Dagur - 12.12.2000, Síða 13
I
12- ÞRIÐJUDAGUR 1 2 . D E S E M II E R 2000
FRÉTTASKÝRING
Ur brunarúst í loðnuvmnslu
BBE GUÐMUNDUK
r RUNAR
HEIÐARS
SON
SKRIFAR
Tjón á aimaii milljarö
í bruna ísfélagsins.
Áfall fyrir Eyjar.
Uppbygging miðast
viö loðnuvertíð.
Eldsupptök ókunn.
Byrjað var í gær að kanna orsakir
þess að eldur kviknaði í Isfélagi
Vestmannaeyja sl. laugardags-
kvöld en þá um morguninn lauk
sökkvistarfi eftir 33 tíma törn.
Þótt rafmagn kunni að vera þar
einhver orsakavaldur er ekkert
útilokað í þeim efnum m.a.
fkveikja.
Sérfræðíngar frá Brunamála-
stofnun og Tryggingamiðstöðinni
könnuðu vegsummerki á bruna-
stað í gær auk rannsóknarlög-
reglumanna. Talið er að tjónið
geti numið hátt á annan milljarð
króna en engin slys urðu á fólki.
Þetta er einn mesti eldsvoði árs-
ins til þessa og er mikið áfall lyr-
ir atvinnulífið og afkomu fjölda
manns í Eyjum. Hins vegar var
lsfélagið vel tryggt hjá Trygginga-
miðstöðinni. A sameiginlegum
fundi forráðamanna ísfélagsins
með starfsfólki í gær kom fram að
margir munu fá vinnu við hreins-
un og þrif auk þess sem stefnt sé
að því að byggja fyrirtækið uppá
ný svo það geti að minnsta kosti
tekið þátt í næstu loðnuvertíð.
Úr hugvekju í víti
Agætis veður og Iogn var í Eyjum
þegar slökkviliðinu varst tilkynn-
ing um að eldur væri laus í Isfé-
laginu um klukkan 22 sl. laugar-
dagskvöld þegar flestir höfðu það
náðugt heima hjá sér. Nokkru
áður hefðu menn átt þar leið um
og orðið einskis varir.
Þegar kallið kom var Elías
Baldvinsson slökkviliðsstjóri
ásamt fleirum á Kiwanisfundi að
hlýða á jólahugvekju hjá sr. Báru
Friðriksdóttur. Hinn sóknarprest-
urinn var þá rétt ókominn til Eyja
frá Flórida. Guðný Oskarsdóttir
formaður Verkakvennafélagsins
Snótar sagðist hafa litið út um
glugga heima hjá sér þegar hún
heyrði í brunalúðrum. Þá hefði
hún séð svartan mökk stíga til
himins. Hún hefði þá strax haft á
orði að kviknað væri í Isfélaginu
en því hefði enginn trúað f fyrstu.
Siiniir grétu
Hún sagði að það hefði verið al-
veg hörmung að horfa á þetta og
nánast eins og verið væri að slíta
úr henni hjartað. Hún segir að
það hefði verið alveg rosalega
erfitt að horfa á vinnustaðinn
verða eldinum að bráð. Það hefði
líka haft mikil áhrif á aðra Eyja-
menn og sumir hefðu grátið þar
sem þeir horfðu á bálið á vett-
vangi. Hún sagði að flestir væru
búnir að komast yfir erfiðasta
hjallann og því reynir fólk að vera
jákvætt og styðja hvert annað.
Bitnar mest á konum
A annað hundrað manns þar sem
konur eru í meirihluta unnu hjá
fyrirtækinu sem er eitt stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins. A
sfðasta ári nam velta þess um 2,6
milljörðum króna en það gerir út
fjögur loðnuskip og tvö botnfisk-
vciðiskip og á um 6 þúsund tonna
þorskígildiskvóta. Þeir bjartsýn-
ustu í Eyjum binda vonir við að
hægt verði að hefja loðnuvinnslu
í fyrirtækinu þegar vertíð hefst í
byrjun næsta árs, en húsnæði
undir uppsjávarfiskvinnslu slapp
við eldinn að undanskildum reyk
og sóti. Hins vegar brann hús-
næði botnfiskvinnslunnar til
kaldra kola og óvíst hvcnær
vinnsla hefst þar á ný.
Margt óljóst
Þær raddir hafa þó heyrst sem
óttast að eldsvoðinn kunni að
hafa þó áhrif að eitthvað af starf-
semi Isfélagsins verði færð frá
Eyjurn. Þeir hinir sömu segjast þó
ekki vilja trúa því fyrr en á reynir
þótt menn séu orönir ýmsu vanir
þegar kvótakerfið og hagræðing
innan þess sé annars vegar. Þá er
óvíst hvort bruninn og afleiðingar
hans muni hleypa einhverju nýju
lífi í sameiningarviðræður félags-
ins við Vinnslustöðina. Þær við-
ræður sigldu í strand sem kunn-
ugt er í haust sem leið. Fjölskylda
Sigurðar Einarssonar f.v. forstjóra
fyrirtækisins, sem lést sl. haust á
ríflega 80% í Isfélaginu.
Alveg hryllilegt
Hörður Óskarsson fjármálastjóri
ísfélagsins sagði í gær að menn
væru að skoða aðstæður og meta
hvernig hægt sé að fara í hlutina
í framhaldi af því. Þegar Dagur
hafði samband við hann í gær var
hann staddur í miðjum rústunum
og sagði að aðkoman væri alveg
hryllileg. Sjálfur fylgdist hann
með slökkvistarfinu á vettvangi
eins og aðrir heimamenn. Hann
sagði að stjórn félagsins hefði
ekki komið saman til að ræða um
framtíð fyrirtækisins nema
óformlega til að ráða ráðum sín-
um. Því sé lítið vitað hvert fram-
haldið verður þótt það kunni
hugsanlega að skýrast á næstu
dögu m.
Óveruleg rafmagnsnotkun
Ráðgert var að byrja einhverja
hreinsun í gær á þeim hlutum
sem heillegastir eru. Þá er mikil
vinna framundan við að moka því
öllu út sem er skemmt og það er
gríöarlega mikið. Hann sagðist
ekki alveg átta sig á því hversu
mikið sé skemmt af 12-14 þús-
und fermetra húsnæði félagsins.
Engu að síður sé allur austurhluti
hússins skemmdur en vesturhlut-
inn hefði sloppið. Af þeim sökum
sé vinnslustaöurinn fyrir uppsjáv-
arfisk, þ.e. loðnu og síld nánast
óskemmdur fyrir utan rcyk og sót
að undanskildum frystitækjun-
um. Þau eru ónýt.
Hann segir ómögulegt að geta
sér til um orsakir brunans. I það
minnsta hefði verið óveruleg raf-
magnsnoktun í því húsnæði sem
talið er að eldurinn hafi átt upp-
tök sín. Þar hefðu engir raf-
magnsblásarar verið í notkun né
heldur verið að hlaða þar raf-
magni á lyftara heldur aðeins
Ijósalýsing.
Horft til loðnuvertíðar
Hann sagist engu vilja svara um
það hvort bruninn kunni hugsan-
lega að hafa einhver áhrif á það
að þráðurinn verði tekinn uppá
ný í sameiningarviðræðum við
Vinnslustöðina. Þaðan af síður sé
ekki búið að taka neina ákvörðun
um hvert framhaldið verður í
starfsemi fyrirtækisins. Hins veg-
ar sé verið að að huga að því
hvort möguleiki sé á því að korna
upp frystibúnaði til að hægt verði
að frysta loönu og síld og þá aðal-
Iega loðnu í febrúar og mars n.k.
Hann segir að um fátt annað
verði hugsað næstu dagana. Þótt
engir fyrirframsamningar liggi
fyrir um sölu á loðnuafurðum
hefur fyrirtækið haft trausta
kaupendur að þeirn í Japan.
Fjármálastjórinn segir að menn
munu reyna allt sem hægt sé til
að geta verið með á loðnuvertíö-
inni. Aðspurður hvað loðnan sé
mikill hluti af heildarveltu fyrir-
tækisins segir hann að það sé
mjög sveiflukennt á rnilli ára.
Sent dæmi nefnir hann að á einni
vertíð sé kannski verið að frysta
um fimm þúsund tonn af loönu
og svo annað árið kannski um eitt
þúsund tonn og verðið í öllum út-
gáfum. Hins vegar hefur bruninn
engin áhrif á útgerðina né
bræðsluna. Um 500-600 tonn af
afurðum voru í frystiklcfum fyrir-
tækisins. Það er nokkuð mikið
miðað við árstíma. Ástæðan fyrir
því er m.a. að veriö var að frysta
síld og unninn botnfisk dagana
áður en kviknaði í. Óvíst er hver-
su mikið af birgðunum er
óskemmt.
Miðstöð í Alþýðuhúsinu
HúsfyTlir var í gærmorgun þegar
starfsmenn ísfélagsins mættu í
Alþýðuhúsið í Eyjum þar sem
stéttarfélagið Drífandi og fyrir-
tækið hafa komið upp miðstöð.
Þar kemur fólkið saman og fær
nýjustu upplýsingar um framtíð
sína og fyrirtækisins. Á sl. laugar-
dag var t.d. haldinn stofnfundur
stéttarfélags þar sem Verkalýðsfé-
lag Vestmannaeyja og Verka-
kvennafélagið Snót voru samein-
uð í Drífanda. Nýja félagið tekur
formlega til starfa á næsta ári en
félögin hafa haft sameignlega
skrifstofu frá því í sumar.
Samstaða
Guðný Óskarsdóttir formaður
Verkakvennafélagsins Snótar seg-
ir að menn hefðu spjallað sarnan
og reynt að létta lundina hjá
hverjum einum eftir þetta milda
áfall sem bruninn hefði haft á
starfsmenn. Meðal annars hefðu
prestar Eyjamanna verið á staðn-
um auk fulltrúa frá Rauða kross-
inum. Gert er ráð l’yrir að mið-
stöðin í Alþýðuhúsinu verði starf-
rækt út vikuna. Þá er ætlunin að
bjóða uppá sameiginlegar göngu-
ferðir næstu morgna. Guðný scg-
ir að Eyjamenn séu ekki óvanir því
aö standa saman og hjálpast að
þegar á móti blæs og svo verði ein-
nig eftir brunann.
Við þessa rekstrarstöðvun dett-
ur allt starfsfólkið út af launaskrá
og því þarf það að skrá sig á at-
vinnuleysiskrá. Fyrir brunann
voru um 50 manns á atvinnuleysi-
skrá í Eyjum og því ekki mikið um
önnur atvinnutækifæri þar að
bafa fyrir fiskvinnslufólk. Hins
vegar munu einhverjir fái vinnu
við þrif og hreinsun. Það er hins
vegar óvíst hversu margir fá vinnu
við það og hvenær hún hefst að
einhverju marki.
Tekjutap
Guðný segir að fólk verði fyrir
töluverðu tekjutapi við það að fara
á atvinnuleysiskrá. Sem dæmi
nefnir hún að fyrir dagvinnuna
hefði fólk verið að fá um 25 þús-
und krónur vikulega eftir skatta í
laun en lítiö hefur verið um al-
menna yfirvinnu. Á atvinnuleysis-
bótum fær t.d. kona með tvö börn
undir 10 ára um 37 þúsund krón-
ur eftir skatta á hálfsmánaðar-
fresti. Það segir sig því sjálft að
þarna munar töluverðu og það í
jólamánuðinum sem allajafna er
sá dýrasti hjá nær sérhverri fjöl-
skyldu. Þá séu einnig ófá dænti
um að margir úr sömu fjölskyld-
unni hafi unniö hjá fyrirtækinu.
Það sé þó smá huggun í því að við-
búiö sé að flestir karlanir muni fá
vinnu við hreinsúnina og við
væntanlega uppbyggingu.
Stærsti eldsvoðinn
Elías Baldvinsson slökkviliðsstjóri
segir að þegar hann og hátt í 30
aðrir slökkviliðsmenn komu á
staðinn hefði eldurinn staðið upp-
úr þakinu á nyrstu byggingu Isfé-
lagsins þar eldurinn virðist hafa
átt upptök sín. Síðan hefðu kontið
1 I liðsmenn frá Slökkviliði
Reykjavíkur til liðs við Eyjamenn
með Gæsluþyrlunni. Auk þess
hefðu félagar úr björgunarsveitum
heimamanna unnið með slökkvi-
liðinu. Hann segir aö þetta sé
stærsti eldsvoði sem hann hefur
þurft að glíma við í Eyjum. Þá
bendir ekkert til þess að neitt hafi
farið úrskeiðis við slökkvistarfið
sem gekk eftir atvikum.
MiMH eldsmatur
Slökkviliðsstjórinn segir að eldur-
inn hafi strax verið svo gífurlega
mikill að nienn hefðu ekki haft
roð í haíin til að byrja með. Skipti
þá litlu þótt dælt hefði verið 10 -
1 1 þúsund lítrum af vatni á eld-
hafið á hverri mínútu. Fyrir utan
eigin búnað voru fengin tæki frá
Flugmálastjórn frá Vestmanna-
evjaflugvelli og einnig var notast
við búnað frá hafnsögubátnum.
Elías segir að mikill eldsmatur
hefði verið í því húsi sem eldurinn
kom uppí og m.a. plastkörum og
hátt til lofts. Þá hefðu menn orð-
ið að var mjög varlega við slökkvi-
starfið þar sem menn voru að
glírna við eklinn uppá þaki. Auk
þess var um tíma hæíta á að amm-
oníaks-gcymar gælu sprungið.
Þegar mesti eldsmaturinn var bú-
inn hefði eldurinn gefið sig í glím-
unni \að slökkviliðið.
Eldvamarveggir héldu
Hann segir að eldvarnir hafi verið
nokkuð góðar hjá Isfélaginu og
m.a. hefði húsið sem eldurinn
kom uppí verið hyggt um 1978.
Þá hefðu cldvarnarveggir haldið
sem hefðu bjargað því sem bjarg-
að varð með aðstoð slökkviliðsins.
Hins vegar sé þ\ í að leyna að búið
var að gera göt í veggi fyrir Ieiðsl-
ur og færibönd og annað þvíum-
líkt. Hann segir að þótt hann sem
starfsmaður eldvarnaeftirlitsins
hefðu gcrt athugasemdir við sitt
Iítið af hverju í eldvörnum félags-
ins þá telur hann að þær hafi ekki
verið neitt sérlega alvarlegt.
Samfélagið að leiðarljósi
Eyjamaðurinn og þingmaður
Samfylkingar í Suðurlandskjör-
dæmi, Lúðvík Bergvinsson segist
ekki trúa öðru en að fyrirtækið
verði byggt uppá ný með samfé-
lagið í' Eyjum að leiðarljósi. Víð
þessar aðstæður sé það spurning
hvort menn velti því fyrir sér hvort
Vinnslustöðin og Isfélagið geti
hugsanlega náð betri árangri með
einhverju auknu samstarfi og
uppbyggingu kannski hagað í
samræmi við það. Enda sé Isfélag-
ið spennandi kostur að eiga sam-
starf við.
Þótt bruninn sé mikið áfall fyrir
fjTÍrtækið og raunar allt samfélag-
ið í Eyjum með tilliti til þeirra
margfeldisáhrifa sem rekstrar-
stöðvun fyrir starfsfólk og alla þá
sem skipt hafa við það, vonast
Lúð\4k til þess að mönnum beri
gæfa til að geta unnið sig úr þess-
um erfiðleikum. I því sambandi
bendir hann á að menn hafa áður
sigrast á áföllum sem yfir þá hafa
dunið í Evjum með því að takast á
við þau.
Færanlegar aHaheimildir
Hann minnir á að ein af undir-
stöðum ísfélagsins, Hraðfrysti-
stöðin hefði brunnið í tvígang.
FjTst árið 1950 og síðan hefði
húsnæði þess farið undir hraun
árið 1973. I uppbyggingarstarfinu
við þau áföll hefði umhverfið að
vísu verið með öðru sniði en um
þessar mundir Þá lágu verðmætin
í því að nýta og vinna auðlindina
sem er við bæjardyr Eyjamanna. I
núverandi kvótakerfi liggja verð-
mætin kannski ekki á sama stað
heldur fjTst og fremst í aflaheim-
ildunum sem auðvclt sé að færa
til og vinna annars staðar. Hann
vill þó ekki trúa því að óreyndu að
eitthverjar slíkar hugmyndir muni
koma fram hjá stjórnendum og
eigendum Isfélagsins.
Bók er best vina
Sfeöðið
Bókatíðindin
Félag íslenskra
bókaútgefenda
ÞRIDJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 - 13
Giafakort
Kringlunnar
er rétta gjöfin
Gjafakortin fást á þjónustuborðinu
á 1. hæð við Nýkaup.