég tel mikilvægast að undirbúningur sé vandaður. Ef fólk fær hér þá þjónustu sem nú- tíminn gerir kröfur um og tekj- urnar eru viðunandi hef ég enga trú á öðru en því að fólk vilji koma hingað og starfa í álveri." Skapar ný tækifæri Emil Thorarensen, útgerðarstjóri Hraðfrystihúss Eskiljarðar, segir að álvers- og stóriðjuframkvæmd- ir myndu skapa mikla þenslu í at- vinnulífi í Fjarðabyggð og að fyrsta kastið sjálfsagt erfitt að fá fólk til starfa við sjómennsku og útgerð. Að minnsta kosti sé ekk- ert óeðlilegt að reikna með slíku, þvf séu sambærileg laun í boði við álver eða virkjunarframkvæmdir muni menn vísast kjösa að vinna frekar á þeim vettvangi, en við sjóinn. „En þegar til lengdar lætur og jafnvægi er náð mun álver styrkja svæðið og skapa ný tækifæri," segir Emil. „Stjórnmálamenn eru að vinna að framgangi málsins af fullum heilindum og mikið er lagt undir. Hundruðum milljóna króna hefur verið varið í rann- sóknir og undirbúningsvinnu og næst stendur til að fara í vega- gerð, sem í raun óháð er stóriðju- áformum. Til að bora jarðgöng til Fáskrúðsfjarðar frá Rcyðarfirði og leggja veginn hér yfir Hólmanesið miklu neðar en nú er. Þessar framkvæmdir eru mjög mikilvæg- ar.“ Ákveðinn vonleysistónn „Mér finnst vera kominn ákveð- inn vonleysistónn í fólk hér, það hefur misst trúna á búsctu út á landi og það kemur að mínurn dómi til af því hve atvinnulífið er einhæft," segir Emil Thoraren- sen. „Margir hér væru sjálfsagt farnir hefðu þeir möguleika á að selja fasteignir sínar, en í mörgum tilvikum er þar aleiga lólks bund- in. Fólk sættir sig illa við tak- markaða möguleika, síst unga fólkið sem fer héðan til fram- haldsnáms og snýr ekki til baka aftur að námi loknu. Því þurft- um við fleiri tækifæri og fjöl- breyttari atvinnustarfsemi sém geta gefið okkur vonir um betri framtíð - ef þessi landshluti á áfram að byggjast." Landsbyggðin ekki notið sannmælis Ósanngjörn umræða gagnvart landsbyggð- inni. Atvinnuuppbygg- ing mikilvæg. Straum- urinn suður eðlilegur. „I mínum huga er meginmálið að við herðum baráttuna og gefumst ekki upp. Lands- byggðin hefur heldur ekki fengið að njóta sannmælis í ósanngjarnri umræðunni, fólk á Reykjavikursvæðinu virðist vera tilbúið að gagnrýna mjög kröfuglega öll áform um upp- byggingu stóriðju á Austur- landi en hefur á hinn bóginn þveröfug viðhorf gagnvart slíkri uppbyggingu við Faxa- flóa og í Hvalfirði," segir Smári Geirsson, forseti bæjar- stjórnar Fjarðabyggðar. Þessari gegndar- lausu þenslu Eins og kemur fram annars staðar í þessari samantekt fækkaði íbúum í Fjarðabyggð um alls 1 12 á fyrstu níu mán- uðum ársins og segir Smári Geirsson að þær tölur þurfi ekki að koma á óvart. „Þegar áform um byggingu Fljótsdals- virkjunar og 120 þúsund tonna álvers í Reyðarfirði voru „Á meðan botn er ekki kominn í það mál er eðlilegt að margir fari héðan og suöur, “ segir Smári Geirsson, for- seti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. mynd: -sbs. lögð til liðar um mánaðamótin mars og apríl á þessu ári skynjaði ég strax gífurleg von- brigði meðal fólks og ég gerði mér grein fyrir að árin 2000 og 2001 yrðu okkur erfið, eða á meðan enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um byggingu stærra álvers og virkjunar við Kárahnjúka. A meðan botn er ekki kominn í það mál er eðli- legt að margir fari héðan og suður, enda hefur hin gengd- arlausa þenslu á höfuðborgar- svæðinu nánast segulmátt." Flókið og umfangsmikið Rétt eins og þenslan á Reykja- vfkursvæðinu er mikil hefur samdráttur orðið á Austur- Iandi í frumvinnslugreinunum sem Smári Geirsson kallar svo, það er landbúnaði og sjávarútvegi. „Að mínu mati skiptir því afskaplega miklu máli að ný atvinnutækifæri séu sköpuðuð í staðinn," segir Smári og nefnir þær fyrirætl- anir sem nú eru uppi um lax- eldi í fjörðum eystra og eru nokkuð langt komnar. En megináherslan verður þó lögð á álverið, en ef af byggingu þess verður það gríðarlega flókið og umfangsmikið verk- efni - eins og Smári Geirsson segir - sem er þó hvergi hang- inn. „Þannig leikur ál- glýjan oesta fólk“ Álver myndi rústa þeim atvinnurekstri sem fyrir er. Leiðirnar til upp- byggingar atvinnulífs eru aðrar. Áróðurinn fyrir álveri er haturs- fullur. „Skammtímasjónarmið ráða ferðinni og engin heildstæð stcfnumörkun er til staðar af hálfu ríkisstjórnar og forystu Landsvirkjunar í orku- og stór- iðjumálum. Menn láta eins og orkulindirnar séu óþrjótandi og í lagi sé að binda þær þungaiðnaði í sífellt ríkari mæli,“ segir Hjörleifur Gutt- ormsson náttúrufræðingur f Neskaupstað og fv. alþingis- maður. „Eg tel rangt að ráð- stafa meiru af raforku til stór- iðju en gert hefur verið, meðal annars áliðnaðar og skiptir staðsetning álverksmiðja engu um þá afstöðu rnína." Stórslys fyrir samfélagið Hjörleifur hefur verið óþreyt- andi að benda á vankanta þess að álver verði byggt við Reyð- artjörð og virkjun við Kára- hnjúka. „Það á ekki að nýta orkulindirnar á þennan hátt og fara á yfirvegað í nýtingu þeirra, m.a. með vetnisfram- leiðslu í huga. Þess utan er fullkomiö óráð að setja risaál- ver niður í fámenninu á Aust- urlandi. Það væri stórslys fyrir samfélagið," segir Hjörleifur. Hann segir að álver við Reyðarfjörð og það sem fylgir myndi setja austfirskt samfé- lag á annan endann, rústa mikið af þeim rekstri sem fyrir er og spilla varanlega dýr- mætri náttúru. „Ef svo hrapa- lega tækist til að í þetta verði ráðist óttast ég að nettóút- „Menn hafa í alltofríkum mæli horft á álversem lausnarorð í atvinnumál- um, “ segir Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur i Neskaupstað. mynd: -hilmar. koman verði hraðari brott- flutningur fólks af svæðinu en ella. I staðinn yrði reynt að flytja inn erlent vinnuafl og ég held að engum sé til góðs að taka heljarstökk í þeim efnum. Og að því er virkjunina varðar hef ég litla trú á að niðurstaða komi í málið á næsta ári.“ Sjúkt andrúmsloft „Leiðir til uppbyggingar at- vinnulífs á Austurlandi, aðrar en álver, eru fyrst af öllu að tryggja sambærilegar grunnað- stæður til almenns atvinnu- rckstrar úti urn land á við það sem er á höfuðborgarsvæð- inu,“ segir Hjörleifur. „Öflug samfélagsþjónusta er líka skil- yrði. Markviss umhverfisvernd er sömuleiðis lykilatriði. Mörg verkefni við rannsóknir, þróun og skipulag væri unnt að leysa betur á landbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Ein skjótvirkasta aðgerðin lands- byggðinni í hag væri að breyta stjórnun fiskveiða, tengja veiðirétt byggðarlögum, skipta upp landhelginni og láta báta fá vciöirétt á grunnslóð. Þá finnst mér tómlætis hafa gætt í að þróa háskólamenntun á Austurlandi. „ „Menn hafa í alltof ríkum mæli horft á álver sem Iausn- arorð í atvinnumálum og af- leiðingarnar geta orðið skelfi- legar á hvorn veginn sem fer, segir Hjörleifur. „Stjórnmála- mennirnir sem drógu risaál- verið inn á sviðið 1997 bera auðvitað höfuðábyrgð á því hvernig kornið er. En þorri sveitarstjórnarmanna hefur líka fallið fyrir þeim í hugsun- arleysi og gáir ekki að sér. Niðurstaðan er sjúkt and- rúmsloft sem endurspeglast meðal annars í fíflagangi for- ystumanna Afls fyrir Austur- land og hatursfullum áróðri gegn fólki sem hugsar á öðr- um nótum. Þannig leikur álglýjan besta fólk.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.