Dagur - 17.03.2001, Page 2
\$. - vt\íi i |v í. ií ;i w l \ v.. )Ui .
26 - LAVGARDAGUH 17. M A R S 2 00 1
FRÉTTIR
Vemdun Guðna
sögð hrákasmíð
Lokun strandsvæða í
laxeldi tii verndar
villtuiii laxi. NASF
telur reglugerðina
gauga of skamuit.
Mikil áhætta. 200-
300 milljónir tapast í
sölu veiðileyía.
Skiptar skoðanir eru um ákvörð-
un Guðna Agústssonar landbún-
aðarráðherra um lokun strand-
svaeða til laxeldis til verndar villt-
um laxastofnum. Orri Vigfússon
stjórnarformaður NASF. þ.e.
Verndarsjóður villtra laxastofna
segir að þessi ákvörðun sé hráka-
smíð og illa ígrunduð auk þcss
sem þarna sé verið að taka mikla
áhættu.
Mtklir hagsmunir í húíi
I greinargerð Veiðimálastofnun-
ar sem gerð var að beiðni ráð-
herra kemur m.a. fram að áætl-
uð velta í kringum stangveiði sé
vel á 3 milljarð króna og hreinar
tekjur til veiðiréttarhafa laxveiði-
áa sé vel á annan milljarð og fari
vaxandi. Þær tekjur séu víða
grundvöllur búsetu fólks á lands-
byggðinni og snar þáttur í vax-
andi ferðaþjónustu. Þá sé Island
eitt örfárra ríkja þar sem búsvæði
laxfiska séu svo til óröskuð og
stofnar þeirra óspilltir af meng-
un, ofveiði og sjúkdómum.
Víða bannað
Samkvæmt auglýstri reglugerð
landbúnaðarráðuneytisins er eldi
frjórra laxa í sjókvíum bönnuð á
eftirtöldum svæðum við strendur
landsins. I Faxaflóa frá Garð-
skaga að Malarrifi á Snæfeils-
nesi, frá Hellissandi að Látra-
Orri Vigfússon.
bjargi í Breiðafirði, frá Geirólfs-
gnúp að Siglunesi í Húnaflóa,
frá Bjarnarfjalli að Tjörnesstá við
Skjálfanda, frá Hraunhafnar-
tanga að Fonti á Langanesi og
þaðan að Glettinganesi.
Mistök
I upphaflegri ákvörðun ráðu-
neytisins náði bannið við sjókvía-
eldi laxa einnig til svæðisins frá
Glettinganesi að Dalatanga. Því
var hins vegar breytt og borið við
mistökum, enda hefði það komið
í veg fyrir áform um mikið laxeldi
í Seyðisfirði og víðar á Austfjörð-
um.
Fjárhagslegt tap
í veiðileyfum
Orri Vigfússon segir að afstaða
NASF sé einfaldlega sú að sjóð-
urinn vilji almennt ekki fá er-
lenda laxastofna inn í íslenska
náttúru. Af þeim sökum sé þessi
ákvörðun landbúnaðarráðuneyt-
isins ekkert sérstakt fagnaðar-
efni, enda hefði mátt gera þetta
mun betur. Hann spáir því að
það muni tapast 200 - 300 millj-
ónir króna í minni eftirspurn eft-
ir veiðileyfum vegna laxeldis í sjó.
Mikil áhætta
I því sambandi bendir hann á að
það hefði átt að gefa mönnum
tækifæri til að afla sér þekkingar
og þjálfunar til að öðlast þann
grunn sem sé forsenda fyrir
ákvörðun sem þessari. Þar vegur
umhverfisþátturinn þyngst. I
þessu máli hefðu stjórnvöld flýtt
sér um of án þess að vita hvað
þau væru að gera. Fyrir vikið sé
áhættan meiri en ella. Hann
bendir á að eftirleiðis séu Vest-
firðir, Austfirðir, Eyjafjörður og
Suðurland opið fyrir laxeldi í sjó.
Auk þess geta menn ekki horft
framhjá því að laxinn fer nánast
út um allt, rétt eins og fuglinn.
- GRH
■
Ikiiiyut var
verðlaunuð
Islenska barnamyndin Ikingut í
leikstjórn Gísla Snæs Erlingsson-
ar var um síðustu helgi valin besta
myndin á Alþjóðlegri barna-
myndahátíð í Montreal í Kanada
(Montreal International
Children's Film Festival), sem er
meðal virtustu barnamyndahátíða
heims. Danska myndin „Mirakle"
hlaut einnig verðlaun sem besta
mynd.
í umsögn dómnefndar segir að
Ikingut sé vel að verðlaununum
komin fvrir frábæra leikstjórn og
kvikmyndatöku, m\ndin sé afar
spennandi og efnistök einkennist
af hlýju og mannlegum sldlningi.
Ikingut hefur vakið mikla at-
hygli erlendis og verið boðið á
fjölda alþjóðlegra kvikmyndahá-
tíða. Hún verður meðal annars í
aðalkeppni á Giffoni Film Festival
á Italíu í júlí og á tveimur kvik-
myndahátíðum í Svíþjóð á næst-
unni, Barn- og ungdomsfilm-
festivalen í Malmö nú í mars og á
Stockholm International Film
Festival í Stokkhólmi í apríl.
Tolldómur kallar
á ný vmnubrögð
Snorri Olsen ríkistollstjóri mun í
næstu viku funda með yfirmönn-
um embættisins um viðbrögð við
hæstaréttardómi á fimmtudag,
þar sem dómurinn sagði að toll-
stjóranum í Beykjavík hafi verið
óbeimilt að opna fjórar bókasend-
ingar til Harðar Einarssonar sum-
arið 1999 í því skyni að nálgast
vörureikninga svo að ákvarða
mætti virðisaukaskatt af vörunni.
Ljóst er að dómurinn kallar á ný
vinnubrögð í fjölda tilvika, en
snertir þó ekki t.d. fíkniefnaleitir.
Dómur Hæstaréttar þýðir ein-
faldlega að tollgæslumenn megi
ekki opna póstsendingar í hvaða
tilgangi sem er. Það gangi gegn
einkalífsvernd stjórnarskrárinnar
auk meðalhófsreglu stjórnsýslu-
réttar að opna póstsendingar ef
t.d. skattheimtusjónarmiö ráða
aðallega ferð. Málið lítur að vax-
andi vandamáli í nútíma póst-
flutningum, þar sem vörureikn-
ingar eru gjarnan inní pökkunum,
Hörður Einarsson.
en tollgæslu er skylt að afla upp-
lýsinga um tollverðmætið og eng-
in önnur auðveld leið til þess til-
tæk en að opna sendinguna.
Kiuuiinn tryggi upplýsing-
arnar
Snorri Olsen er crlendis, en Sig-
valdi Friðgeirsson skrifstofustjóri
staðfestir að fundað verði um
málið í næstu viku. I dómsmálinu
taldi tollstjóri að tollalög hafi
heimilað þá framkvæmd sem um
væri deilt, en þar er kveðið á um
að tollgæslan megi skoða og rann-
saka allar vörur, sem lluttar væru
til landsins. Sigvaldi segir að
vegna dómsins verði gripið til
nýrra vinnubragða, en þær breyt-
ingar litu einnig að sendendum
og viðtakendum póstsendinga og
vörslumanna þeirra, þ.e. póstfyr-
irtækjanna.
„Það hefur aldrei verið í verka-
bring tollsins að leita upplýsinga
um verðmæti póstsendinga. Toll-
verð er grunnur allra gjalda og
þær upplýsingar eiga að vera til-
tækar frá þeim sem flytur send-
inguna inn. Ef til vill má segja að
tollurinn hafi viljað veita kúnnan-
um þjónustu með því að sækja
þessar upplýsingar, í stað þess að
endursenda pakkann eða grípa til
þess að evða pakkanum," segir
Sigvaldi. — fþg
Tvisýnt um úrslit
Borgarbúar kjósa um framtíðar-
nýtingu Vatnsmýrarinnar í dag,
laugardaginn 17. mars. Reiknað
er með að úrslit geti orðið tvísýn
enda hefur lítill munur verið á af-
stöðu manna í skoðanakönnun-
um í þessu þverpólitíska deilu-
máli um Reykjavíkurflugvöll.
Nokkur harka liefur hlaupið í
kosningabaráttuna á endasprett-
inum en miklir bagsmunir eru í
húfi fyrir þá sem vilja að völlurinn
fari eða veri. Talið er að verðmæti
flugvallarlandsins geti numið allt
frá 10-70 milljörðum króna eftir
nýtingarhlutfalli.
Kosió á sex stöðum
Kosningin, sem er rafræn, hefst
klukkan 10 og stendur yfir til
klukkan 20. Alls eru á kjörskrá
rúmlega 81 þúsund manns. Kjör-
staðir cru á sex stöðum í borginni,
í Ráðhúsinu, Kringlunni, Laugar-
nesskóla, Engjaskóla, Hagaskóla
og Seljaskóla. Kjósendur eru ekki
bundir ákveðnum kjörstöðum og
hafa því sjálfdæmi hvar þeir kjósa.
Búist er við lyrstu tölum fljótlega
eftir að kjörstöðum lokar en end-
anleg úrslit eiga að liggja fyrir eigi
síðar en klukkan 22 um kvöldið.
- GHH
Opnir
skurðír
Lífshætta
Frá framkvæmdum í Austurstræti. - mynd: e.ól.
i Austurstræti milli Póst
husstrætis og Ingólfs-
torgs er lokað fyrir
allri almennri umferð
nema gangandi vegfar-
endum til 16. júní 2001
Franlkvæmdir í Kvosiimi
Framkvæmdir eru þegar hafnar við endurbætur á götum og göngu-
lciöum í Kvosinni. Áætlað er að verkið muni kosta um 230 milljónir
króna. Búið er að loka vestari hluta Austurstrætis móts við Pósthús-
stræti vegna endurbóta þar. Reiknað er með að mestum hluta þessara
framkvæmda vcrði lokið um miðjan júní en alls verða gerðar endur-
bætur á nyðri hluta Aðalstrætis, Pósthússtræti, Hafnarstræti og Ing-
ólfstorgi. - GRH
Heiðrún til Símans
Heiðrún Jónsdóttir hefur verið ráðin forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningardeildar Símans
og hefur hún störf í næsta mánaði. I lún er lög-
maður að mennt og hefur starfað sem lögmaður
á Akureyri frá 1996 og frá 1998 verið starfs-
mannastjóri KEA og dótturlélaga þess. Heiðrún
hefur sinnt stundakennslu við Stýrimannaskól-
ann á Dalvík og Háskólann á Akureyri, auk þess
sem hún hefur skrifað ýmsar greinar um lögfræði
og starfsmannastjórnun. Heiðrún, sem er fædd
árið 1969, á soninn Jón Hallmar. — srs
Heiðrún Jónsdóttir.