Dagur - 04.11.2000, Qupperneq 2
26 -LAUGARDAGUR 4 . NÓVEMBER 2 000
D^ur
FRÉTTIR
Foreldrar verða að
vita um vandamálin
Frelsi bama til
ákvarðanatöku getur
verið dýru verði keypt
þegar vandamál líkt
og ótímabær þunguu
er aiuiars vegar.
ÓfuUnægjandi löggjöf
um réttindi og skyld-
ur 16-18 ára.
Skiptar skoðanir eru um það
álit umboðsmanns barna að
Iæknar megi ávísa á „pilluna"
fyrir 14 ára og eldri án sam-
þykkis foreldra þeirra og fram-
kvæma fóstureyðingu hjá 16-18
ára án þess að foreldrarnir hafi
rétt á að fá vitneskju um málið.
Lögfræðingur Barnaverndar-
stofu, segir að skýrari lagaá-
kvæði þurfi um þessi atriði.
Ekki virðist sem tekið hafi verið
tillit til nauðsynlegra þátta í
lögunum um hækkun sjálfræð-
isaldurs.
Hrefna Friðriksdóttir, lög-
fræðingur á Barnaverndarstofu,
segir að gera verði greinarmun
á réttarstöðu barna undir 16
ára annars vegar og 16-18 hins
vegar. Við lagabreytinguna
um hækkun sjálfræðisaldurs
vanti í raun sérreglur um
réttarstöðu 16-18 ára. Það
lagaumhverfið sé ekki full-
nægjandi.
Staðfesting á vanda
Hvað yngri hópinn varðar telur
Hrefna að ýmsar Ieiðir komi til
greina þegar börn lenda í vand-
ræðum. Hún telur réttast að
ráðgjafar megi tala við þann
hóp án samþykkis foreldranna
en síðar beri að Iáta forráða-
menn vita. „Það hlýtur að fel-
ast í rétti foreldra til að ráða
persónulegum högum barn-
anna sinna, að fá vitneskju um
það ef börnin eru f vanda. Við
hækkuðum sjálfræðisaldurinn
sem dæmi til að foreldrar
fengju að vita af slælegri mæt-
ingu barnanna sinna í fram-
haldsskólum," segir Hrefna og
telur að mörgu leyti að sama
eigi við um neyðargetnaðar-
vamir og skylda hluti. Þá sé
enda komin staðfesting á því
að barnið hafi Iifað óábyrgu
kynlífi sem þýði að eitthvað sé að.
Erfitt mat
Lögfræðingurinn segir að ef
barn Ieitar til Barnaverndar-
um eða öðrum hastarlegum
aðgerðum, sé það ráðgjafans
að láta barnaverndaryfirvöld
vita. „Mér finnst mjög erfitt
að hugsa mér að til sé ótölu-
legur fjöldi sérfræðinga út
um allan bæ sem á að vega
og meta hvort sambönd for-
eldra og barna séu nógu góð,
hvort foreldrar geti axlað
ábyrgðina á uppeldinu.
Barnaverndaryfirvöld eru í
raun einu aðilarnir sem hafa
lagaheimildir til afskipta af
sambandi foreldra og barna.“
Skýtur skökku við
Hrefna segir aðspurð að í
raun skjóti það skökku við í
allri umræðunni um mikil-
vægi tjölskyldunnar að
ábyrgðin sé tekin af foreldr-
unum. Hún telur ekki rétt að
börn eigi að bera ábyrgð á
fóstúreyðingum eða óska
neyðargetnaðarvarna. Tvær
hliðar séu á því að tala um
„réttindi“ barnanna í þessum
efnum. En telur llrefna að
umboðsmaður barna sé bein-
línis að ýta undir Iögbrot með
áliti sínu? „Nei, það vil ég ekki
segja. Kannski telur umboðs-
maður að þessi regla stangist á
við mannréttindasáttmála." BÞ
Hrefna Friðriksdóttir lögmaður: Foreidrar eiga
rétt á upplýsingum um vandamái barna undir
16 ára.
stofu sé það stefna stofnunar-
innar að upplýsa foreldrana. Ef
viðbrögðin hjá barninu við
þeirn upplýsingum markist af
ótta við barsmíðar frá foreldr-
Friðrik Skúlason.
Rifist uni
matsmenn
Að uppástungu Sigríðar Olafs-
dóttur héraðsdómara verða þeir
Helgi Þorbergsson, dósent við
tölvunarfræðiskor Háskólans, og
Ögmundur Helgason, forstöðu-
maður handritadeildar Lands-
bókasafnsins, dómkvaddir mats-
menn í máli Genealogia Islandor-
um ehf. (Gen.is) og Þorsteins
Jónssonar ættfræðings gegn ís-
lenskri erfðagreiningu (IE) og
Friðrik Skúlasyni ættfræðingi.
Valið verður þó ekki afgreitt
fyrr en í fyrsta lagi 13. nóvember,
því hinir stefndu tóku sér um-
hugsunarfrest, á meðan stefn-
endur samþykktu tilnefningu
dómarans. í málinu krefja stefn-
endur hina stefndu um samtals
615 milljónir króna vegna afnota
ÍE og Friðriks á ættfræðigögnum
sem stefnendur segjast eiga rétt
að. Mikið hefur verið þrefað um
hverjir geti talist óvilhallir mats-
menn, allt frá því að málið var
dómtekið sl. vor. - FÞG
íslenski fáninn
í sal Alþintfis?
Guðmundur Hallvarðsson telur við hæfi að alþingismenn geti notið návis-
tar íslenska fánans í stöfum þeirra á þinginu.
Guöimmdur Hall
varðsson leggur til að
íslenski fáninn verði
settur upp til hliðar
við stól forseta Al-
þingis. Hann segir
koma til greina að
setja íslenska skjald-
armerkið framan á
ræðustól þingmanna.
„Hugmyndin vaknaði eitt sinn á
dögunum þegar ég var að horfa
á fréttir CNN sjónvarpsins. Þá
var sýnt frá þingfundi einhvers
þjóðþings og þar blasti þjóðfáni
viðkomandi lands við til hliðar
við stól forseta þingsins. Baun-
ar var skjaldarmerki viðkomandi
Iands Iíka komið fyrir þarna. Eg
bar þetta svo saman við það
sem blasir við á skjánum þegar
sjónvarpað er frá Alþingi. Það
er ansi fátæklegt miðað við það
þegar þjóðfáninn og skjaldar-
merkið eru uppi,“ segir Guð-
mundur HaJIvarðsson alþingis-
maður.
Hann hefur lagt fram tillögu
til þingsályktunar um að ís-
lenski fáninn skuli vera uppi í
sal Alþingis, við hliðina á stól
forseta þingsins og þá til hægri
handar við forseta. I fánalögun-
um segir að þar sem íslenska
fánanum sé stillt upp við ræðu-
stól skuli hann vera vinstra
megin séð frá þeim sem í sal
sitja.
Skjaldarmerkið
Guðmundur bendir líka á þær
deilur sem verið hafa hér á Iandi
um hvort taka eigi niður skjaldar-
merki Kristjáns VIIII af Alþingis-
húsinu og setja íslenska skjaldar-
merkið í staðinn. Menn hafa
stungið upp á að sctja íslenska
merkið á húsið eða við húsið en
húsfriðunarnefnd og fleiri staðið
gegn því. Þess vegna segir Guð-
mundir að vel komi lil greina að
koma íslenska skjaldarmerkinu
fyrir framan á ræðustól Alþing-
is.
„Þar eru gjarnan sett blóm en
að mínum dómi færi betur að á
því að þar væri skjaldarmerki ís-
lands,“ segir Guðmundur Hall-
varðsson.
í greinargerð með þingsálykt-
unartillögu sinni segist Guð-'
mundur taka undir með Olafi
Ragnari Grímssyni, forseta Is-
lands, að hugleiða eigi þær
breytingar á þingsköpum sem
opnuðu leiðir til að bjóða er-
Iendum þjóðhöfðingjum að
ávarpa Alþingi. Sú skipan gæti
gert heimsókn í Alþingi að há-
punkti íslandsdvalar. En síðan
segir í greinargerðinni:
„En hvernig má það vera að
að innan veggja Alþingis, hvar
rætt er um eflingu, vegsemd og
gildi þingsins sjálfs, skuli þjóð-
fáni vor ckki hafinn til vegs og
virðingar? -S.RÓR
Vantar 60% fleiri tæknifræðmga
Stjórnendur iðnfyrirtækja telja sig þurfa 30% fleiri tæknifræðinga til
starfa næsta árið og 60% Ileiri en þeir hafa nú innan 5 ára. Þetta var
niðurstaðan úr könnun sem Samtök iðníyrirtækja gerði nýverið meðal
35 iðnfyrirtækja, sem Verktækni, blaði verk- og tæknifræðinga, segir frá.
„Þessar niðurstöður ættu að vera góð hvatning fýrir þá sem nú leggja
stund á tæknifræðinám eða hyggja á slíkt," segir Jóhannes Benedikts-
son formaðurTFÍ.
Stjórn Tæknifræðingafélags fslands hefur nú til skoðunar hugmynd-
ir skólanefndar Tækniskóla Islands er varða stúdenta af eðlilsfræði- og
stærðfræðibraut. Þær hugmyndir gera ráð fyrir að krafist verði 24 vikna
starfsreysnlu fyrir upphaf náms og að nemendur verði sfðan að starfa í
aðrar 24 vikur hjá viðurkenndum fyrirtækjum á meðan á námi stendur,
þar sem sérstök dagbók verði haldin. „Með þessurn breytingum er ver-
ið að aðlaga námið nær því sem gerist í Danmörku," segir Jóhannes
Benediktsson formaður TFl í Verktækni. -HEI
Ekkert heitt vatn að Reykjum
Ekkert heitt vatn fannst við borun á Revkjatanga í Hrútafirði, en bor-
unin var framkvæmd nýverið. Kostnaður sveitarlélagsins Húnaþings
vestra vegna borunarinnar nam um 4,5 milljónum króna.
Borinn er nú í Skagafirði en kemur aftur á svipaðar slóðir innan
tíðar. Jarðfræðingar telja að þarna sé finnanlegt nægilegt magn heits
vatns og því verður borað al’tur í nágrenni þeirrar holu sem ekkert gaf
af sér, og þá um 1 50 metra niður. Astæða þess að ekkert vatn fannst
við fyrri tilraun var að erfiðlega gekk að finna vatnsæðina. GG
Athugasemd
í Degi í dag, 3. nóvember 2000, segir Gunnar Ö.
Gunnarsson framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar um
rannsóknirnar sem kveðið er á um í úrskurði
skipulagsstjóra: ,,Ef uppfylla ætti skilyrði skipu-
lagsstjóra skv. túlkun Gísla Más Gíslasonar, þá
myndum við bara loka strax“. Vegna þessara um-
mæla vil ég taka fram að ekki hefur verið gerð nein
rannsóknaráætlun vegna þessa atriðis f úrskurði
Skipulagsstjóra og ég hef aldrei tjáð mig við Gunn-
ar O. eða aðra um hvað þurfi að gera eða koslnað því samíara. Aft-
ur á móti er brýnt að gera rannsóknar- og vöktunaráætlun og verð-
ur hún unnin af Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn og Nátt-
úruvernd ríkisins í samvinnu við stjórnendur Kfsiliðjunnar.
GÍSLI MÁR GÍSLASON
Gísli Már
Gíslason.