Dagur - 22.12.2000, Page 8
8- FÖSTVDAGUR 22. DESEMBER 2000
rD^tr
■ SMÁTT OG STORT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
sigurdor@ff.is
Mikið er gott að
eiga mann eins og
Guðna Agústsson
að þegar skamm-
sýnin, gróðavonin
og eiginhagsmuna-
semin sækir að líf-
ríkinu."
Ragnar Hólm
Ragnarsson, for-
inaður Landssam-
bands stangveiðifé-
laga í grein unt lax-
eldi í Mbl.
FíWn í blankheit
Pétur H. Blöndal sagði við 2. umræðu fjárlaga
að menn hefðu fíkn í að taka Ián og valda sjálf-
um sér blankheitum. Hagyrðingur einn sendi
mér þessa vísu í tilefni ummæla Péturs:
Menn hafafíkn ífíkn,
fíkn til að byggja á lántökum.
En sjálfum þér er það Util líkn
að liggja ævilangt í hlankheitum.
Steinamir
Þrír prestar voru á leið meðfram vatni. Einn þcirra v'ar mótmælandi,
annar kaþólskur og sá þriðji orþodox. Það var sól og hiti og þeir allir þyrst-
ir. Allt í einu sagði sá kaþólski. „Eg sé að það er söluturn þarna hinum
megin við vatnið. Ég ætla að skreppa yfir og kaupa mér svaladrykk." Síð-
an lagði hann af stað, gekk yfir vatnið og kom sömu leið til baka mcð gos-
flösku. „Ég hekl að ég geri þetta Iíka,“ sagði orþodoxinn, gekk yfir vatnið
eins og ekkert væri og kom til baka með gosflösku. Þá hugsaði mótmæl-
endapresturinn með sér að fyrst að hinir gætu gengið yfir vatnið hlyti
hann að geta það líka. Síðan lagði hann af stað yfir vatnið en sökk til
botns með það sama. Þá segir sá kaþólski: „Við hefðum nú kannski átt að
segja honum frá steinunum."
Bairnin og smérið
í hvert skipti sem ég heyri Kristján Hreinsson fara yfir dægurlagatextana
með stjórnendum Rásar 2, hvort sem það er bullið lir Megasi eða öðrum,
sem semja dægurlagatexta á Islandi um þessar mundir, dettur mér alltaf
Jónas Friðmundsson bílstjóri í hug. Það var hann sem samdi bálkinn um
Gamla Grána. Einu sinni fór hann á gæsaveiðar en náði engri gæs, kom
heim og orti brag þar sem hann lýsir gæsaveiðunum og endar frásögnina
svona:
Svo kem ég heim og sest í gamla stólinn
sem þjónað hefur pabba og h'ka mér.
Hér hef ég lifað öll mín ævijólin
etið marga baun og talsvert smér.
Ifína og fræga fólkið
Slegist um plássið
í brúðkaup ársins
Nánast hernaðarástand hefur
ríkt í kringum Dornoch - kastala
í Skotlandi þar sem í dag, föstu-
dag á að fara fram það sem kall-
að hefur verið brúðkaup ársins.
Það eru þau skötuhjú Madonna
og Guy Ritchie sem ætla loksins
að láta pússa sig saman. Ljós-
myndarar frá öllum helstu
glansblöðum og slúðurblöðum
hafa komið sér fyrir utan kastal-
ann og eru flestir vopnaðir stig-
um og hvers kyns græjum sem
líklegar eru til að geta gert þeim
kleift að ná sem bestu skoti af
hjónaleysunum.
En þetta hefur þó ekki gegnið
þrautalaust fyrir sig því sam-
keppnin er mikil. Kannski ekki
nema von því „pappara/i" Ijós-
myndarar geta átt von á allt að
I 50 þúsund dollurum fyrir mjög
góða mvnd af því sem þarna fer
fram. I gær keyrði þó um þver-
bak því þremur ljósmyndurum
var vísað í burtu af svæðinu eft-
ir að hafa lent í átökum og verið
of ágengir.
Ljósmyndarar slást um pláss við Dornoch kastala I Skotlandi þar
sem brúkaup ársins fer fram I dag.
ÍÞRÓTTIR
L.
YMISLEGT
Spennandi kjör „Iþróttamaims ársins“
Kjöri „Iþróttamanns ársins" á vegum Samtaka
íþróttafféttamanna verður að venju lýst milli jóla
og nýárs og verður það gert við hátíðlega athöfn
sem fram fer á Hótel Loftleiðum fimmtudaginn
28. desember. Þar verður einnig tilkynnt kjör
íþróttamanna/íþróttakvenna sérsambanda ISI fyr-
ir árið 2000 og verður sýnt frá athöfninni í bein-
ni útsendingu Sjónvarpsins og Stöðvar 2, sem
hefst kl. 20:00. Forseti íslands, Hr. Ólalur Ragn-
ar Grímsson, mun heiðra samkomuna með nær-
veru sinni ásamt Birni Bjarnasyni menntamála-
ráðherra og öðrum góðum gestum. Þarna verður
samankomið helsta afrekslólk þjóðarinnar ásamt íþróttafréttamönnum,
íþröttaforystunni, landsliðsþjálfurum og aðstandendum. Islandsbanki
gefur sem fyrr veglega bikara til íþróttafólksins og mun Valur Valsson,
bankastjóri, afhenda gripina.
Beðið er með mikilli spennu eftir kjörinu að þessu sinni og er Ijóst að
þar hafa íþróttafréttamenn staðið frammi fyrir erfiðu vali milli þeirra
Völu Flosadóttur, bronsverðlaunahafa frá ólympíuleikunum í Sydney og
Arnar Arnarsonar, tvöfalds Evrópumeistara frá Evrópumeistaramótinu í
Valencia, sem þykja líklegust til að hreppa titilinn.
Vala Flosadóttir.
„íþróttamaður Haliiaríjaröar“
kjörinn í átjánda skipti
Miðvikudaginn 27. desember n.k. verður
„íþróttamaður Hafnaríjarðar 2000“ krýndur á
íþróttahátíð bæjarins, sem haldin verður í íþrótta-
húsinu rið Strandgötu. A hátíðinni, sem hefst kl.
18:00 með flutningi jólatónlistar, verða einnig
veittar viðurkenningar til allra þeirra íþrótta-
manna sem unnið hafa til Islands-, bikar-, Norð-
urlanda- og Evrópumeistaratitla á árinu og hefur
sá hópur aldrei verið fjölmennari. Til dæmis urðu
416 Hafnfirðingar Islandsmeistarar á árinu, auk
þess sem tólf hópar unnu bikarmeistaratitla. FH-
ingar unnu flesta íslandsmeistaratitla, eða alls 189, SH-ingar næst fles-
ta, eða alls 104 og Haukar 77, en önnur félög mun færri. FH-ingar unnu
einnig flesta bikartitla á árinu, eða alls sjö, SH þijá og Haukar tvo.
Eftir að viðurkenningar hafa verið veittar á hátíðinni munu félagar úr
Tae Kwon Do deild Bjarkanna halda sýningu, áður en kemur að sjálfum
hápunktinum, sem er krýning „Iþróttamanns Hafnarfjarðar" og afhend-
ing viðurkenninga til þeirra átján afrekmanna sem tilnefndir voru fyrir
kjörið.
„Iþróttamaður Hafnarfjarðar" er nú kjörinn í átjánda skipti, en oftast
hefur kylfingurinn Ulfar Jónsson verið kjörinn, eða alls fórum sinnum og
næstur kemur sundkappinn Orn Arnarsson, sem kjörinn hefur verið þris-
var sinnum.
Eftirtaldir iþróttamenn voru tilnefndir i ár:
Andri Jónsson, BH - Tennis
Atli Guðmundsson, Sörla - Hestaíþróttir
Björgvin Sigurbergsson, Keili - Golf
Björn Þorleifss., Björk - Tae Kwon Do
Elín Sigurðardóttir, SH - Sund
Guðm. Bragason, Haukum - Körfubolti
Guðm. Pedersen, FH - Handbolti
Halldór Ingólfsson, Haukum - Handbolti
Harpa Melsted, Haukum - Handbolti
Hjalti Guðmundsson, SH - Sund
Hörður Magnússon, FH - Fótbolti
Jolanta Slapikiene, FH - Handbolti
Kim M. Nilsen, BH - Skvass
Lára H. Bjargardóttir, SH - Sund
Pála M. Einarsdóttir, Haukum - Fótbolti
Sveinn Þórarinsson, FH - Frjál'sar
Þórey Edda Elísdóttir, FH - Frjálsar
Örn Arnarson, SH - Sund
Kovacs kjörin íþróttakona
UngverjaLands
Agnes Kovacs, ólympíumeistari í 200 m bringu-
sundi kvenna, var á dögunum kjörin „Iþróttakona
Ungverjalands" árið 2000, af íþróttafréttamönn-
um þar í landi. Agnes hefur verið einn sigursæl-
asti íþróttamaður Ungverja síðustu árin og byrj-
aði að keppa á stórmótum árið 1995, þá aðeins
13 ára gömul. Hún vann til bronsverðlauna í 200
m bringusundi á ólympíuleikunum í Atlanta árið
1996, varð tvöfaldur Evrópumeistari árið 1997, í
100 og 200 m bringusundi í langri braut, heimsmeistari í 200 m brjngu-
sundi á HM í Perth árið 1998 og þrefaldur Evrópumeistri á EM í Inst-
anbul í fyrra, í 50, 100 og 200 m bringusundi í langri braut, auk þess sem
hún náði silfurverðlaunum í öllum sömu gréinum á Evrópumeistaramót-
inu í stuttri braut í Lissabon í fyrravetur. Auk þess að vinna gullið í 200
m bringusundi í Sydney í haust, varð hún tvöfaldur Evrópumeistari, í 50
og 100 m bringusundi á EM í Helsinki í sumar og náði þar cinnig tiðru
sætinu í 200 m bringusundi. Þetta er í annað skipti sem Kovacs er kjör-
in „Iþróttakona Ungverjalands" en fyrst hlaut hún titilinn árið 1997, eft-
ir að hafa orðið tvöfaldur Evrópumeistari.
Ungverjar velja bæði íþróttakonu og karl ársins og var fimleikamaður-
inn Szilveszter Csollany, valinn „Iþróttakarl ársins".