Dagur - 27.01.2001, Blaðsíða 2
26- LAUGARDAGUR 27. J A N Ú A R 20 0 1
FRÉTTIR
Ik^ur
Reynsluleysi mitt
í pólitískri refskák
Ami Steinar Jóhanns-
son segir að reynslu-
leysi sitt í pólitískri
refskák hafi orðið til
þess að hann gerði
ekki athugasemd við
hið umdeilda bréf Hall-
dórs Blöndals til
Hæstaréttar. Forseti
Alþingis hað varafor-
seta uiii algeran trúnað
þegar hann sýndi þeim
bréfið og hatt þar með
hendur þeirra.
Árni Steinar Jóhannsson, þing-
maður VG og einn af varaforset-
um Alþingis, hefur verið gagn-
rýndur fýrir það að gera ekki at-
hugasemd við hið mjög svo um-
deilda bréf sem
Halldór Blöndal
sendi forseta
Hæstaréttar til að
biðja um útskýr-
ingar á öryrkja-
dómnum.
„Vel má vera að
reynsluleysi mitt í
svona pólitískri
refskák, hafandi
setið á þingi í að-
eins eitt og hálft
ár hafi orðið til
þess að ég treysti
jafnreyndum
stjórnmálamanni
og Halldóri Blön-
dal í þessu máli.
En það er greini-
Iegt að maður _______
þarf að tileinka
sér úthugsaða pólitíska klæki og
það skal ekki standa á mér með
það í framtíðinni. Eg skal líka við-
urkenna að það hvarflaði ekkj að
mér að Hæstiréttur Islands gæti
Árni Steinar Jóhannsson, varaforseti Alþingis.
svarað svona bréfi á þremur
klukkutímum eftir að það harst
honum um klukkan I 7.00 þennan
dag. Líka taldi ég vonlaust að
hann myndi svara bréfinu. Síðan
hefur svo komið í
ljós að það var
ekki samstaða
innan Hæstarétt-
ar um að svara
hréfinu," segir
Árni Steinar í
samtali við Dag.
Bað um
trúiiad
Hann segir að
Halldór Blöndal
hafi beðið þá
varaforseta Al-
þingis sem þarna
voru um algeran
trúnað þegar
hann sýndi þeim
hréfið á óhefð-
bundnum
skyndifundi í for-
sætisnefnd en aðeins þrír forsetar
þingsins voru þá í húsinu.
„Halldór bar lýrir sig þráláta
beiðni í umræðunum að hann
skæri úr um hvort verið væri að
fremja stjórnarskrárbrot. ÍVlinn
skilningur var sá að hann væri að
senda þetta bréf og það ætti að-
eins að vera milli hans og forseta
Hæstaréttar, þannig að Halldór
gæti verið viss um sinn skilning og
úrskurð um hvort verið væri að
fremja stjórnarskrárbrot eða ekki
en ekki sem áróðursplagg fyrir rík-
isstjórnina. En þar sem Halldór
bað um algeran trúnað gat ég ekki
farið á fund félaga minna í þing-
flokki VG og kvnnt þeim málið og
leitað ráða. Trúnaðurinn girti fyrir
allt slíkt. Það má hins vegar kenna
það reynsluleysi mínu að hafa ekki
gert þarna athugasemd og fvrir-
vara við málið,“ segir Árni Steinar.
Hann segir að þessi mál verði
yfirfarin og skoðuð í lörsætis-
nefndinni og síðan verði að fara
með þessi mál inn í þingið. Hjá
því verði ekki komist. Það verði
ekki komist hjá því að ræða sam-
skipta hins þrískipta valds í land-
inu. - S.DÓR
Vanhæfir dómarar-
samþykktu hréfið
Meirihluti Hæstarétt-
ardómara þjónar undir
meirihluta þings og
ríkisstjómar, segir
stjónnnálaJræðingur.
Engínn samherja for-
seta Hæstaréttar tók
þátt í öryrkjadómnum -
tveir vegna vanhæfis.
Hæstiréttur tók sér lög-
gjafarvald.
Svanur Kristjánsson stjórnmála-
fræðingur segir að bréf forseta
Hæstaréttar til forsætisnefndar AI-
þingis sé fullkomlega óeðlileg ný-
hrevtni, sem engin rök hafi verið
færð fyrir. „Þessi nýbreytni er
hættuleg, því þjóðin þarf að hafa
tráust á lykilstofnunum þjóðfélags-
ins. Dómarar þurfa að fara eftir
ákveðnum hlutlægum reglum, en
þarna er meírihluti dómaranna að
þjóna undir meirihluta löggjafar-
valdsins og ríkisstjórnarinnar með
óeðlilegum hætti. Þetta grefur
undan trausti á dómstólnum og nú
þurfum við öll í sameiningu að
stuðla að því að dómstólarnir
öðlist traust á nýjan Ieik,“ segir
Svanur.
Samræmd aðgerð
Svanur segir ljóst að bréfaskriftirn-
ar hafi verið samræmd aðgerð.
„Það sést á tímasetningum. Bréf
forsætisnefndar var sent kl. 17 og
kl. 20 er Hæstiréttur búinn að af-
greiða málið. Það var því vitað að
von væri á bréfi forseta þingsins.
Einnig er athyglisvert, í Ijósi prent-
unartíma Morgunblaðsins, að
blaðið birti morguninn eftir langan
og ítarlegan leiðara um þetta efni.
Svanur Kristjánsson: Nýr meirihluti
dómara sem ekki tóku þátt í ör-
yrkjadómnum, svo sem vegna van-
hasfis.
Gunnar Helgi Kristinsson: Bréf for-
seta Hæstaréttar „afar einkenni-
legt".
sem þýðir að ritstjórar blaðsins
hafi veriö mjög vel með á nótunum
um hvað væri að gerast."
Svanur telur að sending bréfsins
sé alvarlegt bakslag á þróun aukins
sjálfstæðis Hæstaréttar. Hann
bendir á að Hæstiréttur er klofinn
og að meirihlutinn sem lagði bless-
un á bréfasendingu forseta Hæsta-
réttar sé auk forsetans samsettur
af fjórum dómurum scm á engan
hátt tóku þátt í öryrkjadóminum.
„Þarna eru meðal annars lÁTrum
ríkislögmaður og fyrrum ráðuneyt-
isstjóri, sem líklega hafa verið tald-
ir vanhæfir til að dæma í málinu til
að byrja með. Þeir hafa þá ekkert
síður verið vanhæfir til að svara
bréfi forseta Alþingis," segir Svan-
ur.
Tekur sér löggjafarvald
Gunnar Helgi Kristinsson stjórn-
málafræðingur segir að bréfsend-
ingin sé „afar einkennileg" og
sömuleiðis að forsætisnefnd þings-
ins komi Hæstarétti í þá óþægilegu
stöðu að krefjast svara. „Rétturinn
hefur ekld farið inn á þessa braut
fýrr og góðar og gildar ástæður lýr-
ir því. Þær varða að sumu leyti
sjálfstæði réttarins og sumu leyti
það, að rétturinn hefurekkert póli-
tískt umboð. Um leið og rétturinn
er farinn að útskýra dóma sína er
hann farinn að taka sér löggjafar-
vald - segja til um hver sé hin al-
menna regla. Rétturinn er ekki
kosinn og hefur ekkert umhoö til
þess.“
Gunnar Helgi segist sammála
Sigurði Líndal um að hugsanlega
séu þessir atburðir upphafið að
stofnun stjórnlagadómstóls. „Ef
dómstóll á á einhvern hátt að taka
þátt í pólitískum málum þá verður
hann að vera tengdur hinu póli-
tíska valdi, því annars gerist það
óhjákvæmilega að menn troða sín-
um dómurum inn í réttinn hvort
eð er. Miðað við hve Hæstiréttur
hefur verið á pólitískt v'iðkvæmum
slóðum undanfarið er þcss ekki
langt að bíða að menn velti fyrir al-
vöru fyrir sér pólitískri skipan
hæstaréttardómara. Án sérstaks
stjórnlagadómstóls hefur Hæsti-
réttur nú óþægilegt val; að þora
aklrei að taka á pólitískum við-
fangsefnum, en vitandi að enginn
annar gerir það,“ segir Gunnar
Helgi. - FÞC
Sjö sækja um Hæstarétt
Sjö sækja um stöðu hæstaréttardómara, en umsóknarfresturinn rann
út í fyrradag. Staða við réttinn losnar um 1. mars þegar Hjörtur Torfa-
son Iætur af störfum. Þeir sem sækja um stöðuna eru hæstaréttarlög-
mennirnir Dögg Pálsdóttir, Sigurður G. Guðjónsson, Sigríður Ingv-
arsdóttir og Ingihjörg Þ. Rafnar og héraðsdómararnir Hjördís Björk
Hákonardóttir, lngibjörg Benediktsdóttir og Sigríður Ingvarsdóttir. -
sbs.
Barnakór Hornafjaröar hlaut
verðlauuín
Barnakór Hornafjarðar hlaut menningarverðlaun menningarmála-
nefndar sveitarfélagsins fyrir árið 2000. Barnakórinn hefur starfað í
nokkur ár og hefur starfsemin sífellt verið að aukast. Nú starfar kór-
inn í tvennu lagi, yngri og eldri hópur, og eru um 40 börn í hvorum
hóp fyrir sig. Stjórnandi kórsins er prestsfrúín, kírkjuorganistinn og
tónlistarkennarinn Kristín Jóhannesdóttir.
Nýr leikskóli, Krakkakot, var vígður á Hornafirði á fimmtudag. Þar
bætast við um 50 heilsdagspláss, en fyrir eru í sveitarfélaginu tveir
aðrir leikskólar með saintals um 120 heilsdagsplássum. Með Krakka-
koti er hægt að sinna öllum þörfum niður í tveggja ára aldur barn-
anna. Albert Eymundsson, bæjarstjóri, segir að það sé sveitarfélagi á
landsbyggðinni gríðarlega mikilvægt að geta boðið upp á leikskóla-
pláss ef lokka eigi fólk til búsetu á landsbyggðinni, það sé það fýrsta
sem ungt fólk spyrji um þegar búferlaflutningur komi til tals. - GG
Sjómenn samþykkja verkfaHsboðim
Sjómenn í Verkalýðsfélagi Húsavíkur
hafa samþykkt að fara í verkfall 15.
mars nk. hafi samningar ekki tekist
fyrir þann tíma. 82,6% þeirra sem
þátt tóku í atkvæðagreiðslunni sögðu
já-
Sjómannafélag Eyjafjarðar hefur
einnig samþykkt verkfall, en 83%
þeirra sem þar greiddu atkvæðu sam-
þykktu það. Aðeins 30% félagsmanna
tóku þátt í atkvæðagreiðslunni og
segir formaður félagsins, Konráð Al-
freðsson, það áhyggjuefni en það sé í
samræmi við það að „alvöru" sjó-
mönnum sé stöðugt að fækka. Þar á
Konráð við að stöðugt fleiri sæki í
skipspláss tímabundið, t.d. að afla
sér góða tekna í takmarkaðan tíma, Konrád AlfreðSSOn formaður Sjó-
en hyseist ckki j»era siomennskuna r,f r- ■ t- *
að xvist'irfi - cc mannafelags Eyjafjaroar