Dagur - 15.11.2000, Blaðsíða 7

Dagur - 15.11.2000, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 - 7 J^MT. ÞJÓÐMÁL Uppgjöf stjómmála? / verkfallinu er miklum verdmætum kastað á glæ fyrir fjölda ungmenna. Samt er eins og fólk haldi að þessi staða sé bara eins og í gamla daga þegar sjávarþorpin gáfu ungmennum frí til að „bjarga verðmætum" og sendu þau í fisk, nema nú heitir menntakreppan „góðæri". Skólameistarar furða sig á tómlæti landsmanna yfir því að framhaldsskólun- um hefur verið lokað. Nokkuð til í jwí. Kaemi verkfallið í veg fyrir að mjólk bærist í búðir eða bíleigendur fylltu tankana væri hér allt á suðu- punkti. En þetta eru nú bara framhaldsskólarnir og lokun þeirra hefur eng- in áhrif á eðlilegt þjóðlíf. Haustöim fyrir bí? Semjist ekki á næstu dögum má telja haustönn ónýta. Þar er miklum verðmæt- um kastað á glæ fyrir fjölda ungmenna. Samt er eins og fólk haldi að þessi staða sé bara eins og í gamla daga þegar sjávar- þorpin gáfu ungmennum frí til að „bjarga verðmætum'* og sendu þau í fisk. Nema nú sjá Pólverjar um þá hlið mála, en ung- lingarnir komnir í verkfallsstörf hér og þar sem „vinnumarkaðurinn" var ekki seinn á sér að bjóða þeim. Góðærið er alveg að sprengja okkur. Þenslan kallar á hverja vinnandi hönd. Og við lokum skólum. Iinynduin okknr... ...að hér væri efnahagslægð eða kreppa. Ríkisstjóður aðþrengdur og búið að þjar- ma rækilega að almennum launamönnum til að bjarga þjóðarskútunni. Verkfall framhaldsskólakennara óvænt og óviðráð- anleg uppákoma. Þá væri hægt að skilja að kannski þyrfti að fara í svona óefni. En nú horfa mál allt öðru vísi við. Þessi menntakreppa var löngu fyrirséð. Hún er sú fjórða sinnar tegundar á rúmum ára- tug. Og liingu ljóst að samningsstaðan á þessu hausti yrði einmitt eins og hún er. Uppskriftin af verkfallinu var í síðustu samningum. Ög þeim mun lleiri óveðurs- ský á hirnni þegar í samningum á vinnu- markaði fyrir skömmu var sett sú regla að erfitt yrði fyrir ríkið að semja um frávik frá almennum hækkunum. Handan við horn eru grunnskólakennarar með Iausa samninga í kjölfar þeirra sem nú eru í verkfalli. Eftir skammirnar um eyðslu- semi sveitarfélaga getur ríkið tæpast samið við sitt fólk án þess að gefa tóninn um það sem aðrir geta vænst. Allt þetta er í samhengi sem ríkið á mjög erfitt með að afneita: launaskrið hjá opinberum starfsmönnum hefur verið mun meira en á almennum markaði að undanförnu, og rausnarskapur þeirra sem úrskurða laun handa æðstu embættismönnum verið einkar athyglisverður fyrir þá sem á eftir koma. Það er von að framhalds- skólaskennarar segi: Nú eða aldrei. Um hvað er tekist? Hverjar eru kaupkröfur kennara í raun? 300 þúsund, eða 3S0 þúsund á rnánuði miðað við sama vinnuframlag og nú? 380 þúsund? Samanburður við kjör háskóla- fólks hjá ríki og á einkamarkaði er ekki al- veg jafneinhlítur og opinberir starfsmenn láta í veðri vaka: Svo vill til að flestir sem hafa 240-300 þúsund í heildartekjur hjá einkafyrirtækjum verða að hafa mikið fyrir þeim, og Iífeyriskjör þeirra og réttindi eru oft miklu lakari en væru þeir hjá ríkinu. Umræðuþættir og sundurlaus viðtöl í Ijölmiðlum hjálpa ekki mikið. Jú: Grunn- laun eru lág. Kröfur um sæmileg grunn- laun hljóta því að mælast háar í prósent- um. A móti er því spilað að meðaltekjur framhaldsskólakennara séu alls ekki afleit- ar: 240 þúsund á mánuði. Og þá er svarað á móti: „miðað við mikla vinnu." Þótt auðvclt sé að láta í Ijós samúð mcð háskólamenntuðu fólki sem hefur rúmlega 100 þúsund á mánuði í grunnlaun, er ekki sagan fullsögð með því. Hvað vill það fá í tekjur miðað við svipaða hópa og svipaða vinnu? Stóra samhengið Mitt í þessu karpi í viðkvæmri stöðu grillir sjaldnast í stóra samhengið: Löngu er Ijóst að launastefna ríkisins gagnvart framhalds- skólakennurum stenst ekki. Ekki vegna þess að menn treysti sér ckki til að berja þá enn einu sinni niður í sama hundfúla skapið og venjulega með hörku í samning- um. Heldur vegna þess að gera verður miklu meiri kröfur til framhaldsskólanna um gæði og árangur í starfi en nú er. 16- 20 ára ungmenni eru á mikilvægum mót- unartíma sem ræður miklu um framtíð þeirra, og samfélagsins í heild. Mennta- skútan missir þriðja hvern háseta fyrir borð á siglingu. Þriðjungur nemanda fer úr námi án þess að ljúka lokaprófí. Þetta er afleitur árangur og varasamur fyrir okk- ur sem þjóð. A þessum mótunarárum þeg- ar stórar ákvarðanir eru teknar sem varða framtíð hvers ungmennis er góður kenn- ari, lærifaðir, móðir og meistari það besta sem hægt er að færa þessu unga fólki. Þeir vita sem kynnst hafa að góður kennari fylgir manni alla ævi. Þess vegna á að gera vel við kennara. Þess vegna á líka að gera ítrustu kröfur til kennara. Lélegur kennari spillir. Verk- fallsmenn verða að koma til móts við breytta tíma og þarfir, sýna sveigjanleika og færni til að tilcinka sér vinnubrögð sem halda hásetunum til sjós en ekki í honum. Kennarar eru ekkert píslarvætti í þessari deilu. Hvers vegna í veröldinni er það ósvinna að tengja bætt laun við betri ár- angur skólans í heild? Verkfall sem lokar menntastofnunum er túlkun á bágu samfélagsástandi. Það er uppgjöf. Uppgjöf þeirra sem eiga að vcra menn til að hefja sig ofar kringumstæðum hverju sinni, en láta ekki hrekjast fyrir þeim. Stjórnvöld okkar hafa brugðist í því efni. Það versta við þráteflið sem nú er uppi er samt því miður ekki verkfallið sjálft. Heldur líkindin á því að sú lausn sem á endanum fæst verði bara ávísun á frekri vandræði. Því er það að þeir sem hafa skipað sér til forystu í landsmálum rísa úr rekkju sigraðir menn hvern einasta dag sem þessi kreppa skólans heldur áfram. UMBUÐA- LAUST Stefán Jón Hafstein skrifar Bætt staða námsmanna BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON varaþingmadur og framkvæmdastjóri Samfyikingarinnar, SKRIFAR Skólamálin eru mjög svo í brennidcplinum þessa dagana. Ríkisstjórnin er að keyra kennara í verkfall með því að draga það að koma að samningaborðinu til að ræða eðlilegar kröl’ur þeirra um hækkun grunnlauna. Kennarar eru illa launaðir og bitnar það harkalega á skólakerfinu íslenska sem dregst jafnt og þétt aftur úr skólum þeirra landa sem við einatt herum okkur saman við. Húsaleigubætur skerða námslán Mörgu öðru er einhig árátt sem lítur að menntamálum Víða eru brotalamir í aðbúnaði náms- manna og lagði undirritaður í félagi við nokkra þingmenn Samfylkingarinnar fram þingsá- lyktun þar sem lagt er til að rík- isstjórninni sé falið að bæta stöðu námsmanna. Meðal að- gerða sem skoða skal sérstak- lega eru hækkun á grunnfram- færslu LÍN, afnám skattlagn- ingar á húsaleigubætur, að húsaleigubætur skerði ekki námslán og barnabætur og að hámark húsaleigubóta verði hækkað. Á meðan skattlagning á húsaleigubætur hefur ekki verið afnumin verði því jafn- framt beint til stjórnar LIN að bæturnar skerði ekki námslán. Einnig þarf að trvggja að bygg- ingaraðilar lélagslegs húsnæðis, á borð við Félagsstofnun stúd- enta, þurfi ekki að Ijármagna uppbyggingu félagslegs hús- „Núverandi ástand mismunar fólki eftir efnahag og búsetu og viö þaö veröur ekki unað. Framfærslu- grunnur námslána er úreltur og endur- speglar ekki raun- verulega þörf náms- manna til fram- færslu.“ næðis fyrir námSmenn með lán- tökum á almennum markaði. Öflug uppbygging námsmaunaíbúða Stúdentar hafa oft lýst áhyggj- um af því að leiga á stúdenta- görðum hækki vegna aukins ljár- mögnunarkostnaðar. Það er því mikilvægt að eigið fé Félags- stofnunar stúdenta til uppbygg- ingar bvggi ekki á lántöku á al- mennum markaði. EI Félags- stofnun þarf að leita fjármögnun- arleiða með lántöku á almennum markaðsvöxtum mun það óhjá- kvæmilega leiða lil verulegrar hækkunar á húsaleigu á stúd- entagörðum. Oflugir stúdenta- garðar og uppbygging náms- mannaíbúða eru ein af forsend- um þess að allir hafi jafnan að- gang að námi. Landsbyggðarfólk, fjölskyldufólk og fólk sem býr við bágan fjárhag eiga æ erfiðara með að stunda nám vegna hækk- andi framfærslukostnaðar og námslána sem endurspegla ekki ra u n ve r u 1 ega fra m fæ rsl uþö rf námsmanna. Námslán dugi til framfærslu Flutningsmenn tilllögunnar telja brýnt að tekið sé á þessum málum hið fyrsta til að tryggja jafnan aðgang allra að námi. Núverandi ástand mismunar fólki eftir efnahag og búsetu og við það verður ekki unað. Fram- færslugrunnur námslána er úr- eltur og endurspeglar ekki raun- verulega þörf námsmanna til framfærslu. Nauðsynlegt er að reglulega séu gerðar kannanir á framfærsluþörf námsmanna og námslán taki mið af því. Náms- lán sem duga til framfærslu námsmanna eru lykilatriði til að tryggja og koma á jafnrétti til náms.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.