Dagur - 04.11.2000, Page 23
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 - 23 W /f J k) J LAiJ D J jJ U J
FINA OG FRÆGA
Drew Barrymore hefur sannarlega
átt stormasama ævi en er nú nýgift
og segist hafa fundið hamingjuna.
Drew
finnur
hamingjuna
Drew Barrymore giftist á
dögunum unnusta sínum
gamanleikaranum Tom
Green. Drew hefur sannar-
lega marga fjöruna sopið
þótt hún sé einungis tuttugu
og fimm ára. Hún kom fyrst
fram í auglýsingum ellefu
mánaða gömul, varð stjarna
sex ára fyrir leik sinn í ET og
fallin stjarna níu ára. Hún
varð fyrir einelti í skóla og
var hyrjuð að reykja sígarett-
ur, drekka og neyta eiturlyfja
þegar hún var tíu ára. Þrett-
án ára fór hún í afvötnun og
ári síðar reyndi hún að fyrir-
fara sér. Tvítug hirtust nekt-
armyndir af henni í Playboy
og hún olli skömmu síðar
miklu fári þegar hún dansaði
nektardans í næturklúbbi í
New York. Sannarlega svipt-
ingasamt líf en Drew segist
alla ævi hafa verið í leit að
öryggi seni hún hafi loks
fundið þegar hún kynntist
eiginmanni sínum.
Leiktu þér
ð Krakkavef
Vísis.is
visir.is
Notaðu vísifingurinn!
FII\IA QG FRÆGA FQLKIÐ
Mulligan
látinn
Leikarinn Richard Mulligan lést fyrir skömmu 67
ára gamall af völdum krabbameins sem hann
hafði barist við í sex ár. Hann ávann sér miklar
vinsældir á sínum tíma fyrir leik sinn í sjónvarps-
þáttaröðinni Löðri (Soap) sem sýnd var hér í
sjónvarpi á árum áður. Síðustu árin lék Mulligan
í vinsælum sjónvarpsþáttum Empty Nest.
Mulligan var fráskilinn og átti einn son.
Tveimur vikunr fyrir dauða sinn hætti hann að
taka lyf sín. Talið er að hann hefði getað lifað
þremur mánuðum lengur með lyfjagjöf en hann
sá enga ástæðu til að framlengja líf sitt. I erfða-
skrá sinni sýndi hann ættingjum og vinum mikla
rausn og ráðskona hans mun ekki þurfa að vinna
meir það sem hún á eftir ólifað svo vel var fyrir
henni séð.
Leikarinn Richard Mulligan sem íslenskir sjónvarpsá-
horfendur muna eftir úr þáttunum Löðri er látinn úr
krabbameini.
BARNAHORIUIO
Lovísa
Ijósálfur
Þótt þessar tvær myndir af Lovísu ljósálfi
virðist í fljótu bragði eins þá eru þær þó frá-
brugðnar í minnst fimm atriðum. Getur þú
ekki fundið þessi atriði og svo er náttúrulega
tilvalið að lita myndirnar á eftir!
—.
d§2 ^
Að finna
hunangið
STJORNUSPA
%
Bjössi skógarbjörn er að leita að hunanginu sem
honum finnst svo óskaplega gott. Hann á þó í vand-
ræðum með að finna réttu leiðina. Getur þú ekki
hjálpað honum?
Brandarar
Egill: „Vissirðu að hundurinn þinn beit Karlremba við mágkonu sína: „Allt sem kon-
tengdamóður rnína í gær?“ an mín segir við mig fer inn um annað eyrað á
Tóti: „ Nei, ætlarðu í mál við mig?“ mér og út um hitt."
Egill: „Alls ekki. A hvað selurðu hundinn?" Mágkonan: „A hverju ætti það svo sem að
stoppa"
Vatnsberinn
Þú færð grænt Ijós
á frekari fram-
kvæmdir í gróður-
húsinu, að undan-
gengnu umhverfis-
mati vegna hugs-
anlegra gróður-
hússáhrifa.
Fiskarnir
Þú hittir prest sem
er vanur aó tala á
milli hjóna. Bentu
honum á einhvern
sem er iaginn við
að tala á milli
presta. Oft var þörf
en nú er nauðsyn.
Hrúturinn
Þú rekst á fram-
haldsskólakennara
sem er ánægður
með kjör sín.
Hættu strax að
drekka!
Nautið
Skelltu vetrar-
dekkjunum undir
og farðu sjálfur á
mannbroddana.
Allur er ísvarinn
góður.
Tvíburarnir
Þú telur þig sjá
tannlækni á
grænni grein. Með
tilliti til tekna og
staðsetningar er
líklegt að um sé
að ræða apa.
Krabbinn
Endursýning á
gömlum skemmti-
þætti I sjónvarp-
inu veldur upp-
lausn í fjölskyld-
unni. Það er leið-
inlegt.
Ljónið
Þú færð leyfi til að
fara út með strák-
unum í kvöld. Þú
kýst heldur að
fara í óleyfi með
stelpunum.
Meyjan
Ólympískir hnefa-
leikar koma þér í
koll. Notaðu koll-
inn í eitthvað
þarfara.
Vogin
Úrsögn þín úr
Harmonikufélag-
inu verður ekki
tekin til greina
nema þú greiðir
árgjaldið fyrir s.l.
63 ár.
Sporðdrekinn
Margt skýrist á
skyggnilýsingar-
fundinum. Mundu
að taka kvittun
vegna vasksins.
Bogamaðurinn
Haltu að þér
höndum. í það
minnsta á írska
þjóðdansanám-
skeiðinu.
Steingeitin
Ástin og aðrar
plágur eru að
plaga þig þessa
dagana en það
iagast liklega áður
en yfir lýkur.