Dagur


Dagur - 25.01.2001, Qupperneq 16

Dagur - 25.01.2001, Qupperneq 16
16- FIMMTUDAGUR 2 5. JANÚAR 2 00 1 Litla Kaffistofan Tryggvabraut 14 Sími 461 3000 Venjulegur heimilismatur í hádeginu virka daga nýjn bío i RÁÐHÚSTORGl rxrr°«jv[ DIOITAL Thx I SÍMI 461 4666 Sýnd kl. 18 - ísl. tal Sýnd kl. 20 og 22 Sniglaveislan Ólaf Jóhann Ólafsson Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson. Leikmynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson Lýsing: Halldór Örn Óskarsson Aðstoðarleikstjórn: Randver Þorláksson Leikendur: Gunnar Eyólfsson, Sigþór Albert Heimisson, Sunna Borg og Hrefna Hallgrímsdóttir. Samstarfssýning við Leikfélag íslands. Frumsýning: föstud. 02.02. kl. 20.00 örfá sæti laus 2. sýning laugard. 03.02. kl. 20. örfá sæti laus 3. sýning sunnud. 04.02. kl. 16.00 Takmarkaður sýningafjöldi á Akureyri Kortasalan í fullum gangi! | Lil.iiu iiiMni I3 i jiij-ju ] ílniDiiiHiiMJEÍIalMlE_____ Uatn kj>~.lbEU;,Íni„rfaa| IleikfElag akureyrarI Miðasalan opin alla virka daga, nema mánudaga, frá kl. 13:00- 17:00 og fram að sýningu, sýningardaga. Sími 462 1400. www.leikfelag.is Leikféiag Húsavíkur frumsýnir Fröken Nitouche í leikstjórn Sigurðar Hallmarssonar Föstudag 26. janúar kl. 20.30 Laugardag 27. janúar kl. 17.00. Miðasala í síma 4641129 símsvari allan sólarhringinn FRÉTTIR L. •11» Frá uppbyggingu hjá Isfélagi Vestmannaeyja. Endurreisn ávís- un á taprekstur Ef spila á í efstu deild í sjávarutvegi þarf að gera þetta eins og t.d. Útgerðarfélag Akureyr- inga og Grandi, þannig næst hagkvæmui. En ég er því miður ekki bjartsýiui á að það verði í Vestmannaeyj- iun í nánustu framtíð, segir stjómarformaður ísfélags Vestmanna- eyja. Akvörðun stjórnar Isfélags Vest- mannaeyja að leggja niður bolfisk- vinnslu félagsins hefur vakið mikla umræðu og jafnvel reiði í Vest- mannaeyjum, bæði meðal starls- manna og annarra íbúa Vest- mannaeyja. Uppbvgging frystihúss félagsins var eitthvað sem flestir höfðu greinilega gert ráð fvrir. Stjórnendur ísfélagsins eru nú að kanna hagkvæmni þess að byggja upp fullkomið uppsjávarfrystihús. Ennfremur er verið að skoða möguleika á j>ví að hefja einhverja vinnslu í lok loðnuvertíðar og hef- ur þar einkum verið horft til salt- fiskvinnsiu. OII áhersla verður lögð á vinnslu á loðnu og sílcl á næstu vikum og fram yfir lok loðnuvertíðar mun félagið láta vinna fyrii' sig hluta af bolfiski lé- lagsins í verktiiku og verður fyrst og fremst horft til fiskverkenda í Vestmannaeyjum. í stjóm ísfélags- ins sitja Gunnlaugur Sævar Gunn- laugsson, formaður (framkvæmda- stjóri líftæknifélagsins Urðar, Verðandi Skuldar); Eyjólfur Mart- insson, Agúst Bergsson, Þórarinn Sigurðsson, Auður Einarsdóttir og Baldur Guðlaugsson. Reiðarslag Arnar Hjaltalín, formaður Verka- Ivðsfélagsins Drífanda, segir þessa ákvörðun reiðarslag fyrir byggðar- lagið. Eigendur fyrirtækisins sem hafi hagnast af veiðum og vinnslu sjávarafla í Vestmannaeyjum hljóti að geta losað um eignir annars staðar til þess að auka bolfiskkvóta Isfélagsins. Þeim beri siðferðisleg skylda til að koma með fjármagn til baka til að byggja bolfiskfrysti- húsið upp á ný. A atvinnuleysis- skrá í Vestmannaeyjum eru 170 manns, 60 fá vinnu viö uppsjávar- fiskvinnsluna, en síðan fer það fólk aftur á atvinnuleysisskrá auk verkstjóra o.fl. svo fjöldinn fer í um 200 manns. En sjálfhætt er komi til verkfalls sjómanna í mars. „Því var lýst yfir á fundum for- svarsmanna félagsins með starfs- mönnum eftir brunann að hugur þeirra stæði til endurbyggingar frystihússins. En stjórnin sem kemur úr Reykjavík hefur tckið ráðin af æðstu starfsmönnum, og þar stjórna lánastofnanir ferðinni. Golt dæmi um það er að nýráðinn fr a m kvæ m da s tj ó r i ísfélagsins kemur frá íslandsbanka. Það kem- ur ekki til greina af okkur hálfu að leggja niður bolfiskvinnsluna hjá Isfélaginu, það þarf að finna aðra lausn. En er þetta ekki liður í jiví að sameina ísfélagið og Vinnslu- stöðina," segir Arnar Hjaltalín. Verktakar Að sögn Ægis Páls Friðbertssonar, nýráðins framkvæmdastjóra ísfé- lagsins, verða ísfiskbátar félagsins áfram gerðir út, rætt hafi verið við fiskverkendur í Eyjum til að taka að sér verktöku á verkun á hluta fisks ísfélagsins, en annar fiskur fari í gáma til útllutnings á hæsta veröi. Möguleiki sé auðvitað á því að auka kvóta, en hann sé clýr. Reynt verði að reka lsfélagiö eins hagkvæml og nokkurs sé kostur, og þá muni það koma sterkara, til baka í framtíðinni. Ekki frystihús Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son, stjórnarformaður, segir engan grundvöll vera fyrir því í dag að rcisa frystihús lyrir bolfisk með þennan kvóta. Það sé bara ávísun á taprekstur. „Bolfiskkvóti Isfélagsins er að- eins 10% af bolfiskkvótanum í Eyj- um, aðrir aðilar þar halda á 89% heimildanna. I þorski erum við með 1.575 tonn af 11.500 tonn- um sem aðrir hafa til ráðstöfunar. Það er rangt hjá verkalýðsforyst- unni í Eyjum að því hafi verið lýst ylir að til stæði að fara í endur- byggingu bolfiskfrystihússins. Þvert á móti var strax sagt að lagst yrði vfir málið og skýrt frá því í jan- úar hverjar fyrirætlanir okkar vrðu, svo eldci yrði alið á fölskum von- um. Það vita allir að þessi vinnsla hefur ekki gegnum tíðina skilað því sem hún þarf að skila. Félagið er hins vegar eitt af stærstu fyrir- tækjum í sjávarútvegi á landinu og hefur mjög sterka stöðu í uppsjáv- arfiski, um 10% af Ioðnukvótanum og annað eins af síldarkvótanum og rekur tvær mjög góðar loðnu- bræðslur, nýja í Eyjum og Krossa- nesverksmiðjuna sem hefur alltaf skilað góðum arði. Félagið er einn stærsti framleiðandi loðnuhrogna á Japansmarkað," segir Gunnlaug- ur. Ekki sameining Gunnlaugur segir að hefði komið til sameiningar Isfélagsins og Vinnslustöðvarinnar hefðu skapast möguleikar á að efla bolfisk- vinnslu í Vestmannaeyjum. „ En því miður varð það ekki þar sem stærstu eigendur Vinnslustöðvar- innar hafa í tvígang hlaupið frá undirskriftum þar að lútandi. Það er því ekki árennilegt að byrja að nýju. Ef verja á byggðina og Vest- mannaeyjar áfram að vera öfiugt sjávarútvegspláss þá hokra menn ekki áfram hver í sínu horni. Ef spila á í efstu deild í sjávarútvegi þarf að gera þetta eins og t.d. Ut- gerðarfélag Akureyringa og Grandi, þannig næst hagkvæmni. En ég er því miður ekki bjartsýnn á að það verði í Vestmannaeyjum í nánustu framtíð því sagan er ekki mjög uppörvandi,“ segir Gunn- laugur Sævar Gunnlaugsson. Kemur á óvart „Það töldu fiestir að það færi fram eðlileg uppbygging á frystihúsi Is- félagsins fyrir það tryggingale sem lægi fyrir, og því kemur þessi ákvörðun mjög á óvart,“ segir Guðjón Hjörlcifsson bæjarstjóri. „Bolfiskvinnslan var rekinn með tapi en í dag er þetta farið að gefa pening, sem og saltfiskvinnslan. Við munum ræða við Iram- kvæmdastjóra Isfélagsins og full- trúa verkalýðsfélagsins þó engar lausnir liggi fyrir. Ég efasl um að þetta leiði frekar til sameiningar Vinnslustöðvarinnar og Isfélags- ins, það hefur tvisvar verið reynt og jafnoft verið hætt við samein- ingu. Ég bind helst vonir við þessa verktakastarfsemi sem er fyrirhug- uð, og hluti af fólkinu fær vonandi vinnu þar. Eyjamenn eru með mik- inn kvóta miðað við íbúatölu og við verðum að vinna að því að ná meiri fiski hingað til vinnslu, og nú verðum við að treysta á fieiri en þá stóru. Bæjarstjórn hefur unnið að ]iví að skapa fleiri atvinnutæki- færi hér og að því vinnur með okk- ur Þróunarfélag Vestmannaeyja," segir Guðjón. — GC.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.