Dagur - 25.01.2001, Síða 14

Dagur - 25.01.2001, Síða 14
14- FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 JJML T>(gur Friðrik Skúlason tölvu- fræðingurog ættfærð- ingur segir enn ýrnis tæknileg atriði óleyst varðandi ættfræði- gagnagrunn sem þó er væntanlegur áNetið áðuren langtum líður Síðastliðinn þriðjudag hélt Frið- rik Skúlason tölvunarfræðingur fyrirlestur í Norræna húsinu þar sem hann greindi frá helstu vandamálum við gerð íslend- ingabókar, þ.e. ættfræðigagna- grunns yfir alla þá 700.000 ís- lendinga sem þekktir eru frá upphafi landnáms. Fyrirlestur- inn var liður í hádegisfyrirlestra- röð Sagnfræðingafélags íslands, sem nú á vorönn íjallar um spurninguna „Hvað er heimild?" Vandamálin eru annars vegar tæknilegs eðlis en hins vegar varða þau áreiðanleika þeirra heimilda sem unnið er með. Hann sagðist m.a. ekki ennþá geta sagt til um það nákvæmlega hvenær þessi gagnagrunnur birtist á Netinu. „Við erum tæknilega séð nokkurn veginn tilbúin," segir hann í samtali við blaðamann Dags. „Að vísu á eftir að gera eitthvert smotterí í sambandi við að vinna vefsíðurnar sem fylgja og það er alveg eftir að útbúa ensku síðurnar. Grunnurinn verður nefnilega á tveimur vef- föngum, islendingabok.is og genealogy.is. Síðan langar mig einnig til þess að gera sjálfvirka þýðingu á textum eftir fremsta megni, þannig að ef til dæmis stendur „bóndi í Litlakoti" eða eitthvað þess háttar, þá viljum við láta þýða það sjálfkrafa þeg- ar menn fletta því upp. En það er aðeins meira mál en bara að segja það.“ - Er þaö það sem strandar á? „Ja, það er eitt af því sem mig langar til að gera. Hvort það verður búið þegar þetta verður opnað er bara ekki Ijóst. Það getur vel verið að enska útgáfan verði opnuð einhvern tímann seinna. Við vorum með þetta að við héldum nokkurn veginn til- búið til opnunar þegar Agora- sýningin var haldin í október síð- astliðnum, en þá komu upp nokkur atriði sem þurfti að lag- færa,“ segir Friðrik. Búið að skrá 630 þúsund „Við erum líka smám saman að bæta grunninn, við erum að sí- fellt íjölga tengingum til dæmis. Núna þessa dagana erum við svo að setja inn einstaklinga sem eru fæddir nú síðustu árin og tryggja að þetta séu ekki alltof úreltar upplýsingar, skrá inn hjónabönd frá Hagstofunni og svo framveg- is. Hlutirnir geta breyst hjá fólki á bara tveimur árum.“ Fram kom í fyrirlestri Friðriks að samanlagður fjöldi allra ís- lendinga sem til hafa verið frá upphafi og tO dagsins geti legið nálægt einni og hálfri milljón. Þar geti þó skakkað nokkur hundruð þúsundum til eða frá. Heimildir eru hins vegar aðeins til um 700.000 manns, eða um það bil helming heildaríjöldans. Nú þegar hafa 630 þúsund verið skráð í gagnagrunninn og gert er ráð fyrir að meirihluti þeirra sem vantar bætist í gagnasafnið á þessu ári. Friðrik segir hins vegar ekki nægjanlegt að skrá eingöngu einstaklingana, því þær ættfræðflegu upplýsingar sem skipta máli eru fyrst og fremst upplýsingar um tengingar mOli einstaklinga. „Staðan þar er að um 83% tenginga mOli skráðra einstaklinga eru núna til staðar og fer sú tala hækkandi með hverjum degi. Það er óljóst hversu há þessi tala mun geta orðið, en það er nánast útOokað að hún geti farið yfir 90%,“ sagði Friðrik í fyrirlestri sínum. 12.000 dauðir endar „Á 20. öld eru yfir 95% upplýs- inga um ætterni íslendinga að- gengilegar - það sem upp á vant- ar stafar að mestu leyti af þrem- ur ástæðum, ættleiðingum, er- lendum uppruna eða því að mæður geti ekki eða vilji ekki gefa upp feður barna sinna,“ sagði Friðrik enn fremur. „Þessi tala er hins vegar mun lægri fyrr á öldum - kringum 85% á 19. öld, 50% á 18. öld og innan við 30% á þeirri 17. Fyrir þann tíma er talan í kringum 5% - með öðrum orðum: 95% af upplýsingum um ættir íslendinga fyrstu 800 ár íslandsbyggðar eru glataðar og vonlítið að unnt sé að fyOa í eyðurnar. Ástæður þess eru margvíslegar, ýmist hafa gögnin ekki verið skráð eða þá að þau hafa glatast, til dæmis vegna kirkjubruna." - Hvað með útlendinga sem komið hafa til íslands og tengst íslenskum œttum. Hafið ' þið skoðað hve margir þeir eru og á hvaða tímahilum þeir hafa helst verið að koma? „Það eru ákveðnir toppar,“ segir Friðrik. „Ég var einmitt að fara í gegnum lista yfir svokaO- aða dauða enda í grunninum, þ.e.einstakfinga sem er ekki hægt að rekja lengra, sem getur verið annað hvort vegna þess að um útlendinga sé að ræða eða þá að um ættleiðingar er að ræða. í fyrsta umgangi finn ég tólf þúsund slíka. Þetta er auð- vitað miklu lægri tala heldur en fjöldi útlendinga sem komið hef- ur til íslands, en það stafar af því að fólk sem kemur hingað og tengist ekkert íslenskum ættum fer ekki inn í grunninn. Auðvitað er mest um það á síðustu ára- tugum, en svo eru toppar líka í gegnum tíðina. En þetta er samt hverfandi, því fram undir 1901 eru þetta fyrst og fremst ein- staka kaupmenn, danskir emb- ættismenn og svo erlendir sjó- menn. Síðan fer þeim íjölgandi eftir því sem líður á tuttugustu öldina. Það kemur smá toppur í kringum ástandsbörnin, þá fæð- ist mikið af börnum sem eru hálferlend. Þetta á reyndar eftir að stökkva upp á næstu árum og áratugum, einfaldlega út af því að fólkið sem flytur hingað núna með íjölskyldur sínar á börn sem geta tengst inn í íslenskar ættir.“ Örugglega vitluust - Þú minntist einnig á það ífgrir- lestrinum að þegar fólk er að rekja œttir sínar mjög langt aft- ur séu miklar líkur á að villur séu í því. „Það er nánast öruggt að þetta sé vitlaust, því þótt maður geri ekki ráð fyrir nema kannski eitt prósent líkum á skekkju í hverri kynslóð þá safnast þetta upp og líkurnar á villum verða sífellt hærri í hverri kynslóð eftir því sem aftar dregur. Það er því tölfræðilega mjög ósennilegt að hægt sé að íinna ættartré sem eru fullkomlega rétt. Það er reyndar hægt að finna kvenleggi sem til eru sumir heifir allt aftur til 1300 eða svo og þeir eru nokkuð traustir. En máUð er að karlleggirnir eru töluvert ótraustari, og svo þegar komin eru ættartré þar sem kven- og karlleggir eru á víxl, þá eru þessar líkur og það er bara eins og það er. - Hve miklar eru líkurnar á skekkjum? „Núlifandi íslendingar geta kannski rakið 5.000 mismunandi forfeður. Þar af eru kannski 2.500 karlmenn, og ef gert er ráð fyrir að einn af hverjum hundrað sé rangur, þá eru komnir 25 karlmenn í hverju ættartré. En þetta byggist reynd- ar á ýmsum forsendum, meðal annars þeirri að rangfeðrunar- prósenta hafi verið svipuð fyrr á öldum og hún er í dag, og það eru í sjálfu sér engin haldbær rök til með eða á móti því. En þetta er bara sett fram til þess að menn hafi þetta í huga, að þessi fínu ættartró sem menn geta verið með allt aftur til land- námsmanna hafa h'tið annað gildi en fyrst og fremst skemmt- anagildi því þau eru væntanlega ekki rétt.“ -GB

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.