Dagur - 04.11.2000, Blaðsíða 11

Dagur - 04.11.2000, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 20 0 0 - 35 Vgpir. ERLENDAR George W. Bush á frambodsfundi í Michigan. Framaii í hvern spring- nr kosningahomban? Fréttin um að George W. Bush hafi verið tekinn drukkinn undir stýri, sektaður um 150 dollara og misst ökuréttindin í mánuð kom eins og sprengja inn í bandarfsk stjómmál í gær, þegar aðeins eru fjórir dagar til kosninga. En hvort fréttin er aðeins reyksprengja, sem engin áhrif hefur á kjósendur treystu fréttaskýrendur vestra sér eldd til að spá um í gær. Það var í septembermánuði 1976, sem Bush var handtekinn og kærður, hann var þá 30 ára, en cr nú 54 ára gamall. Hann hefur fyrir löngu viðurkennt opinher- Iega að hafa átt við áfengisvanda- mál að stríða á yngri árum, en hafi steinhætt fyrir 14 árum síðan og hafi ckki smakkað dropa af alkó- hóli. Hins vegar hafi hann leynt handtöku og sekt fyrir að aka drukkinn vegna dætra sinna, sem hann vill ekki gefa slæmt for- dæmi. Þegar í stað fór fréttafólk vestra að rifja upp ölvunarakstur Dicks Cheney varaforsetasefnis Bush, en hann var tvisvar tekinn og dæmur lyrir að aka drukkinn. Það var á sjöunda áratugnum þegar hann var rúmlega tvítugur að aldri. En þau glöp sín játaði hann þegar hann tók við embætti varn- armálaráðherra í stjórn Bush eldraárið 1989. Bust var á kosningaferðalagi í Michigan þegvar ölvunarakstur hans komst í hámæli. Þar ætlaði hann að halda fund með Colin Powell, f)Trum hershöfðinja ogyf- irmanns herráðsins f Pentagon. Hann er tíðum nefndur sem ut- anríkisráðherraefni ef Bush nær kosningu á þriðjudaginn. I gær hélt Bush naumu for- skoti sinu yfir Gore og rnunaði 3- 4 prósentustigum. Michigan er ÖlvunaríLkstur Bush forsetaframbj óðanda fyrir 14 ánun getur haft áhrif á hver verð- ur valdamesti maður heims á næsta ári meðal þeirra ríkja þar sem mjög er nauml á munum með þeim for- setaframhjóðendum og leggja þeir nú báðir mikla áherslu á að laða að sér atkvæði í þeim fylkjum. Talsmenn Bush hafa látið að því Iiggja, að Gore varaforseti og hans lið hafi kornið gamla drykkjudómnum yfir Bush á framfæri við fjölmiðla rétt fyrir kosningar til að sverta mótfram- bjóðandann. Gore harðneitar þeim áhurði og segir af og frá að hann eigi neina sök á því að nú vita allir að frambjóðandi re- búblikana er dæmdur drykkjurút- ur. Hins vegar er því lætt út að fyrst Bush hafi leynt Iramferði sínu og að hann sé dæmdur maður, þá kunni hann að leyna ýmsu öðru misjöfnu. Nú þarf hann að svara hvort hann hafi verið eiturfíkill og sitthvað fleira. En talsmenn Repúblíkanaflokksins telja að óheppilegar afleiðingar bjór- þambs fvTÍr 14 árum séu lítið mál, miðað við syndaregistur Clintons, sem engu tapar af trausti né vin- sældum fýrir breyskleika sinn. Eftir á að koma í Ijós hvort kosningabomban um ölvun- arakstur Bush hafi áhrif á fylgi frambjóðendanna eða ekki og þá hver. Ef Bush missir trúverðug- leika sinn sem þjóðarleiðtogi vegna þessa getur það skipt sköp- um. En allt eins getur sprengjan sprungið framan í demókrata ef sá skilningur verður Iagður í stóru bombuna, að hún sé búin til í þeirra herbúðum og sé óheiðar- legur rógur um andstæðinginn. Svo getur allt eins verið að drykkjulæti lýrir 14 árum hafi ekki minntu áhrif á bandaríska kjósendur, sem velja sér nýjan forseta á þriðjudaginn kemur. OÓ Tveir drepnir þrátt fyrir vopnahlé J ERUSALEM - Tveir Palestínumenn létu lffið í átökum við ísraelska her- menn í gær, þrátt fyrir að í gildi væru vopna- hléssamningar um að enda hin blóðugu átök síðusu fimm vikna. Þykja þessi manndráp draga fram á hversu veikum grunni vopnahléið stend- ur. Grjótkast og mótmæli gusu upp á tjölmörgum stöðum á Vestubakkan- um og á Gazasvæðinu og að sögn talsmanna ísraelska hersins hafði herinn skipst á skotum við palestínska byssumenn á einum þremur stöðum. Engu að síð- ur þóttust menn sjá að ofbeldið væri ekki eins mikið og ekki eins heiftúðugt og það var áður en vopnahléssamningar voru undirrit- aðir fyrr í vikunni og báðir deiluaðilar segjast ætla að halda sig við skilmála þess. I gær var það jafnframt viðurkennt af hálfu Israels- manna að palestínsk stjórnvöld væru í raun og veru að reyna að lægja öldurnar hjá sínu fólki og draga úr ofbeldi. „Vissulega er enn eitthvað um skothríð og átök, en ég veit að í gangi eru raunveru- legar tilraunir af hálfu forustumanna Palestínumanna til að róa sitt fólk,“ sagðir Ehud Barak forsætisráðherra Isreael í gær. Rétta í síðasta Berlínarmúrsdrápinu BERLIN - Fyrrum austur -þýskur yfirmaður í landamæragæslu Austur þýska alþýðulýðveldisins var í gær ákærður í réttarsal fyrir að hafa borið ábyrgð á síðasta manndrápinu sem varð við Berlín- armúrinn þegar Chris nokkur Gueffroy var skotinn þegar hann var að reyna að flýja til Vestur- Berlínar. Atvikið varð níu mánuðum áður en múrinn féll. Landamæravörðurinn sem heitir Ronald Fabian og er 43 ára er ákærður fyrir að hafa hvatt til manndráps með því að fyrirskipa öðum landamæravörðum að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að koma í veg fyrir að fólki tækist að flýja yfir landamærin og jafnvel skjóta það til dauða ef nauðsyn krefði. Flugmaunsmistök TAIPEI - Singapore Airlines, flugfélagið sem átti 747-400 þot- una sem fórst í flugtaki á flugvellinum í Taipai í Taiwan í vikunni til- kynnti í gær að það hafi verið flugmanns- mistök sem hafi valdið því að vélin fórst. I slysinu létust 81 manns þegar ('lugvélin Frá vettvangi flugslyssins. fór inn á llugbaut sem lokað hafði verið vegna viðgerða. „Þetta voru okkar flugmenn á okkar flugvél, en þeir áttu ekki að vera á þessari flugbraut," var í gær haft eftir forstjóra flug- félagsins. ■ FRÁ DEGI TIL DAGS LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 309. dagur ársins, 57 dagar eftir. Sólris kl. 9.21, sólarlag kl. 17.00. Þau fæddust 4. nóvember • 1 593 Jón Ólafsson Indíafari. • 1873 George Edward Moore, breskur heimspekingur. • 1879 Will Rogers, bandarískur gaman- leikari. • 1899 Jóhannes Bjarni Jónasson skáld úr Kötlum. • 1908 Joscph Rothlat, pólskur eðlisfræð- ingur sem hefur verið í fararbroddi þeir- ra sem gagnrýnt hafa notkun kjarnorku. • 1916 Walter Cronkite, bandarískur fréttamaður. • 191 8 Art Carney, bandarískur leikari. • 1946 Robert Mapplethorpe, bandarísk- ur Ijósmyndari. • 1957 Karl Ágúst Úlfsson leikari. Þettagerðist 4. nóvember • I 897 fórust Ijórir bátar í olsaveðri á ísa- fjarðardjúpi og cinn á Skjálfanda. • 1922 fannst grafhýsi egypska faraósins Tut Ank Amons í Egyptalandi. • 1969 slösuðust sautján farþegar þcgar árekstur varð milli tveggja strætisvagna á Skúlagötu í Reykjavík. • 1970 var Pétur II. Júgóslavíukonungur jarðsettur í Bandaríkjunum, en hann flúði þangað í útlegð árið 1944. • 1979 réðust ungir fylgismenn Ayatollah Khomeinis erkilderks í Iran inn í sendi- ráð Bandaríkjanna í Teheran, tóku níu- tíu gísla og héldu rúmlega helmingi þeirra í gíslingu í alls 444 daga. • 1995 var Jitsak Rabin, forsætisráðherra Israels, myrtur á torgi í Tel Avív. Vísa dagsins Gleðisjóinn fer ég geyst, þó gutli sorg und kili. Vonina læt ég Ijúga að mér og lifi d'h'enni t bili. Thcodóra Thoroddscn Afmælisbam dagsins Joseph Rotblat hefur um áratuga skeið verið einn ötulasti gagnrýnandi kjarn- orkuvopna, og hlaut fyrir vikið friðar- verðlaun Nóbels árið 1995. Sjálfur er hann eðlisfræðingur og starfaði um skeið við srníði fyrstu kjarnorkusprengj- unnar í Los Alamos í Bandaríkjunum, en hætti þar eftir að hann f’ékk fullvissu lýrir því að Þjóðverjar yrðu ekki færir um að búa til kjarnorkusprengju. Rot- blat fæddist árið 1908 í Varsjá, sem þá tilhcyrði rússneska heimsveldinu en til- heyrir nú Póllandi. Heiðarlegur bölsýnismaður hel’ur alltaf komið mannkyninu lengra áleiðis en bjart- sýnismaðurinn. Ingcr Hagerup Heilabrot Spurt er um sex stafa nafnorð, sem merk- ir nokkurn veginn það sama og óreiða, en hægt er að skrifa þetta orð með því að nota eingöngu þá stafi sem eru í miðröð- inni á íslensku lyklaborði. Lausn á síðustu gátu: Þetta dýr er vita- skuld maður, sem skriður á fjórum fótum í byrjun ævinnar, gengur síðan jafnan á tveimur fótum, en styðst oft við staf í ell- inni. Veffang dagsins Bali nefnist fögur eyja sem tilheyrir lndónesíu. Þegar íbúarnir þar eru spurðir hvernig himnaríki lítur út, þá svara þeir gjarnan að þar hljóti IJest að vera alveg eins og á Bali, að undanskildum áhyggjum hversdagslífsins. Menningarhefðir þar eru sterkar og sérstakar, eins og lesa má um á uninv.indo.com/cnliure/cultttre.html

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.