Dagur - 17.03.2001, Blaðsíða 11
%»■
LAUGARDAGUR 17. MARS 200 1 - 35
Þeir ósnertanlegu fá ekki aðstoð til jafns við æðri stétta fólk.
Hamfarimar í Indlandi
skerpa stéttaskiptmgima
Stéttleysmgjax og
múslimar eru haíðir út
luidim þegar mat og
hjálpargögnum er út-
býtt.
Jarðskjálftinn sem reið yfír vestan-
vert Indland 26. janúar s.I. og
lagði fjölda bæja og byggða í rúst
og kostaði ótölulegan Ijölda fólks
lífið megnaði ekki að hreyfa við
hefðbundinni stéttaskiptingu á
þessum slóðum. Yfirstéttirnar
hreyfðu ekki legg né Iið til að að-
stoða þá ósnertanlegu og hirtu þau
hjálpargögn til eigin nota sem öll-
um voru ætluð.
I einu af hundruðum þorpa seni
urðu illa út vegna hamfaranna
reistu hermenn tjöld fyrir íbúana
til að hafast við í til bráðabirgöa.
En enginn flutti inn í þær tjald-
búðir. Astæðan var sú að her-
mennirnir reistu tjöldin í aðeins
1 5 metra Ijarlægð fá skýlum sem
hinir ósnertanlegu höfðu komið
sér upp. Æðri stétta fólk get ekki
unað því nábýli og hafðist heldur
við undir berum himni í hæfilegri
fjarlægð. Síðar þegar tjöldin voru
felld kom í ljós að enginn hafði
leitað þar skjóls. Hástéttinn get
ekki unað nábýlinu við úrkast
samfélagsins og það var fráleitt að
hinir ósnertanlegu fluttu úr fátæk-
legum skýlum sínum í tjöld sem
einnig voru ætluð æðri stétta fólki.
Indversku hermennirnir og aðr-
ar hjálparsveitir gátu lítið gert til
að láta eitt yfir alla ganga, því
hefði verið reynt að neyða þá
ósnertanlegu til að búa í nálægð
æðri stéttanna hefði það kostað
alls kyns vandræði og nóg var af
þeim fyrir á jarðskjálftasvæðun-
um.
Mörgum vikum eftir að jarð-
skjálftinn varð 30 þúsund manns
að bana í héraðinu Gujarat var
ljóst að sameiginlegt skipbrot allra
íbúanna hafði ekki megnað að
vinna bug á fordómum þeirra
hvers í garð annars. I Ijós kom að
ósnertanlegir hindúar og sárafá-
tækir múslimar nutu nánast ein-
slds af þeim hjálpargögnum og
matvælum sem bárust til héraðs-
ins. Hástéttirnar hirtu allt til eigin
nota og kærðu sig kollóttar hvað
varð um aðra íbúa héraðsins sem
Iifðu af.
1 bænum Adhoi voru ungar
stúlkur í skrúðgöngu eftir aðalgöt-
unni þegár ósköpin dundu vfir.
Eitir skjálftann var gatan ein grjót-
hrúga. Allir bæjarbúar hjálpuðust
að við að grafa og náðu upp 400
líkum. Daginn eftir kom bílalest
með mat og hjálpargögn. Hástétt-
irnar tóku það allt til sín og datt
engum í hug að öllum bæjarbúum
var ætluð björgin.
I öðrum bæ sem hruninn var
nær til grunna, fengu hinir ósnert-
anlegu engan mat þrjá lyrstu dag-
ana eftir skjálftann. Bílalest kom
með matvæi en æðri stéttar menn
sögu að komin væri upp drepsótt
meðal stéttleysingjanna og væri
vafasamt að koma nærri þeim.
Einn þeirra sagði síðar, að fólkið
hefði dáið úr hungri nema fyrir
það, að svvami, sem er heilagur
maður, kom með þriggja bíla leið-
angur og útbýtti aðstoðinni til
þeirra fátækustu og fyrirlitlegustu.
Þar sem endurbygging er hafin
sækir allt í sama horfið og fýrr.
Stéttleysingjar hafast við í búðum
Ijarri íverustöðum æðri stéttanna
og dettur engum sú ósvinna í hug,
að allir séu jafnir og eigi sama rétt
til lífsgæða.
Stéttaskiptingin er flókin því
stigin eru mörg og margt að varast
í samskiptum. I hjálparstöð sem
stjórnað er af hindúum eru
múslimar neyddir til að fara mcð
hindúablessunarorð áður en þeir
fá nokkra matarögn.
Ef hægt er að gera upp á milli
stétta og trúarbragða austur þar,
eru múslimar sem búa á jarð-
skjálftasvæðunum í Vestur-Ind-
landi jafnvel enn verr settir en þeir
ósnertanlegu. Þeir eiga nánast
engan tilverurétt.
Bærinn Gurjarat, sem áður er
minnst á, er fæðingarstaður Ma-
hatma Gandhi, sem barðist á móti
stéttaskiptingunni. Núna er hinn
hægrisinnaði Janataflokkur alls-
ráðandi í bænum og fer með öll
æðstu völd í Indlandi.
Bush vill enu frekari skattalækkanir
WASHINGTON - Bush og hans menn í
Hvíta húsinu beita bandaríska þingið nú
nokkrum þrýstingi að lækka skatta talsvert
meira en áætlað hafði verið þegar á þessu ári,
í því skyni að sjá hvort það muni ekki örva
efnahagslífið. Þetta kom fram í USA Today í
gær. Þar segir ennfremur að fjármálaráðherr-
ann, Paul O’Neill, hafi rætt það við öldunga-
deildarþingmenn að áætlanir forsetans
óbreyttar myndu ekki duga til þess að ná
þeirri örvun efnahagslífsins sem að er stefnt
og að nær væri að fórna einhverju af þeim
mikla afgangi sem fyrirsjáanlegur væri á fjárhag ríkissjóðs í ár, 2001
til þess að ná fram þessum örvunaráhrifum.
George W. Bush.
Flugræuiugjar yfirhugaðir
MEDINA, Saudi Arabia - Hersveitir frá Saudi Arabíu réðust inn í
rússnesku farþegavélina sem rænt var á fimmtudag og tókst þeim að
frelsa yfir 100 farþega úr vélinni. Arásin var gerð eftir að ræningarn-
ir höfðu hótað að sprengja upp vélina. Þrír létust í þessari árás sem
gerð var um hábjartan dag - eftir því sem næst verður komist er einn
flugræningjanna látinn og tveir farþeganna. Hinir flugræningjarnir
voru yfirbugaðir og teknir höndum. Talið er að ræningjarnir séu frá
Teténíu og rændu þeir vélinni á fimmtudag þegar hún var í flugtaki
frá flugvellinum í Istanbul. Kröfurnar sem þeir settu fram voru þær
að Rússar Iétu af hernaði gegn múslimum löndum þeirra í heimahér-
aði þeirra í Teténíu.
ísraelsmeim særa 12 Palesíniimeim
JERUSALEM - fsraelskar hersveitir særðu þrjá Palestínumenn
skotsárum á Gazasvæðinu í gær og slösuðu nfu til viðbótar á Vestur-
bakkanum með því að skjóta á þá gúmmíhúðuðum málmkúlum.
Þessi síðustu átök brutust út í kjölfar mótmæla gegn vegatálmum
Israelsmanna inn á sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna. Kaldhæðni
örlaganna hagar því þannig til að þessi óánægja brýst út með þessum
hætti rétt eftir að stjórnvöld f ísrael hafa lýst því yfir að þau hyggist
slaka á ferðatakmörkunum við þessa vegatálma
Hlíðarnar í kringum bæinn Tetovo í Makedóníu eru rjúkandi af stórskota-
liðssprengjum.
Barist í Makedóníu
TETOVO, Makedóníu -Herveitir Makedóníu börðust við albanska
uppreisnarmenn í úthverfum bæjarins Tevoto í Makedóníu í gær, en
það var þriðji dagurinn sem bardagar og oflreldi geisaði á þessum
slóðum. Er nú svo komið að stjórnvöld og alþjóðastofnanir eru farn-
ar að hafa verulegar áhyggjur af stöðugleikanum á þessu svæði og ná-
grenni þess.
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
LAUGARDAGUR 17. MARS
76. dagur ársins, 289 dagar eftir.
Sólris kl.7.39, sólarlag kl. 19.35.
Þetta gerðist 17. mars
• 1987 voru prestskosningar afnumdar að
mestu leyti hér á landi.
• 1969 tók Golda Meir við embætti for-
sætisráðherra í Israel.
• 1966 fann bandarískur dvergkafbátur
týnda vetnissprengju út af strönd Spán-
ar, sem bandarísk sprengjuflugvél hafði
óvart misst útbyrðis.
• 1942 kom Douglas MacArthur hers-
höfðingi til Astralíu tii þess að taka að
sér yfirstjórn Kyrrahafsflotann i seinni
heimsstyrjöldinni.
• 1917 kom Tfminn út í fyrsta sinn, en
varð reyndar ekki daghlað fyrr en 1947.
• 461 er sagt að heilagur Patrekur, vernd-
ardýrlingur Írlands, hafi látist.
Vefföng dagsins
Þann 1 5. þessa mánaðar opnaði formaður
menningarmálanefndar Akureyrar Þröstur
Ásmundsson vef gallerí listamannsins
Lárusar H. List. Á vefsíðu Lárusar er að
finna upplýsingar um listamannin, mynd-
ir af málverkum og ágrip úr fjölmiðlagagn-
rýni. Einnig eru nokkrar myndir úr minda-
safni Lárusar af samferðamönnum hans á
listasviðinu undir hnappnum Séð og
heyrt. Slóðin er http://larushlist.com
Vísa dagsins
Alla leiðfráAdams tíð
allt er f sömu shorðum.
Drottins höndin hög og hlíð
hengdi það svona forðmn.
\ heodora Thoroddsen
Auðæfi líkjast sjávarvatninu: Því meira
sem rnaður drekkur af því, þeim mun
þyrstari verður maður.
Arthur Schopenhauer (1788-1860»
Þau fæddust 17. mars
• 1964 Rob Lovve, bandarískur leikari.
• 1955 Gary Sin-
ise Ieikari.
•1951 Kurt
Russel, banda-
rískur leikari.
• 1938 Rudolf
Nurejev, rúss-
neskur ballett-
dansari.
• 1937 Páll Pét-
ursson ráð-
herra.
• 1919 Nat King
Cole, banda-
rískur djasspí-
anóleikari sem síðar hlaut vinsældir
sem dægurlagasöngvari.
• 1899 Glora Swanson, bandarísk kvik-
myndaleikkona.
• 1895 Arndís Björnsdóttir leikkona.
• 1686 Jean-Baptiste Oudrv, franskur
Iistmálari og teiknari.
Heilabrot
í þessari gátu eru þrjúr villur, og lausnin er
fólgin í því að fynna hverjar þær eru.
Síðasta gáta: Arabískur auðjöfur átti tvo
syni. Þegar hann dó skildi hann eftir sig
fyrirmæli um að synir hans tvær ættu að
fara í kappreiðar og sá þeirra sem ætti þann
hestinn sem tapaði skyldi erfa allar eigur
sínar. Þegar kom að kappreiðunum riðu
synirnir báðir löturhægt af stað og námu
loks báðir staðar ráðvilltir með öllu. Þá
kom þar að gamall maður sem hlýddi á
sögu þeirra og gaf þeim síðan ráð. Eftir að
hal’a heyrt ráðið stukku þeir bræður þegar f
stað á bak hestunum og riðu eins hratt og
þeim var unnt rakleiðis í markið. I Ivcrt var
ráð gamla mannsinsr
Lausn: Að skipta um hesta, þannig að hvor
riði á hesti hins.