Dagur - 10.02.2001, Síða 11
LAUGARDAGUR 10. F F. B R Ú A R 2 00 1 - 3S
Damvr.
ERLENDAR FRÉTTIR
L.
I PaMstan eru konur
seldar eins og búfénaður
Razia var neydd í hjónaband 13 ára gömul. Eiginmaðurinn píndi hana og
piagaði. Þegar hún þoldi ekki við iengur hellti hún steinolíu yfir höfuð sér
og kveikti í. Hún lifði af en er skaðbrennd í andiiti.
Eiginkomir sem
hlaupast á brott úr
hjónaböndum sem
þær eru neyddar í eru
oft myrtar til að hjar-
ga sóma fjölskyldna
þeirra
Mannréttindi kvenna eru fótum
troðin víða um heim og hefðir og
venjur koma í veg fvrir að hægt
sér að hreyta þar neinu til hatn-
aðar. Stjórnvöld þykjast ekkert
vita af grófum mannréttinda-
brotum í löndum sínum og og
telja frekleg afskipti af innanrík-
ismálum ef utanaðkomandi aðil-
ar reyna að hafa þar áhrif á.
I Pakistan ganga konur kaup-
urn og sölum eins og hverjir aðr-
ir lausafjármunir. Það eru fjöl-
skyldur þeirra sem selja þær og
eiginmenn fara með þær að vild.
Shehnaz Akhtar heitir 25 ára
gömul kona í Punjabi, sem er
landbúnaðarhérað í Pakistan,
þar sem ekki þykir við hæfi að
konur játist mönnum sjálfviljug-
ar. 1 síðasta mánuði seldu for-
eldrar hana manni sem hún
þekkti, en hafði óbeit á. Verðið
var 20 þúsund rúpíur eða sem
svarar 30 þúsund íslenskum
krónum. Stúlkan var neydd til að
undirrita hjúskaparskilmála. En
í laumi skrifaði hún hæstarétti í
Lahore og bað um hjálp.
í bréfinu minnti hún á , að
fyrrum hafi stúlkur sem ekki
hlýddu foreldrunum verið grafn-
ar lifandi. En núna eru þær seld-
ar eins og sauðfé eða geitur.
Hún segist hafa verið gift manni
sem hún hefði aldrei óskað eftir
að húa með og spurði:,, Hvers
konar lslam er þetta? Eg er
mjög óhamingjusöm kona sem
hefur verið kastað fyrir úlfana.
Hjónaband mitt er grimmt og
gerræðislegt."
Dómari sem fékk bréfið í
hendur skipaði svo lýrir að vopn-
aðir Iögreglumenn næðu í Akht-
ar og luin var send í flótta-
mannabúðir. Dómarinn sagði að
ekki væri hægt að neyða full-
orðna konu í hjónaband á móti
vilja hennar.
Stúlkur sem eru nægilega
hugrakkar til að kæra meðferð-
ina á sér eða flytja að heiman,
eru hundeltar af fjölskyldum sín-
um. Þær eru neyddar til að snúa
heim og algengt er að þær séu
myrtar til að bjarga sóma fjöl-
skyldunnar. Lögreglan Iítur und-
an þegar svona glæpir eru
framdir.
Musharraf hershöfðingi, sem
braust til valda fý'rir rúmu ári
Iofar að koma í veg fýrir þessi
„heiðursmorð". Á síðasta ári
íjölgaði þeim í Punjab héraði
einu úr 432 í yfir 500 morð á
einu ári.
Farið er með konur eins og
fjölskyldueign og það er trú að
frá þeim geisli sjálfur fjölskyldu-
heiðurinn. Kamila Hyat starfar í
mannréttindanefnd i Pakistan.
Hún segir að Musharraf hers-
höfðingi trúi kannski að þetta
eigi ekki að koma fyrir. En hann
hefur ekkert gert til að koma í
veg fyrir ósómann. Enda þarf
hann þá að uppræta hefðir og
hefðir eru það fý'rirbæri sem erf-
iðast er að breyta.
En líf Akhtar er enginn dans á
rósum þótt yfirvöldin hafi tekið
hana undir sinn verndarvæng.
Dómarinn sem lét senda eftir
henni, sendi hana á flótta-
mannaheimili sem er í einka-
eign. Þar búa 75 konur á bak við
rammger rimlahlið og fá ekki að
fara út fyrir girðingu og lifa í
stöðugum ótta við hefnd Ijöl-
skvldna sinna. Þetta er líkara
fangelsi en hæli. Á sfðasta ári
fóru 700 konur um þessar llótta-
mannabúðir, sem eru í Lahore.
Tahira Bibi er önnur kona sem
orðið hefur að þola hefðirnar í
Pakistan. Hún telur sig ekki geta
lifað við öryggi nema hún komist
úr landi. Eftir að fvrsti eiginmað-
ur hennar dó eftir 15 ára hjú-
skap, seldu foreldrar hennar
hana þrem mönnum til viðbótar.
Söluverðið nam sem svarar um
25 þúsund ísl. kr. í hvert sinn.
Einn borgaði með landskika og
tveir með reiðufé. 1 öllum tilvik-
um brutu foreldrar hennar
samninga til að geta selt hana á
ný.
Þegar Bibi var 35 ára gömul
varð hún ástfanginn að skóla-
kennara og giftist honum gegn
vilja foreldrana. Bróðir hennar
og frændur rændu henni og flut-
tu heim og pynduðu hana í tvo
mánuði. Hún var meðal annars
barin með staf. Eiginmaðurinn
var neyddur til að undirrita
skilnaðarskilmála. Bibi býr
núna, ásamt 34 konum öðrum, f
Ieynilegu hæli, sem rekið er af
nunnum.
Enn ein konan, Razia að
nafni, var neydd í hjónaband
þegar hún var 13 ára gömul. Eig-
inmaðurinn barði hana reglu-
lega og læsti inni. Hann hótaði
henni lífláti ef hún sagði frá
hegðun hans. í ör\'inglan hellti
hún steinolíu yfir höfuð sér og
kveikt í. Hún taldi dauðann betri
en það Iíf sem hún var ncydd til
að lifa. Eiginmaðurinn skildi við
hana skaðbrennda og kvæntist
aftur.
Skotbardagar í Ramallah og Hebron
Skotbardagar áttu sér stað í gær milli ísraelskra nermanna og vopn-
aðra Palestínumanna í borgunum Hebron og Ramallah á Vestur-
bakkanum og var stór hópur fólks fluttur á sjúkrahús. Hátt í 400
manns, flestir Palestínumenn, hafa týnt lífinu frá því ný átök brutust
út milli ísraelsmanna og Paletsínumanna í september síðastliðnum,
en ekkert hefur gengið né rekið í friðarsamningum þeirra. Jasser Ara-
fat lciðtogi Palestínumanna hringdi í gær í Ariel Sharon, hinn ný-
kjörna forsætisráðherra Israels, til þess að segja honum að Palestínu-
menn vilji halda friðarviðræðum áfram og stefni enn að því að koma
á friði. Sharon sagðist einnig vilja semja um frið, en skilvrði þess að
friðarviðræður hefjist á ný sé að öllu oflreldi linni.
Friðarviðræðiir í Kólumbíu
Andres Pastrana, forseti Kólumhíu, og Manuel Marulanda, leiðtogi
öflugustu skæruliðasamtaka landsins, hittust í gær annan daginn í
röð til þess að reyna að blása nýju lífi í tveggja ára gamlar friðarum-
leitanir þar í landi. Pastrana flaug með þyrlu inn á yfirráðasvæði upp-
reisnarmannanna í suðurhluta Kólumbíu, en skæruliðasamtökin
FARC ráða yfir 17.000 manna herliði. Pastrana sagði viðræðurnar
hafa skilað góðum árangri og Marulanda sagði menn vera að fá trú á
friðarviðræðunum á ný.
Mbeki ávarpar þingið
Thabo Mbeki, forseti Suöur-Afríku, flutti í gær þriðju stefnuræðu
sína á suðurafríska þinginu. Mbeki, sem er arftaki Nelsons Mandela,
hefur verið afar umdeildur í starfi sínu, en hann hvatti íbúa landsins
til þess að hrista af sér 300 ára gamla ofbeldis- og kúgunarhefð og
sameinast í baráttunni fý’rir þjóðfélagi sem væri laust við spillingu og
breitt bil milli fátækra og ríkra. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu
Mbeki fyrir að taka ekki í ræðu sinni á þeim vandamálum sem mest
væru aðkallandi.
Jámbraut til Tíbet
Kínverska þingið samþykkti í gær að leggja járnbraut til Tíbet, en
talsmenn Tíbetbúa í Evrópu hafa harðlega gagnrýnt þessi áform á
þeim forsendum að flutningur Kínverja til Tfbet muni aukast mjög í
kjölfarið. Járnbrautin vrði sú sem hæst liggur í heiminum og liggja að
stórum hluta í stöðugu frosti. Kínverjar innlimuðu Tíbet fvrir hálfri
öld, en markmiðið með því að Ieggja þangað járnbraut er að gera Tí-
bet tengdara efnahagsþróuninni í Kína en verið hefur.
ESB ætlar að herða reglur gegn man-
sali
Dómsmála- og innanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna hafa
átt með sér óformlega fundi í Stokkhólmi undanfarna tvo daga. Þeir
samþykktu í gær að beita sér fyrir sameiginlegum reglum ESB þar
sem hert verði að þeim sem stunda mansal á konum og börnum. A
hverju ári eru þúsundir ungra kvenna ogbarna fluttar frá Austur-Evr-
ópuríkjum til aðildarríkja ESB. Þeim er gjarnan Iofað atvinnu, en vit-
að er að stór hluti þeirra endar í vændishúsum og nektarstöðum.
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR
41. dagur ársins, 324 dagar eftir.
Sólris kl. 9.39, sólarlag kl. 17.46.
Þau fæddust 10. feb.
• 1888 Giuseppe Ungaretti, ítalskt
ljóðskáld.
• 1893 Jimmy Durante, bandarfskur gam-
anleikari.
• 1898 Bertolt Brecht, þýskt leikskáld.
• 1913 Þóra Einarsdóttir formaður Vernd-
ar.
•1914 Larry Adler, bandarfskur munn-
hörpuleikari.
• 1926 Níels P. Sigurðsson sendiherra.
• 1927 Leontyne Price, bandarísk óperu-
söngkona.
• 1946 Donovan, bandarískur söngvari og
lagasmiður.
Þetta gerðist 10. feb.
• 1793 lauk Sjö ára stríðinu með því að
Frakkar, Bretar og Spánverjar undirrit-
uðu friðarsamning í París.
• 1846 hófust þjóðflutningar Mormóna
frá lllinois til Utah þar sem þeir reistu
sér horg.
• 1944 sök olíuskipið E1 Grillo sem iá á
Seyðisfirði eftir að þrjár þýskar flugvélar
vörpuðu sprengjum á það.
• 1962 sökk togarinn Elliði frá Siglufirði
undan Ondverðarnesi og fórust tveir af
26 manna áhöfn.
Vísa dagsins
Finnst þér lífiðfúlt og kalt,
fullt er það með lygi og róg,
en brennivtnið bætir allt,
bara að það sé drukkið nóg.
Páll Ólafsson
Afmælisbam dagsins
Rússneski rithöfundurinn Boris Leon-
odovitsj Pasternak fæddist í Moskvu
þann 10. febrúar árið 1890. Faðir hans
var listmálari og móðirin píanóleikari,
og sjálfur lærði Pasternak tónsmíðar í
sex ár áður en hann sncri sér að ritstör-
funum. Hann einbeitti sér að ljóðagerð,
en skrifaði þó nokkrar smásögur og eina
skáldsögu, Doktor Zhivago, sem fékkst
ekki birt í Sovétríkjunum en kom út í
ítalskri þýðingu árið 1957 og var fljót-
lega kvikmynduð.
Tindilfætt er lukkan, treystu benni
aldrei þó.
Theodora I horoddsen
Heilabrot
Hvernig er hægt að leggja 7 við 7 þannig að
útkoman verði tveir?
Síðasta gáta: Hvaða tveir bókstafir korna
í eðlilegu framhaldi af eftirfarandi sta-
farunu, og hvers vegna: H, T, B, K, I, E, F,
A, E, S, O ...
Lausn: Næstu tveir stafir eru H og V.
Þetta eru upphafsstafir orðanna í spurn-
ingunni: Hvaða Tveir Bókstafir Koma I
Eðlilegu ... o.s.frv.
Vefur dagsins
Sjö myndasmiöir, Brooks Walker, Hreinn
Hreinsson, Jóhann Isberg, Jóhann Oli
Hilmarsson, Jón Baldur Hlíðberg, Lárus
Karl Ingason og Sigurður H. Stefnisson
sýna ljósmyndir og tekningar sínar á Net-
inu og bjóða til kaups á www.mynda-
banki.is