Dagur - 25.01.2001, Blaðsíða 15
FIMMTVDAGVR 25. JANÚAR 2001 - 15
Ðafýir
JiÐEj—
(ANPlNH
„Ég reyni að fylgjast með konunum og koma með fæðingarfréttir inn í tímana, því vissuiega skapast mikil samstaða og
gott andrúmsloft í þessum samverustundum," segir Auður Bjarnadóttir sem kennir barnshafandi konum jóga
AuðurBjamadóttir
dansaði sig ung inn í
hjörtu landsmanna. Á
seinni ámm hefurhún
starfað sem danshöf-
undurí leikhúsum og
við leikstjóm og
kennslu. Nú hefurhún
snúið séraðjóga-
kennslu jyrirbamshaf-
andi konurog nýbakað-
armæður.
„Eg hef stundað jóga í tíu ár fyrir
sjálfa mig en tók kennarapróf úti í
Ameríku í fyrra og fékk mikinn
áhuga á að leiðbeina barnshafandi
konum,“ segir Auður. Hún kennir
líka nýbökuðum mæðrum jóga.
Litlu krílin eru þá gjarnan með
mæðrum sínum og jógasalurinn
breytist í hálfgerða vöggustofu.
„Upphaflega fór ég í jóga
vegna meiðsla," segir hún. „Ég
var búin að ofgera líkamanum og
þurfti að gera eitthvað þar sem
ég gat sýnt mér aðeins meiri
sjálfsvirðingu. Ég heillaðist af
jóga og þótt þar sé byggt á alda-
gömlum aðferðum finnst mér
mikil þörf fyrir það á okkar tím-
um. Hraðinn og spennan sem við
lifum í býður þeirri óhamingu
heim að við hættum að finna fyrir
sjálfum okkur og umhverfinu í
kring um okkur. Við þeytumst um
í eirðarleysi. Jóga vinnur gegn
þessum áhrifum því þar er leitað
inn á við.“
Erfitt að svæfa forvitnina
Auður byrjaði með íslenska dans-
flokknum þegar hann var stofnað-
ur 1973 og dansaði í honum
fyrstu árin en var líka á faraldsfæti
og dansaði í Þýskalandi, Sviss og
Svíþjóð. Síðar sneri hún sér að því
að semja dansa fyrir leikhús og í
framhaldi af því lærði hún leik-
stjórn og hefur sett upp nokkur
verk á síðustu árum. „Maður reyn-
ir að hlaða ofan á það sem fyrir er,
stækka það og víkka. Það er mjög
gaman enda erfitt að svæfa for-
vitnina sem manni er í blóð bor-
in,“ segir hún.
Hún er nýlega komin frá Am-
eríku þar sem hún dvaldi í tvö ár
með manni og börnum er eigin-
maðurinn, Hákon Tumi Leifsson
tónlistarmaður var þar við dokt-
orsnám. „Ég var mest að sinna
fjölskyldunni þarna vestra,
kenndi dans og reyndi að viða að
mér kunnáttu í leiklist, auk þess
sem ég fór í jógakennaranámið.
Svo varð ég ófrísk og stundaði þá
jóga fyrir barnshafandi og var hjá
mjög góðum kennara sem er
hjúkrunarkona með mikla þekk-
ingu á jóga. Þar sá ég hvað þetta
gerði konum gott. Þó að þær
kæmu ekki nema einu sinni í viku
þá munaði þær mikið um það. Ég
þurfti þrjá tíma í viku til að vera
ánægð og undirbúningurinn skil-
aði sér í yndislega vel heppnaðri
fæðingu.“
Kom í tvo tíma og fæddl svo
Auður kveðst hafa revnt að til-
einka sér aðferðirnar sem hún
hafi lært í jógatímunum hjá hjúkr-
unarkonunni svo hún gæti síðar
miðlað öðrum. „Það er nauösyn-
legt fyrir barnshafandi konur að
kunna að slaka á og styrkja sig í
leiðinni auk þess að vera meðvit-
aðar um eigin ábyrgð á heilsunni,"
segir hún. En skyldu konur geta
konur stundað jóga alla meðgöng-
una? „Já, ef þær eru hraustar þá
geta þær það. Það kom ein kona
til mín í tvo tínia og fæddi svo.
Henni fannst sú litla þjálfun sem
hún hafði fengið hjálpa sér í fæð-
ingunni, ekld síst öndunin og
slökunin."
Auður segir enga konu hafa
fætt í tíma hjá sér - ekki ennþá.
„Þetta er samt svolítið eins og á
fæðingardeildinni," segir hún.
„Konur koma og fara. Það er
skemmtilegt að vera með í þessu
ferli. Ég reyni að fylgjast með
konunum og koma með fæðing-
arfréttir inn í tímana, því vissu-
lega skapast mikil samstaða og
gott andrúmsloft í þessum sam-
verustundum." - gun
MiMð lesið í Þorlákshöfn
IJtlán úrbókasafniÞor-
lákshafnarhafa aukist
um 700% frá árinu
1998, samkvæmt nýj-
ustu tölum og útreikn-
ingum. Jón SævarBald-
vinsson hefurverið
bókavörðurá staðnum
síðustu þrjú árog hann
var inntur eftir ástæð-
um þessara breytinga.
„Æíli við getum bara sagt að al-
rnenn fróðleiksfýsn og menning-
arlegur hugsunarháttur hafi auk-
ist á svæðinu? Ég vona það. Ann-
ars næ ég ekki að skýra þotta til
fulls. Reyndar höfum við bætt við
safnkostinn bæði aíþreyingar-og
fræðsluefni á síðustu árum og
fyllt þar upp í skörð sem fyrir
voru. Svo höfum við umbylt upp-
röðuninni í safninu en svigrúmið
er ekki mikið í því húsnæði sem
við höfum til afnota." Jón Sævar
segir upplýsingaþjónustu og
heimildaleitir stóran þátt í starf-
semi safnsins en engar tölur séu
til urn þann þátt sérstaklega.
MiMl þrengsli
Bókasafn Þorlákshafnar er í 150
fermetrum að Unubakka 4 og
þrengslin mikil. Meira en helm-
ingur bókakosts safnsins er í
kössum og gefur auga leið að
ekki er hægt að lána þær bækur
út. Þrátt fyrir það kom hver íbúi
bæjarins 14.5 sinnum að meðal-
tali í safnið á síðasta ári og hafði
fjölgað ferðum sínum þangað úr
tveimur á árinu 1998. Utlánuðum
safngögnum hafði einnig fjölgað
úr 2.5 safngögnunt á mann í 18.6
á sama tíma. Jón Sævar er spurð-
ur hvort ástæðan só kannski auk-
in þjónusta við skólahópa. „Nei,
við getum ekki tekið á móti heii-
um bekkjum hér inn þótt við feg-
in vildum því hver fersentimetri
er nýttur undir bækur,“ var svar-
ið. Ilann segir þó íjórar nettengd-
ar tölvur hafa sitt aðdráttarafl,
einkum fyrir yngra fólkið, sem
bæði noti netið og póstforritin sér
til þæginda.
Opið sextán tima í viku
Aðspurður segir Jón Sævar opn-
unartímann ekki hafa breyst á
undanförnum árum. Safnið sé
Útlán síðustu þriggja ára: 1998 voru
lánaðar út 3.178 einingar, 1999
13.147 og 2000 24.505.
opið 16 tíma á viku, mánudaga til
fimmtudaga. „Við mundum
gjarnan vilja hafa opið alla daga
og um helgar líka en fjárveitingar
leyfa það ekki.“
Jón Sævar kveðst enn merkja
ijölgun útlána milli janúar í fyrra
og janúar í ár en þar sem mán-
uðurinn er ekki búinn vill hann
ekki fara með neinar tölur. En er
ekkert að rýmkast um safnið?
„Jú, það er verið að byggja og
mér skilst að húsnæðið verði til-
búið á næstu mánuðum. Þar nteð
er ekki sagt að við getum flutt
strax inn því innréttingar vantar
og annað sem til þarf.“ - gun
„Við getum ekki tekið á móti heilum skólabekkjum hér inn þótt við fegin viid-
um því hver fersentimetri er nýttur undir bækur, “ segir Jón Sævar, bókavörð-
ur í Þorlákshöfn
2S000
15000
10000
5000
3175 I 13147 2450:
-------
01998
01999