Dagur - 24.02.2001, Síða 6
30 - LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2 00]
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
RitStjÓri: ELI'AS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoðarritstjóri: BIRGIR guðmundsson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVIK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 eioo OG soo 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. A mánuði
Lausasöluverð: íso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeiidar: valdemar@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: CREYKJAVíK)563-1615 Amundi Ámundason
CREYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)A60-6191 Valdemar Valdemarsson
Sfmbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símbréf r/tstjórnar: 460 617icakureyri) 551 6270 creykjavík)
Mmnkandi forustu-
hlutverk
í fyrsta lagi
Oldungardeildarþingmaðurinn Hillary Clinton hefur stigið
fram á sjónarsviðið og lýst hörmum sínum og undrun yfir því
að bróðir hennar skuli hafa með beinum hætti hagnast um
sem nemur tugum milljóna íslenskra króna á því að hafa sem
lögfræðingur tveggja sakamanna fengið mág sinn Bill Clinton
til að náða þá síðusta daga hans á forsetastóli. Þetta er aumt
yfirklór og það sætir mikilli furðu að í ríki sem gerir kröfu til
að vera brjóstvörn lýðræðis í heiminum skuli það yfirleitt vera
mögulegt að snúa náðun sakamanna upp í fjölskyldumál!
í öðru lagi
En fjölskyldufarsinn í þessu náðunarmáli öllu er þó aðeins sér
- clintonísk birtingarmynd augljóss veikleika í kerfinu. Heim-
ildir Bandaríkjaforseta til náðunar, eru bundnar í stjórnarskrá,
en útfærsla þeirra þarf greinilega ákveðnari ramma. Náðanir
Bills Clintons - m.a. á mönnum sem ekki var mælt með náð-
un á af dómsmálaráðuneytinu - tengjast augljóslega spilltu
Ijáröflunarstarfi Demókrataflokksins, enda barnaskapur að
bera það á borð að tilviljun ein ráði því að hver náðunin á fæt-
ur annarri nái til manna sem hafa með einhverjum hætti látið
fé af hendi rakna til flokksins. Engin ástæða er til að ætla að
þetta sé örðuvísi hjá repúblikönum.
í þriðja lagi
Það hefur verið óumdeilt að horfa til Bandaríkjanna sem for-
usturíkis vestræns lýðræðis og borgaralegra réttinda í heimin-
um. En eftir endurteknar uppákomur síðustu missera, sérstak-
lega eftirmála forsetakosninganna og nú banana - náðana
Bills Clintons, er þessi fyrirmynd í uppnámi. Þá er vafasöm
atorkusemi hins nýja forseta, Bush yngri, í utanríkismálum
þegar farin að splundra samstöðunni í bandamannahópi
Bandaríkjanna. Staða Bandaríkjanna í samfélagi þjóðanna er
því að breytast, og forustuhlutverk þeirra að minnka verulega.
Birgir Guðmundsson.
Af fjöllöldun málsverða
Garri er hálfpartinn farinn að
sjá eftir því að hafa ekki kosið
Astþór Magnússon í forseta-
kosningunum á sínuni tíma.
Ekki þar fyrir að Olafur Ragnar
hafi ekki staðið sig vel í embætt-
inu og verið þjóð sinni til sóma,
en það hefði kannski verið svona
meira um stuð og frumlegar
uppákomur á Bessastöðum ef
Ástþór hefði setið
þar síðustu árin,
hugsanlega á friðar-
stóli en sennilega þó
ekki.
Það er alveg ljóst
að það hefur staðið
Friði 2000 og Ást-
þóri sjálfum fyrir
þrifum að hann var
ekki kjörinn forseti
Islands á sínum
tíma. Af forsetastóli
hefði Ástþór hugs-
anlega haft möguleika á að
konta á heimsfriði árið 2000
eins og hann stefndi að, en þarf
nú óbreyttur að endurskoða ár-
talið.
Símahapp
Og sömuleiðis hefði forsetinn
Ástþór haft úr fleiri fjáröflunar-
leiðum að moða til friðarstarfs-
ins en hann á kost á um þessar
mundir. Reyndar er ekki hægt
að saka friðflytjandann um skort
á hugmyndaflugi í fjároflunar-
brölti sínu eins og nýleg dæmi
sanna. Minnugur Galíleu-
mannsins sem þúsundfaldaði
brauð og fisk fyrir margt löngu,
gerði Ástþór tilraun til að millj-
ónfalda eina símamáltíð. Þannig
falaðist hann eftir einni máltíð á
nokkrtim veitingastöðum borg-
arinnar sem framlag í símahapp-
drætti í þágu friðar og brugðust
veitingamenn vel við. En á þá
runnu svo tvær ef ekki fleiri
grímur þegar þessi eina máltíð
varð að þúsund í meðförum Ást-
þórs og biðraðir mynduðust við
V
búllurnar af banhungruðu fólki
sem veifaði happdrættisvinning-
um og vildi mat sinn en aungvar
refjar.
Vertar fyrtust við þessum
ágangi og hafa sakað Ástþór urn
ólögmæta fjölföldun málsverðar,
en Astþór sjálfur undrast við-
brögð veitingahúsanna, kveðst
hafa gert við þau samninga til
nokkurra mánaða
og þau þar lagt af
mörkum málsverði.
Væntanlega verða
umræddir samning-
ar gerðir opinberir á
næstunni þannig að
menn sjái það svart
á hvítu hver mis-
skildi hvern.
Gamagaul
Það er alveg ljóst að
þessi vandræði með
símahappið og málsverðina
hefðu aldrei komið upp ef Ást-
þór hefði skipulagt þetta átak frá
Bessastöðum. Þá hefðu heppnir
vinningshafar mætt á veitinga-
staðina veifandi forsetabréfi
með tilskipun um að gefa við-
komandi að éta og það strax. Og
varla hcfðu vertar farið að hafna
fyrirmælum frá forseta lýðveld-
isins og þ\á allir unað glaðir við
sitt og peningarnir streymt inn
til Friðar 2000.
Það er sem sé aðstöðuleysi
Ástþórs sem gerir það að verk-
um að þúsundir manna ganga
nú gaulandi görnum frá mat-
sölustöðum Reykjavíkur og í út-
löndum er ennþá stríð. Við svo
búið má ekki standa. Garri hvet-
ur því alla til að veita Ástþóri
brautargengi í næstu forseta-
kosningum. Og leggur til að lag-
ið „Syngjum öll um Sókrates"
verði lögleitt sem nýr þjóðsöng-
ur stormskersins íslands.
- GARRl
BJÖRN
ÞORLÁKS
SON
SKRIFAR
Nýrómantísk pemngastefna
Erfitt er að eldast á tímum jafn-
hraðra breytinga og orðið hafa
undanfarið í vestrænum heimi.
Gömul gildi sem miðaldra ís-
Iendingar fengu með móður-
mjólkinni íyrir hálfri öld, flokk-
ast nú sum hver undir verstu
ósiði. Líldegt er á sama hátt að
börnin sem alast upp í dag þurfi
að tileinka sér allt annað uppeld-
isviðhorf þegar þau fara sjálf að
íjölga sér. lslenska þjóðin lifði í
eymd og örbirgð án nokkurrar
tilbreytingar í mörg hundruð ár.
Allt stóð í stað á meðan heimur-
inn þróaðist í kringum okkur.
Otað að fólki
I Ijósi aldalangrar kyrrstöðu er
furða að Islendingum hafi þó
tekist að fóta sig þetta vel í vel-
sæld og velmegun á skömmum
tíma. En þjóðin virðist ekki trúa
því að þessi tími sé kominn til að
vera. Jóhanna Sigurðardóttir al-
þingismaður gerði óraunsæi
landsmanna að
umtjöllunarefni
á Alþingi f vik-
unni. Þar kom
fram að yfir-
dráttarlán ein-
staklinga hafa
vaxið á einu ári
úr 38 milljörð-
um í 60 millj-
arða króna eða
um 58% frá des-
ember 1999 til
desember 2000.
Þessi yfirdrátt-
arlán bera 22-
23% vexti og
segir þingmaðurinn að þessum
okurlánum sé greinilega otað
ótæpilega að einstaklingum og
þetta verði að stöðva.
Skuldir heimilanna eru gríðar-
legt áhyggjuefni en það er var-
hugavert að skella skuldinni á
lánastofnanir og svipta lands-
menn ákvarðanaforræði eins og
hér sé allt upp-
fullt af hálfvit-
um. Islendingar
eiga að vita
hverjir vextirnir
eru þegar þcir
ákveða að fá sér
yfirdrátt. Þeir
eiga að átta sig á
því að kannski
eru ekki hundr-
að í hættunni
þótt fjölskyldu-
bíllinn sé orðinn
5 ára gamall eða
parketið í stof-
unni sé rispað.
Taugaveiklud þjóð
Kannski er það fortíöin sem
þvælist cnn fýrir þjóðinni? Is-
lendingar slepptu nefnilega
heilu skeiði í efnahagssögu ann-
arra landa sem kalla má sparnað
fjármuna. Landinn fór á l’imm
mínútum úr örbirgð allsnægtir
en enginn lagði til hliðar og verð-
bólgu- og vaxtaþróun ýtti undir
þá taugaveiklun. Nú hefur verð
hins vegar verið stöðugt um
skcið en menn hugsa enn jafnný-
rómantískt og fyrr og láta eins og
peningarnir muni brenna næstu
nótt ef þeir verða ekki notaðir í
dag.
Umbúðír án íuuihalds
Svava Jakobsdóttir varð einna
fyrst nútímahöfunda til að benda
á hræsnina og yfirborðslífsstíl
þjóðarinnar í sögu sinni „Leigj-
andinn". Hjónin sem leigðu út
húsið sitt, höfðu kappkostað að
klára framhlið hússins. Þá sem
sneri út að samfélaginu en inn-
anhúss var allt í kaos og þar
gerðust um síðir válegir atburðir.
Skilaboð Svövu eiga nú við
sem aldrei fvrr. Lífið snýst um
innviðina en ekki óaðfinnanlegt
parket og glænýjan bíl í hoði yfir-
dráttar bankans.
-Ð&jur
Hvemig borgarstjóri yrði
Bjöm Bjamason?
Ásta Möller
þiiigmaðurSjálJstæðisfloliks í Reykja-
vtk.
„Björn hefur
staðið sig af-
skaplega vel
sem mennta-
málaráðherra.
Hann er
vinnusamur
og hefur góða
yfirsýn yfir þau mál sem hann
tekur sér fyrir hendur. Einnig
hefur Björn gott lag á Irví að færa
mál til betri vegar og laga þau að
framtíðarsýn sinni. Ef niðurstað-
an yrði sú að hann myndi leiða
borgarstjórnarflokk sjálfstæðis-
ntanna í kosningum að ári myndi
hann leysa verkefnið farsællega,
en að þetta verði niðurstaðan
treysti ég mér ekki til þess að spá
um.“
niugi Jökulsson
pistlahöfiindur.
„Björn yrði
ábyggilega
býsna sköru-
legur borgar-
stjóri og vinur
smælingjanna.
Hann hjálpaði
mér einu sinni
að ýta bílnum mínum í gang á
köldum vetrarmorgni hér í
Reykjavík ogþá var hann þó bara
þingmaður. Eg býst við að hann
taki ærlega til hendinni við að
hjálpa borgarbúum verði hann
borgarstjóri. Hvort svo hins veg-
ar verði er vonlaust að spá um á
þessari stundu."
Margrét Sverrisdóttir
framkv.stj. Frjálslynda flohksins.
„Sé fólk orðið
þreytt á
Reykjavíkur-
listanum, er
það orðið enn
þreyttara á
sjálfstæðis-
mönnum í
borgarstjórn. Stjórnarandstaða
þeirra er afskaplcga hugmynda-
laus og ntenn stökkva upp á nef
sér sitt á hvað af Iitlu tilefni.
Hugmyndir um að gera Björn
Bjarnason að borgarstjórak-
andídat eru hins vegar illskiljan-
legar og gera flokknum ógagn á
þessu stigi málsins. I mennta-
málaráðuneytinu hefur Björn
staðið sig vel og ég hef verið hrif-
in af ýmsum verkum hans, en
hann ntyndi efalítið skorta kjör-
þokkann þegar í návígi borgar-
málanna kæmi. Það hvarflar
hins vegar ekki að mér að Björn
ætli að hætta stöðu sinni sem
menntamálaráðherra uppá slag
um borgarstjórann."
Jón Steinar Gunnlaugsson
lögmaður.
„Betri en Ingi-
björg Sólrún.
Fyrst og fremst
vegna þess að
hann hefur
betri skilning á
frelsi manna
til orðs og
æðis, og er lík-
legri til að tryggja borgarbúum;
einstaklingum og fyrirtækjum,
möguleika á að húa og starfa inn-
a n borgarmarkan na. “