Dagur - 04.11.2000, Side 10

Dagur - 04.11.2000, Side 10
D&^íiur LfFfÐ f LMWFMCf LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 Sjö systkini og pabbi á jarðýtu. Systkinin á Ytri-Brekkum kornung og í baksýn er faðir þeirra, Konráð Vilhjálmsson, að mála jarðýtu sína. Yngsta systirin, Arnbjörg Kristín er ókomin í heiminn þegar þessi mynd var tekin, af móður þeirra. Áfangi hjá Arnarfeiii, systkinin sjö þegar fyrir- tækið fékk afhent þrjá nýja vörubiia af gerðinni Man fyrir nokkrum árum. Systkinin með mömmu. Dugnað- arlegir krakkar - sem heidur betur hafa látið að sér kveða i seinni tið. „Strákarnir höfðu strax mikinn áhuga á vélum og tækjum, miklu frekar en nokkurn timann á sveitabúskap, “ segir Valgerður Sigur- bergsdóttir, sem í dag er matráðskona upp afjöllum í vegagerð hjá fjöl- skyldufyrirtækinu. mynd: -sbs. Frá opnun nýs vegar um Háreksstaðaleið á dögunum, en það er eitt umfangsmesta verkefni sem Arnarfell hefur annast. Á myndinni eru, frá vinstri, Björn, Þór, Sigríður Pála, Sigurbergur og lengst til hægri er Valgerður Sigurbergsdóttir, móðir þeirra systkina. mynd: -sbs. Sjö systkini reka saman Arn- arfell, eitt stærsta verktakafyr- irtæki landsins. Framkvæmdir um allt land. Kátur hópur sem hefur mikið fýrir stafni. Ólík systkini sem bæta hvert annað upp. „Oft les maður í viðtölum við ættingja eða fjölskyldur sem standa saman að fyr- irtækjarekstri að utan vinnutíma leggi fólk sig fram um að tala um allt annað en vinnuna. En hvers vegna ætti svo að vera þegar vinnan er skemmtileg? Þegar fjöl- skylda hittist öll ræðum við oft verkefnin sem við erum með hverjum sinni, það sem bjóða á út á næstunni eða þá af- komu fyrirtækisins. Þetta er okkar líf og yndi,“ segir Sigríður Pála Konráðsdóttir, einn eigenda verktakafyrirtækisins Arnar- fells hf. á Akureyri. Frá Ytri-Brekkum í Blönduhlíð Arnarfell hf. var stofnað 1986, en saga fyrirtækisins er enn lengri. Það var um 1960 sem Konráð Vilhjálmsson á Ytri- Brekkum í Blönduhlíð í Skagafirði hóf störf í vegavinnu fyrir Vegagerðina á jarð- ýtu sinni. Um 1980 fór Vegagerðin svo í ríkari mæli að bjóða út framkvæmdir í stað þess að menn ynnu þær í tímavinnu. Því stofnaði Konráð Arnarfell hf. utan um rekstur sinn - og með í félaginu voru eiginkona hans, Valgerður Sigurbergs- dóttir, og börnin sem eru átta talsins. Þau eru f dag fulltíða og starfa öll, utan eitt við reksturinn. Þá er Konráð í dag verk- stjóri yfir vegaframkvæmdum þeim sem Arnarfell hefur með að gera á Mývatnsör- æfum. Elstur systkinanna átta er Vilhjálmur Konráð, fæddur 1963. Hann er sá eini þeirra sem ekki starfar við Arnarfell, heldur starfrækir hann eigið verktakafyr- irtæki; Iðufell hf. á Raufarhöfn. Hin systkinin eru Sigurbergur, sem er l'ram- kvæmdastjórinn, fæddur 1965, þá Sigríð- ur Pála sem tveimur árum yngri, Þór er fæddur árið 1969 og Björn kom í heim- inn ári síðar. Þorvaldur kom þremur árum síðar og Margrét Anna Ragnheiður 1975. Yngst er Arnbjörg Kristfn, sem fædd er 1979. „Fljótt farnir að snuast á traktorum" „Þetta eru afskaplega velviljaðir og góðir krakkar og framúrskarandi dugleg,“ segir Valgerður Sigurbergsdóttir, aðspurð um börnin sín. Hún er í dag matráðskona hjá Arnarfelli og kokkar ofan í þá starfsmenn fyrirtækisins sem eru í vegavinnu upp á Ijöllum. „Strákarnir höfðu strax mikinn áhuga á vélum og tækjum, miklu frekar en nokkurn tímann á sveitabúskap. Þeir voru fljótt farnir að snúast eitthvað á traktorunum heima á Ytri - Brekkum og ég man eftir þeim kornungum að rogast með olíubrúsa úr gamalli víragröfu sem til var heima.“ Sigríður Pála talar á svipuðum nótum, segir að bræður sínir hafi strax eftir grunnskólapróf verið farnir að starfa hjá Arnarfelli. „Okkur var kennt að vinna þegar við vorum kornung. Við urðum líka að taka til hendinni um helgar, þá rak mamma okkur í fjósið að mjólka. Við fengum hvergi að draga af okkur og mamma er Iíka þannig að hún vill að hlutirnir gangi,“ segir Þór Konráðsson. Á skrifstofu, jarðýtu, hjólaskóflu og vörubfl Arnarfellssystkinin sjö hafa með sér þá verkaskiptingu að bræðurnir eru verk- stjórar yfir þeim umfangsmiklu fram- kvæmdum sem fyrirtækið sinnir á hv'erj- um tíma. Þær Sigríður Pála og Margrét vinna á skrifstofunni, en Margrét og Arn- björg grípa þó stundum í vinnu á malara í efnisvinnslu fyrirtækisins á Akureyri ef þess þarf. „Eg geng í allt, hef verið að vinna hér á skrifstofunni en einnig verið á jarðýtum, hjólaskóflum og vörubílum," segir Margrét, sem bætir því raunar við að Arnbjörg Kristín systir sín sé raunar enn fjölhæfari, því jafnhliða myndlistar- námi og körfubolta vinnur hún á þunga- vinnuvélum Arnarfells. „Við systkinin erum ólík, en bætum hvert annað þannig upp,“ segir Þór. Aðspurður um skemmtilega sögu um samstarf fjöl- skyldunnar rifjar hann upp að þegar nýi vegurinn um Háreksstaðaleið sem Arnar- fell lagði og var tekinn f notkun fyrir fáum vikum var í hófi sem efnt var til í tilefni af vígslu hans sagt frá því að sl. haust hafí Konráð, faðir þeirra systkina, verið orðinn einn eftir á fjöllum með móður þeirra systkina. Þar vann hann við að slétta veg- kanta. „Og auðvitað fór gamla konan að at- ast á einni jarðýtunni og gerði það sem þurfti. Stundum er talað um að konur séu hinar mestu jarðýtur, en mamma er gott betur; hún vinnur á jarðýtu," segir Þór. Engin heimapólítík Starfsemi Arnarfells hefur aukist mikið á síðustu árum. Veltan nemur nú hundruð- um milljóna króna og meðal stórfram- kvæmda sem fyrirtækið hefur nú með höndum er Iagning nýs Vopnafjarðarvegar um Brunnahvamma, nýr vegur á Mý- vatnsöræfum, snjóflóðavarnargarðar f Neskaupstað, frárennslisskurðir við Vatnsfellsvirkjun og birgðastöð á Akur- eyri. „Það er nauðsynlegt að sækja fram og starfa á landsvísu. Það virkar engin heimapólitík. Hér búa ekki nema 280 þúsund manns í litlu landi þannig að kannski má segja að maður sé heimamað- ur hvar sem maður nú einu sinni er staddur í þessu Iandi,“ segir Þór Konráðs- son að Iokum. -SBS. „Þegar fjölskyldan hittist öll ræðum við oft verkefnin sem við erum með hverju sinni, það sem bjóða á út á næstunni eða þá afkomu fyrirlækisins. Þetta er okkar líf og yndi.“ Frá vinstri, Þór, Sigríður Pála og Mar- grét, þau systkinin sem tókst að hóa saman i myndatöku - en annars er Arnarfell með starfsemi víða um land og systkinin sjaldan öll saman. mynd: -sbs.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.