Dagur - 23.01.2001, Síða 16

Dagur - 23.01.2001, Síða 16
16- ÞRIDJUDAGUR 23. JANÚAR 2001 jjmL__________ LAt'JDlWM Skemmtileg sýning með góðri meiningu Boðskapurinn um réttiæti og mannúð, viðvörun við að hlaupa eftir innantómu „stuði" og ábending um að varðveita æskuna ísjálfum sér Þjóðleikhúsið: BLÁI HNÖTT- URINN eftir Andra Snæ Magnason. Leikstjórn: Þórhallur Sig- urðsson. Leikmynd og búningar: Axel Hallkell. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Tónlist: inúm. Dansar: Ástrós Gunnarsdóttir. Frumsýnt á stóra sviðinu 21. janúar. Það er víst þarflaust að lýsa efni þessa leiks mörgum orð- um, svo þekkt sem sagan er, marglofuð og verðlaunuð og mun nú verið að þýða hana á mörg mál. Loflegir dómar sem bækur fá hér á síðustu tímum vega að vísu ekki þungt, svo oft sem maður rekur sig á hvernig miðlungsverkum er hossað sem hreinni snilld af ritdómendum. En að því er Bláa hnöttinn varðar er velgengni hans mak- leg. Þetta er saga sem ber vitni um skapandi hugkvæmni um leið og hún er nógu nærri kunnuglegum slóðum svo hún nær vel til barnanna. Andri Snær hefur í þessu verki fundið góða leið til að. bregða upp heillandi ævintýri fyrir börnin og halda um leið að þeim mannúðlegum og falleg- um boðskap; þetta tvinnast vel saman í Sögunni af Bláa hnett- inum og í því felst sigur hennar, miklu frekar en í stflsnilld eða orðfærni höfundar sem er ekki tiltakanleg. Sölumaður gleðlnnar Leiksýningin virðist mér fylgja efni sögunnar trúlega. Það er í sem stystu máli að á bláa hnött- inn sem börn byggja ein og una glöð við sitt kemur snjall sölu- maður gleðinnar. Hann festir sólina með nagla og býður börnunum að lifa í sífelldum fögnuði sem reynist náttúrlega innantómur. - Þegar ég sá Bláa hnöttinn hugsaði ég til þess, sem oft minnir á sig í leikhúsi í seinni tíð, hversu heimur þess er orðinn nálægur heimi kvik- mynda og tölvuleikja. Ævintýra- heimur leiksins býður beinlínis upp á slík brögð og verður ekki annað sagt en vel sé spunnið úr þeim möguleikum í sviðsetn- ingu Þórhalls Sigurðssonar og samverkamanna hans. Þarna er góð fagmennska reynds fólks á ferðinni, en fagmannleg vinnubrögð eru alltént nokkuð sem maður getur treyst að verða vitni að hjá leikhúsfólki, eins og skilmerkilega var rakið í grein í Lesbók Morgunblaðsins á dögunum, - hvað sem segja má um nýstárlegt sköpunar- starf leikhúsanna. Því sýningin er satt að segja nokkuð hefð- bundin barnasýning þar sem mikið er lagt upp úr liðlegum hópsenum, skærum litum, dansi o. s. frv. Hins vegar er sögunni sjálfri sýnd rækt, hún fær að njóta sín og leikbrellurn- ar skyggja aldrei á hana. Bangsiim Bjöm Bjarnason Það er gömul reynsla að til að leika börn vel, það er ef reynir á eitthvað meira en æskuþokka, þarf þroskaða leikara. Þess vegna er hér reynt fólk í hlut- verkum barnanna á bláa hnett- inum. Aðalhlutverkin leika Atli Rafn Sigurðarson, Brimir, og Inga María Valdimarsdóttir, Hulda. Atli Rafn er orðinn nokkuð reyndur að leika fyrir börn og fór einkar þekkilega með hlutverk Brimis. Inga Mar- ía er ekki eins reynd og er hér í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn. Hún kom vel fyrir en af þessu hlutverki verður ekki séð hvers vænta megi af henni, til þess var persónumótun ekki nógu skýr. KjartanGuðjónsson leikur Gleði-Glaum, hinn útsmogna sölumann, sem reyndar var bara dreyminn strákur þegar allt kom til alls. Kjartan er reyndur „barnaleikari" og hef- ur þann drengslega brag á leik sínum sem vel hentar í svona verkefnum. Það er einkenni á leiknum að persónugerðin er öll á yfirborðinu, - þetta er náttúrlega fyrst og fremst ævin- týri. Aðrir leikendur en þessir þrír mynda liðsheild þar sem allir vinna saman en enginn sker sig úr. Leikendurnir eru að vísu í fleiri en einu hlutverki. Sumt er sérlega skemmtilegt, ég nefni aðeins atriðið með bangsann, „Björn Bjarnason" sem hvarf frá að éta börnin af því þau höfðu glatað ferskleika sínum, það var skemmtilega gert af Bjarna Hauki Þórssyni. gott gervi og kímilegur leikur. Aðrir leikendur eru Nanna Kristín Magnúsdóttir, Marta Nordal, Linda Ásgeirsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Valur FreyrEinarsson. Öll voru þau fjörleg og áttu góðan þátt í hinni heillegu áferð sýn- ingarinnar. Geimskipið mátt vera tilkomumeira Hlutur leikmyndarinnar er mik- jll, hún var bæði faileg og hug- vitssamleg, nema hvað geim- skipið hefði mátt vera tilkomu- meira. - Allt á litið er Blái hnötturinn vafalaust það nýja íslenska barnaleikrit seinni ára sem mestur veigur er í. Það byggist á skýrri hugmynd sem myndgerist fyrir sjónum okkar. Boðskapurinn um réttlæti og mannúð, viðvörun við að hlaupa eftir innantómu „stuði“ og ábending um að varðveita æskuna í sjálfum sér, - þetta hljómar einsog klisja og gæti auðvitað fallið dautt niður. En þeir sem að verkinu standa voru sem sagt færir um búa til skemmtilega sýningu úr þessu uppbyggilega ævintýri. Trúi ég ekki öðru en hún verði vel þeg- in af ungum sem eldri leikhús- gestum. LEIKLIST Gunnar Stefánsson skrifar Hugtökin eru lykillinn Guðirog hlutverk þeimi, goðsögurog tengslþeirra við athafnir, töfra og heimsmynd ermeðal þess sem Haraldur Ólafsson mannfræðingurfræðirfólk um á námskeiði í trúarbragðafræði á vegum Endurmenntunarstofnunar. Hann er spurður nánar út í námsefnið. :„Ég er að hugsa um að taka fyrir það sem við köilum venjulega trúarbragðafræði," segir Haraldur og kveðst ætla að skipta námsefninu upp í átta fyrir- lestra. Hann lýsir þeim svo: „f fyrsta fyrirlestri verða rakin hin margvíslegu form átrúnaðar, að hverju átrúnaðurinn beinist og hvers menn eru að leita og velti fyrir mér hvort hægt sé að benda á eitthvað sameiginlegt með átrúnaði, alltaf og alls staðar. Einnig ætla ég að fara rækilega yfir helstu hugtök sem eru sameiginleg mörgum trúarbrögðum enda eru þau lykill að því sem á eftir kemur. Við getum tekið sem dæmi hugtök eins og bannhelgi eða „tabú“ og „nana“, kraftinn sem er talinn vera fólginn í öllum helgum hlutum." Haraldur Ólafsson kveðst í lok námskeiðsins ætla að setja fram ákveðnar hugmyndir um hvað trúarbrögð séu, þótt það sé „bæði vafasamt og vandasamt." Fyrsti átnmaðurinn „I öðrum fyrirlestrinum mun ég fjalla um hugleiðingar um hvað menn telji vera fyrsta átrúnaðinn, hvar hann eigi sér rætur og hvers eðhs hann er. I ævafornum gröf- um hafa menn til dæmis fundið merki um að búið hafi verið um lík með þeim hætti að bendi til átrúnaðar. Þá mun ég minnast á elstu rituðu heimildirnar um trúar- brögð, áletranir frá 6.500 árum og ritað mál þar sem get- ið er um átrúnað. Þar eru sérstaklega áberandi sköpun- arsögur þannig að það er snemma sem fólk gerir sér hugmyndir um hvernig jörðin hafl orðið til. Þótt Biblían sé nokkru vngri þá ber hún ýmis merki þessara fornu sköpunarsagna." Goðsögurnar merkilegar „í þriðja erindinu mun ég íjalla um helgisiði, alls konar athafnir sem menn hafa um hönd í sambandi við trúar- iðkun. í íjórða og fimmta tíma mun ég íjalla um goðsögur, sem eru gríðarlega merkileg fyrirbæri sem þekkjast alls- staðar og eiga mjög margt sameiginlegt en jafnframt ýmis sérkenni eftir svæðum. Meðal annars er talið að goðsögur hafi mjög náin tengsl við helgiathafnir. Við þekkjum messuna sem fylgir ákveðnum reglum, þessar reglur eru tengdar ákveðnum hugmyndum um stöðu mannsins gagnvart náttúruöflunum og helgum hlutum." Átrúnaður náttúrubama „í sjötta og sjöunda erindi mun ég fara frekar út í ýmsan átrúnað þeirra sem við köllum frumstæðra þjóða eða náttúrurbarna sem víða tíðkast enn en-hefur þó horfið á ýmsum stöðum. Þar er margt sem kemur okkur kunnug- lega fyrir sjónir. Þarna er ég að tala um ymsa Afrikubúa, Asíumenn, Indíána, Sama, Síberíufólk. I áttunda og síð- asta fyrirlestri mun ég draga þetta allt saman og reyna að setja fram ákveðnar hugmyndir um hvað trúarbrögð séu, þótt það sé bæði vafasamt og vandasamt." gun.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.