Dagur - 04.11.2000, Page 18

Dagur - 04.11.2000, Page 18
78- LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 LÍfJrJ í LAjJÐJjJU j Frumspeki útigrillsins Kristján B. Jónasson er 33 ára bókmenntafræðingur sem varð útgáfustjóri Forlagsins eftir að Jóhann Páll Valdimars- son stofnaði JPVforlag. Krist- ján hyggst feta nokkuð nýjar brautir í útgáfustefnu eins og hann lýsir í viðtali við Dag. „Það frcistaði mín að eiga jjátt í að skapa bókaútgáfu þar sem farið væri inn á nýjar brautir," segir Kristján. „Mig langaði ekki til að setja á stofn enn eina umbúðamið- stöðina þar sem ég sæti eins og af- greiðslumaður í slopp bak við diskinn og biði eftir að höfundar kæmu með inn- leggið sitt sem ég síðan pakkaði inn og hnýtti á slaufu. Eg vil að útgáfan sé stað- ur |iar sem fólk mætist og skapar eitthvað sem ekki var til áður, eitthvað nýtt.“ - Þá eftir pöntun? „Maður getur að vísu lagt inn pantanir cn maður veit aldrei hvort þær verða af- greiddar. Höfuðmájið er hins vegar þetta er ekki stór bær og menn hittast oft og spjalla saman og kasta á milli sín hug- myndum, oft ansi góðum hugmyndum, en svo fýkur jrað allt burt með vindum. Sköpunargleðin er allt í kringum okkur en við sóum jicssari orku gengdarlaust. Mig langaði til að búa til hverfilinn sem hreytir henni í Ijós. Staðreyndin er sú að mjög margt af því unga fólki sem hefur raunverulcga hæfileika til skrifta velur sér ekki bókmenntirnar sem aðalstarfs- vettvang. Og jafnvænt og mér þykir um hugmyndina um skáldið sem mikinn ein- stakling, alhurðamann sem býr yfir drif- krafti sem fær hann til að skapa listaverk einn, soltinn og misskilinn þá held ég að það séu ekki margir fæddir eftir 1970 sem sjá sig í |rví hlutverki en hafa samt mikla hæfileika til skrifta. Ég lít svo á að það sé hlutverk okkar sem vinnum í út- gáfu að bregðast á einhvern hátt við þess- um nýju aðstæðum og reyna að efla fjöl- breytni í bókaútgáfu í stað þess að sitja á kontórnum og væla yfir því að ekkert sé að gerast. Svo ég taki dæmi af Þýskalandi þá kom þar upp alger pattstaða fyrir um það bil tfu árum síðan, það var hreinlega eins og enginn undir þrítugu þyrði að stinga nið- ur penna og þeir sem þó gerðu það voru í einhverjum fmynduðum böndum. Menn- ingarpáfarnir voluðu og útgáfufyrirtækin siigðu náttúrulega að víst væru til góðir höfundar sem páfarnir mótmæltu síðan og svo framvegis og svo framvegis. Gordí- onshnútinn hjuggu síðan annars vegar nýir höfundar frá Austur-Þýskalandi, menn eins og Ingo Schulze sem kom hér á bókmenntahátíð í september, og hins vegar útgáfufyrirtækið Kiepenheuer & Witsch sem tók þá stefnu að opna bók- menntabúrið og hleypa Ijónunum út, leyfa fólki að sprella. Ut úr þessari tilraun hafa komið einir tveir þckktustu ungu rit- höfundar Þýskalands, annars vegar hinn bráðungi Benjamin Lepert sem fer nú sigurför um heiminn með bókina Crazy og nafni hans Benjamin von Stuckrad- Barre sem er orðin hrein og klár popp- stjarna og fyllir stóra konsertsali. Hann kom reyndar hingað til íslands í vor í mikilli kyrrþey og las upp á Grand-Rock innan um bytturnar. Ég leit svo á þegar ég tók við Forlaginu að nú hefði ég tækifæri til að hjálpa fólki við að leika sér. Minn æðsti draumur er „Minn æðsti draumur er ekki að hreiðra um mig í Chesterfieldstólnum mínum og bjóða gestum og gangandi upp á eðalárganga af koniaki heldur búa til stað þar sem fólk getur komið skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd." ekki að hreiðra um mig í Chesterfield- stólnum mínum og bjóða gestum og gangandi upp á eðalárganga af koníaki heldur búa til stað þar sem fólk getur komið skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd. Ég sé það hreinlega ekki ganga upp að sitja éndalaust á rassinum og bíða eftir að næsti Nóbelsverðlauna- hafi komi í gættina með þrjár skáldsögur í plastpoka sem ég síðan hafna vegna jress að það árið ætla ég að gefa út tíu bækur um golf og tvær um ungbarna- nudd. Síðan verður tíminn að leiða í Ijós hvort þetta er eitthvað sem virkar. Ég verð bara að taka jtá áhættu." Nýliðun bókmenntastofnsins - Nú ertu bókmenntafræðingur, hver finnst þér vera stuða íslenskra nútímabók- mennta? Lr ekki mikil grósku og er það besta ekki hágæðaskáldskapur? „Ég held að margir samverkandi þættir hafa valdið þessari grósku. Það má ekki gleyma |rví að launasjóðurinn skiptir máli, jafn umdeildur og hann er. Hann .hefur tryggt stórum hópi fólks lágmarks- aðstöðu til að sinna skriftum. Islenskar rithöfundar hafa líka eignast erlenda les- endur sem cr feikilega dýrmætt og ])á er ég alls ekki að tala um þcssa peninga sem virðist vera það eina sem kemst að í þeirri umræðu. Hins vegar er eins og við í okk- arbotnlausu sjálfhverfni gleymum því æði oft að í útlöndum eru líka skrifaðar góðar bækur. Ég verð að segja með fullri virð- ingu fyrir íslenskum bókmenntum að ég hef stundum verið frekar undrandi á því hvað mikið af þeim stórskemmtilega há- gæðalitteratúr scm er verið að skrifa í Bandaríkjunum og á meginlandi Evrópu virðist eiga trega leið að íslenskum les- endum. En á móti kemur að ég held að allir íslenskir rithöfundar með sjálfsvirð- ingu mæli sig alltaf við það sem gerist er- lcndis og fylgist vel með því. Þeir vita ósköp vel að annars endum við bara með dæmigerðar smáþjóðabókmenntir. Þá er eina réttlætingin fyrir að skrifa sú að vera af lítilli jrjóð og skrifa á sínu tungumáli. Ég held að fæstir íslenskir rithöfundar hugsi þannig um sjálfa sig, heldur í stærra samhengi og mæli sig á mælistiku heimsbókmenntanna. Einu áhyggjurnar sem ég hef af ís- lcnskum samtíðarbókmenntum er að ákveðnir árgangar bafa ekki verið að skila sér nægilega vel, svo ég tali nú eins og gert er um þorskstofninn. Fólk sem er fætt um I 960 skipar hóp af mjög frambærilegum rithöfundum. En ég sakna þess að við höfum ekki fengið jal'n fjölskrúðugar bókmenntir frá fólk- inu sem leit dagsins ljós um og eftir •1970 og er miklu jarðbundnara og kannski borgaralegra. Vestrænar bókmenntir á tíunda ára- tugnum áttu sér tvær megingreinar, annars vegar póstmódernískar sögulegar skáldsögur og hér á landi bafa verið skrifaðar nokkrar mjög frambærilegar bækur af þeim toga. Síðan er það sem við getum kallað raun-raunsæisbækur eða níhíló-raunsæisbækur scm Ijalla þó í raun um hvarf veruleikans og óskina eftir að finna hann í blóði og gori eða þá í yfirborði hlutanna. Mikið af þess- um bókum eru líka móralskar. Yngra fólk hefur kosið að spyrja stórra spurn- inga um rétt og rangt. Þetta eru börn markaðssamfélags en þeim óar við því og bregðast oft við með því að útmála jrað sem skelfilegan vettvang jiar sem allir éta undan öllum í darwinískum dýragarði heimsins. Mörg jæssara verka hafa komið við kaunin á manni og náð á manni kverkataki. Við hölum einnig séð nokkur frambærileg verk af |iessu toga hér heima en enn sem komið er hefur enginn af þessum höfundum hérlcndis náð því sem kalla mætti almennings- hylli nema kannski þá helst Hallgrímur Helgason. Staðreyndin er að oft skortir jressi verk bæði hér og annars staðar stæ'rra svið, þau eru stundum lull smá- boruleg. En jressir tveir aldalokastraumar sýna mér hins vcgar ekki nógu oft hvernig lífi við lifum og ég sakna þess. Ég er ekki að boða hreinræktað raunsæi og dauða ímyndunaraflsins, bara næmi á þann veruleika sem svo margir búa við. Þenn- an miðstéttarveruleika þar sem útigrill- in og visakortin eru sundkorkar þúsund- anna á leiðinni ýfir neyslulaugina. Þetta er ókannaður heimur. Svarthol. Mig dreymir um frásögn sem fangar þetta án þess að dctta í raunsæispyttinn. Mig drcymir um frumspeki útigrillsins. Svo er annað líka sem er að gerast. Það eru ekki nema nokkrar vikur í að tuttugustu öldinni Ijúki. Ég vona að bókaútgáfan Forlagið verði í fararbroddi þeirra sem átta sig á jiví að tuttugasta öldin er liðin. Nýja öldin er óskrifað blað. Við göngum inn í hana án draum- sýnar. Einn helmingur mannkyns geng- ur inn í 21. öldina með það eitt að markmiði að græða meiri peninga, hinn helmingurinn með það markmið að koma í veg fyrir að við eyðum jörðinni endanlega og förumst. Og ég spyr: Er þetta virkilega jrað snjallasta sem okkur gat dottið í hug?“

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.