Dagur - 15.11.2000, Blaðsíða 21

Dagur - 15.11.2000, Blaðsíða 21
Dagiur MIDVIKUDAGUR 1S. NÓVEMBER 2000 - 21 ^KuiynB^ÐiÐ LFI lrumsýnir Nitoudie Leikfélag Húsavikur sem fagnar 100 áxa afmæli á þessu ári framsýnir óperettuua Nitouche n.k. laugar- dagkl. 17.00. Nitouche er nokkuð klassísk óperetta í 3. þáttum og farsi í bland þar sem hlaðið er mis- skilningi á misskilning ofan og ekki er allt sem sýnist. Verkið er franskt að uppruna, eftir þá H. Milhac og A. Milland og það var Jakob Jóhannesson Smári sem þýddi það á sínum tíma, en það mun fyrst hafa verið sett upp hérlendis árið 1941. Verkið hefur löngum verið vinsælt á Islandi og mörg lög úr því þekkt og rnikið sung- in á sínum tínia. Ymsir minnast skemmtilegrar uppsetningar Leikfélags Akureyrar á Nitouche árið 1965. Og þess má geta að Danir kvikmynduðu Nitouche á sínum tíma og þá lék m.a. Dirch nokkur Passer stóra rullu. Það er Sigurður Hall- marssson sem leikstýrir að þessu sinni og reyndar einu sinni sem oftar hjá Leikfélagi Húsavíkur, en Aladár Racz annast tónlistarstjórn og tón- listarflutning á sýningunum. Með helstu hlutverk fara Anna Karin Jónsdóttir, sem fer með titilhlutverkiö, kornung og hráðefnileg Ieikkona sem ekki hefur áður leikið svo stórt hlut- verk, en margir minnast henn- ar fyrir góða frammistöðu með leikklúbbi framhaldsskólans á Húsavík. Þá eru þeir í burðar- hlutverkum Sigurður llluga- son, Þór Gíslason og Ari Páll Kristinsson, en einnig má nefna gamalreynda Ieikara á borð við Svavar Jónssoh og Hrefnu Jónsdóttur. LH er fjölskylduvænt leikhús og má m.a. geta þess að feðgarnir Gunnar Jóhannsson og synir hans Jóhann og Hilm- ir koma fram í sýningunni og Guðrún Kristín, systir Gunnars einnig. JS Kátar nunnur. Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Hrefna Jónsdóttir og Anna Karin. Þór Gíslason og Svavar Jónsson í hlutverkum sínum. Anna Karin Jónsdóttir í hlutverki Nitouche. Sigurður lllugason er auðsjáanlega kátur. Eina leiðin Forsetakosningar í Banda- ríkjunum eru í uppnámi og enginn veit hver lending verður í málinu. Og ekki er ástandið skárra á lslandi þar sem Framsóknarflokkurinn mælist með stöðugt minna fylgi í skoðanakönnunum og þar eru góð ráð líka dýr og fáar útgönguleiðir virðast færar framsókn. Aðalsteinn á Víðivöllum í Fnjóskadal var að velta þessum málum fyrir sér og datt reyndar niður á eftirfarandi leið sem hugsan- lega myndi auka fylgi frant- sóknar: íallvalt gengi framsóknar. Fengist aukinn kraftur, ú hæsta trón efhæfu þar Hríflu-Jónas aftur. Norðlensk naglasupa? Hinn ungi verkalýðsgúrú á Húsavík, Aðalsteinn Baldurs- son, varð fertugur á dögunum og var því fagnað með miklu teiti. I veislunni var matur að hætti gamalla holsa og boðið upp á mikla rússneska kjöt- súpu sem mun víðfræg í kommúnistaríkjum og byggir ekki síður á rauðrófum en kjetbitum. Einn af veislugest- um, Steingrímur J. Sigfússon, kvaðst vera á leið f Gunnars- staði daginn eftir þar sem hann ætlaði að ganga til rjúp- na. Og sagði að ekki hefði munað nema hársbreidd að rússneski sendiherrann hefði komið með sér norður og hefði hann þá að sjálfsögðu heiðrað Aðalstein með nær- veru sinni. Einhver viðstaddur taldi að það hefði verið fxóðlegt að fá sendiherrann í teitið, því hann hefði þá getað skoriö úr um það hvort þar hefði verið boðið upp á ekta rússneska kjötsúpu eða bara venjulega norðlenska naglasúpu að hætti þingeyskra allaballa. Gullnar töflur í leikskrá LH árið 1960 mátti lesa eftirfarandi aug- lýsingu: „Frá því segir í Völuspá, að Æsir vakna á Iðavclli sunnu- daginn eltir ragnarök þjáðir mjög af timburmönnum. En allt böl batnar, því að þar munu eftir undursamligar gullnar töflur i grnsi finnask, þærs í drdaga áttar höfðu. Hér mcrkir „gullnar" að þær hafi einungis kostað þyngd sína í gulli, því að töfl- ur þessar voru aspiríntöflur, sem Æsir höfðu keypt í H Ú S AVÍ KU RAPÓTE KI. “ Varla þarf að taka það fram að þegar þessi auglýsing birt- ist var lyfsali á Húsavík Helgi nokkur Hálfdanarson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.