Dagur - 27.01.2001, Side 6
30 - LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 200 1
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: eli'as snæland jónsson
Aðstodarritstjóri: birgir guðmundsson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Sfmar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. Á iviAnuði
Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: valdemar@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Sírnar auglýsingadeildar: CREYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ánrundason
CR EYKJAVÍK) 563-1 642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)460-6191 Valdemar Valdemarsson
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6i6i
Simbréf ritstjórnar: 460 617icakureyri) 551 6270 creykjavík)
Skólastefna í villum
í fyrsta lagi
íslenski grunnskólinn er í öllum aðalatriðum góður almennur
skóli þar sem íslensk æska fær í langflestum tilfellum mjög
frambærilegt skyldunám. Skyldunámið og sambærilegur
námsgrundvöllur allra á því stigi hefur raunar lengi verið talið
grundvallaratriði þeirrar stéttleysismenningar, sem einkennt
hefur Island Iengst af og sátt er um. Grunnskólinn er hins veg-
ar síður en svo gallalaus og breyttir tímar kalla á breyttar kröf-
ur. Það er þörf á meiri fjölbreytni og sveigjanleika í innra starfi
og aukið sjálfstæði skóla er æskilegt og að tryggt sé að ýmis
stoðþjónusta og sérkennsla fáist handa öllum þeim sem á
henni þurfa að halda.
í öðru lagi
HafnarQarðarbær hefur nú viðrað drög að almennu útboði
kennslu í Aslandsskóla. Hugmyndin er að fá einkaaðila til að
sjá um kennsluna á eigin ábyrgð í samræmi við tilteknar kröf-
ur og að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Avinningurinn er
að dómi bæjaryfirvalda aukin hvatning og árangur í skólastarfi
og „aukinn sveigjanleiki til að reka hagkvæmar rekstrareining-
ar og hvatning til aðhalds við fjármálastjórn.“
í þriðja lagi
Hafnfirðingar setja ýmsa faglega varnagla í útboðsgögnum sín-
um varðandi þessa nýbreytni og greinilegt að þeir vilja stíga
varlega niður. Hins vegar breytir það ekki því að einkavæðing
hverfísskóla í almenna skólakerfinu er gríðarleg varasöm
grundvallarbreyting. Þar er stigið stórt skref í átt að einka-
skólakerfi við hlið þess almenna og um slíkt er ekki og verður
varla þjóðarsátt. Rökin um fjölbreyttara skólastarf eru léttvæg
í ljósi nýrra samninga kennara og breytinga sem fyrirsjáanlega
eru að koma inn í almenna skólann. Og þótt skólamál séu
vissulega þungur rekstrarliður, þá mega sparnaðarástæður ein-
ar og sér ekki umturna skólakerfinu um leið og það flyst frá
ríki til sveitarfélaga. Slíkt er algjör uppgjöf. Meirihlutinn í
Hafnarfirði er því á villigötum, sem er áhyggjuefni, því þetta er
fordæmi sem varðar okkur öll, ekki bara Hafnfirðinga.
Birgir Guðmundsson.
Lögmaður með kjaft
Garri hefur aldrei verið sérslak-
Iega hrifinn af lögfræðingum og
er á því að margir skúrkar séu
þar innan um og saman við. Það
eru helst lögmenn á borð við
Perry Mason og Matlock sem
hafa hrært hjartað Garra til
hrifningar, enda eru þeir báðir í
útlöndum og hafa aukinheldur
aldrei verið til. En Garri hefur
sem sé alltaf haft
heldur illan bifur á
íslenskum lögmönn-
um sem eru til, eða
þykjast vera það. Á
þessu er þó ein und-
antekning, og heitir
Sigurður G. Guð-
jónsson. (Eldd hefur
Garri hugmynd um
fyrir hvað G-ið stend-
ur, kannski Gari-
baldi, nú eða bara
Garri. Sigurður Garri
Guðjónsson, það hljómar helvíti
vel).
Sigurður G. Guðjónsson talar
og skrifar mannamál og fetar
ekki krókótta og villugjarna
stigu lagamáls og frasa þegar
hann beinir orðum sínum til
ráðamanna og annarra. Fræg
var greinin í Degi um árið þegar
Sigurður tók Kjartan Gunnars-
son og fleiri fogla í bakaríið og
uppskar meiðyrðamál sem hann
síðan vann. Og enn hvín í kjaft-
inum Sigurðar G.(Gribaldis?).
BíBí og bullariim
Sigurður hefur sem sé skrifað
aðra grein í Dag, nánar til tekið
í gær, og þar talar hann heldur
aungva tæpitungu og ýmsir fá
til tevatnsins, ekki síst mennta-
málaráðherrann BB (sem
stendur ekki fyrir Bæjarins
Besti). Sigurður segir m.a. að
heimasíðupistlar Bíbís séu:
„Annars vegar lof um hann
sjálfan og þá sem honum eru
þóknanlegir og hins vegar árás-
ir, aðdróttanir eða rógburður
V
um andstæðinga eða ímyndaða
andstæðinga."
Þá eru þeir BíBí og Hannes
Hólmsteinn nefndir „geirfuglar
íslenskra stjórnmála" og minnst
á „bull" HH á Skjá einum, sem
m.a. sé í eigu „fjárhúsfélaganna
Páls Kristjáns Pálssonar og svo-
kallaðra Hagkaupsbræðra."
Og Sigurður getur ekki held-
ur stillt sig um að
minnast enn og aft-
ur og Kjartan Gunn-
arsson, sem hann
uppnefnir eða rétt-
nefnir nú „bitlinga-
þega" Sjálfstæðis-
flokksins.
Sigurður K.
Þetta er allt saman
glæsilegt og blússan-
di kjaftur á lög-
manninum, án þess
þó kannski að sé efniviður í
meiðyrðamál. En það sem
kannski vekur mesta athygli í
grein Sigurðar og mun væntan-
lega hafa mesta eftirmála er eft-
irfarandi: ,,..,en þáverandi for-
maður fjármálaráðs Sjálfstæðis-
flokksins ásamt nokkrum öðr-
um valinkunnum sjálfstæðis-
mönnum, sem settu Elínu Hirst
yfir fréttastofu Stöðvar 2, að
eigin áliti til að tryggja hags-
muni Sjálfstæðisllokksins, með
þeim orðum: „Þú sérð til þess
að við vinnum Borgina," svo
notuð séu orð Elínar í samtali
við mig og Sigurjón Sighvatsson
á árinu 1995."
Ja, Ijótt er ef satt er og vænt-
anlega munu fréttamenn
snimmendis vaða í hina harð-
skörpu Hirst til að Ieita staðfest-
ingar á þessum meintu ummæl-
um hennar.
Sigurður K. (Kjaftur) Guð-
jónsson hefur talað og nú eins
og fyrr hriktir í röftum Valhallar.
- GARRI
ELIAS
SNÆLAND
JÓNSSON
SKRIFAR
Það hlýtur að vera óþægilegt fyr-
ir forsætisráðherra að þurfa að
vísa einum nánasta samstarfs-
manni sínum úr ráðherraemb-
ætti einu sinni, en óvenjuleg
óhamingja að |)urfa að reka sama
manninn tvjsvar. Þetta hefur þó
Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, neyðst til að gera - nú síð-
ast vegna þess að félagi hans Pet-
er Mandelson gaf rangar eða í
það minnsta villandi upplýsingar
sem kollegi hans endurlók í
góðri trú í neðri málstofu breska
þingsins.
í Bretlandi er það höfuðglæp-
ur ráðherra að gefa þinginu
rangar upplýsingar. Þess vegna
var brotthvarf Mandelsons úr
ráðherraembætti, og þá um leið
úr innsta valdahring Verka-
mannaflokksins, óumflýjanlegt,
og það örfáuni mánuðum fyrir
væntanlegar þingkosningar.
Þetta er áfall fírir Blair.
Falliim foringi
Afstaða þingsins
Almennt er viðurkennt að þrír
menn hafi átt mestan þátt í því
að breyta breska
Verkamanna-
flokknum svo
rækilega að
honum tókst að
vinna mikinn
kosningasigur
og komast til
valda eftir hátt í
tveggja áratuga
pólitíska eyði-
merkurgöngu.
Það voru félag-
arnir Tony Blair,
Gordon Brovvn,
fjármálaráð-
herra, og Pcter
Mandelson. Og
hlutur hins síð-
astnefnda í þeirri umbyltingu var
mikill; hann var af mörgum tal-
inn hugmyndafræðingur „Nýja
Verkamannaflokksins" og sá sem
mótaði þá nýju fmynd scm leiddi
til sigurs.
En Mandelson var ekki allra.
Hann var afar
viss um eigin
snilli og eignaö-
ist' því marga
óvini utan
flokks sem inn-
an. Margír grétu
það því ekki
þegar hann
neyddist til að
segja af sér árið
1998 vegna fjár-
málatengsla við
auðkýfing. Vin-
átta Blairs og
Mandelsons
hélst óbreytt og
við fyrsta tæki-
færí var hinn
brottrekni geröur að ráðherra á
nýjan leik. Og gegntli starfi sínu
að flestra mati ágætlega, auk
þess sem hann var áfram lykil-
maður við undirbúning Verka-
mannaflokksins vegna þingkosn-
inga sem talið er víst að verði
haldnar í síðasta lagi í maimán-
uði.
Nú er þetta allt fvrir bí. Mand-
clson skýrði ekki rétt frá afskipt-
uni sínum af því þegar indversk-
ur auðkýfingur fékk breskan rík-
isborgararétt. Þetta varð að stór-
máli þegar hinar röngu upplýs-
ingar voru endurteknar í þing-
inu.
Ymislegt má læra af þessari
dramatísku atburðarás. Hún hef-
ur staðfest hið gamalkunna að
þeir sem fljúga hátt og hratt gcta
búist við því að falla þeirra verði
mikið. Merkilegra er þó að sjá
enn á ný hversu alvarlegum aug-
um breska þingið lítur það ef
ráðherrar gefa þingheimi rangar
upplýsingar, jafnvel í minni hátt-
ar málum. Það mætti vera öðr-
um þjóðþingum til eftirbreytni.
Peter Mandelson: brotthvarf hans
er áfall fyrir Blair á kosningaári.
Hvaðfannstþér um laga-
val Gísla Helgasonará
þingpöllum?
(Þegar öryrkjafnimvarpió var
samþylikt spilaði Gísli þjóð-
sönginn á blokkflautu.)
Magmís Kjartansson
„Mér fannst gott
hjá Gísla að spila
eitthvað íslenskt,
ef einhver af
þessum ungu út-
varpsmönnum
hefði verið þarna
í sporum Gísla hefði hann vafab't-
ið rcynt við eitthvað með Jennifer
Lopcz eða álíka. Aftur á móti geta
komið upp spurningar um sæmd-
arrétt; að setja lag sem er jafnsam-
ofið íslensku þjóðlífi saman við
það rapp er frarn fór í þingsölum
þetta kvöld."
Gestur Einar Jónasson
útvarpsmaður á Rás 2.
„Miðað við við-
brögð almenn-
ings við öryrkja-
málinu kom hug-
mynd og framtak
Gísla ekki á óvart.
Það kom líka á
daginn að eins og ævinlega gerist
þegar þjóðsöngurinn er spilaður þá
grípur fólk eitthvað fát, fum og
vandræðagangur - hvað jiá þegar
söngurinn er spilaður á þingpöll-
unum á blokkflautu. Auðvitað
hefði Gísli einnig getað spilað önn-
ur lög við jietta sama tilefni, svo
sem Sjá dagar konia. Það lag hefði
ekki síður hæft bæði stað og
stund."
Hera Björk Þórhallsdóttir
söngkona.
„Mér finnst þetta
allt í Iagi, þjóð-
söngurinn er lag
íslensku Jijóðar-
innar og hver
listamaður á að
flytja hann frá
eigin hjarta. Við þetta sama tilefni
hefði Gísli cinnig geta flutt graf-
skriftarsálm yfir íslensku ríkis-
stjórninni, svo sem Kallið er kom-
ið. Mér linnst að ríkisstjórnin hafi
brugðist íslensku þjóðinni í þessu
máli því öll getum við orðið öryrkj-
ar á einu andartaki og þar er eng-
inn undanskilinn. Það rnunaði
litlu að þannig færi fS'rir Ingibjörgu
Pálmadóttur. Enginn veit sína æv-
ina fyrr en öll er.“
liljómlistarmaour.
Rúnar Jiílíusson
tónlistarmaður í Keflavík.
„Ég tel að þetta
bafi verið vel til
fundið hjá Gísla.
Þjóðsöngurinn er
auðvitað stórkost-
legur en vera má
að einhver meiri
|iungi sé í texta einhvers annars
lags sem betur hefði hæft tilefn-
inu. Það er hins vegar ekki endi-
lega víst að jiað hæfi alltaf kröfu-
gerðum að grípa til aðgerða af
þessum toga jiegar heimta skal
peninga úr ríkissjóði, fólk verður
að skilja að ríkið sem jiað er að
gera kröfur til er það sjálft þegar
öllu er á botninn hvolft. Ég veit lil
dæmis ekki hvort það hefði hæft
framhaldsskólakennurum ef þeir
hefðu farið þarna um daginn og
sungið Það er leikur að læra.“