Dagur - 04.11.2000, Blaðsíða 16
16 - LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
Fluguveiðar að vetri (190)
Lært af reynslunni
Það er brjálað
veður. Ein-
hvers staðar í
útvarpinu er
sagt frá norðan
23 metrum, Ak-
ureyri er komin
undir snjó og
risið í íbúðinni
minni leikur á
reiðiskjálfi und-
an þessum
vindum sem
feykja jafnvel kettinum inn aft-
ur þegar hann gerir þriðju til-
raun til að fara út og sinna er-
indum. Goði köttur kýs að lúra
frekar en þessi ósköp, og er þó
ekki köttur sem gefur svo auð-
veldlega eftir svæði sín.
A svona stundum stunda
menn ekki fluguveiðar. Nema í
höfðinu. Og það ættu menn
að gera.
Nú er nefnilega tími til að
fara yfir bestu og verstu stundir
sumarsins.
Besta takan?
Á veiðivefnum Ilugur.is stendur
nú yfir lítil dægradvöl þar sem
veiðimennn scnda inn litlar
sögur undir samheitinu „besta
taka sumarsins". Svona til að
ylja manni meðan úti geisa
stormar stríðir. Viðurkenning
verður veitt í formi jólabókar,
sem verður engin önnur en sú
sem er eftir sjálfan mig og heit-
ir Fluguveiðisögur. En bak við
bestu tökuna er önnur saga.
Saga um það hvernig menn
komast í bestu tiikuna. Saga
mistaka. Sem er einmitt erindi
dagsins. Að verða góður veiði-
maður er mikil ögrun. Stór
hluti af því er að komast hjá
mistökuni.
Algengustu mistökin
1) Að vciða þar sem allir hinir
veiða. Ég var við Elliðavatn í
sumar, á stað sem cg hafði ekki
prófað áður. Gekk með bakka
og veiddi, kastaði, það er að
segja, færðist smám saman nið-
ur með og var farið Iíða undar-
lega. Var þetta einhver bölvuð
vitleysa? Létti aðeins þegar ég
sá fótspor á bakkanum. Ein-
hver hafði þá verið hér áður.
Svo kom annar gaur og veiddi í
humáttina á eftir mér. Eg
hugsaði með mér að þar færi
veiðilegur maður, hann hlyti að
vita allt um þennan stað. Svo
sá ég auðvitað að eins líklegt
væri að hann hugsaði eins um
mig. Haltur leiðir blindan!
Mönnum finnst cinhvern veg-
inn að þar sem eru fleiri að
veiðum hljóti að vera meiri
speki á ferðinni. Svo er ekki.
Flestir eru bara latir og nenna
ekki að ganga langt frá bíla-
stæðinu, eða nenna ekki að
vaða yfír ána, eða brölta fyrir
snös. Eitt af því mergjaðasta
sem veiðimaður gerir er að
koma fiskinum á óvart. Einn
stakur sem hefur ekki séð flugu
í hálfan mánuð er jafnvel lík-
legri bráð en torfa sem sér ekk-
ert nema Peacock allt sumarið!
Leitaðu!
2) Fæla fiskinn með því að
þramma fram á bakka og vaða
út. Hversu oft? Hversu oft
höfum við ekki séð flokk
manna koma þrammandi niður
að vatni, vaða út í eins langt og
vaðið verður og þenja svo
köstin eins langt út og mögu-
legt er? Þetta eru líklega al-
gengustu mistök veiðimanna.
Fiskurinn er nær en þú heldur.
Eg sem er búinn að prédika
þetta í 189 pistlum er enn að
fæla frá mér fiska með ónær-
gætni við frið vatnanna.
3) Byrja að veiða strax! Bú-
inn að aka hálfan dag, koma
sér fyrir í húsi, skunda á vett-
vang, setja saman með titrandi
höndum, loksins kominn á
staðinn: KASTA! Nei. Fyrst á
að horfa og hlusta. Fara niður
að vatni eða straumi. horfa,
hlusta, slappa af. Er æti á
ferðinni? Er fiskur á ferðinni?
Hvar? Hvernig? Fimm mínút-
ur geta borgað sig vel. Kortér
er mátulegt, en þar sem ég er
ekki maður til að hinkra svo
lengi sjálfur segi ég aðeins:
Það borgar sig að bíða, horfa
og hlusta, því lengur því betra.
Það heldur hvort sem er eng-
inn lengur út en 15 mínútur.
4) Að veiða eins og virkaði
síðast. Carpe diem! Gríptu
daginn. Ekki minninguna um
hvernig hann tók síðast.
Breyttu til. Allt í lagi. Auðvitað
tekur maður fram fluguna sem
náði fimm punda urriða á þess-
um stað í fyrra. Einmitt á
þessum stað. Og reynir hana.
En ekki festast í farinu. Hafi
hann tekið Wooly bugger,
þyngdan, í fyrra, er eins víst að
hann geti tekið svarta lirfu sem
kastað er andsreymis og látin
reka frjáls núna.
5) Of þungar græjur. Ef þú
notar yfirleitt tvíhendu áttu að
hugsa þig alvarlega um: Er tví-
henda raunverulega það sem
þarf þegar meðalþyngdin er 4-5
pund í laxi? (Norðurá, Kjós,
Rangár). Jú, það er alltaf
möguleiki að setja í 14 pund-
ara, en létt einhenda leikur sér
að slíkum fiski. Líka 20 pund-
ara. Stærð fisksins skiptir ekki
máli við val á stöng, heldur
vatnið sem hann er í. Silungs-
veiði: Ef þú átt ekki stöng fyrir
línu sex heldur bara þyngra
áttu að skipta niður við fyrsta
tækifæri. Létta stöngina og
iínuna og tauminn og flug-
una...og fiskinn kynnu sumir
að botna, en svo þarf ekki að
vera. Flestir fiskar stækka
mjög við að vera teknir á léttar
græjur. Anægjan er marglöld.
Ogrunin meiri. Og hvað með
það þótt 27 punda fiskur
sleppi!?
(Meira um algeng mistök og
ráðin við þeitn verða áflugur.is).
FLUGUR
Stefán Jón
Hafstein
skrifar
- Ð^Uir
TV/tR FLIKUR
IEINNL.
HEÍTUR
0G
ÞURR
THERMO varmanærfötin eru i
raun tvær flikur i einni.
Tveggja laga spunatækni flytur
rakann frá líkamanum og heldur
þér heitum og þurrum.
Notaðu Thermo rtærfötin í
næsta feröalag,
þú sérö ekki eftir því.
Sportvörugerðin
Heilcisala-smásala
Mávahlíd 41. Rvik, sími 562-8383
Krossgáta nr. 211
Latisn .....................
Nafn .......................
Heimilisfang................
Póstnúmer og staður ........
Helgarkrossgáta 211
í krossgátunni er gerður
greinarmunur á grönnum
og breiðum sérhljóðum.
Lausnarorð sendist til
Dags (Helgarkrossgáta
211) Strandgötu 31 á Ak-
ureyri eða í faxsíma 460
6171. Lausnarorð kross-
gátu 210 er VÖRUBÍLL
og vinningshafi er Bjarn-
þór Eiríksson sem býr á
Strandgötu 85 í Hafnar-
firði. Hún fær senda bók-
ina Samfella eftir Steinþór
Jóhannesson.
Vinningshafinrt
fær senda
bókina Samfella
eftir Steinþór
Jóhannesson.